Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Umfangsmiklar loftárásir á Samarraborg Bandaríkjaher hóf í dag einhverjar umfangsmestu loftárásir sínar á Írak síðan þeir réðust inn í landið árið 2003. Bandarískra og íraskra hersveitir gera nú loftárásir á felustaði andspyrnumanna í borginni Samarra. 16.3.2006 16:56
Staða Olmerts styrkist Staða Ehuds Olmert, starfandi forsætisráðherra Ísraels, hefur styrkst eftir árás hersins á fangelsi Palestínumanna í Jeríkó á þriðjudag þar sem Ahkmed Saadat, leiðtogi herskárrar hreyfingar Palestínumanna, var numinn á brott. Stjórnmálaskýrendur segja ástæðuna vera þá að Ísraelar elski það þegar óvinurinn er niðurlægður 16.3.2006 12:54
Fær ekki að liggja í þinghúsinu Lík Slobodans Milosevic, fyrrum forseta Júgóslavíu, (LUM) mun ekki liggja í þinghúsinu í Belgrad, höfuðborg Serbíu, áður en það verður jarðsett. Fjölskylda hans og stuðningsmenn höfðu vonast til þess. Kista hans mun þó standa í safni nálægt þinghúsinu og munu stuðningsmenn hans geta vottað honum virðingu sína með því að ganga fram hjá henni. Milosevic verður jarðsettur í heimabæ sínum Pozarevac í austurhluta Serbíu á laugardag. 16.3.2006 12:53
Hætta við og fara Repúblikanar í Bandaríkjunum eru hæstánægðir með þá ákvörðun eigenda fjárfestingafélagsins DP World, sem eru frá Dubai, að selja þær hafnir sem þeir eiga í Bandaríkjunum. Þannig minnki hættan á hryðjuverkum í landinu til muna. Þeir segja að ákvörðunin muni styrkja samband landanna tveggja í framtíðinni. 16.3.2006 12:49
Engin lausn komin Enn þokast ekkert í viðræðum fastafulltrúa í Öryggisráðinu um kjarnorkuáætlanir Írana. Jean Marc de La Sabliere, sendiherra Frakka í ráðinu, sagði í gær nauðsynlegt að Öryggisráðið kæmist fljótlega að niðurstöðu um málið. 16.3.2006 12:47
Jaafari tilbúinn að hætta Ibrahim Jaafari, forsætisráðherra Íraks, segist reiðubúinn til að stíga af stóli ef komi í ljós að hann hafi ekki stuðning meirihluta Íraka. Þetta sagði hann við setningarathöfn íraska þingsins í morgun. 16.3.2006 11:56
Nægur maís í Malaví Maísuppskera hefur ekki verið jafngjöful í tíu ár í Malaví en maís er undirstaða í mataræði malavísku þjóðarinnar. Regntímabilið tekur nú senn enda í landinu og hefur rignt vel og lengi og eru Malavíar í sjöunda himni því þurrkatímabil hafa truflað regnið undanfarin ár sem hefur leitt til uppskerubrests. Þetta kemur fram í upplýsingum frá Þróunarsamvinnustofnun Íslands. 16.3.2006 11:15
Íranar vilja ræða við Bandaríkjamenn um Írak Íranar eru reiðubúnir til að hefja viðræður við Bandaríkjamenn um ástandið í Írak. Þetta sagði Larijani, ein helsti samningamaður Írana. Yfirlýsing hans er svar við beiðni eins helsta leiðtoga sjía-múslima í Írak um að Íranar tækju upp viðræður við stjórnvöld í Washington. 16.3.2006 10:45
Mótmælendur meðhöndlaðir eins og hryðjuverkamenn Stjórnandstaðan í Hvíta-Rússlandi leggur á ráðinu um valdarán í landinu og dylja það með andstöðu við tilraunir Lukashenkos, forseta landsins, til að ná endurkjöri. Þetta sagði yfirmaður leyniþjónustu landsins í dag. 16.3.2006 10:30
Ströng gæsla við mótmæli í dag Nemendur í háskólum og framhaldsskólum í gjörvöllu Frakklandi halda í dag áfram skipulögðum mótmælum gegn frumvarpinu um atvinnusamning fyrir ungmenni. Nicholas Sarkozy innanríkisráðherra boðaði skipuleggjendur mótmælanna á sinn fund til þess að reyna að koma í veg fyrir að mótmælin fari úr böndunum. 16.3.2006 09:23
Réttarhöldunum yfir Saddam frestað á ný Réttarhöldunum yfir Saddam Hussein, fyrrverandi forseta Íraks, var í gær frestað til 5. apríl. Saddam bar vitni við réttarhöldin í gær og sagði þau vera hreinan gamanleik. Þegar dómarinn hafði fengið nóg lét hann rýma blaðamannastúkuna og tilkynnti skömmu síðar að réttarhöldunum hefði verið frestað. 16.3.2006 09:00
H&M ætlar að hækka verð Og hér er slæm frétt fyrir alla íslensku aðdáendur H&M verslananna sem eru fjölmargir því forsvarsmenn verslunarkeðjunnar sænsku eru sagðir hafa ákveðið að hækka vöruverð í búðum sínum á næstu þremur árum. Þetta kemur fram á fréttavef Jyllands-Posten. Ekki verður þó gefin út opinber yfirlýsing um málið en ársfjórðungsuppgjör fyrirtækisins verður birt þann 29. mars og er þá búist við tilkynningunni. Verðlag í verslunum H&M hefur farið lækkandi síðastliðin tólf ár. 16.3.2006 09:00
Lík Milosevic komið til Belgrad Lík Slobodans Milosevic, fyrrverandi forseta Júgóslavíu er komið til Belgrad í Serbíu. Þjóðernissinnaðir Serbar og aðrir stuðningsmenn Milosevic ætla að fjölmenna við útförina og er talið að þar kunni allt að ein miljón manna að koma saman. Enn er óvíst hvort serbnesk stjórnvöld muni veita honum heiðursútför en það er þó talið ólíklegt. 16.3.2006 08:45
Féllu í skothríð í Kaliforníu Tveir féllu þegar maður hóf skothríð á veitingastað í suður Kaliforníu í gær. Þá særðist par í árásinni en fókið eru ekki í lífshættu. Eftir að árásarmaðurinn hafði lokið sér af, tók hann eigið líf. Fimmtán manns voru inni þegar skothríðin hófst en ástæða fyrir árásinni er enn ókunn. Málið er í rannsókn. 16.3.2006 08:45
Íraksþing kemur saman Íraksþing verður sett með formlegum hætti í fyrsta sinn í dag, þremur mánuðum eftir fyrstu þingkosningarnar í landinu. Þingsetningarathöfnin verður haldinn á sama tíma og trúarátök í landinu stigmagnast dag frá degi, en margir segja að Írak sé á barmi borgarastyrjaldar. Geore Bush Bandaríkjaforseti segir þó enga hættu á borgarastyrjöld og að aðeins tímaspursmál sé hvenær friður komist á í Írak. 16.3.2006 08:45
Viðræður Öryggisráðsins þokast ekkert Enn þokast ekkert í viðræðum fastafulltrúa í Öryggisráðinu um kjarnorkuáætlanir Írana. Jean Marc de La Sabliere, sendiherra Frakka í ráðinu sagði í gær, nauðsynlegt að Öryggisráðið kæmist fljótlega að niðustöðu um málið en á meðan Bandaríkjamenn, Frakkar og Bretar vilja beita Írana refsiaðgerðum, segja Rússar og Kínverjar það ekki tímabært enda myndu þær ekki skila öðru en frekari vandamálum. 16.3.2006 08:30
Vaxandi tiltrú á íslensku krónunni Þýskur banki gaf í gær út skuldabréf í íslenskum krónum, svonefnd krónubréf, og er það fyrsta erlenda peningastofnunin sem það gerir síðan Fitch Ratings gaf út skýrslu sína um íslensk efnahagsmál, sem olli lækkun krónunnar og hlutabréfavísitölunnar. Bankinn gaf út bréf fyrir tvo milljarða króna og er þessháttar útgáfa þá komin upp í 213 milljarða frá því að hún hófst síðsumars í fyrra. Tiltrú á íslenskt efnahagslíf viðrist því fara vaxandi á ný. 16.3.2006 08:15
Maður dæmdur til dauða í Flórída Maður á fertugsaldri var í gær dæmdur til dauða í Flórída fyrir að hafa numið ellefu ára stúlku á brott, nauðgað henni og síðan myrt. Brottnámið náðist á myndband eftirlitsmyndavélar og leiddi það til þess að maðurinn var handtekinn. Í síðasta mánuði baðst maðurinn fyrirgefningar á glæpum sínum. Hann sagðist hafa neytt heróíns og kókaíns í því skyni að fyrirfara sér, áður en hann nam stúlkuna á brott. 16.3.2006 08:15
Veiktust lífshættulega af nýju lyfi Sex manns eru á gjörgæslu, þar af eru tveir í lífshættu, á sjúkrahúsi í Lundúnum eftir að hafa veikst af nýju lyfi sem verið er að gera tilraunir með. Sexmenningarnir voru allir við góða heilsu þegar þeir féllust á að taka þátt í prófun á nýju bólgueyðandi lyfi. Það var fyrirtækið Parelex sem stóð að tilraununum 16.3.2006 08:00
Bílsprengja í París Maður lét lífið og annar særðist þegar bílsprengja sprakk í úthverfi Parísar í dag. Að sögn franskra fjölmiðla hafði maðurinn komist í kast við lögin og lögreglu grunar að um hafi verið að ræða hefndaraðgerð glæpaflokka. 15.3.2006 18:00
Yfirheyrður bak við luktar dyr Dómarar í réttarhöldunum yfir Saddam Hussein, fyrrverandi forseta Íraks, hafa lokað dómssalnum á meðan einræðisherrann fyrrverandi ber vitni í málinu. Vitnaleiðslur yfir Saddam hófust í morgun. 15.3.2006 17:45
Lík Milosevic komið til Serbíu Lík Slobodans Milosevic er komið heimalands hans, Serbíu. Flogið var með jarðneskar leyfar hans frá Hollandi í gær og flugvél sem flutti þær lenti í Belgrad í dag. 15.3.2006 17:30
Engin niðustaða enn Rússar og Kínverjar neita að samþykkja tillögu Bandaríkjamanna, Frakka og Breta um að beita Írana refsiaðgerðum vegna kjarnorkuáætlana þeirra. Öryggisráðið mun ræða málið í dag. 15.3.2006 12:10
Samráð Bandaríkjanna, Ísraela og Breta Framkvæmdastjóri Arababandalagsins, segir Bandaríkjamenn og Breta bera ábyrgð á árás Ísraelsmanna á fangelsi Palestínumanna í Jeríkó og þeim átökum sem urðu í kjölfarið. Hann segir ljóst að einhverskonar samráð hafi átt sér stað milli þeirra og Ísraela. 15.3.2006 12:04
Fuglaflensa komin upp í Danmörku Fuglaflensan er komin upp í Danmörku. Yfirvöld þar í landi tilkynntu í morgun að veira af H5 stofni hefði fundist í dauðum villtum fugli. Ekki er ljóst hvort veiran er af stofninum H5N1, sem getur borist í menn, en boðað hefur verið til blaðamannafundar síðar í dag þar sem frekari upplýsingar verða gefnar. 15.3.2006 09:55
Lík af 90 mönnum finnast í Bagdad Lík um níutíu manna fundust í Bagdad, höfuðborg Íraks, í morgun en allir höfðu þeir verið skotnir í höfuðið. Talið er að mennirnir hafi verið myrtir í tengslum við sprengjuárás sem gerð var á hverfi sjía á sunnudag en þá létu 58 lífið og yfir 200 særðust. 15.3.2006 09:15
Milosevic jarðsettur í Belgrad Háttsettir menn í flokki Slobodans Milosevic, fyrrverandi leiðtoga Júgólsavíu, tilkynntu í gærkvöld að Milosevic yrði jarðsettur í Belgrad, höfuðborg Serbíu. Lík Milosevic, sem lést í Haag í síðustu viku, er nú á Schipholflugvelli í Hollandi en verður væntanlega flutt á leiðarenda í dag. Eiginkona Milosevic, Mira Markovich og sonur þeirra vildu að hann yrði jarðsettur í Moskvu 15.3.2006 08:30
Bandaríkjamenn reiðubúnir fyrir kvenforseta Bandaríska þjóðin er reiðubúin fyrir kvenforseta en það þyrfti þó að vera repúblikani. Þetta sagði Laura Bush, forsetafrú í Bandaríkjunum þegar hún heimsótti Kvennalistasögusafnið í Washington ásamt forsetafrú í Mexíkó og forsetafrú í Perú. Laura Bush hefur lýst því yfir að hún styðji Condoleezzu Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, í forsetaembættið, en Rice hefur aftur á móti margoft sagt að hún hafi engan áhuga á þeirri stöðu. 15.3.2006 08:30
Fimm lögreglumenn slösuðust Fimm lögreglumenn slösuðust þegar til átaka kom á milli lögreglu og námsmanna í París í gær. Námsmennirnir voru að mótmæla fyrirhugaðri setningu laga um breytingu á lögum sem fjalla um starfssamninga fólks undir 26 ára aldri með ákvæðum um möguleika á uppsögn án útskýringa. Þeim er ætlað að hvetja vinnuveitendur til að ráða ungt fólk án þess að þeir þurfi að óttast að sitja uppi með starfsmenn sem ekki standa sig. 15.3.2006 08:15
Gáfust upp eftir daglangt umsátur Palestínumennirnir sex sem gáfust upp fyrir ísraelska hernum eftir daglangt umsátur um fangelsið sem þeir sátu í, verða kvaddir fyrir ísraelskan dómstól og látnir svara til saka fyrir morð á ísraelskum ráðherra. Frá þessu greindi ísraelskur embættismaður í gærkvöld. Einn mannanna, Ahmed Saadat, er leiðtogi Alþýðufylkingar til frelsunar Palestínu 15.3.2006 07:45
Ósamkomulag innan Öryggisráðs SÞ Fulltrúar þeirra ríkja í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna sem hafa þar neitunarvald, Kína, Frakklands, Rússlands, Bandaríkjanna og Bretlands, hittust í gær til að ræða stöðu Írans. Engin niðustaða fékkst að þessu sinni en á meðan Kínverjar og Frakkar vilja ekki beita refsiaðgerðum vilja Frakkar, Bretar og Bandaríkjamenn það ólmir. 15.3.2006 07:33
Lík Milosevic flutt frá Haag Lík Slóbódans Milosevic, fyrrverandi forseta Júgóslavíu, var flutt frá Haag í Hollandi á flugvöllinn í Amsterdam síðdegis í kvöld. Marko Milosevic sótti lík föður síns. Serbneskur dómstóll hefur dregið til baka handtökuskipun á hendur Mirjönu Markovic, ekkju Milosevic, og hafa líkur aukist á að hann verði grafinn í heimalandi sínu. 14.3.2006 23:15
Franskir stúdentar mótmæla enn Umsátursástand var í fjölmörgum háskólum víðsvegar um Frakkland í dag þegar mörg þúsund háskólanemar mótmæltu nýrri vinnulöggjöf stjórnvalda. Stúdentar segjast fullvissir að mótmælin hafi tilætluð áhrif og hætt verði við gildistöku laganna. Ekkert virðist þó benda til þess. 14.3.2006 22:00
Handtökuskipunin dregin til baka Serbneskur dómstóll hefur dregið til baka handtökuskipun á hendur Mirjönu Markovic, ekkju Slobodans Milosevic. Þar með hafa líkurnar á að forsetinn fyrrverandi verði grafinn í heimalandi sínu, aukist. Marko, sonur þeirra, kveðst fullviss um að faðir sinn hafi verið ráðinn af dögum. 14.3.2006 18:45
Ólga á herteknu svæðunum eftir árás Ísraela Ófremdarástand hefur ríkt á Gaza-ströndinni og Vesturbakkanum í dag eftir að Ísraelsher réðst á fangelsi í Jeríkó þar sem grunaðir hermdarverkamenn voru í haldi. Kveikt var í húsakynnum bandarískra og breskra stofnana og nokkrum Vesturlandabúum var rænt. 14.3.2006 18:30
Saadat hefur gefist upp Ahmed Saadat og félagar hans hafa gefist upp fyrir ísraelskum hersveitum sem í allan dag hafa setið um fangelsi í Jeríkó þar sem þeir eru í haldi. 14.3.2006 17:14
Flóð í Grikklandi Allt er á floti í austurhluta Grikklands þar sem ár hafa flætt yfir bakka sína og kaffært ræktarland og jafnvel hús. Mikið hefur snjóað og rignt á svæðinu síðustu daga og hafa flóðgarðar brostið. Óttast er að flóðin nú verði þau verstu í fimmtán ár. 14.3.2006 16:45
Réttarhöldin í uppnámi Réttarhöldin yfir Zacharias Moussaoui eru í uppnámi eftir að í ljós kom að einn lögmanna stjórnvalda hafði samband við nokkur lykilvitni í málinu. 14.3.2006 16:16
Palestínumenn reiðir Bretum og Bandaríkjamönnum Vesturlandabúar hafa verið skotmörk ævareiðra Palestínumanna á Gasaströndinni og Vesturbakkanum í dag vegna umsátursástand við fangelsi í Jeríkó. Ísraelsher gerði áhlaup á það í morgun og var ætlunin að taka höndum Ahmed Saadat, einn helsta leiðtoga herskrárra Palestínumanna. Palestínumenn kenna Bretum og Bandaríkjamönnum um. 14.3.2006 16:15
Með fimm hundruð kíló af ufsaflökum í bílnum. Tollverðir í Noregi stöðvuðu nýlega ferðamann sem var með fimm hundruð kíló af ufsaflökum í bílnum. Á fréttavefnum interseafood.com segir að ferðamenn í Noregi stundi gjarnan stangveiðar við strendur landsins. Í seinni tíð séu þeir orðnir faglegir og tómstundagamanið farið að líkjast iðnaði. 14.3.2006 14:42
Bandaríkjaforseti aldrei óvinsælli Bandaríkjaforseti hefur aldrei verið jafn óvinsæll og nú og fjölgar þeim stöðugt sem krefjast þess að bandaríski herinn verði kvaddur heim frá Írak hið fyrsta. Bush segir ástandið í Írak sífellt fara batnandi og biður landa sína um að sýna stillingu. 14.3.2006 13:46
Hagnaður French Connection minni Útlit er fyrir að hagnaður tískufatafyrirtækisins French Connection á síðasta ári sé aðeins um helmingur af hagnaði ársins á undan eða um 15,7 milljónir punda. Stjórnarformaður French Connection, Stephen Marks er stærsti hluthafinn í félaginu með 42% hlut en Baugur á um 14% hlut í keðjunni, að því er fram kemur á fréttavef The Times. Mikil verðlækkun var á bréfum í French Connection í Kauphöllinni í London í morgun og lækkuðu bréfin um 3,5% á fyrsta klukkutímanum. 14.3.2006 13:44
Forsætisráðherrann óvinsæll Forsætisráðherra Taílands, Thaksin Shinawatra, sagði í dag að hann myndi lýsa yfir neyðarástandi í landinu ef mótmælendur andvígir stjórninni grípi til ofbeldis. 14.3.2006 13:42
Lennard Meri látinn Lennart Meri, fyrrverandi forseti Eistlands er látinn. Hann var 76 ára. Meri hafði háð langa baráttu við erfið veikindi að sögn talsmanns forsetaskrifstofunnar í Eistlandi. 14.3.2006 13:39
Vilja fá að kryfja líkið Rússnesk stjórnvöld hafa farið fram á það við Alþjóðastríðsglæpadómstólinn í Haag að rússneskir læknar fái að kryfja lík Slobodans Milosevic, fyrrverandi forseta Júgóslavíu. Utanríkisráðherra Rússa, segist einfaldlega ekki trúa þeim niðurstöðum krufningar að Milosevic hafi látist úr hjartaáfalli. 14.3.2006 13:36