Erlent

Engin bóluefni í Norður-Kóreu, þrátt fyrir ítrekuð boð

Samúel Karl Ólason skrifar
Starfsmenn skóla í Pyongang sótthreinsa kennslustofu.
Starfsmenn skóla í Pyongang sótthreinsa kennslustofu. AP/Cha Song Ho

Rússar hafa boðist til að senda skammta af bóluefninu Spútnik 5 til Norður-Kóreu. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem slíkt boð berst til Norður-Kóreu en Rússar hafa til að mynda boðið einræðisríkinu bóluefni áður.

BBC hefur eftir Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, að Rússar hafi nokkrum sinnum boðið Norður-Kóreu bóluefni en því hafi verið hafnað.

Öllum slíkum boðum hefur verið hafnað af ríkisstjórn Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu. Þess í stað hefur verið gripið til umfangsmikilla sóttvarna sem eru sagðar eiga þátt í hungursneyð þar.

Undir lok júlí sögðu ríkismiðlar Norður-Kóreu frá því að Kim hefði skammað hátt setta embættismenn fyrir eitthvað sem lýst var sem afdrifarík mistök í að koma í veg fyrir útbreiðslu nýju kórónuveirunnar og það hefði valdið miklu neyðarástandi.

Þau orð hafa verið talin til marks um að faraldurinn sé að leika Norður-Kóreu grátt um þessar mundir en eðli málsins samkvæmt er erfitt að sannreyna fregnir af einræðisríkinu einangraða. Frá upphafi faraldursins hafa ráðamenn í Norður-Kóreu staðhæft að veiran hafi ekki teygt anga sína þangað.

Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin sagði í síðustu viku að 31.794 hefðu verið skimaðir fyrir veirunni og enginn hefði greinst smitaður.

Sjá einnig: Ákúrur Kim kveikja áhyggjur af faraldri í Norður-Kóreu

Kim lokaði landamærum Norður-Kóreu þegar faraldurinn hófst. Þær lokanir hafa komið verulega niður á viðskiptum við Kína, sem útvegar einræðisríkinu ýmsar nauðsynjar eins og eldsneyti og matvæli.

Það, viðskiptaþvinganir og náttúruhamfarir hafa leitt til matvælaskorts og hungursneyðar.

AP fréttaveitan hefur eftir leyniþjónustu Suður-Kóreu að þar á bæ hafi engar vísbendingar sést um að Kim hafi verið bólusettur gegn Covid-19. Sömuleiðis hafi þeir engar upplýsingar um að bóluefni hafi borist til ríkisins.

Þetta mun hafa komið fram á fundi forsvarsmanna leyniþjónustunnar með þingmönnum í dag.

Frá COVAX verkefninu hafa borist þær upplýsingar að Norður-Kórea gæti fengið 1,9 milljón skammta bóluefna á fyrri hluta ársins. Það var þó í febrúar og þessi sending hefur ekki borist enn.

Segja fólki að vonast ekki eftir bóluefnum

Þingmenn í Suður-Kóreu hafa haft eftir leyniþjónustunni að embættismenn í Norður-Kóreu hafi gert þegnum sínum, sem eru um 26 milljónir talsins, ljóst að þeir ættu ekki að vonast eftir bóluefnum erlendis frá og ættu þess í stað að passa upp á sóttvarnir.

Opinbert dagblað Norður-Kóreu birti í morgun ítarlega grein um það að smituðum hafi farið fjölgandi í Suður-Kóreu og að áhyggjur séu uppi um að fjórða bylgjan í ríkinu gæti orðið umfangsmikil.

Yonhap fréttaveitan segir mjög sjaldgæft að fjölmiðlar í Norður-Kóreu fjalli um Covid-19 í Suður-Kóreu.

Miðlarnir hafi fjallað um helstu vendingar í faraldrinum á heimsvísu en bara lítillega um Suður-Kóreu. Fréttaveitan hefur eftir Sameiningarráðuneyti Suður-Kóreu að þetta sé í fyrsta sinn síðan í júní í fyrra sem Suður-Kórea er nefnd í fyrirsögn í dagblaðinu, sem heitir Rodong Sinmun.

Fregnir hafa borist af því að Kim hafi lækkað herforingja í tign og að æðstu embætti Kommúnistaflokks Norður-Kóreu séu nú að mestu leyti í höndum almennra borgara en ekki herforingja. Samkvæmt frétt Reuters telja sérfræðingar það mögulega til marks um að Kim sé ósáttur við það hvernig búið sé að halda á málum í einræðisríki sínu og vilji leggja meiri áherslu á hagkerfið.


Tengdar fréttir

Fjórar milljónir dánar: Yfirmaður WHO skýtur fast á ríkari þjóðir heims

Skráð dauðsföll vegna Covid-19 eru nú komin yfir fjórar milljónir. Rúmt eitt og hálft ár er síðan faraldur nýju kórónuveirunnar, sem veldur Covid-19, hófst í Kína. Þessi áfangi, ef svo má kalla, náðist í gær en yfirmaður Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar og sérfræðingar segja raunverulegu töluna vera hærri.

Fram­lengja út­göngu­bann í S­yd­n­ey

Yfirvöld í Nýju-Suður Wales í Ástralíu hafa ákveðið að framlengja útgöngubann í stórborginni Sydney um viku til viðbótar, eða til 16. júlí. Útgöngubanninu var komið á fyrir rúmum tveimur vikum í tilraun til að hefta útbreiðslu delta-afbrigðis kórónuveirunnar.

Segja virkni bóluefnis Pfizer minnka

Ísraelar segjast hafa mælt samdrátt í virkni bóluefnis Pfizer gegn Covid-19. Sérstaklega varðandi það að koma í veg fyrir smit og að smitaðir sýni einkenni. Bóluefnið komi þó áfram vel í veg fyrir alvarleg veikindi.

„Verðum að læra að lifa með vírusnum“

Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, tilkynnti í dag nýja áætlun ríkisstjórnar hans um það að „lifa með Covid-19“ en sú áætlun snýr að því að fella niður sóttvarnaaðgerðir og félagsforðun á Englandi. Niðurfellingarnar munu hefjast þann 19. júlí.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×