Erlent

Saadat hefur gefist upp

Öflugum vopnum var beitt í umsátrinu.
Öflugum vopnum var beitt í umsátrinu. MYND/AP

Ahmed Saadat, leiðtogi herskárra samtaka Palestínumanna, og félagar hans hafa gefist upp fyrir ísraelskum hersveitum sem í allan dag hafa setið um fangelsi í Jeríkó þar sem þeir eru í haldi.

Ísraelsher sat um fangelsið í allan dag en ísraelsk stjórnvöld gruna Saadat og félaga hans um að hafa ráðið ísraelskan ráðherra af dögum árið 2001. Þeir sögðust mundu berjast til síðasta manns en áður en til þess kom gáfust þeir upp.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×