Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Þurfti að beita táragasi Óeirðalögregla í París þurfti að beita táragasi til að dreifa fjölda námsmanna sem efndi til mótmæla gegn nýjum lögum um störf fyrir ungt fólk í gær. Lögin fjalla um starfssamninga fólks undir 26 ára aldri með ákvæðum um möguleika á uppsögn án útskýringa innan tveggja ára. Þeim er ætlað að hvetja vinnuveitendur til að ráða ungt fólk án þess að þeir þurfi að óttast að sitja uppi með starfsmenn sem ekki standa sig. 14.3.2006 08:00
Lík af ungabörnum fundust á heimili í Þýskalandi Þrjú illa farin lík af ungabörnum fundust á heimili 36 ára þýskrar konu í gær. Nokkur ár virðast liðin síðan börnin voru myrt. 13.3.2006 23:00
Þrír látnir úr fuglaflensu í Azerbædjan Þrjú dauðsföll af völdum fuglaflensu voru staðfest í Azerbædjan í kvöld. Fuglaflensa hefur ekki áður greinst í fólki í landinu. 13.3.2006 22:45
Markviss áróður gegn stjórnvöldum í Íran Bandaríkjastjórn hyggst hefja markvissan áróður gegn stjórnvöldum í Íran. George Bush, Bandaríkjaforseti, sakaði Írana í dag um að eiga stóran þátt í ófremdarástandinu í Írak. 13.3.2006 22:18
Milosevic hugsanlega jarðsettur í Serbíu Boris Tadic, forseti Serbíu, útilokar ekki að Slobondan Milosevic verði jarðaður í Serbíu. Fyrr í dag sagði Tadic það fullkomlega óviðeigandi að Milosevic yrði borinn til grafar þar. 13.3.2006 22:14
Rússar treysta ekki krufningu á Milosevic Eiturefnafræðingur segist hafa fundið lyf í líkama Slobodans Milosevic, fyrrverandi forseta Júgóslavíu, sem hafi óbeint valdið hjartaáfallinu sem dró hann til dauða á laugardagsmorgun. Rússnesk stjórnvöld efast um hlutleysi þeirra sem skera úr um dánarorsök forsetans fyrrverandi. 13.3.2006 19:45
Rússar draga krufninguna í efa Eiturefnafræðingur segist hafa fundið lyf í líkama Slobodans Milosevic, fyrrverandi forseta Júgóslavíu, sem hafi óbeint valdið hjartaáfallinu sem dró hann til dauða á laugardagsmorgun. Rússnesk stjórnvöld efast um hlutleysi þeirra sem skera úr um dánarorsök forsetans fyrrverandi. 13.3.2006 19:00
Kona handtekin vegna morðsins á Hariri Líbönsk kona sem grunuð er um aðild að morðinu á Rafik Hariri, fyrrverandi forsætisráðherra Líbanons, var handtekin í Sao Paulo í Brasilíu í gær. Brasilíska lögreglan greindi frá þessu í dag. 13.3.2006 18:15
Milosevic verði ekki borinn til grafar í Belgrad Boris Tadic, forseti Serbíu, hefur alfarið hafnað því að Slobodan Milosevic, fyrrverandi forseti Júgóslavíu, verði borinn til grafar í Belgrad, höfuðborg Serbíu. 13.3.2006 17:45
Ekki óskað eftir framsali Taylors Stjórnvöld í Líberíu sögðu í dag ekkert til í þeim fréttum að þau hafi formlega farið þess á leit við yfirvöld í Nígeríu að Charles Taylor, fyrrverandi forseti Líberíu, verði framseldur. Taylor er eftirlýstur fyrir stríðsglæpi. 13.3.2006 17:30
Krefjast afsagnar forsætisráðherra Tælands Búist er við að allt að 100 þúsund mótmælendur safnist saman við skrifstofu Thaskin Shinawatra, forsætisráðherra Tælands á morgun til að krefjast afsagnar hans. Almenningur í Tælandi hefur staðið fyrir friðsömum fjöldamótmælum undanfarin mánuð í eftir að fjölskylda forsætisráðherrans seldi fyrirtæki sitt til fjárfestingarfyrirtækis í eigu stjórnvalda í Singapore. Fjölskylda forsætisráðherrans hagnaðist um tvo milljarða bandaríkjadal af sölunni en greiddi enga skatta til tælenska ríkisins. 13.3.2006 17:00
Rússar treysta ekki krufningarniðurstöðum Rússnesk yfirvöld segjast ekki treysta niðurstöðu krufningar á líki Slobodans Milosevic, fyrrverandi forseta Júgóslavíu, sem framvkæmd var í Hollandi og sýnir að hann hafi látist úr hjartaáfalli. Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, staðfesti í dag að handskrifað bréf hefði borist rússneskum yfirvöldum frá Milosevic. 13.3.2006 16:15
Fá greitt frá klámiðnaðinum Tölvuþrjótar fá greitt frá fyrirtækjum í klámiðnaði til að koma af stað svokölluðum pop-up gluggum hjá tölvunotendum um allan heim. Í grein sem birtist í Washington Post segir að þrjótarnir eru með leitarvélar sem eru starfandi allan sólarhringinn og finna óvarðar vélar sem ekki hafa veiruvarnarforrit og koma fyrir hugbúnaði sem gefur þeim fulla stjórn á viðkomandi tölvum. Þegar notandinn opnar vafra þá opnast sjálfkrafa ótal klámsíður svo kallaðir pop-up gluggar, með þessu eykst umferð á klámsíður og fyrir þetta borgar klámiðnaðurinn tölvuþrjótum stórfé. 13.3.2006 13:45
Ekki útilokað að Milosevic hafi verið byrlað eitur Ekki er útilokað að Slobodan Milosevic, fyrrverandi forseta Júgóslavíu, hafi verið byrlað eitur en Milosevic lést úr hjartaáfalli samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðum krufningar. Krufningin var gerð af hollenskum réttarlæknum að tveimur serbneskum réttarlæknum viðstöddum. Saksóknarar segja að eiturefnafræðileg rannsókn verði samt sem áður gerð þótt dánarorsökin liggi fyrir. Þrálátur orðrómur er á kreiki um að hann hafi stytt sér aldur, jafnvel að eitrað hafi verið fyrir honum. 13.3.2006 12:45
Viðurkenndi að hafa fyrirskipað aftökur Einn af samstarfsmönnum Saddams Hussein viðurkenndi í morgun fyrir rétti að hann hefði gefið út fyrirskipun um aftöku 148 manna. Awad Hamed al-Bandar var áður yfirmaður byltingardómstólsins í Írak og er ásamt hinum sjö verjendunum kærður fyrir að bera ábyrgð á drápunum í sjítabænum Dujail árið 1982. Verði áttmenningarnir fundnir sekir, gætu þeir átt yfir höfði sér dauðadóm. 13.3.2006 12:30
Áfram réttað yfir Saddam Hussein Réttarhöldin yfir Saddam Hussein, fyrrverandi forseta Íraks, og sjö samstarfsmönnum hans, hófust að nýju í Bagdad í morgun. Verið er að taka skýrslur af sakborningunum, sem ákærðir hafa verið fyrir glæpi gegn mannkyninu með því að skipuleggja fjöldamorð á shitamúslinum. 13.3.2006 10:30
Mannskæðir skýstrókar fara um Bandaríkjunum Tveir létust þegar bíll sem þeir voru í lenti í skýstrók í Missouri í Bandaríkjunum. Bíllinn þeyttist upp á gastank með fyrrgreindum afleiðingum. Skýstrókar hafa eyðilagt um tuttugu heimili á um þrjátíu kílómetra leið frá Missouri að Illinois og hafa nokkrir særst í ósköpunum að sögn lögregluyfirvalda á staðnum. 13.3.2006 10:00
Sex látast í miklum eldum Sex hafa látist í miklum eldum í Texas og hafa sex til viðbótar slasast. Tveir hinna látnu voru að reyna að flýja heimili sín þegar þeir létust. Eldarnir ná yfir meira en 120 þúsund hektara lands og hefur erfilega gengið að ráða niðurlögum þeirra. Flugvélar og þyrlur hafa ekki getað tekið þátt í slökkvistarfinu vegna vinda en vindhraðinn hefur farið upp í 89 kílómetra á klukkustund í mestu hviðunum. 13.3.2006 09:00
Styðja forseta Kólombíu Samkvæmt fyrstu tölum virðist sem að flokkar sem styðja forseta Kólumbíu, Alvaro Uribe, ætli að vinna sannfærandi sigur í þingkosningunum þar í landi. Búið er að telja tvo þriðju hluta atkvæða. Kólumbíumenn gengu í kosninga í gær og það gekk nokkuð greiðlega fyrir sig eftir að hótanir uppreisnarmanna um ofbeldisverk urðu að engu. 13.3.2006 08:45
Drottning í heimsókn í Ástralíu Elísabet Englandsdrottning er nú í heimsókn í Ástralíu ásamt eiginmanni sínum, hertoganum af Edinborg. Drottningunni var tekið fagnandi en það var forsætisráðherra landsins, John Howard, sem tók á móti þeim hjónum ásamt konu sinni auk fleiri fyrirmenna Ástralíu. Drottningin setur Samveldisleikana í Melbourne á miðvikudag. Þaðan heldur drottningin ásamt eiginmanni sínum til Singapúr. 13.3.2006 08:30
Æfa sig fyrir Afganistan í Noregi Yfir þrjú þúsund breskir friðargæsluliðar undirbúa nú för sína til Afganistan með stífum heræfingum í Noregi. Yfirmaður í breska hernum, Jim Booney, sagði í samtali við fréttastofuna Sky í gær, að ekkert væri eins erfitt og að lifa af og berjast í kulda, og því væri norður Noregur góður staður til að æfa sig á. En æfingarnar eru ansi strembnar og svo sannarlega ekki fyrir alla. NATO vill auka og styrkja friðargæslustarfsemina í Afganistan og verða því yfir sex þúsund hermenn, aðallega frá Bretlandi, Kanada og Hollandi sendir til Afganistan fyrir nóvemberlok. 13.3.2006 08:15
Yfir sjö tonn af kokaíni fundust í Kolombíu Lögreglan í Kólumbíu lagði hald á yfir sjö tonn af kókaíni í borginni Barrankía, norður af Bogota höfuðborg landsins í gær. Um er að ræða efni að andvirði tíu milljarða íslenskra króna og hafa tveir menn verið handteknir vegna málsins. Lang stærsti hluti kókaíns í heiminum er framleiddur í Kólumbíu og fer yfir níutíu prósent þess í sölu í Bandaríkjunum. Verði mennirnir fundnir sekir, gætu þeir átt yfir höfði sér dauðadóm. 13.3.2006 08:00
Leita að báti fullum af rotnandi líkum Yfirvöld á Grænhöfðaeyjum leita nú að báti fullum af rotnandi líkum sem tilkynnt var um að ræki stjórnlaust á hafi úti. Það var skipstjóri á bátnum Matiota sem tilkynnti yfirvöldum um bátinn en að hans sögn voru í það minnsta tólf lík af afrískum karlmönnum um borð. Lyktin af rotnandi líkunum hefði hins vegar verið svo sterk að hann treysti sér ekki til að fara um borð til að kanna hvort fleiri lík væri þar að finna. 13.3.2006 07:45
Þrjár bílsprengjur í Bagdad Það var blóðugur sunnudagur í Írak í gær. Að minnsta kosti fimmtíu manns féllu í þremur bílsprengjutilræðum í Bagdad, höfuðborg landsins. Þá særðust um eitt hundrað manns. Frá þessu greindi innanríkisráðuneyti landsins. 13.3.2006 07:45
Deilur um hvar eigi að jarða Milosevic Deilur hafa blossað upp milli ættingja Milosevic, um hvar eigi að jarða hann. Ekkja Milosevic, Mirjana Markovic, og sonur þeirra Marko vilja að hann verði jarðaður í Moskvu þar sem þau búa, að sögn Beta, fréttastofunnar serbnesku, en bæði eru þau eftirlýst fyrir valdníðslu í valdatíð Milosevic. Þau yrðu því handtekin myndu þau mæta til útfara Milosevic yrði hún í Serbíu. 13.3.2006 07:30
Dánarorsok Milosevic líklega hjartaáfall Slobodan Milosevic, fyrrverandi forseti Júgóslavíu, lést úr hjartaáfalli samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðum krufningar. Krufningin var gerð af hollenskum réttarlæknum að tveimur serbneskum réttarlæknum viðstöddum. Saksóknarar segja að eiturefnafræðileg rannsókn verði samt sem áður gerð þótt dánarorsökin liggi fyrir. Bosníu Serbar hafa lýst yfir efasemdum um dauða Milosevic og telja að eitrað hafi verið fyrir honum. 13.3.2006 07:15
Bachelet sver embættiseið Michelle Bachelet sór í dag embættiseið sem forseti Chile. Hún er fyrst kvenna til að gegna þessu embætti í landinu og þriðja kvenforsetinn í Suður-Ameríku. Hún fer í broddi fylkingar vinstri- og miðjumanna sem hafa stjórnað Chile í 16 ár. 12.3.2006 17:28
Órói vegna kosninga í Kólumbíu Kólumbíumenn ganga til þingkosninga í dag við stranga öryggisgæslu. Óttast er að vopnaðar sveitir öfgamanna bæði á hægri og vinstri væng stjórnmálanna reyni að trufla eðlilegan gang kosninganna. 12.3.2006 17:10
Fuglaflensa greinist í Kamerún Banvæna afbrigði fuglaflensunnar, H5N1, hefur nú greinst í önd í Kamerún í Vestur-Afríku. Kamerún er fjórða Afríkuríkið þar sem þetta afbrigði sjúkdómsins greinist en áður hafði hún fundist í Nígeríu, Níger og Egyptalandi. 12.3.2006 16:59
Skálmöld í Írak Átök stigmagnast í Bagdad, þar sem slegið hefur í brýnu milli sjía og súnnímúslima. Fjörutíu manns hafa látið lífið í bílasprengingum í dag við útimarkað í borgarhluta sjíamúslima. Tíu létu lífið í sprengju- og skotárásum í nótt og í morgun og er tala látinna því komin upp í fimmtíu síðasta sólarhringinn. 12.3.2006 16:29
Merkur fornleifafundur í Egyptalandi Hópur egypskra og þýskra fornleifafræðinga rakst fyrir tilviljun á merkilegan fund. Þegar unnið var að viðgerðum á hofinu Amenhotep í borginni Luxor fundust sex líkneski af Sekhmet, fornri egypskri gyðju með ljónshöfuð og kvenmannslíkama. 12.3.2006 14:30
Serbar kenna stríðsglæpadómstólnum um dauða Mílósevits Niðurstöður úr krufningu á líki Mílósevitsberast í kvöld eða fyrramálið, og og þar með verður dánarorsökin vætanlega ljós. Serbneskur réttarlæknir verður viðstaddur krufninguna að kröfu Serba, sem telja Stríðsglæpadómstólinn bera ábyrgð á dauða hans. 12.3.2006 13:17
Bretar þróa nýja kjarnaodda Blaðið Sunday Times hefur eftir leynilegum uppljóstrurum í utanríkisþjónustu Bretlands að Bretar séu að þróa nýja tegund kjarnaodda. Stefnt er að því að ekki þurfi að prófa kjarnaoddana með sprengingu, þar sem það myndi brjóta í bága við núgildandi bann við kjarnorkuprófunum, heldur vonast menn til að geta látið tilraunir á rannsóknastofum duga. 12.3.2006 11:57
Tævanir mótmæla vopnakaupum Tugþúsundir Tævana gengu fylktu liði um götur Tæpei í dag til þess að mótmæla því að nefnd um sameiningu við Kína hafi verið lögð niður. 12.3.2006 10:50
Tíu létust í Bagdad Í það minnsta tíu létu lífið í árásum í Bagdad í nótt og morgun. Bílsprengja sprakk við erilsama götu í Vestur-Bagdad og varð sex manns að bana en tólf manns slösuðust. Sprengjunni var beint að lögreglubíl í hverfi súnnímúslima og létust þrír af lögreglumönnunum sem í honum voru. 12.3.2006 10:02
Milosevic látinn Slobodan Mílósevits, fyrrverandi forseti Júgóslavíu, fannst látinn í fangaklefa sínum í Haag í morgun, þar sem réttað hefur verið yfir honum vegna stríðsglæpa síðan árið 2002. 11.3.2006 12:30
Bankaræningi í 19 ára fangelsi David Alexander Toska, höfuðpaurinn að baki bankaráninu í Stavangri í Noregi fyrir tveimur árum, var í hádeginu í dag dæmdur í 19 ára fangelsi fyrir þátt sinn í því. 12 aðrir voru einnig dæmdir í málinu í dag og voru þeir dæmdir í allt að 17 ára fangelsi. 10.3.2006 15:00
Tók 20 manns í gíslingu Ofsóknarbrjálaður Frakki á fertugsaldri tók meira en 20 manns í gíslingu í skóla utan við Le Mans í gær. Maðurinn, sem kenndi áður við skólann, hélt fólkinu í um fjórar klukkustundir, en sleppti því svo og engan sakaði. 10.3.2006 09:15
Læknar segja meðferð fanga í Guantanamo ámælisverða Rúmlega 250 læknar hafa skrifað undir bréf þar sem meðferð á föngum Bandaríkjahers í Guantanamo-fangelsinu á Kúbu er gagnrýnd. Sér í lagi gera læknarnir athugasemd við það að næring sé neydd ofan í þá fanga sem séu í mótmælasvelti. 10.3.2006 09:15
5000 milljarða aukalega vegna stríðsreksturs Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, og Donald Rumsfeld, varnarmálaráðherra, hafa beðið Bandaríkjaþing um aukafjárveitingu upp á rösklega 5000 milljarða króna vegna aðgerða Bandaríkjahers í Írak og Afganistan. Hluti af fénu á þó að fara í neyðaraðstoð vegna fellibylsins Katrínar. 10.3.2006 09:00
Keops er víst í eigu Íslendinga Danska fasteignafyrirtækið Keops hefur keypt umferðarmiðstöðina í Helsingjaborg í Svíþjóð fyrir hátt í 4 milljarða íslenskra króna. Greint er frá þessu á viðskiptasíðu Jótlandspóstsins og segir þar í undirfyrirsögn, með nokkru stolti, að það séu ekki bara íslendingar, sem fjárfesti í útlöndum. Jótlandspóstinum hefur hinsvegar yfirsést að íslenska fyrirtækið Baugur á hvorki meira né minna en þriðjung í Keops. 10.3.2006 08:17
Arabískt fyrirtæki tekur ekki við rekstir hafna í Bandaríkjunum Arabískt fyrirtæki hefur látið undan þrýstingi frá Bandaríkjaþingi og ákveðið að hætta við að taka yfir stjórn sex hafna í Bandaríkjunum. Fyrirtækið, sem er með höfuðstöðvar í Dúbaí í Sameinuðu arabísku furstadæmunum, hefur keypt breskt fyrirtæki sem hefur séð um rekstur á höfnum í nokkrum fylkjum Bandaríkjanna. 10.3.2006 08:00
Jarðsprengja fellir 26 26 manns féllu þegar jarðsprengja sprakk í suðvesturhluta Pakistans í morgun. Fólkið var á leið í brúðkaup, þegar bifreiðin sem það ferðaðist í keyrði á sprengjuna. 10.3.2006 07:30
Fangar fluttir úr Abu Ghraib Þúsundir fanga verða fluttir úr hinu alræmda Abu Ghraib fangelsi í nýtt fangelsi á næstu þremur mánuðum. Bandaríski herinn tilkynnti þetta í gær og jafnframt að stjórnvöld í Írak tækju við stjórn fangelsisins á næstunni. Það verður síðan undir þeim komið hvort fangelsinsu verður áfram haldið opnu. 10.3.2006 07:15
Umsátur við menntaskóla í Frakklandi Fyrrverandi kennari tók í dag 20 nemendur, kennara og annan mann í gíslingu í menntaskóla í vesturhluta Frakklands. Maðurinn sem er 33 ára er sagður vera vopnaður. Lögreglan hefur umkringt skólann og er nú reynt að semja við manninn um að hleypa gíslunum út úr byggingunni en hann hefur ekki farið fram á neitt ennþá. 9.3.2006 17:20