Fleiri fréttir

Pólskur Fritzl handtekinn

Pólskur karlmaður hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald í þrjá mánuði, grunaður um að hafa misnotað dóttur sína.

Sakfelldir fyrir að skipuleggja flugvélahryðjuverk

Þrír menn voru í Bretlandi í dag sakfelldir fyrir að leggja á ráðin um meiri háttar hryðjuverk. Þeir voru ásamt fimm öðrum ákærðir fyrir að hafa ætlað að sprengja sprengjur um borð í flugvélum á leið yfir Atlantshafið.

Kim Yong Il er löngu dauður

Japanskur sérfræðingur í málefnum Norður-Kóreu segir að leiðtogi landsins, Kim Yong Il hafi látist úr sykursýki árið 2003.

Myrtu dótturina út af skilnaði

Foreldrar sautján ára gamallar pakistanskrar stúlku myrtu hana þegar hún reyndi að skilja við 45 ára gamlan mann sem hún hafði verið gift þegar hún var níu ára gömul.

Obama og McCain slíðra sverðin 11. september

Bandarísku forsetaframbjóðendurnir John McCain og Barack Obama ætla að gera hlé á baráttunni um Hvíta húsið á fimmtudaginn kemur en þá eru sjö ár liðin frá hryðjuverkaárásunum 11. september 2001.

Rússar lofa að fara frá Georgíu

Rússar hafa lofað að draga herlið sitt frá Georgíu innan mánaðar. Þetta var tilkynnt eftir að Nicolaz Sarkozy forseti Frakklands átti í dag fund með Dmitry Medvedev, forseta Rússlands.

Sprengjur sprungu við tvo búlgarska nektardansstaði

Fimm eru slasaðir eftir að sprengjur sprungu nær samtímis fyrir utan nektardansstaðina Panthers og Casablanca í Sofiu, höfuðborg Búlgaríu í dag. Að minnsta kosti eitt fórnarlambanna er alvarlega slasað og telur lögregla öruggt að sprengingarnar tengist undirheimaátökum.

Ike yfir Kúbu

Þessi gervihnattamynd sýnir fellibylinn Ike yfir Kúbu. Hann nú er sagður hafa náð fjórða styrktarstigistigi af fimm.

Geimrusl veldur hættu

Það er orðið hættulegra en áður að fara út í geiminn. Bandaríska geimeftirlitsstofnunin segir að um þrettán þúsund manngerðir hlutir sem eru stærri en tíu sentimetrar séu á braut um jörðu.

Flott afmæli í Swazilandi

Það var ekkert til sparað þegar Mswati konungur Swazilands varð fertugur á laugardaginn. Ríki hans fagnaði fertugsafmæli þennan sama dag.

Ákærður fyrir að misnota vikugamla dóttur

Átján ára gamall faðir í Forrest City í Arkansas er í haldi lögreglu og hefur verið ákærður fyrir kynferðislega misnotkun og ofbeldi gegn átta daga gamalli dóttur sinni. Barnið liggur nú á barnaspítalanum í Little Rock í Arkansas meðal annars með alvarlega höfuðáverka.

Bandaríkjafloti gerir við hakakross

Bandaríski flotinn er að verja allnokkrum milljónum króna í að gera upp fjörutíu ára gamla íbúðarskála fyrir sjóliða sína.

Ike orðinn annars stigs bylur

Áfram hefur dregið úr styrk fellibyljarins Ike en hann gekk á land á Kúbu í nótt. Hann telst nú annars stigs fellibylur en var í gærmorgun fjórða stigs bylur samkvæmt hinum svokallaða Saffir-Simpson kvarða.

Evrópusambandstríó á fund Medvedevs

Nicolas Sarkozy, forseti Frakklands, heldur í dag til Rússlands þar sem hann hyggst ræða við starfsbróður sinn, Dmítrí Medvedev, um málefni Georgíu.

Hefur ekið póstbíl milljón mílur

Bílstjóri hjá hraðsendingafyrirtækinu UPS í Bandaríkjunum fagnaði þeim tímamótum um helgina að vegmælirinn í vinnubílnum hans, sem framleiddur er af General Motors, sýndi á ný stöðuna núll þar sem bílnum hafði verið ekið eina milljón mílna.

Umferðaröngþveiti rænir Dani frítíma

Danir kvarta nú sáran yfir því að tafir í umferðaröngþveiti séu farnar að ræna þá dýrmætum frí- og fjölskyldutíma í æ ríkara mæli en áður.

McCain með forystu á Obama

Repúblikaninn John McCain hefur fjögurra prósenta forskot á keppinaut sinn, Barack Obama, ef marka má Gallup-könnun sem birt var í Bandaríkjunum í gærkvöldi.

600 þúsund Kúbverjar fluttir í skjól

Um 600 þúsund Kúbverjar hafa verið fluttir í skjól vegna fellibylsins Ike sem kom að ströndum eyjarinnar í nótt og mun að líkindum fara yfir hana endilanga.

Danskir ráðherrar sofandi á fundum með drottningunni

Það er ekki eintóm sæla að vera ráðherra í Danmörku ef marka má nýja bók Flemmings Hansen, fyrrverandi samgönguráðherra. Þar ljóstrar hann því upp að fjölda ráðherra leiðist svo á ríkisráðsfundum með drottningunni að þeir fá sér kríu.

Blóðugt glæpagengjastríð framundan í Danmörku

Lögreglan í Danmörku telur að blóðugt stríð sé framundan milli Hells Angels annarsvegar og glæpagengja af annari kynslóð innflytenda í Danmörku hinsvegar. Átök milli þessara gengja hafa stigmagnast á undanförnum vikum.

Fellibylurinn Ike orðinn að fjögurra stiga fárvirði

Fellibylurinn Ike fór yfir Turks og Caicos eyjar sem fjögurra stiga fárviðri í nótt. Þá höfðu eyjaskeggjar vart náð að jafna sig eftir fellibylinn Hönnu sem var yfir þessari bresku nýlendu í fjóra daga í síðustu viku.

Evrópusambandið sendir óvopnaða eftirlitsmenn til Georgíu

Utanríkisráðherrar Evrópusambandsins ákváðu í dag að senda óvopnaða eftirlitsmenn til Georgíu til að fylgjast með því að Rússar virði samkomulag um að draga heri sína frá Georgíu. Þá vilja ráðherrarnir láta rannsaka hverjir hafi átt upptökin að átökunum í síðasta mánuði.

Ekkill Benasír Bhutto kjörinn forseti Pakistan

Ekkill Benasír Bhutto var í dag kjörinn forseti Pakistans. Hann er talinn fylgja Bandaríkjunum að málum í baráttunni við hryðjuverkamenn en sat í ellefu ár í fangelsi fyrir spillingu á meðan herforingjar stjórnuðu landinu.

Lögregla kölluð til eftir neyðaróp páfagauks

Nágrannar við hús eitt í New Jersey kölluðu lögregluna til eftir að þeir heyrðu ítrekuð neyðaróp úr húsinu. Lögreglan sparkaði upp hurðinni að húsinu og leitaði um allt á þess að finna nokkurn innandyra. Þá kom í ljós að páfagaukurinn á heimilinu átti ópin.

Bjössi kom upp um fíkniefnaframleiðslu

Talið er að stór skógarbjörn hafi tekið lögin í sínar eigin hendur í Utah í Bandaríkjunum nýlega. Björnin vandi komur sínar á sveitabæ þar sem hassframleiðsla fór fram. Eitthvað virðist hassbóndinn hafa látið bjössa skelfa sig því að hann flúði býlið.

Sjá næstu 50 fréttir