Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fíll braust inn á heimili í Taílandi Ratchadawan Puengprasoppon vaknaði upp við mikinn skarkala á heimili sínu í Taílandi á laugardaginn. Þegar hún fór fram kom hún auga á stærðarinnar fíl sem hafði brotist inn til hennar. 21.6.2021 23:47
Evrópusambandið vill draga úr framboði á bresku sjónvarpsefni Evrópusambandið hyggst skerða hlut breskra sjónvarpsframleiðenda á mörkuðum sínum eftir að Bretland gekk úr sambandinu. Bretland er stærsti framleiðandi sjónvarpsefnis í Evrópu með mikil yfirráð á þeim markaði. 21.6.2021 23:33
Vilja setja Biden út af sakramentinu vegna þungunarrofs Bandarískir biskupar kaþólsku kirkjunnar virtu vilja páfa að vettugi þegar þeir samþykktu tillögu sem gæti leitt til þess að Joe Biden forseta yrði neitað um fá að ganga til altaris í messu vegna þess að hann styður rétt kvenna til meðgöngurofs. Íhaldsmönnum innan kirkjunnar vex nú ásmegin vestanhafs. 21.6.2021 21:01
Týnda prinsessan í fríi á Spáni Mynd sem birtist á Instagram virðist sýna Latifu prinsessu af Dubai á flugvellinum í Madríd. Varla hefur sést eða heyrst til prinsessunnar í marga mánuði en nýlegar myndir af henni hafa vakið upp vonir um að hún sé heil á húfi. 21.6.2021 15:54
Blaðamaður bætist í hóp handtekinna í Níkaragva Herferð Daniels Ortega, forseta Níkaragva, gegn stjórnarandstöðunni í landinu hélt áfram þegar lögregla handtók Miguel Mora, blaðamann og stjórnarandstæðing, í gærkvöldi. Ortega hefur nú látið handtaka á annan tug stjórnarandstæðinga og mögulegra keppinauta í forsetakosningum í haust. 21.6.2021 14:49
Ætlar að veita katalónskum aðskilnaðarsinnum uppreist æru Forsætisráðherra Spánar hefur tilkynnt það að hann hyggist veita katalónskum aðskilnaðarsinnum uppreist æru í þessari viku. Níu leiðtogar aðskilnaðarhreyfingarinnar voru fangelsaðir fyrir að hafa boðað til sjálfstæðisbyltingar árið 2017. 21.6.2021 13:46
Nýkjörinn forseti Íran þverneitar að hitta Biden Ebrahim Raisi, nýkjörinn forseti Íran, hefur ekki nokkurn áhuga á því að hitta Joe Biden Bandaríkjaforseta. „Nei,“ svaraði hann einfaldlega, spurður á blaðamannafundi í dag. 21.6.2021 12:33
Kórónuveiran hefur ekki hrakið fleiri í foreldrahús Sú flökkusaga að kórónuveirufaraldurinn hafi orðið til þess að bresk ungmenni flúðu umvörpum aftur í foreldrahús á sér ekki stoð í raunveruleikanum. Einstaklingum á aldrinum 18 til 34 sem búa í foreldrahúsum hefur þvert á móti fækkað. 21.6.2021 11:41
Segir Boris hafa verið undir álagi þegar hann kallaði hann „fokking vonlausan“ Matt Hancock, heilbrigðisráðherra Bretlands, hefur tjáð sig um miður falleg ummæli Boris Johnson í sinn garð en á dögunum var greint frá því að forsætisráðherrann hefði kallað Hancock „algjörlega fokking vonlausan“ í textaskilaboðum. 21.6.2021 11:07
Leiðtogi Sannra Finna dregur sig í hlé Jussi Halla-aho, leiðtogi Sannra Finnra, ætlar ekki að sækjast eftir endurkjöri í formannskjöri á landsfundi flokksins í Seinäjoki í ágúst. Hann segist þó ætla að sitja áfram sem þingmaður flokksins. 21.6.2021 10:53
Háskólamaður sakaður um að selja rússneskum njósnara gögn Þýskir saksóknarar segja að aðstoðarmaður við rannsóknir í háskóla þar í landi hafi verið handtekinn, grunaður um njósnir fyrir rússnesku leyniþjónustuna fyrir helgi. 21.6.2021 10:29
Löfven til í að leiða ríkisstjórn áfram Stefan Löfven og Jafnaðarmannaflokkur hans eru tilbúnir til þess að halda áfram að axla ábyrgð á stjórn Svíþjóð eftir að þingið lýsti vantrausti á hendur honum í morgun. Hann hefur viku til að ákveða næstu skref. 21.6.2021 10:11
Sænska stjórnin fallin Vantrauststilllaga á hendur Stefan Löfven, forsætisráðherra Svíþjóðar, og ríkisstjórn hans var samþykkt á sænska þinginu. Þetta er í fyrsta skipti í sögunni sem vantrausti er lýst á forsætisráðherra Svíþjóðar. 21.6.2021 08:57
Ákærð fyrir að myrða manninn sem misnotaði hana í 24 ár Í dag hefjast réttarhöld yfir Valérie Bacot, sem er ákærð fyrir að hafa myrt stjúpföður sinn og seinna eiginmann. Bacot hefur játað að hafa orðið manninum að bana en hann nauðgaði henni fyrst þegar hún var 12 ára gömul. 21.6.2021 08:42
Huga að því að refsa Rússum vegna Navalní Bandaríkjastjórn leggur nú drög að frekari refsiaðgerðum gegn Rússlandi vegna taugaeiturstilræðisins gegn Alexei Navalní, eins helsta leiðtoga stjórnarandstöðunnar í landinu. Þetta segir þjóðaröryggisráðgjafi Joes Biden Bandaríkjaforseta innan við viku eftir leiðtogafund Biden og Vladímírs Pútín Rússlandsforseta. 21.6.2021 08:27
Gripið til neyðarstöðvunar í eina kjarnorkuveri Írans Stjórnendur eina kjarnorkuvers Írans gripu til neyðarstöðvunar þess um helgina. Stjórnvöld hafa ekki gefið skýringar á á stöðvuninni en varað við því að rafmagni gæti slegið út tímabundið í nokkra daga. 21.6.2021 07:54
Örlög Löfven ráðast innan skamms Sænska þingið greiðir innan skamms atkvæði um vantrauststillögu gegn forsætisráðherranum Stefan Löfven. 21.6.2021 06:56
Flokkur Macron í rétt rúmlega tíu prósentum Fyrstu tölur benda til að hvorki flokkur Emmanuels Macron Frakklandsforseta né öfgahægriflokkur Marine Le Pen hafi tekist að bæta við sig mörgum mönnum í fyrri umferð héraðskosninga sem fram fóru í landinu í gær. 21.6.2021 06:22
Pashinyan heldur velli í Armeníu Flokkur sitjandi forsætisráðherra Armeníu virðist vera sigurvegari þingkosninga þar í landi en fyrstu tölur voru birtar í kvöld. 20.6.2021 23:07
Níu stúlkur létust í Alabama vegna Claudette Hitabeltislægðin Claudette geisar í Alabama í Bandaríkjunum um þessar mundir. Tíu létust í gær í bílsslysi sem orsakaðist af lægðinni. 20.6.2021 19:44
Líkfundur í Belgíu: Talið vera af hættulega hermanninum Lík fannst í Belgíu í dag. Það er talið vera af hermanninum Jurgen Conings sem hvarf í Belgíu fyrir mánuði síðan, eftir að hafa stolið talsvert mikið af vopnum. Talið var að Conings hafi farið inn í skóg í felur. 20.6.2021 16:13
Fannst látin eftir að hafa sest upp í bíl með ókunnugum Lík bandarískrar konu fannst um helgina í skógi austan við Moskvu í Rússlandi. Konan hvarf þann 15. júní síðastliðinn eftir að hafa sest upp í bíl með ókunnugum. Lögreglan í Rússlandi hefur handtekið karlmann vegna málsins. 20.6.2021 14:08
Ástandið aldrei verið verra í Brasilíu Dauðsföll af völdum Covid-19 heimsfaraldursins eru nú orðin fleiri en 500.000 í Brasilíu. Brasilía er með næst hæstu tíðni dauðsfalla í heiminum vegna faraldursins, á eftir Bandaríkjunum þar sem yfir 600.000 hafa látist. 20.6.2021 11:08
Ballarin laug í þætti Kveiks og ýtti undir samsæriskenningar Michelle Roosevelt Edwards, eða Michelle Ballarin, laug um það að eiga 30 milljóna Bandaríkjadala setur í Virginíu, í viðtali við Kveik í febrúar á síðasta ári. Setrið er í eigu fjárfestisins David B. Ford, sem dó á síðasta ári, og segist ekkja hans ekki hafa hugmynd um hvernig Edwards komst inn í húsið. 20.6.2021 10:03
Nýr olíuakur ógnar lífi 130 þúsund fíla Tugir þúsunda afrískra fíla eru í hættu vegna áforma um að bora fyrir olíu á svæði sem talið er meðal síðustu ósnertu svæða í álfunni. Ætlunin er að olíuakurinn teygi sig frá Namibíu yfir til Botnsvana, sem myndi koma öllu lífríki, og samfélögum, á svæðinu úr jafnvægi. 20.6.2021 09:16
Þúsundir tóku þátt í gleðigöngu í Póllandi Þúsundir gengu í gleðigöngu í Varsjá í gær og var þetta stærsti hinseginviðburður í sögu Póllands. Gangan er talið merki um andstöðu gegn yfirvöldum en hinseginréttindum hefur farið mikið aftur undanfarin ár. 20.6.2021 08:35
Einn lést í gleðigöngu í Flórída Einn er látinn og annar særður eftir að pallbíl var ekið inn í hóp fólks sem tók þátt í gleðigöngu í Flórída í gærkvöld. Bíllin var hluti af gleðigöngunni og búið var að skreyta hann með regnbogafánum. 20.6.2021 08:00
Lést vegna ökuníðinga á rafskútu Ung kona lést á miðvikudaginn í París eftir að tvær konur keyrðu á hana á rafskútu. Lögreglan í París leitar nú að konunum tveimur. 19.6.2021 20:25
Forsetahundurinn Champ er allur Í tilkynningu frá forsetahjónum Bandaríkjanna kemur fram að hundurinn Champ sé látinn. 19.6.2021 16:13
Sex ára fangelsi fyrir manndráp með samúræjasverði Þýskur karlmaður á fertugsaldri hefur verið dæmdur í sex ára fangelsi fyrir að drepa kærustu sína með samúræjasverði. 19.6.2021 14:26
Raisi sigurvegari í Íran Ebrahim Raisi bar sigur úr býtum í forsetakosningum í Íran. Níutíu prósent atkvæða hafa verið talin og Raisi hefur hlotið rúmlega helming þeirra. 19.6.2021 10:21
Palestínumenn afþakka bóluefni frá Ísrael Palestínsk yfirvöld hafa dregið sig út úr samningi við Ísrael en samkvæmt honum átti Palestína að fá minnst milljón skammta af Covid-19 bóluefni. Palestínumenn segja Pfizer-skammtana of nálægt því að renna út. 19.6.2021 08:13
Sameinuðu þjóðirnar kalla eftir vopnasölubanni á Mjanmar Sameinuðu þjóðirnar hafa kallað eftir því að allri vopnasölu til Mjanmar verði hætt vegna blóðugs valdaráns sem herinn framdi fyrr á þessu ári. Kallið er talið nokkuð óeðlilegt og fá dæmi eru til um að Sameinuðu þjóðirnar grípi til þessa ráðs. 19.6.2021 07:43
Bóluefnið sem brást Í upphafi kórónuveirufaraldursins kepptust tvær þýskar rannsóknarstofur um að koma bóluefni á markað sem fyrst: BioNTech annars vegar og CureVac hins vegar. Rúmu einu og hálfu ári eftir að kapphlaupið hófst eru eigendur BioNTech á toppi tilverunnar; þeir bera ábyrgð á bóluefni Pfizer; en CureVac? Það er fyrirtæki á barmi gjaldþrots. 18.6.2021 23:44
Björn særði fjögur í Japan Villtur skógarbjörn gekk laus í Sapporo, í norður Japan, í dag. Björninn særði fjóra áður en hann var skotinn til bana. 18.6.2021 16:54
Skelfilegt ástand í málefnum flóttafólks Aldrei hafa fleiri verið á flótta í heiminum en nú. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna. Sviðstjóri hjá Rauða krossinum segir stöðuna skelfilega. 18.6.2021 12:01
Aldrei hafa fleiri verið á flótta í heiminum Fjöldi þeirra sem þurftu að flýja heimili sín á síðasta ári jókst um rúmar ellefu milljónir manna sem er enn meiri aukning en var árið 2019. 18.6.2021 08:39
Búa sig undir viðræður og átök við Bandaríkin Kim Jong-un, leiðtogi Norður-Kóreu, segir að ríkið verði að búa sig undir að eiga bæði samtal og í átökum við Bandaríkin á næstunni. Hann lagði þó sérstaka áherslu á möguleg átök. 18.6.2021 08:23
Fyrsti forseti Sambíu fallinn frá Kenneth Kaunda, sem var fyrstur til að gegna embætti forseta Afríkuríkisins Sambíu, er látinn, 97 ára að aldri. Hann var einn síðasti eftirlifandi af þeirri kynslóð leiðtoga Afríkuríkja sem hafði barðist gegn nýlendustefnu Evrópuríkja. 18.6.2021 07:53
Spennan magnast á Gasa eftir loftárásir í nótt Ísraelsmenn vörpuðu sprengjum á Gasasvæðið í nótt í annað sinn frá því að vopnahléssamningur var gerður í lok síðasta mánaðar eftir ellefu daga hörð átök á svæðinu. 18.6.2021 07:36
Dagurinn sem markar endalok þrælahalds orðinn lögboðinn frídagur Joe Biden Bandaríkjaforseti hefur skrifað undir lög þess efnis að 19. júní verði héðan í frá einn af lögboðnum frídögum Bandaríkjamanna. 18.6.2021 06:53
Íranir ganga að kjörborðinu Forsetakosningar fara fram í Íran í dag þar sem allir þeir fjórir sem til greina koma sem arftaki Hassan Rouhani eru taldir vera harðlínumenn. 18.6.2021 06:26
Höfða mál á hendur klámrisa vegna myndbanda án samþykkis Á fjórða tug kvenna hafa höfðað hópmál gegn fyrirtækinu Mindgeek, sem á og rekur klámsíðuna Pornhub. Konurnar segja vefsíðuna hýsa myndbönd af þeim, sem var hlaðið upp án þeirra samþykkis. 17.6.2021 23:21
Evrópa grænkar á Covid-kortinu Það er orðið nokkuð grænt um að lítast á korti Sóttvarnastofnunar Evrópu, sem sýnir sjónrænt stöðu kórónuveirufaraldursins víðs vegar um Evrópu. 17.6.2021 20:55
Sænska ríkisstjórnin gæti fallið á mánudag Sænska þingið mun greiða atkvæði um vantrauststillögu Svíþjóðardemókrata á ríkisstjórn Stefan Löfven á mánudag. 17.6.2021 19:55