Fleiri fréttir

Lavrov og Kerry funda stíft

Utanríkisráðherra Bandaríkjanna og Rússlands, þeir John Kerry og Sergei Lavrov, funda enn stíft í Genf í Sviss en fundir þeirra hófust í gær.

Íhuga breytingar á 90.000 milljarða króna olíusjóði

Svo gæti farið að innan tíðar verði gerðar nokkrar breytingar á starfsemi norska olíusjóðsins, sem er stærsti fjárfestingasjóður heims í ríkiseigu. Forsvarsmenn flokkanna sem eru líklegastir til að fara fyrir nýrri ríkisstjórn, Hægri flokksins og Framfaraflokksins, hafa lýst yfir áformum um að skipta sjóðunum upp og auka heimildir hans til fjárfestinga innan lands sem utan.

Synti tvo kílómetra bundinn í poka

Búlgarskur maður synti tvo kílómetra bundinn inn í poka og vonast þar með til að hafa sett nýtt heimsmet sem verður skráð í Heimsmetabók Guinness.

Jurtaegg komin í búðir vestra

Fyrstu eggin, sem búin eru til úr jurtum, eru nú komin í búðir í Bandaríkjunum. Hænur koma hvergi við sögu í framleiðsluferlinu.

Ætla að opna Kaesong-svæðið

Kóreuríkin hafa ákveðið að opna Kaesong-iðnaðarsvæðið í sunnanverðri Norður-Kóreu á ný. Svæðið verður opnað þann 16. september næstkomandi.

Unnið að umbótum í Vatíkaninu

Frans páfi fundaði í þrjár klukkustundir á þriðjudag með yfirmönnum allra deilda Vatíkansins, að því er fram kemur í umfjöllun Washington Post í Bandaríkjunum.

Sir. David Attenborough segir að Yeti sé til

Sir. David Attenborough, náttúrfræðingur og sjónvarpsmaður telur að sannanir sem hafi komið um að risastórt dýr, yfir 3 metrar á hæð hafi verið á ferð í Himalayjafjöllunum séu réttar.

Loftslagsbreytingar banamein loðfílsins

Vísindamenn segjast nú hafa fundið sannanir fyrir því að loftlagsbreytingar hafi verið helsta orsökin fyrir því að loðfíllinn mikilfenglegi dó út.

Solberg sigurvegari kosninganna

Norski hægriflokkurinn er ótvíræður sigurveragi kosninganna þar í landi og Erna Solberg formaður flokksins verður að öllum líkindum næsti forsætisráðherra Noregs.

Ákærðir í hrottalegu nauðgunarmáli

Fjórir menn bíða nú dóms í Nýju Delhí en þeir eru ákærðir fyrir morðið á 23 ára gamalli stúlku sem þeir réðust á og nauðguðu í strætisvagni í borginni í desember á síðasta ári.

Mannskætt rútuslys í Guatemala

Að minnsta kosti fjörutíu og þrír fórust í nótt í Guatemala þegar rúta hrapaði 200 metra niður í gil í vestuhluta landsins.

Telja Hammarskjöld hafa verið ráðinn bani

Rannsóknarnefnd skipuð fjölþjóðlegum hópi lögfræðinga telur að hefja eigi rannsókn á dauða Dag Hammarskjöld, fyrrum framkvæmdastjóra Sameinu þjóðanna, sem fórst í flugslysi árið 1961.

Rússar hvetja Sýrlendinga til að láta efnavopn af hendi

Sergei Lavrov utanríkisráðherra Rússlands sagði á blaðamannafundi í Mosvku í dag að Rússar hyggðust hvetja Sýrland til þess að færa efnavopnabirgðir sínar undir stjórn alþjóðasamfélagsins, ef að það yrði til þess að koma í veg fyrir hernaðaríhlutun vesturveldanna.

Leiðinlegar kosningar í Noregi

Í dag er kosið til stórþings í Noregi. Það er þó ansi rólegt í kjörklefunum í ráðhúsinu í Osló og rímar það við kosningabaráttuna undanfarnar vikur.

Vill endurtalningu í Moskvu

Rússneski stjórnarandstæðingurinn Alexei Navalní hefur krafist þess að atkvæði í borgarstjórakosningununum sem fram fóru í Moskvu verði talin á ný.

Eldsprengjur fljúga í Istanbúl

Til átaka kom í Istanbúl í dag þar sem lögregla lét til skarar skríða gegn hópi fólks sem hafði komið saman í Okmeydani hverfinu. Fólkið safnaðist saman til stuðnings við Berkin Elvan, fjórtán ára pilt sem er enn í dái á sjúkrahúsi eftir að hafa fengið táragashylki í höfuðið á meðan mótmælunum vegna fyrirhugaðra framkvæmda við Gezi-garð stóð í júní. Frá þessu segir á fréttavefnum Hurryet, en engum sögum fer af því hvort fólk hafi slasast.

Barnalegir lifa lengur

Ný rannsókn leiðir í ljós að þeir sem eru barnalegir í framan, eða unglegri en aldur þeirra gefur til kynna, geta vænst lengri lífdaga.

Ljóstra upp um starfsfélaga

Danska stjórnsýslan skoðar hvort samræmt uppljóstrunarskipulag sé hentug lausn fyrir starfsstaði rekna af hinu opinbera.

Sjá næstu 50 fréttir