Fleiri fréttir

Strandaglópar í Akapúlkó

Rúmlega tvö þúsund ferðamenn hafa verið fluttir í herflutningavélum frá sumardvalarstaðnum Akapúlkó í Mexíkó, þar sem þeir höfðu verið strandaglópar eftir mikil flóð af völdum hitabeltisstormsins Manúels.

Kveikti í sjálfum sér eftir umsátursástand

Austurríkismaður sem hafði skotið þrjá lögreglumenn og einn sjúkraliða til bana í gær framdi sjálfsmorð á heimili sínu í gærkvöldi eftir að sérsveitarmenn höfðu setið um hús hans klukkutímum saman í gær.

Fann krókódíl undir rúminu sínu

Guy Whittall brá heldur betur í brún þegar hann áttaði sig á því að krókódíll hafði legið undir rúminu hans meðan hann svaf.

Lögregla umkringir heimili veiðiþjófs í Austurríki

Lögregla í Austurríki hefur umkringt hús grunaðs veiðiþjófs, eftir að hann skaut tvo lögreglumenn og sjúkraflutningamann. Umsátrið er í skógi nálægt skíðasvæðinu í Annaberg í Ölpunum en bærinn er um sextíu og fimm kílómetra vestan við höfuðborgina Vín.

Byssumaðurinn var einn að verki

Aaron Alexis myrti tólf manns í stjórnstöð bandaríska sjóhersins í Washington í gær og lét svo sjálfur lífið.

Þúsundir flýja eldgos

Fjallið Sinabung á vestanverðri Indónesíu vaknaði af þriggja ára dvala á sunnudaginn.

Börnin greiði sjálf gæsluna

Annað hvort verða fullorðin börn sjálf að gæta aldraðra foreldra sinna eða kaupa gæslu fyrir þá. Þetta er mat dansks prófessors og heilsuhagfræðings, Kjeld Møller Pedersen

Slapp naumlega frá stórgrýti

Það er kraftaverki líkast að ökumaður og farþegi bíls sem fékk á sig aurskriðu í norðurhluta Taívan hafi sloppið með lítilsháttar meiðsli.

Fjórir fallnir í skotárás

Að minnsta kosti fjórir eru fallnir í skotárás í flotastöð í Washington höfuðborg Bandaríkjanna og átta manns eru særðir. Óþekktur byssumaður hóf skothríð í flotastöðinni upp úr klukkan eitt að íslenskum tíma. Skothríðin virðist hafa byrjað í kaffiteríu í bygging innkaupa- og viðhaldsdeildar stöðvarinnar en þar vinna um þrjú þúsund manns.

Ný ríkisstjórn í burðarliðnum í Noregi

Formenn hægriflokkanna í Noregi, Framfaraflokksins, Hægriflokksins, Venstre og Kristilega þjóðarflokksins, hafa ákveðið að hefja viðræður um myndun nýrrar ríkisstjórnar. Þetta kom fram á sameiginlegum blaðamannafundi formanna flokkanna í dag.

Skotárás í herstöð

Maður hóf skothríð nú eftir hádegið í stjórnstöð bandaríska flotans í Washington í Bandaríkjunum. Gríðarlegur viðbúnaður er í herstöðinni og reyna sérsveitarmenn að yfirbuga árásarmanninn. Fréttir eru enn óljósar. Um þrjú þúsund manns starfa í herstöðinni.

Stjórn Merkels í hættu

Þingkosningar í Bæjaralandi í gær gefa tóninn fyrir kosningar til þýska þingsins um næstu helgi.

Mannskæð flóð í Colorado

Tala látinna mun líklega hækka að sögn yfirvalda í Colorado en þar eru menn að glíma við afleiðingar einhverra mestu flóða þar sem sögur fara af.

Olíusjóðnum jafnvel skipt upp

Svo gæti farið að innan tíðar verði gerðar nokkrar breytingar á starfsemi norska olíusjóðsins, sem er stærsti fjárfestingasjóður heims í ríkiseigu.

Þýskaland vill hjálpa við eyðingu efnavopna

Þjóðverjar hafa boðið fram aðstoð við eyðingu efnavopna í Sýrlandi eftir að Bandaríkjamenn og Rússar náðu samkomulagi um að leggja hald á slík vopn Sýrlandsstjórnar og eyða þeim.

Meistaraverk fæst lánað til Ísraels

Ítalir hafa fallist á að lána til Ísraels eitt meistaraverka Botticellis frá 15. öld, að því er aðstoðarmaður menningarmálaráðherra Ísraels greindi frá í gær. Láninu hafði verið frestað vegna áhyggna Ítala af ástandinu í Sýrlandi.

Hætta er talin á aurskriðum

Hitabeltisstormurinn Manúel olli flóðum í Verakrúz í Mexíkó í gær. Þar hafa um 5.000 þurft að yfirgefa heimili sín þar sem búist er við að fellibylurinn Ingiríður bresti á í dag.

Neyðarástandi lýst yfir í Colorado

Að minnsta kosti fjórir eru látnir og fjölmargra er saknað eftir mikil flóð í Colorado-fylki. Barack Obama hefur lýst yfir neyðarástandi á svæðinu.

Áætlun um Sýrland samþykkt

Bandaríkjamenn og Rússar hafa náð samkomulagi um að stjórnvöld í Sýrlandi hafi eina viku til þess að upplýsa um efnavopn sín og afhenda þau í kjölfarið til alþjóðlegra eftirlitsmanna

40 slösuðust í átökum í Mexíkó

Lögreglan í Mexíkó lenti í átökum við mótmælendur og kennara á Zocalo-torgi í gær en þeir hlýddu ekki fyrirskipunum um að hætta mótmælum áður en formleg hátíðarhöld hófust í tilefni þjóðhátíðardags landsins.

Stífla í flóttamannabúðum

Norska útlendingastofnunin segir nauðsyn á 30 til 40 nýjum móttökum fyrir hælisleitendur, meðal annars vegna aukins straums flóttamanna.

Hert að lífæð Gaza

Allt frá því í byrjun níunda áratugarins hafa íbúar bæjarins Rafah, sem er í raun klofinn af landamærum milli Gaza-strandarinnar og Egyptalands, notað göng undir landamærin til að smygla varningi inn á Gaza. Frá mánaðamótum hafa Egyptar eyðilagt um 40 göng.

Erfitt að eyða efnavopnum

Í Bandaríkjunum er enn að finna meira en 3.000 tonn af efnavopnum, 30 árum eftir að Bandaríkin undirrituðu alþjóðlegt bann við framleiðslu og notkun þeirra.

Sex kirkjum lokað í Kaupmannahöfn

Sex kirkjum í Kaupmannahöfn verður lokað fyrir árslok og tvær aðrar fá breytt hlutverk. Marianna Jelved menningarráðherra kynnti þessa ákvörðun í dag.

Sjá næstu 50 fréttir