Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Xi og Kim heita nánari samvinnu Xi Jinping og Kim Jong Un, ráðendur Kína og Norður-Kóreu, hafa heitið því að auka samvinnu ríkjanna. Það gerðu þeir í skilaboðum sem þeir sendu hvorum öðrum á dögunum. Í skilaboðum til Xi sagði Kim að náið samband Norður-Kóreu og Kína væri nauðsynlegt í ljósi óvinveittra erlendra afla. 10.7.2021 23:14
Hitinn í Dauðadalnum til jafns við níutíu ára gamalt en ótrúverðugt met Hitinn í Dauðadalnum svokallaða í Kaliforníu í Bandaríkjunum mældist í gær 54,4 gráður. Verði sú mæling staðfest er það álíka hátt 90 ára gömlu hitameti. 10.7.2021 18:48
Bandaríkin og SÞ verða ekki við beiðni Haítí um hermenn Ríkisstjórn Bandaríkjanna hefur hafnað beiðni ráðandi fylkinga á Haítí um að senda hermenn til ríkisins. Starfandi ríkisstjórn Haítí hefur einnig beðið Sameinuðu þjóðirnar um að senda þeim hermenn til aðstoðar eftir að Jovenel Moise, forseti landsins, var skotinn til bana á heimili sínu í vikunni af hópi málaliða frá Kólumbíu. 10.7.2021 18:04
Hófu skothríð á palestínska mótmælendur Hundruð palestínskra mótmælenda særðust þegar Ísraelsher hóf skothríð á þá í gær. Mótmælendurnir höfðu safnast saman við ólöglega útvarðarstöð Ísraelsmanna á Vesturbakkanum til að mótmæla henni. 10.7.2021 08:58
Biden hótar Pútín aðgerðum vegna rússneskra hakkara Hvíta húsið tilkynnti í dag að Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, hefði varað kollega sinn Vladimír Pútín við því að Bandaríkin myndu „verja þegna sína“ gegn rússneskum tölvuárásum. 9.7.2021 23:47
Minnst 52 látin eftir eldsvoða í Bangladess Eldur kviknaði í matvælaverksmiðju í Bangladess í gær. Talið er að hluti fórnarlambanna hafi verið læstur inni í verksmiðjunni. 9.7.2021 23:04
Talibanar ráða flugmenn markvisst af dögum Vígamenn Talibana hafa ráðið minnst sjö flugmenn í flugher Afganistans af dögum á undanförnum mánuðum. Talibanar reyna markvisst að myrða flugmenn sem hafa verið þjálfaðir af Bandaríkjunum og Atlantshafsbandalaginu til að draga úr yfirburðum stjórnarhers landsins í lofti og loftárásum. 9.7.2021 15:48
Engin bilun varð í vélarbúnaði flugvélarinnar sem hrapaði Níu fórust í flugslysi í Örebro í Svíþjóð í gær. Umfangsmikil rannsókn um orsakir og aðdraganda slyssins stendur nú yfir en samkvæmt gögnum sem sænska ríkisútvarpið hefur undir höndum er ekkert sem bendir til þess að bilun í vélinni hafi valdið því að hún hrapaði. 9.7.2021 14:54
Couzens játar að hafa myrt Everard Breski lögreglumaðurinn Wayne Couzens hefur játað að hafa myrt Söruh Everard í mars síðastliðnum Couzens rændi Everard, þegar hún var að ganga heim frá vini sínum í Clapham þann 3. mars, áður en hann keyrði með hana í burt á bíl sem hann hafði tekið á leigu. 9.7.2021 13:01
Grábjörn dró konu úr tjaldi og drap hana Grábjörn dró konu út úr tjaldi hennar í bænum Ovando í Montana og banaði henni í vikunni. Þrátt fyrir mikla leit hefur ekki tekist að finna og fella björninn. Konan hét Leah Davis Lokan og var 65 ára gömul. Hún var í hópi hjólreiðamanna sem var á ferð um svæðið. 9.7.2021 12:46
Hefja nýja rannsókn á flaki Estonia í dag Ný rannsókn um orsök Estonia-slyssins hefst í dag og munu kafarar meðal annars halda niður að flaki farþegaferjunnar til að rannsaka gat á síðu skipsins sem sænskir heimildargerðarmenn uppgötvuðu í fyrra. Skipið hvílir nú á hafsbotni í Eystrasalti eftir að hafa sokkið í óveðri aðfaranótt 28. september 1994. 9.7.2021 11:41
Reyna að púsla atburðarásinni á Haítí saman og heita því að hafa hendur í hári höfuðpaursins Yfirmenn lögreglunnar á Haítí vinna nú að því að púsla saman þeim upplýsingum sem fyrir liggja um morð Jovenel Moise, forseta landsins, sem skotinn var til bana á heimili sínu aðfaranótt miðvikudags. Hópur þungvopnaðra málaliða réðst á heimili hans og skaut hann til bana, auk þess sem eiginkona hans var særð lífshættulega. 9.7.2021 11:09
Sænskt par dæmt fyrir 181 nauðgun gegn barni Sænskt par var í morgun sakfellt fyrir að hafa ítrekað nauðgað og misnotað tvö börn og að hafa átt og framleitt gríðarlegt magn af barnaklámi. Konan var dæmd í átta og hálfs árs fangelsi en maðurinn var dæmdur í 13 ára og sex mánaða fangelsi. 9.7.2021 11:00
Heimilisofbeldi í Englandi eykst um 38 prósent þegar enska liðið tapar Umfangsmikil herferð gegn heimilisofbeldi hefur farið af stað í Englandi vegna þátttöku Englands á Evrópumeistaramótinu í fótbolta. Englandi hefur gengið nokkuð vel í keppninni og mun leika til úrslita gegn Ítalíu á mótinu á sunnudaginn næsta. 9.7.2021 10:16
Sendiherrann kallaður heim án tafar eftir að frúin löðrungar í annað sinn Sendiherra Belgíu í Seúl hefur verið kallaður heim „án tafar“ eftir að eiginkona hans réðist að almennum borgara í annað sinn á fjórum mánuðum. Peter Lescouhier átti að snúa til Belgíu seinna í mánuðinum vegna fyrra atviksins en hefur nú verið skipað að fljúga heim hið fyrsta. 9.7.2021 09:05
Búa sig undir aðra hitabylgju vestanhafs Íbúar og ráðamenn vesturstrandar Bandaríkjanna undirbúa sig nú fyrir aðra hitabylgju um helgina. Stutt er síðan hitamet voru slegin víðsvegar um norðvesturströnd Bandaríkjanna og vesturströnd Kanada í gífurlegra öflugri hitabylgju sem banaði hundruð manna. 9.7.2021 09:04
Evrópuþingið hvetur diplómata til að sniðganga vetrarólympíuleikana í Pekíng Evrópuþingið hefur samþykkt ályktun þar sem diplómatar eru hvattir til að sniðganga vetrarólympíuleikana í Pekíng vegna mannréttindabrota kínverskra stjórnvalda. 9.7.2021 08:36
Sækja um að gefa þriðja skammtinn ári eftir seinni skammtinn Lyfjaframleiðandinn Pfizer hefur sótt eftir leyfi fyrir því að gefa þriðja skammtinn af Covid-19 bóluefni sínu. Pfizer segir að frumniðurstöður rannsókna bendi til að mótefni hjá fólki fimm- til tífaldist eftir þriðja skammtinn. 9.7.2021 07:48
Allt herlið horfið frá Afganistan fyrir lok sumars Joe Biden Bandaríkjaforseti lofaði því í gærkvöldi að hann muni ekki senda aðra kynslóð Bandaríkjamanna í stríðreksturinn í Afganistan sem nú hefur staðið í tvo áratugi. 9.7.2021 07:43
Tókst að stafsetja „querimonious“ og „solidungulate“ Hin 14 ára Zaila Avant-garde er fyrsta svarta bandaríska ungmennið sem vinnur hina víðfrægu Scripps-stafsetningarkeppni. Avant-garde, sem er frá New Orleans í Louisiana, sigraði með því að stafa orðið „murraya“, sem er trjátegund sem vex í hitabeltinu. 9.7.2021 07:36
Risapandan ekki lengur í útrýmingarhættu Kínversk stjórnvöld segja risapönduna ekki lengur í bráðri útrýmingarhættu en stofninn sé enn viðkvæmur. Fjöldi villtra risapanda hefur nú náð 1.800. 9.7.2021 07:05
Handtóku banamenn forsetans í sendiráði Taívan Lögregluyfirvöld á Haíti segjast hafa handtekið sautján málaliða sem tóku þátt í árásinni á forseta landsins á miðvikudag. Forsetinn, Jovenel Moise var skotinn til bana þegar hópur þungvopnaðra manna réðst á heimili hans. 9.7.2021 06:49
Tveir Bandaríkjamenn grunaðir um aðild að morðinu á Moïse Sex manns hafa verið handteknir í tengslum við morðið á Jovenel Moïse, forseta Haítí. Tveir eru karlmenn af bandarískum og haítískum uppruna. 8.7.2021 22:16
Níu látnir eftir alvarlegt flugslys í Svíþjóð Níu eru látnir eftir að lítil flugvél hrapaði á flugvellinum í Örebrö í Svíþjóð um klukkan fimm að íslenskum tíma. Átta farþegar voru um borð í vélinni auk flugmanns en hún hrapaði skömmu eftir flugtak og lenti rétt fyrir utan flugbrautina. 8.7.2021 20:14
Einn skammtur ekki nógu góð vörn gegn útbreiðslu delta afbrigðisins Ný rannsókn á delta afbrigði Nýju kórónuveirunnar sýnir fram á mikilvægi þess að fólk láti bólusetja sig að fullu og þá ógn sem stökkbreytingar skapa. Delta afbrigðið, sem greindist fyrst á Indlandi og er sagt smitast auðveldar manna á milli, hefur keyrt uppsveiflur í fjölda smitaðra víðsvegar um heiminn á undanförnum mánuðum. 8.7.2021 15:55
Kort Sóttvarnastofnunar Evrópu grænkar Fleiri ríki hafa bæst í hóp grænna ríkja á Covid-korti Sóttvarnastofnunar Evrópu. Ísland hefur lengi verið grænmerkt á kortinu en Eystrasaltsríkin þrjú, Frakkland, Þýskaland og Ítalía bætast við auk fleiri ríkja. 8.7.2021 15:30
Kvenhermenn í Úkraínu fá þægilegri hælaskó Varnarmálaráðuneyti Úkraínu hefur tilkynnt að kvenkyns hermenn muni fá „þægilegri“ hælaskó til að klæðast eftir að ráðuneytið var gagnrýnt harðlega fyrir að láta herkonurnar marséra í háum hælum. 8.7.2021 14:41
Fjórtán greindust í Færeyjum í gær Fjórtán greindust með kórónuveiruna í Færeyjum í gær. Á síðunni korona.fo kemur fram að tíu hafi greinst innanlands og fjórir á landamærum. 8.7.2021 14:08
Johnson kallar herlið Bretlands í Afganistan heim Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, tilkynnti í dag að herlið Bretlands í Afganistan verði fljótlega kallað aftur heim. Breskar hersveitir hafa verið með viðveru í Afganistan í tuttugu ár, frá hryðjuverkaárásinni á Tvíburaturnana árið 2001. 8.7.2021 13:53
Fresta réttarhöldum yfir 47 lýðræðissinnum um ellefu vikur Saksóknarar hafa frestað réttarhöldum yfir 47 lýðræðissinnum í Hong Kong, sem blésu til prófkjörs sem dæmt var ólöglegt, um ellefu vikur. 8.7.2021 13:04
Pólitísk framtíð Haítí í óvissu: Tveir menn telja sig forsætisráðherra Pólitísk framtíð Haítí er í töluverðri óvissu eftir að Jovenel Moise, forseti ríkisins, var myrtur af hópi þungvopnaðra manna sem réðust á heimili hans í Port-au-Prince, aðfaranótt miðvikudags. Tveir menn segjast vera forsætisráðherra ríkisins. 8.7.2021 12:31
Telja að hinn fullorðni hafi myrt börnin í lestarslysinu Lögreglan í Hässleholm í Svíþjóð segir að frumrannsókn vegna lestarslyssins sem varð í gærmorgun í Tormestorp, rétt fyrir utan Hässleholm, muni taka langan tíma. Þrír dóu í slysinu, þar af tvö börn, en morðrannsókn hófst í gær aðeins klukkutímum eftir slysið. 8.7.2021 11:33
Sakfelldur fyrir kynferðisofbeldi gegn börnum niður í eins árs aldur Sænskur karlmaður á sjötugsaldri var í dag dæmdur í tíu ára fangelsi fyrir að hafa beitt börn á aldrinum eins til tólf ára kynferðislegu ofbeldi. Maðurinn var meðal annars ákærður fyrir að hafa nauðgað barni, kynferðislega brotið á átta börnum og að hafa átt barnaníðsefni. 8.7.2021 11:01
Engin bóluefni í Norður-Kóreu, þrátt fyrir ítrekuð boð Rússar hafa boðist til að senda skammta af bóluefninu Spútnik 5 til Norður-Kóreu. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem slíkt boð berst til Norður-Kóreu en Rússar hafa til að mynda boðið einræðisríkinu bóluefni áður. 8.7.2021 11:01
Heita því að vista Assange ekki við verstu aðstæður og leyfa honum að afplána í Ástralíu Bandarísk stjórnvöld hafa heitið því að vista Julian Assange ekki við verstu aðstæður ef hann fæst framseldur frá Bretlandi. Þá yrði honum heimilað að afplána mögulegan dóm í heimalandi sínu, Ástralíu. 8.7.2021 10:37
Telja hitabylgjuna hafa drepið milljarð sjávardýra við strendur Kanada Talið er að meira en milljarður sjávardýra við strendur Kanada að Kyrrahafinu hafi drepist í síðustu viku þegar hitabylgja, sem sló hvert hitametið á fætur öðru, reið yfir landið. Sérfræðingar vara við því hvað hitabreytingar, þó þær virðist litlar fyrir okkur mannfólkið, geta verið hættulegar vistkerfum sem eru óvön svona veðuröfgum. 8.7.2021 10:29
Forsetinn íhugar alvarlega að bjóða sig fram til varaforseta Forseti Filippseyja segist vera að íhuga það alvarlega að bjóða sig fram til varaforseta. Ástæðan er sú að lögum samkvæmt getur hann ekki sóst eftir endurkjöri en hann segist enn eiga ýmsu ólokið. 8.7.2021 10:09
Lýsa yfir neyðarástandi í Tókýó fram yfir Ólympíuleikana Stjórnvöld í Japan hafa lýst yfir neyðarástandi í höfuðborginni Tókýó fram yfir Ólympíuleikana sem fram fara í borginni dagana 23. júlí til 8. ágúst. Þetta staðfesti forsætisráðherrann Yoshihide Suga í dag. 8.7.2021 09:14
Fjórar milljónir dánar: Yfirmaður WHO skýtur fast á ríkari þjóðir heims Skráð dauðsföll vegna Covid-19 eru nú komin yfir fjórar milljónir. Rúmt eitt og hálft ár er síðan faraldur nýju kórónuveirunnar, sem veldur Covid-19, hófst í Kína. Þessi áfangi, ef svo má kalla, náðist í gær en yfirmaður Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar og sérfræðingar segja raunverulegu töluna vera hærri. 8.7.2021 09:04
Dæmdur í 30 ára fangelsi fyrir að hafa myrt ættingja vegna ímyndaðs fjársjóðs Franskur maður sem myrti fjóra ættingja sína, þar af tvö börn, í leit að gullfjársjóði sem hann taldi þá hafa falið fyrir sér hefur verið dæmdur í 30 ára fangelsi. 8.7.2021 08:42
Telja engar líkur á að finna fólk á lífi í rústunum Borgarstjóri í Miami-Dade á Flórída segir nú engar líkur vera á að finna fólk á lífi í rústum íbúðabyggingarinnar sem hrundi á Surfside í Miami 24. júní síðastliðinn. Því sé starfið þar nú ekki lengur skilgreint sem björgunaraðgerð heldur leitaraðgerð. 8.7.2021 08:35
Aðför gerð að hinsegin samfélaginu á WeChat Kínverskir netverjar eru klofnir í afstöðu sinni til nýjasta útspils tæknirisans Tencent, sem á samskiptamiðilinn WeChat. Á þriðjudag var fjölda aðganga hinsegin hópa lokað og öllum gömlum færslum eytt. 8.7.2021 08:04
Zuma gefur sig fram og hefur afplánun Fyrrverandi forseti Suður-Afríku, Jacob Zuma, hefur gefið sig fram við lögreglu og hafið afplánun eftir að hafa verið dæmdur í fimmtán mánaða fangelsi á dögunum. 8.7.2021 07:28
Tilfellum fjölgar enn þrátt fyrir útgöngubann Þrátt fyrir að útgöngubann hafi verið í gildi í Sydney í Ástralíu í tvær vikur vegna aukinnar útbreiðslu kórónuveirunnar halda tilfellinn áfram að hrannast upp og í gær voru fleiri greindir smitaðir á einum sólarhring en í fjórtán mánuði þar á undan. 8.7.2021 07:11
Lögregla segist hafa banað fjórum tilræðismönnum Moïse Lögreglan á Haítí skaut í gærkvöldi fjóra til bana sem grunaðir eru um að hafa myrt forseta landsins síðastliðinn miðvikudag. Til skotbardaga kom á milli mannana og lögreglu sem lauk með þessum hætti en að sögn lögreglu eru tveir aðrir grunaðir í haldi. 8.7.2021 06:56