Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Inflúensutilfellum fjölgar ört í Ástralíu Alþjóðaheilbrigðistofnunin, WHO, segir að mikil útbreiðsla Inflúensu A í Ástralíu gæti gert það að verkum að stofnunin þurfi að lýsa yfir heimsfaraldri. Það yrði í fyrsta sinn í fjóra áratugi sem heilbrigðisyfirvöld lýsa yfir heimsfaraldri. Fleiri en 1200 manns hafa smitast af veikinni í Ástralíu og hafa tilfelli fjórfaldast á einni viku. Það er ekki mánuður síðan Ástralar höfðu aðeins uppgötvað örfá tilfelli af inflúensunni en nú er svo komið að ekkert land í heiminum utan Norður Ameríku er með fleiri smitaða einstaklinga. 10.6.2009 08:15
Búist við öngþveiti í London Búist er við öngþveiti á strætum Lundúnaborgar í dag en starfsmenn í neðanjarðarlestakerfinu víðfræga hófu verkfallsaðgerðir í nótt og hafa þúsundir lagt niður vinnu sína. Starfsmennirnir krefjast betri launa og fóru samningaviðræður á milli deiluaðila út um þúfur í gærkvöldi. 10.6.2009 08:10
Lögreglumenn grunaðir um pyntingar Sex lögreglumenn í London hafa verið reknir eða eru undir sérstöku eftirliti við störf sín vegna ásakanna um slæma meðferð á fólki eftir að lögregla réðst til atlögu við eiturlyfjasala í tveimur aðgerðum í nóvember á síðasta ári. Lögregluyfirvöld segja að ásakannirnar á hendur mönnunum séu alvarlegar og að þær vekji áhyggjur. 10.6.2009 07:48
Fangi frá Guantanamo kominn til New York Fyrsti fanginn úr Guantanamo-fangabúðunum sem rétta skal yfir fyrir almennum dómstól í Bandaríkjunum er kominn til New York. Hann er grunaður um aðild að al Kaída hryðjuverkasamtökunum. 9.6.2009 12:12
Spítali í Manchester tapaði 1,3 milljörðum á bankahruninu Christie Cancer spítalinn í Manchester, gerði þá kröfu á ríkisstjórn Bretlands að hún ábyrgðist þær 6,5 milljónir punda sem spítalinn tapaði með íslenska bankahruninu. Spítalinn lagði þessa fjármuni inn í Kaupthing Edge innlánsreikning hjá Singer & Friedlander, dótturfélagi Kaupþings í London. 9.6.2009 09:35
Samfélagsþjónusta í uppnámi vegna veðurs Breskur fíkniefnasali fór beint inn í fangaklefa þegar hann þverneitaði að gegna samfélagsþjónustu af óvenjulegri ástæðu. 9.6.2009 08:12
Á fimmta hundrað sektir á einni og sömu uppákomu Lögregla í Vandel á Suðaustur-Jótlandi hafði nóg að gera um helgina þegar 410 sektarmiðar voru skrifaðir á einni og sömu uppákomunni, hinni ólöglegu kappaksturshátíð „Hraðskreiðasti bíll landsins" eða „Danmarks hurtigste bil“. 9.6.2009 08:09
Ástralar herða netlokanir Fjöldi ástralskra fyrirtækja sem lokar fyrir aðgang að ýmsum samskiptasíðum á Netinu hefur margfaldast undanfarið. 9.6.2009 07:25
Tónlistarhátíðir fara ekki varhluta af kreppunni Fyrirsjáanlegt er að nokkrar þekktar tónlistarhátíðir í Evrópu, til dæmis Hróarskelduhátíðin í Danmörku og ungverska Sziget-hátíðin, muni draga að sér töluvert færri gesti en í meðalári vegna þeirra efnahagsþrenginga sem nú herja á íbúa álfunnar. 9.6.2009 07:22
Tóku stóra heróínverksmiðju talibana Breskir hermenn í Afganistan hafa lagt hald á 100 kíló af heróini og fimm og hálft tonn af ópíumpasta sem hefði smásöluverðmæti að jafnvirði 13 milljarða króna eftir að þeir réðust til inngöngu í stóra heróínverksmiðju talibana í Sangin-dalnum sunnarlega í landinu. 9.6.2009 07:20
Drekkti 11 ára syni sínum vegna hárra skólagjalda Bresk kona á fimmtugsaldri játaði fyrir rétti í gær að hafa orðið ellefu ára gömlum syni sínum að bana í desember á grundvelli þess að hún gat ekki lengur staðið undir greiðslu skólagjalda við einkaskóla sem hann sótti. 9.6.2009 07:18
Áfram róstusamt í Acapulco Þrír lögreglumenn féllu í árás byssumanna í mexíkósku borginni Acapulco í gær, aðeins tveimur dögum eftir mannskæðan skotbardaga hersins við félaga í eiturlyfjahring þar sem 18 manns lágu í valnum og ferðamenn áttu fótum fjör að launa en borgin er vinsæll ferðamannastaður. 9.6.2009 07:15
Brown nýtur meiri stuðnings en ætlað var Svo virðist sem Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, sé hólpinn um stundarsakir hvað varðar hans pólitísku framtíð. Í kvöld fundaði Brown með þingflokki Verkamannaflokksins og eftir fundinn lýstu margir þingmenn yfir stuðningi við forsætisráðherran. 8.6.2009 23:41
Fjölskyldur fórnarlamba Omagh árásarinnar fá skaðabætur Fjórir meðlimir samtakann Real IRA voru í dag dæmdir til þess að greiða fjölskyldum fórnarlamba Omagh sprengjuárásarinnar árið 1998 skaðabætur. Tuttugu og níu létu lífið í árásinni, þar á meðal kona sem var ólétt af tvíburum. Yfir 200 manns særðust í árásinni en Real IRA er hluti af írska lýðveldishernum og sprengdu bílsprengju á markaði í Omagh í ágúst árið 1998. 8.6.2009 14:20
Nýbirtar myndir af Hitler varpa ljósi á einkalíf hans Ljósmyndir af Adolf Hitler úr einkasafni ljósmyndara hans, Hugo Jäger, hafa nú verið birtar í fyrsta sinn og þykja varpa nýju ljósi meðal annars á einkalíf nasistaforingjans. 8.6.2009 08:33
Hékk utan á lest í tvo og hálfan tíma Bandarískur ferðamaður er heppinn að hafa lifað af tveggja og hálfrar klukkustundar ferðalag með lest milli Adelaide og Darwin í Ástralíu en hann hékk utan á lestinni. 8.6.2009 08:09
Blindur maður handtekinn fyrir umferðarlagabrot Blindur Breti um fimmtugt hélt að verið væri að láta hann hlaupa apríl þegar lögregla handtók hann fyrir fjölda umferðarlagabrota. 8.6.2009 07:23
Sautján lík fundin eftir Air France-slysið Alls hafa leitarmenn nú fundið 17 lík farþega Air France-þotunnar sem hrapaði í Atlantshaf fyrir rúmri viku vegna óútskýrðrar bilunar. 8.6.2009 07:21
Bandarískir blaðamenn dæmdir í Norður-Kóreu Norðurkóreskur dómstóll hefur fundið tvo bandaríska blaðamenn seka um að fara ólöglega inn í landið og dæmt þá til 12 ára þrælkunarvinnu. 8.6.2009 07:16
Kjörsókn Evrópuþingkosninga aldrei minni Kjörsókn kosninga til Evrópuþingsins, sem lauk í gær, var rúmlega 43 prósent og hefur aldrei verið minni. Í kosningunum árið 2004 var hún 45,5 prósent. 8.6.2009 07:11
Brown heldur vígreifur áfram Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, ætlar ekki að segja af sér embætti þrátt fyrir mikinn þrýsting frá Falconer lávarði, fyrrverandi dómsmálaráðherra landsins. 8.6.2009 04:00
Hillary aðvarar N-Kóreumenn Ráðamenn í Washington íhuga alvarlega að setja Norður-Kóreu aftur á lista yfir ríki sem styðja hryðjuverk. Þetta kom fram í máli Hillary Clinton, utanríkisráðherra, í dag. 7.6.2009 16:04
Fleiri lík finnast Brasilíski flugherinn fann í dag lík þriggja einstaklinga sem fórust með farþegaþotu Air France aðfaranótt mánudagsins síðasta. Í gær fundust lík tveggja manna ásamt braki úr vélinni og persónulegum munum. 7.6.2009 15:32
Jafngildir stórslysi að kjósa fyrr Fjármálaráðherra Írlands segir að það myndi jafngilda stórslysi að rjúfa þing og boða til þingkosninga vegna fjármálakreppunnar sem leikið hefur eyjuna talsvert illa. 7.6.2009 14:30
Búist við lítilli kosningaþátttöku Kosningum til Evrópuþingsins lýkur í dag, en þær hófust á fimmtudaginn. Kosið er í öllum 27 Evrópusambandslöndunum en þingsætin eru 736. Ekki var gert ráð fyrir mikilli kosningaþátttöku, enda var hún 38% þegar síðast var kosið árið 2004. Kjósendur virðast hallast til hægri þetta skiptið. 7.6.2009 12:44
Róðurinn hjá Brown þyngist Róðurinn hjá Gordon Brown þyngist nú með hverjum deginum sem líður. Líkur aukast á að þingkosningar verði boðaðar í Bretlandi. 7.6.2009 12:15
Obama heldur heim Barack Obama heldur aftur til Bandaríkjanna í dag eftir fjögurra daga ferð til Mið-Austurlanda, Þýskalands og Frakklands. Á ferðalagi sínu ávarpaði Bandaríkjaforseti múslíma, ásamt því að heimsækja útrýmingarbúðir Nasista og vera viðstaddur minningarathöfn í tilefni þess að 65 ár eru liðin frá innrásinni í Normandí. 7.6.2009 10:15
Fyrstu útfarirnar í morgun 38 börn, flest á aldrinum tveggja til fjögurra ára, létust í eldsvoðanum á dagheimilinu í Hermosillo í Mexíkó í fyrradag. Fyrstu útfarirnar fóru fram í morgun. Flest barnanna köfnuðu. 7.6.2009 10:07
Fylgismenn og andstæðingar Ahmadinejad tókust á Stuðningsmönnum og andstæðingum Mahmoud Ahmadinejad, Íransforseta, lenti saman í höfuðborginni Teheran í gærkvöldi. Forsetakosningar í Íran fara fram í næstu viku. 7.6.2009 07:45
Forsetaframbjóðandi myrtur í Gíneu Bissau Baciro Dabo, forsetaframbjóðandi og fyrrum varnarmálaráðherra Gíneu Bissau, var myrtur í gær. Annar fyrrum varnarmálaráðherra landsins, Helder Proenc, var einnig myrtur í gær ásamt tveimur lífvörðum sínum. 7.6.2009 06:30
Læknirinn Tiller borinn til grafar George Tiller, læknir sem þekktur var fyrir að framkvæma fóstureyðingar á konum sem gengu með mjög þroskuð fóstur, var borinn til grafar í dag. Hundruð syrgjendur minntust Tillers í borginni Wichita í Kansasfylki en hann var myrtur fyrir viku. Tveir andstæðingar fóstureyðinga voru handteknir í dag þegar athöfnin fór fram. 6.6.2009 23:45
Lík úr flugslysinu fundin Brasilíski flugherinn fann í dag lík tveggja karlmanna sem fórust með farþegaþotu Air France aðfaranótt mánudagsins síðasta. Brak úr vélinni sem og persónulegir munir fundust einnig í dag. 6.6.2009 17:23
Ráðist á lögreglustöð í Pakistan Undanfarið hefur fjöldi fólks farist í mannskæðum sprengjuárásum ódæðismanna í Pakistan. Nú síðast í dag var lögreglustöð í höfuðborginni, Islamabad, skotmarkið. Einn lögreglumaður lést í árásinni og þá eru að minnsta kosti þrír særðir eftir árásina. 6.6.2009 15:43
Innrásarinnar í Normandí minnst Leiðtogar Frakklands, Bandaríkjanna og Bretlands voru viðstaddir minningarathöfn í Frakklandi í morgun, þegar þess var minnst að 65 ár eru liðin frá innrásinni í Normandí. 6.6.2009 12:54
Rannsókn flugslyssins á byrjunarreit Franskir og brasilískir leitaflokkar hafa ekki enn fundið brak sem talið er vera úr Air France farþegaþotunni sem fórst aðfaranótt mánudagsins síðasta. Einn íslenskur ríkisborgari var um borð. 6.6.2009 10:30
Tugir barna létust í eldsvoða Að minnsta kosti 29 börn létust þegar eldur braust út á dagheimili í norðvesturhluta Mexíkó í gær. Tugir barna slösuðust í eldinum. 6.6.2009 10:08
Uppstokkun í Bretlandi Breski forsætisráðherrann Gordon Brown ætlar ekki að segja af sér embætti. Sex ráðherrar hafa hætt í ríkisstjórn hans á síðustu dögum. John Hutton varnarmálaráðherra og Geoff Hoon samgönguráðherra sögðu báðir af sér í gær. Afsagnir þeirra í gær komu í kjölfar afsagnar James Purnell atvinnumálaráðherra á fimmtudagskvöld. Áður höfðu Hazel Blears sveitarstjórnarráðherra og Jacqui Smith innanríkisráðherra sagt af sér ráðherradómi. Paul Murphy, ráðherra gagnvart Wales, hefur einnig sagt af sér. 6.6.2009 02:00
Með töskur úr kókaíni í flug Ung kona var handtekin í Chile fyrr í vikunni fyrir fíkniefnasmygl. Konan ætlaði að fara um borð í flugvél á leið frá Chile til Spánar með tvær ferðatöskur, sem voru gerðar úr kókaíni. 6.6.2009 02:00
Fangelsisyfirvöld gerðu mistök Fangelsismálayfirvöld í Bretlandi hafa viðurkennt að hafa gert mistök sem áttu hlut í því að tveir franskir námsmenn voru myrtir á hrottalegan hátt í London í fyrra. Annar morðingjanna var á skilorði og átti að vera undir miklu eftirliti. Tveir breskir menn voru í gær fundnir sekir um morðin hrottalegu. 6.6.2009 00:45
Tóku að sér og ala upp unga Tvær samkynhneigðar mörgæsir hafa komið unga á legg og ala hann nú upp í dýragarðinum í Bremerhaven í Þýskalandi. 6.6.2009 00:15
Fundu óvænt risastórt eldfjall Vísindamenn hafa við rannsóknir á eðli flóðbylgja uppgötvað risavaxið neðansjávareldfjall undan vesturströnd Indónesíu. Fjallið er um 4.600 metrar á hæð og fimmtíu kílómetrar að þvermáli. „Þetta var algjörlega óvænt,“ sagði einn vísindamannanna í gær. 6.6.2009 00:00
Brown mun ekki segja af sér Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, segir að ný ríkisstjórn muni einbeita sér að því að þjóna þjóð sinni af heilum hug en fimm ráðherrar hafa sagt af sér á undanförnum fjórum dögum. 5.6.2009 16:54
Alan Johnson tekur við af Jacqui Smith Alan Johnson verður nýr innanríkisráðherra í bresku ríkisstjórninni og tekur hann við af Jacqui Smith sem sagði af sér á dögunum. Johnson gegndi áður embætti heilbrigðisráðherra. Þetta kemur fram á heimasíðu BBC en Gordon Brown forsætisráðherra hefur staðið í ströngu síðustu daga og hafa þrír ráðherrar sagt af sér embætti. 5.6.2009 09:06
Skriftir eru ekki sálfræðimeðferð segir Vatíkanið Ferð í skriftastólinn með tilheyrandi syndajátningum jafnast ekki á við sálfræðimeðferð. Vatíkanið hefur nú kveðið upp úrskurð um þetta og gerði erkibiskupinn Mauro Piacenza það að umtalsefni sínu í útvarpsviðtali nú í vikunni. 5.6.2009 08:44
Fílharmoníusveit New York flytur tónlist úr Platoon í Víetnam Fílharmoníusveit New York-borgar mun halda tónleika í Víetnam í haust og leika þar meðal annars tónverk úr kvikmyndinni Platoon. 5.6.2009 08:28