Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Tyrknesk mafía neyddi Bagger til svikanna að hans sögn Það voru glæpamenn af tyrkneskum og pakistönskum uppruna sem neyddu stórsvindlarann Stein Bagger út á glæpabrautina. 19.12.2008 08:37
Heimilislausum innflytjendum fjölgar í Danmörku Betlarar, götulistamenn og blaðasalar frá Austur-Evrópu verða æ algengari sjón á götum Danmerkur þar sem þetta fólk freistar gæfunnar í æ ríkari mæli en oft á það erfitt uppdráttar og margir innflytjendanna eru heimilislausir. 19.12.2008 08:34
Kjarnorkuvopnageymslur Bandaríkjamanna enn í ólestri Bandaríski flugherinn hefur rétt einu sinni fengið skömm í hattinn fyrir gjörsamlega ófullnægjandi geymslu á kjarnavopnum. 19.12.2008 08:24
Sjóræningjar fá að líkindum lausnargjald fyrir vopnaskip Líklegt þykir að sómölsku sjóræningjarnir sem rændu úkraínsku skipi, fullu af gömlum skriðdrekum og alls kyns vopnum, fái greiddar 20 milljónir dollara í lausnargjald fyrir skipið. Þetta hefur CNN eftir háttsettum heimildamanni innan Bandaríkjahers. 19.12.2008 08:20
Fangar lesa fyrir börn sín á DVD-diskum Fangelsi í Edinborg hefur nú hleypt af stokkunum verkefni sem gerir föngum kleift að lesa sögur fyrir framan myndavél og senda börnum sínum á DVD-diski. 19.12.2008 08:15
Áætla 70 prósent fjölgun þeirra sem missa húsnæði í Bretlandi Samtök lánastofnana í Bretlandi áætla að fólki, sem missir húsnæði sitt vegna greiðsluerfiðleika, muni fjölga um tæplega 70 prósent á næsta ári og muni ástandið ekki hafa verið verra síðan í fjármálakreppunni þar í landi árið 1991 þegar 75.500 manns misstu heimili sín. 19.12.2008 08:11
Barnfóstra sýknuð eftir þrjú ár í fangelsi Breskur áfrýjunardómstóll sýknaði í gær barnfóstruna Suzanne Holdsworth sem dæmd var í lífstíðarfangelsi árið 2005 fyrir að hafa orðið tveggja ára dreng, sem hún gætti, að bana. 19.12.2008 07:32
Indverjar koma sér upp FBI Indverska þingið hefur samþykkt lagafrumvarp þess efnis að komið verði á fót alríkislögreglu í landinu sem starfa muni á svipaðan hátt og bandaríska alríkislögreglan FBI, það er óháð stjórnsýsluumdæmum. 19.12.2008 07:13
Segja færri skoðanir fjölga slysum Fjöldi slysa og dauðsfalla í umferðinni myndi stóraukast ef dregið yrði úr tíðni ástandsskoðana, að því er kemur fram í nýrri skýrslu frá breska samgönguráðuneytinu. 18.12.2008 13:45
Skókastarinn biðst afsökunar Íraski blaðamaðurinn sem kastaði skóm í átt að George Bush, Bandaríkjaforseta, og Nouri al-Maliki, forsætisráðherra Íraks, fyrr í vikunni hefur beðist afsökunar. Afsökunarbeiðnin beinist þó ekki að Bush, heldur Maliki. 18.12.2008 13:37
Flugmaður hafði ekki þjálfun til að lenda í þoku Farþegum í flugvél á leið frá Bretlandi til Frakklands brá í brún þegar flugstjórinn tilkynnti að mikil þoka væri á flugvellinum í París og hann hefði ekki nauðsynlega þjálfun til þess að lenda í þoku. 18.12.2008 12:21
Meira en 20 þúsund hafa sýkst af kóleru í Zimbabwe Yfir tuttugu þúsund manns hafa sýkst af kóleru í Zimbabwe síðan í ágúst. Robert Mugabe forseti segir að Bretar hafi komið faraldrinum af stað. 18.12.2008 12:16
Flestir deyja úr hita í Bandaríkjunum Hitabylgjur verða mun fleiri Bandaríkjamönnum að bana en jarðskjálftar og fellibylir samkvæmt nýju „dauðakorti“ vísindamanna. 18.12.2008 08:30
Óttast að eldri hjón hafi farist í bruna Óttast er að hjón á sjötugsaldri hafi farist þegar timburhús í Ósló brann til grunna í nótt. Tilkynnt var um eldinn upp úr miðnætti og hafði slökkvilið ráðið niðurlögum hans um klukkan þrjú. 18.12.2008 08:20
Flogaveikilyf getur ýtt undir sjálfsvígshugsanir Flogaveikilyfið Topamax getur ýtt undir sjálfsvígshugleiðingar þeirra sem það nota. Matvæla- og lyfjaeftirlit Bandaríkjanna krefst þess að héðan í frá verði umbúðir lyfsins kirfilega merktar aðvörunum þess efnis að notkun þess geti aukið hættuna á því að neytandinn stytti sér aldur eða hugleiði það að minnsta kosti. 18.12.2008 08:13
Dæmdur fyrir að verða börnum sínum að bana í bílslysi Breskur dómstóll fann í gær fjögurra barna föður sekan um að hafa orðið öllum börnum sínum að bana þegar hann ók Land Rover-jeppa út í hina straumhörðu Witham-á í Lincolnskíri í fyrrahaust. 18.12.2008 08:08
Skólakreppa í Tókýó Skortur á kennurum og skólaliðum í Tókýó, höfuðborg Japans, hefur orðið til þess að meira en 200 nemendaklúbbar í grunnskólum borgarinnar hafa lagst af. Að auki finna um 640 skólar fyrir einhvers konar erfiðleikum tengdum efnahags- og atvinnuástandi sem bitna á nemendum. 18.12.2008 07:30
VIlja að BAA selji rekstur þriggja flugvalla Breska samkeppniseftirlitið hefur skipað rekstrarfélaginu BAA, sem er í einkaeigu, að selja reksturinn á Gatwick- og Stansted-flugvöllunum, auk reksturs flugvallarins í Edinborg í Skotlandi en fyrirtækið hefur haft einkaleyfi til að reka þessa flugvelli síðan árið 1987. 18.12.2008 07:22
Sex mánaða vopnahlé á Gaza senn á enda Tímabundið vopnahlé Hamas samtakana og Ísrael á Gaza-ströndinni lýkur næst komandi föstudag. Það hefur staðið í sex mánuði. 17.12.2008 22:45
Fjölmargir töpuðu á pýramídasvindli Madoffs Forstjóri bandaríska fjármálaeftirlitsins hefur fyrirskipað innanhúss rannsókn á því afhverju ekki hafi verið kannaðar ábendingar um fjársvik Bernards Madoff, fyrrverandi forstjóra Nasdaq kauphallarinnar. Þær bárust eftirlitinu fyrir tæpum áratug. 17.12.2008 19:25
Öryggisráð SÞ hvatt til að efla vopnasölubann í Kongó Amnesty International hefur hvatt Sameinuðu þjóðirnar til að efla vopnasölubann sitt gagnvart Lýðveldinu Kongó. Í opnu bréfi til öryggisráðs Sameinuðu Þjóðanna, sem kom saman til fundar þann 15. desember til að ræða vopnasölubannið, skýrðu samtökin frá því að dráp, nauðganir og önnur alvarleg mannréttindabrot gegn almennum borgurum séu daglegt brauð í landinu vegna fjölgunar vopna og skotfæra í landinu. 17.12.2008 18:17
Barack Obama maður ársins hjá Time Bandaríska fréttatímaritið Time hefur valið Barack Obama, verðandi Bandaríkjaforseta, sem mann ársins 2008. 17.12.2008 16:27
Innanhússrannsókn hjá bandaríska fjármálaeftirlitinu Fjármálaeftirlitið bandaríska hefur fyrirskipað innanhússrannsókn á því hvers vegna ekkert hafi verið aðhafst þegar ábendingar bárust fyrir nærri áratug um möguleg svik Bernards Madoffs, fyrrverandi stjórnarformanns Nasdaq kauphallarinna. Madoff hefur verið ákærður fyrir milljarða dala svik og málið talið eitt það umfangsmesta í sögunni. 17.12.2008 13:41
Afríkuleiðtogar taka saman höndum Leiðtogar ríkja í sunnanverðri Afríku hafa ákveðið að taka saman höndum og bjarga Simbabve frá efnahagshruni og hörmungum kólerufaraldurs sem geisar í landinu. 17.12.2008 12:24
Síðustu bretarnir fara frá Írak í júlí Breskir hermenn verða allir farnir heim frá Írak fyrir lok júlí á næsta ári. Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, greindi frá þessu í morgun þegar hann kom í óvænta heimsókn til Íraks. 17.12.2008 12:21
Bagger kominn heim og í gæsluvarðhald Danski fjársvikamaðurinn Stein Bagger er kominn heim til Kaupmannahafnar og var í gær úrskurðaður í gæsluvarðhald fram yfir áramót en Bagger gaf sig fram við lögreglu í Los Angeles fyrir tíu dögum. 17.12.2008 08:30
Sprakk í tætlur í líkbrennsluofni Kínverji sem talið var að látist hefði af völdum eldingar lést í raun þegar hann varð fyrir eldflaug sem ætlað var að framkalla rigningu. Lík hans sprakk svo í brennsluofninum. 17.12.2008 08:15
Fyrrum Bond-stúlka fannst myrt Fyrrum Bond-stúlka úr kvikmyndinni A View to a Kill fannst myrt á heimili sínu í Norður-Dublin á Írlandi og er talið að hún hafi komið innbrotsþjófi að óvörum. 17.12.2008 08:10
Stóraðgerð gegn mafíustarfsemi Þaulskipulögð aðgerð ítölsku lögreglunnar í gær lamaði að stórum hluta starfsemi mafíunnar í Palermo, höfuðborg Sikileyjar. Rúmlega 1.200 lögreglumenn ásamt þyrlusveitum tóku þátt í aðgerðinni og handtóku 89 menn sem grunaðir eru um að tengjast mafíustarfsemi. 17.12.2008 07:29
Skiptu um 80 prósent af andliti konu Bandarískir lýtalæknar hafa nýlokið við umfangsmestu andlitsaðgerð sem framkvæmd hefur verið til þessa en hún fólst í því að skipt var um 80 prósent af húðinni á andliti hinnar rúmlega fertugu Isabelle Dinoire sem hundur veittist að og slasaði alvarlega árið 2005. 17.12.2008 07:22
Flugvél hvarf yfir Karabíska hafinu Lítil farþegaflugvél frá flugfélaginu Atlantis Airlines hvarf sporlaust yfir Karabíska hafinu í fyrradag með tólf manns um borð og leita björgunarsveitir hennar nú á stóru svæði á þyrlum og bátum. 17.12.2008 07:20
Verslunarmiðstöð í París rýmd vegna sprengjuhótunar Lögreglan í París lét rýma verslunarmiðstöð í borginni í gær eftir að fimm stautar af sprengiefninu dýnamíti fundust þar. Fréttastofunni AFP barst bréf um hádegisbil þar sem greint var frá því að sprengiefnið væri í byggingunni og ekki væri um gabb að ræða. 17.12.2008 07:17
Skjálftinn í gær sá snarpasti í Danmörku síðan 1904 Snarpasti jarðskjálfti sem riðið hefur yfir Skandinavíu í 104 ár skaut mörgum alvarlega skelk í bringu í gærmorgun. Berlingske Tidende greinir frá því að mörg hundruð þúsund manns hafi vaknað við vondan draum svo ekki sé meira sagt og alls ekki vitað hvaðan á sig stóð veðrið. 17.12.2008 07:15
Skókastari á leið í fangelsi Í arabaheiminum gæta menn þess að krossleggja ekki fæturna þannig að skósólarnir snúi að sessunautinum. Það þykir stórkostleg móðgun. Hundar eru taldir óhrein dýr. 16.12.2008 18:31
Enn einn Kennedy út í pólitíkina Caroline Kennedy er dóttir Johns Kennedys fyrrum forseta. Hún heillaði þjóðina og raunar heiminn allan upp úr skónum þegar hún lék sér sem barn í Hvíta húsinu. 16.12.2008 18:35
Franska forsetafrúin nakin á búðarpokum Carla Bruni forsetafrú Frakklands er fjúkandi reið þessa daganna. Hún hefur beðið lögmenn sína um að höfða mál gegn fyrirtæki sem framleiðir búðarpoka sökum þess að fyrirtækið hefur prentað nektarmynd af Bruni á nýjustu pokana sína. 16.12.2008 14:35
Nefnd rannsakar mál Blagojevich Ákveðið hefur verið að hefja rannsókn á málum Rod Blagojevich, ríkisstjóra Illinois, og kanna hvort forsendur séu fyrir því að dæma hann frá embætti. 16.12.2008 08:29
Hyggjast opna Taj Mahal á ný fyrir jól Stjórnendur Taj Mahal-hótelsins í Mumbai á Indlandi eru harðákveðnir í því að opna stærstan hluta hótelsins aftur fyrir jól eftir hryðjuverkaárásirnar í lok nóvember. 16.12.2008 08:27
Jarðskjálfti skekur Svíþjóð og Danmörku Jarðskjálfti að styrkleika 4,7 á Richter skók suðurhluta Svíþjóðar og hluta Danmerkur klukkan 20 mínútur yfir sex í morgun að þarlendum tíma. 16.12.2008 08:23
Er vit í vitnaleiðslum? Dómsmál í Bretlandi sýnir að framburður vitna fyrir dómi getur verið æði reikull og í versta falli tómt rugl. 16.12.2008 08:17
Rændu spilavíti í Danmörku Tveir vopnaðir ræningjar komust undan með töluvert fé í Rødovre á Sjálandi um miðnætti þegar þeir rændu spilavíti þar sem um það bil 20 manns sátu og spiluðu póker. 16.12.2008 08:15
Hundruð þúsunda án rafmagns í Bandaríkjunum Um 400.000 manns eru án rafmagns í norðausturhluta Bandaríkjanna eftir helkulda og vonskuveður sem geisað hefur í nær heila viku. Massachusetts- og New Hampshire-ríki hafa orðið verst úti og þegar útlitið var sem dekkst var rafmagnslaust hjá einni milljón íbúa á svæðinu. 16.12.2008 07:58
Indverjar undirbúa árás á hryðjuverkabúðir í Pakistan Indverski flugherinn er nú í startholunum fyrir loftárás á meintar búðir hryðjuverkamanna í Pakistan í kjölfar árása pakistanskra öfgamanna á Mumbai á Indlandi í lok nóvember. Þetta hefur CNN eftir háttsettum mönnum innan raða Bandaríkjahers. 16.12.2008 07:31
Caroline Kennedy sækist eftir sæti Hillary Clinton Caroline Kennedy, dóttir forsetans fyrrverandi, John F. Kennedy, og dyggur stuðningsmaður Baracks Obama, hefur lýst því yfir að hún sækist eftir sæti Hillary Clinton í öldungadeild Bandaríkjaþings þegar Clinton tekur sæti utanríkisráðherra nýrrar ríkisstjórnar Obama. 16.12.2008 07:28
Skókastaranum fagnað sem þjóðhetju Íraska blaðamanninum, sem grýtti skóm sínum að George Bush Bandaríkjaforseta í Baghdad í gær með ókvæðisorðum, er nú fagnað sem þjóðarhetju í Mið-Austurlöndum. 16.12.2008 07:27