Fleiri fréttir

Páfinn hræðist samkynhneigð

Jafnmikilvægt er að bjarga mannkyninu frá sam- og tvíkynhneigð og að forða regnskógunum frá eyðileggingu. Þetta sagði Benedikt páfi XVI. í árlegu ávarpi sínu til kardínála og preláta í Vatíkaninu í gær. Hvort tveggja væri liður í að verja sköpunarverk Guðs.

Bush undirbýr flutning úr Hvíta húsinu

George Bush, forseti Bandaríkjanna, er í óða önn að undirbúa brotthvarf sitt úr Hvíta Húsinu. Hann flytur út í janúar en í dag tæmdi hann fataskápinn sinn og fór með gamlar yfirhafnir til góðgerðarsamtaka sem sjá svo um að koma þeim áfram til þeirra sem minna mega sín.

Viðhorf kvenna hefur áhrif á líkama þeirra á meðgöngu

Viðhorf eða skynjun kvenna á líkama þeirra fyrir fæðingu getur aukið líkur á að þær þyngist mikið á meðgöngu. Þetta kemur fram í nýrri amerískri rannsókn sem hefur verið gerð opinber. Rannsóknin, sem tók til 15 hundruð ófrískra kvenna, leiddi í ljós að þær sem skynjuðu líkamsþyngd sína rangt voru líklegri til þess að þyngjast á meðgöngu.

Jarðskjálfti reið yfir N-Ítalíu

Snarpur jarðskjálfti reið yfir norðurhluta Ítalíu í dag í grennd við borgina Parma. Skjálftinn mældist 5,2 á Richter. Enn sem komið er hafa engar fréttir borist af slysum á fólki eða tjóni. Jarðskjálftans var vart í borgunum Mílan, Flórens og Trieste.

Allir vilja vinna hjá Obama

Barack Obama, sem vann sögulegan sigur í forsetakosningunum í Bandaríkjunum í nóvember er eftirsóttur atvinnuveitandi. Nú er verið að ráða í störf í Hvíta húsinu og eru átta þúsund stöður á lausu. Við fyrstu sýn ætti að reynast erfitt að að manna allar þær stöður í Washington en umsóknum rignir inn og nú þegar hafa þrjú hundruð þúsund manns sótt um vinnu hjá Obama, sem eins og fréttastofan CBS bendir réttilega á, jafnast á við að allir Íslendingar hafi sótt um starf hjá nýja forsetanum.

Kínverjar gefa pöndur

Kínversk stjórnvöld hafa ákveðið að færa vinum sínum í Taívan fallega gjöf fyrir jólin. Þeir hafa látið flytja tvær pöndur frá Kína til Taívan sem vott um vináttu þjóðanna.

Ríkisstjórn Gíneu sett af í kjölfar andláts forseta

Lansana Conte, forseti Gíneu er látinn. Aðeins fáeinum klukkutímum eftir að andlát hans var tilkynnt var yfrlýsing lesin í ríkisútvarpinu þar í landi þar sem það var tilkynnt að stjórnarskráin væri ekki lengur í gildi og að ríkisstjórnin hefði verið sett af.

Norðmenn vilja örmerkja ketti

Norsk heilbrigðisyfirvöld krefjast þess kettir verði örmerktir til að veita nákvæmar upplýsingar um sjúkdóma sem þeir kunni að bera.

Danir ósáttir við tölvur og farsíma

Danir kvarta mest yfir tölvum og farsímum af öllum neytendavarningi þar í landi. Þetta kemur fram í ársskýrslu dönsku neytendasamtakanna en símalínur þeirra eru rauðglóandi þessa dagana vegna kvartana yfir göllum í þessum búnaði.

Kröfðust gagnárásar með kjarnavopnum

Japanski forsætisráðherrann Eisaku Sato krafðist þess árið 1965 að yrði landið fyrir kjarnorkuárás myndi Bandaríkjaher þegar beita kjarnavopnum gegn árásaraðilanum.

Taldi ísbjörninn Knút einmana

Tæplega fertugur maður var verulega hætt kominn í gær þegar hann klifraði yfir girðingu sem skilur ísbjörninn Knút, helstu stjörnu dýragarðsins í Berlín, frá aðdáendum sínum.

Dick Cheney talinn verstur varaforseta

Fjórðungur Bandaríkjamanna er þeirrar skoðunar að Dick Cheney sé versti varaforseti sem gegnt hefur embætti í landinu. Þetta er niðurstaða nýrrar skoðanakönnunar sem CNN opinberaði í gær.

Risavinningurinn el gordo dreifðist víða

Mörg þúsund vinningshafar deildu með sér 360 milljarða króna risavinningi spænska lottósins sem gengur undir nafninu sá feiti, eða el gordo, í gær. Töluvert var um að Bretar, búsettir á Spáni, keyptu sér miða í von um að hreppa væna flís af feitum sauð og sumum varð svo sannarlega að ósk sinni.

Hamas gerir hlé á árásum

Hamasliðar á Gasa ströndinni hafa fallist á sólarhrings vopnahlé í átökum þeirra og Ísraelsmanna. Egyptar gengu á milli stríðandi fylkinga og lofa Hamas að gera hlé á eldflaugaárásum sínum á Ísraelskt landsvæði.

Bresk hundaathvörf full af yfirgefnum hundum

Æ meira er um að breskir hundaeigendur losi sig við hunda sína með því að skilja þá eftir á víðavangi þegar fjárhagsaðstæður þrengja að. Talsmaður stærsta hundaathvarfs Lundúna segir húsnæði athvarfsins nú yfirfullt og að hann muni ekki annað eins ástand. Athvarfið beitir sér fyrir því að finna yfirgefnum hundum nýja eigendur og heimili.

Indverjar útiloka ekki stríð við Pakistan

Indverjar útiloka ekki árás á nágrannaríki sitt Pakistan til að hefna fyrir hryðjuverkaárásirnar á Mumbai í lok nóvember en indversk stjórnvöld draga ekki fjöður yfir þá skoðun sína að Pakistanar beri ábyrgð á ódæðisverkunum á Taj Mahal-hótelinu og fleiri stöðum í Mumbai þar sem tæplega 200 manns biðu bana.

Brown segist ekki halda kosningar eftir áramótin

Bretar munu ekki ganga til kjörklefanna og velja sér nýja þingmenn og ríkisstjórn í febrúar eða mars eins og verið hefur í umræðunni. Þetta segir Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, í viðtali við Daily Mirror.

Búa sig undir skjóta lokun

Robert Gates, varnarmálaráðherra í ríkisstjórn George W. Bush, hefur beðið starfsfólk sitt í varnarmálaráðuneytinu um að búa sig betur undir hugsanlega lokun Guantánamo-fangabúðanna á Kúbu.

Viðræðum fram haldið

Evrópusambandið hefur samþykkt að bæta tveimur nýjum málefnasviðum við aðildarviðræðurnar við Tyrki.

Athafnir austan hafs og vestan

Þess var víða minnst í gær að rétt 20 ár voru liðin frá því risaþota Pan Am-flugfélagsins hrapaði á skoska smábæinn Lockerbie eftir að sprengja sprakk í þotunni. Alls fórust 270 manns, þar af ellefu á jörðu niðri.

NASA safnar gúmmíöndum

Í september sjósetti NASA, geimvísindastofnun Bandaríkjanna, 90 merktar baðendur undir Jakobshavnjökli á Grænlandi í þeim tilgangi að rannsaka farveg bráðnunarvatns um jökulbreiðuna.

Lögregla sökuð um afglöp

Lögreglumenn sem áttu í höggi við skotglaða hryðjuverkamenn í Taj Mahal-lúxushótelinu í Mumbai í fyrra mánuði tjáðu gestum að þeim væri óhætt að yfirgefa herbergi sín, með þeim afleiðingum að þeir gengu í flasið á morðingjunum sem sölluðu fólkið niður.

Ísraelar hóta Hamas stríði

Tugum sprengiflauga var skotið frá Gazasvæðinu að ísraelskum bæjum í gær, og Ísraelsher brást við með loftárás á meintar stöðvar skæruliða Hamas-samtakanna á Gaza.

Uppáhald Stalíns lést í gær

Rússneska balletdansmeyjan, Olga Lepeshinskaya, sem dansaði áratugum saman við Bolshoi leikhúsið og vakti mikla athygli einræðisherrans Jósefs Stalín lest í gær, 92 ára að aldri.

Hugsanlega verða vextir af neyðarlánum til bótaþega

Svo gæti farið að neyðarlán breska ríkisins til handa bótaþegum verði ekki lengur vaxtalaus nema í undantekningar tilvikum. Félagþjónustan í Bretlandi veitir árlega samanlagt hálfum milljarði punda í vaxtalaus neyðarlán úr opinberum sjóði til rúmlega milljón bótaþega.

Enn átök í Grikklandi

Enn kom til átaka milli mótmælenda og lögreglu víða í Grikklandi í nótt. Til óeirða hefur komið daglega í rúman hálfan mánuð.

Slösuðust þegar Boeing vél fór út af flugbraut

Nærri fjörutíu manns slösuðust þegar Boeing sjö þrír sjö farþegaþota Continental flugfélagsins bandaríska rann út af flugbraut í Denver í Colorado-ríki í Bandaríkjunum í gærkvöldi.

Salan á Fortis að buga Belga

Albert II, konungur Belgíu fundaði í gær með helstu ráðamönnum landsins í tilraun sinni til að ráða bót á þeim pólitíska vanda sem upp er kominn í kjölfar efnahagsþrenginga í landinu.

Karadzic nýtur ekki friðhelgi

Dómarar á vegum Sameinuðu þjóðanna (SÞ) hafa úrskurðað að samningur um friðhelgi sem Radovan Karadzic, fyrrum leiðtogi Bosníu-Serba, segist hafa gert við friðarerindreka SÞ árið 1996 sé ógilt. Hin meinta friðhelgi muni því ekki koma í veg fyrir að réttað verði yfir Karadzic vegna ákæru um þjóðarmorð.

Auknar líkur á kosningum

Robert Mugabe, forseti Simbabve sagði í gær að flokksfélagar hans í Zanu-Pf ættu að byrja að undirbúa snemmbúnar forsetakosningar og að þeir ættu að safna liði til að tap kosninganna í mars síðastliðnum endurtæki sig ekki.

Féll í loftárás á Gaza

Herskár Palestínumaður féll í loftárás Ísraelsmenna á Gaza-svæðið í morgun. Hálfs árs vopnahlé Ísraela og Hamas-samtakanna, sem stjórna Gaza, var ekki framlengt og lauk í gær.

Danskir hermenn féllu í Afganistan

Þrír danskir hermenn féllu og einn særðist þegar bifreið þeirra ver ekið yfir vegsprengju í Helmand héraði í suðvestur Afganistan í nótt. Bifreið hermannanna var hluti af bílalest en verið var að flytja birgðir.

Írska innanríkisráðuneytið fellur frá ákærum

Íraska innanríkisráðuneytið hefur fallið frá ákærum gegn tuttugu og þremur mönnum sem handteknir voru á fimmtudaginn grunaðir um að hafa ætlað að ræna völdum í landinu. Nítján hafa þegar verið látnir lausir.

Páfi biður fyrir Íslendingum

Benedikt XVI. páfi óskar íslenskum stjórnmálamönnum „visku og framsýni“ við að ráða fram úr fjármálakreppunni. Páfi lét þessi orð falla er Elín Flygenring, sem nýlega tók við sem fastafulltrúi Íslands við Evrópuráðið í Strassborg, afhenti trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands gagnvart Páfagarði á fimmtudag.

Abstrakt-verk hests slá í gegn

Til stendur að setja upp sýningu á abstrakt-málverkum í Feneyjum á næstunni. Málverkin eru eftir Cholla, hest frá Nevada í Bandaríkjunum. Þau hafa selst á hundruð þúsunda króna.

Þrír danir látnir í Afganistan

Þrír danskir hermenn létust sprengingu í Helmand-sýslu í Afghanistan í dag og sá fjórði liggur særður á sjúkrahúsi. Þetta er mannskæðasta árás sem danski herinn í landinu hefur orðið fyrir.

Ríkisstjórn Belgíu segir af sér

Ríkistjórn Belgíu hefur boðist til að segja af sér, eftir að hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu að stjórnin hefði reynt að hafa áhrif á úrskurð dómstóla í tengslum við fall Fortis bankans.

Þorskkvóti í Norðursjó aukinn

Sjávarútvegsráðherrar Evrópusambandsins náðu í dag samkomulagi um að auka þorskveiðikvóta í Norðursjó um 30 prósent. Veiðar á ýmsum öðrum tegundum verða skornar niður. Þúsundir starfa hafa tapast í sjávarútvegi í ríkjum Evrópusambandsins á síðustu tíu árum, vegna minnkandi fiskistofna. Stjórn Evrópusambandsins segir að alltof stór floti sambandsríkjanna geri uppbyggingu fiskistofna erfiða.

Sjá næstu 50 fréttir