Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Viðræður hafnar Viðræður eru þegar hafnar um hugsanlegar aðgerðir gegn Írönum vegna kjarnorkuþróunar þeirra. Fulltrúar fimm landa sem eiga fast sæti í öryggisráði Sameinuðu Þjóðanna hittust í gærkvöldi til að fjalla um mögulegar leiðir til að stöðva Írana. 9.3.2006 07:30
Þrír færeyskir drengir dóu í bruna Færeyingar eru harmi slegnir eftir að þrír piltar á aldrinum sex til tíu ára létust í eldsvoða í gærkvöldi. Eldsupptök eru ennþá ókunn en danskir sérfræðingar vinna að rannsókn málsins. 8.3.2006 18:30
Öryggisráðið fjallar um mál Írana Stjórn Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar ákvað á fundi sínum í dag að vísa máli Írana til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. 8.3.2006 18:27
Aftökur í Írak Ekkert lát er á ofbeldinu í Írak því að í morgun fundust í Bagdad lík átján manna sem teknir höfðu verið af lífi. 8.3.2006 18:24
Gíslar teknir í höfuðstöðvum öryggisfyrirtækis Vopnaðir menn í lögreglubúningum höfðu á brott með sér starfsfólk úr höfuðstöðvum öryggisgæslufyrirtækis í Bagdad í dag eftir að hafa ruðst inn í fyrirtækið. Talið er að allt að 50 starfsmenn hafi verið teknir í gíslingu. 8.3.2006 17:15
Íranar gefa ekkert eftir Íranar gefa ekkert eftir á fundi Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar sem nú fer fram í Vín í Austurríki. Bandaríkin og Evrópusambandið hafa þrýst mjög á Írana um að láta af áformum sínum um auðgun úrans. 8.3.2006 13:30
Fuglaflensan meiri ógn en alnæmi Banvænn stofn fuglaflensunnar er meiri ógn við mannkynið en alnæmi og allir aðrir smitsjúkdómar sem komið hafa upp. Þetta er mat sérfræðinga við Alþjóðaheilbrigðismálastofnunina. 8.3.2006 12:59
3 drengir létust í eldsvoða í Færeyjum Þrír drengir, 6, 9 og 10 ára, fórust í eldsvoða í Þórshöfn í Færeyjum í gærkvöldi. Eldur kviknaði í parhúsi við Hrafnseyrarveg í bænum en þegar slökkvilið kom á vettvang voru drengirnir allir látnir úr reykeitrun. Tveir þeirra voru bræður en sá þriðji var gestur hjá þeim. Húsráðendur höfðu brugðið sér í kvöldkaffi hjá nágrönnum þegar eldurinn kom upp. 8.3.2006 12:21
11 ára stúlku nauðgað í Bretlandi Bretar eru slegnir óhug eftir að 11 ára stúlku var naugað inni á salerni í matvöruverslun í Lemington Spa í Warwickshire í Bretlandi. Stúlkan var með móður sinni í innkaupaleiðangri fyrir helgi og brá sér á klósettið en þar réðst á hana maður um tvítugt og nauðgaði henni. 8.3.2006 10:45
Íranar verða að hætta öllum kjarnorkurannsóknum Íranar verða að hætta öllum rannsóknum á kjarnorku þegar í stað, eða sæta refsiaðgerðum ella. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Evrópusambandinu, sem lögð verður fyrir alþjóða kjarnorkumála stofnunina. 8.3.2006 10:30
Árás á bílalest Einn maður lést í árás á bílalest innanríkisráðherra Íraks nú í morgunsárið. Ráðherrann sjálfur var ekki á staðnum þegar árásin átti sér stað. 18 lík fundust í sendibifreið í vesturhluta Baghdad í nótt. Búið var að binda fyrir augu mannanna 18 og bendir flest til að fjölda aftaka hafi átt sér stað. 8.3.2006 09:30
Moussaoui hefði geta komið í veg fyrir hryðjuverk Zacarias Moussaoui vissi um hryðjuverkaárásirnar 11. september 2001 í smáatriðum og hefði því getað komið í veg fyrir dauða tæplega 3000 manna. Þetta segja saksóknarar í máli hans, sem fara fram á að hann verði tekinn af lífi. 8.3.2006 08:00
Írak ekki á barmi borgarastyrjaldar Írak er ekki á barmi borgarastyrjaldar að mati Donalds Rumsfeld, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna. Rumsfeld tjáði sig í gær í fyrsta sinn um ástandið í Írak eftir sprengjuárásina á al-Askari moskuna, sem hratt af stað atburðarrás sem ekki sér fyrir endann á. 8.3.2006 07:45
10 Kínverjinn látinn úr fuglaflensu Tíundi Kínverjinn hefur látist af völdum fuglaflensu. Athuganir á níu ára stúlku sem lést á mánudaginn í austuhluta Kína, hafa leitt í ljós að hún var smituð af H5N1. 8.3.2006 07:30
Bandaríkjamenn og Rússar ósammála Vaxandi ágreiningur Bandaríkjamanna og Rússa kom berlega kom í ljós á fundi utanríkisráðherra landanna í gær. Condoleeza Rice og Sergei Lavrov hikuðu ekki við að vera ósammála á blaðamannafundi í Washington í gær, sem er afar óvenjulegt eftir fundi sem þessa. Rice sagðist hafa áhyggjur af lýðræðisþróuninni í Rússlandi, en því svaraði Lavrov með því að Rússar hefðu líka áhyggjur af yfirgangi Bandaríkjamanna í hinum ýmsu málum. 8.3.2006 07:15
Ellefu ára stúlku nauðgað Bretar eru slegnir óhug eftir að ellefu ára stúlku var nauðgað inni á salerni í matvöruverslun í Lemington Spa í Warwickshire í Bretlandi. Stúlkan var með móður sinni í innkaupaleiðangri fyrir helgi og brá sér á klósettið en þar réðst á hana maður um tvítugt og nauðgaði henni. 7.3.2006 22:05
Óttast var að ræningjarnir hefðu skilið eftir sprengju Lögreglan í Svíþjóð tók til þess ráðs í dag að rýma stóran hluta annars stærsta flugvallar Svíþjóðar eftir að grunsamlegur pakki fannst eftir vopnað rán á flugvellinum. 7.3.2006 20:53
Segir Bandaríkjamenn fylgja Satan Einn æðsti klerkur Írana óskaði í dag eftir skynsamlegri lausn á kjarnorkudeilunni en sagði um leið Bandaríkjamenn fylgja hinum mikla Satan. Hann sagði ekki koma til greina að Íranar hættu við kjarnorkuáætlanir sínar. 7.3.2006 17:47
Hamas ekkert annað en hryðjuverkasamtök Ehud Olmert, starfandi forsætisráðherra Ísraels, segir árásir verða gerðar á forystumenn Hamas-samtakanna ef samtökin hefja árásir á Ísrael á ný. Hann segir Hamas ekkert annað en hryðjuverkasamtök. 7.3.2006 17:41
Fær ekki að nota egg sín Bresk kona fær ekki að nota egg, frjóvguð með sæði úr þáverandi kærasta hennar, til að verða ófrísk nema hann gefi leyfi fyrir því. Þetta er niðurstaða Mannréttindadómstóls Evrópu sem hafnaði beiðni konunnar um að úrskurði bresks dómstóls í þessa veru yrði hnekkt. 7.3.2006 16:31
Sex létust í sprengingum Sex manns hið minnsta létu lífið þegar sprengingar skóku hof hindúa og lestarstöð í hinnu helgu borg Varanasi á Indlandi í dag. Fjörutíu til viðbótar særðust í sprengingunum þar af um tuttugu alvarlega. 7.3.2006 16:00
Mótmæltu skerðingu réttinda Þúsundir manna gengu um götur Parísar í dag til að mótmæla nýjum lögum sem gera vinnuveitendum auðveldara en áður að segja ungu fólki upp störfum. Efri deild franska þingsins samþykkti lögin í gær og þau eiga að taka gildi á fimmtudag. 7.3.2006 15:33
Myndband frá mannræningjum Arabíska sjónvarpsstöðin Al-Jazeera sýndi í gær stutt myndband sem sýnir þrjá af fjórum gíslum áður óþekktra hryðjuverkasamtaka í Írak. Mennirnir eru allir starfsmenn kristilegra hjálparsamtaka og eru sagðir hafa beðið ríkisstjórnir landa sinna um að tryggja lausn sína. 7.3.2006 15:30
Fatah leitar til hæstaréttar Fatah-samtök Mahmous Abbas, forseta Palestínumanna, hafa farið þess á leit við hæstarétt Palestínumanna að hann felli úr gildi þá ákvörðun Hamas-liða á þingi í gær að fella úr gildi ný lög sem auka vald forseta. Hamas-liðar eru í meirihluta á þingi heimastjórnarinnar og voru lögin sem um ræðir sett á síðasta þingfundi fyrra þings þar sem Fatah-liðar voru í forystu. 7.3.2006 15:15
Dregið úr styrkjum til landtökumanna Ehud Olmert, starfandi forsætisráðherra Ísraels, lýsti því yfir í dag að Kadima-flokkur hans og Sharons, forsætisráðherra, ætli að draga stórlega úr styrkjum til landtökumanna Gyðinga á Vesturbakkanum. Stutt er til þingkosninga í Ísrael og má búast við að þessi yfirlýsing komi sem sprengja í baráttuna. 7.3.2006 15:00
Sprenging í hofi á Indlandi Að minnsta kosti 4 féllu og hátt í 20 særðust í minnst tveimur sprengingum í ferðamannabænum Varanasi á Norður-Indlandi í dag. Önnur sprengingin varð í hofi Hindúa þar í borg en mikið fjölmenni var þar. Hin sprengingin var á lestarstöð. 7.3.2006 14:58
Flugvöllur rýmdur í Svíþjóð Rýma þurfti Landvetter-flugvöll rétt fyrir utan Gautaborg í Svíþjóð í dag þar sem dularfullur pakki fannst þar eftir að vopnað rán var framið í banka á vellinum skömmu áður. 7.3.2006 14:56
Alþjóðabankinn styrkir Palestínustjórn Alþjóðabankinn samþykkti í dag að veita palestínsku heimastjórninni fjárstyrk að andvirði 2,8 milljarða króna. Með þessu vill bankinn hlaupa undir bagga með heimastjórninni sem á í miklum fjárhagsvandræðum. 7.3.2006 14:56
Offita barna mun tvöfaldast á næstu fimm árum Einn gosdrykkur á dag getur valdið sjö kílóa þyngdaraukningu á einu ári hjá börnum. Offita barna mun tvöfaldast í Evrópu á næstu fimm árum ef ekki verður gripið til róttækra aðgerða. 7.3.2006 13:00
NATO tekið við í Afganistan í árslok Atlantshafsbnadalagið verður búið að taka við aðgerðum í Afghanistan í árslok. Þetta sagði yfirmaður Evrópuherdeildar bandalagsins í gær. Þetta þyrfti þó ekki endilega að þýða að bandarískum hermönnum í landinu yrði fækkað. 7.3.2006 08:45
Vilja að Moussaoui verði tekinn af lífi Saksóknarar í máli Zacarias Moussaoui, eina mannsins sem hefur verið ákærður fyrir aðild að hryðjuverkaárásunum 11. september 2001, fara fram á að hann verði tekinn af lífi. Við réttarhöldin yfir honum í gær fóru verjendurnir hins vegar fram á að Moussaoui yrði ekki tekinn af lífi, því að slíkt myndi gera hann að píslarvætti. 7.3.2006 08:30
Logar allt í óeirðum Meira en hundrað uppreisnarmenn úr röðum Talibana og al-Qaeda hafa fallið í átökum við hersveitir í Pakistan undanfarna þrjá daga. Þúsundir íbúa í Wasiristan hafa neyðst til að flýja heimili sín vegna átakanna og algjört útgöngubann hefur nú tekið þar gildi. 7.3.2006 08:15
4 sprengjuárásir í Hilla Allt lék á reiðiskjálfi í borginni Hilla í Írak nú fyrir stundu. Svo virðist sem fjórar sprengjuárásir hafi verið gerðar í borginni með skömmu millibili. 7.3.2006 08:14
Fangar enn pyntaðir í Írak Fangar í Írak hafa ítrekað verið pyntaðir með raflosti og bareflum eftir að Abu Ghraib hneykslið komst í hámæli og Bandaríkjastjórn lofaði bót og betrum í fangelsum í Írak. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu frá Amnesty International, sem byggir á viðtölum við fanga. 7.3.2006 07:53
Eykur vantraust Serba Serbnesk stjórnvöld telja að dauði Milan Babic muni auka vantraust flestra Serba í garð Stríðsglæpadómsstólsins í Haag. 6.3.2006 22:03
Ný lög í Rússlandi Vladimír Pútín, forseti Rússlands, undirritaði í dag lög sem heimila hernum að skjóta niður farþegaflugvélar og ráðast á skip sem eru á valdi ræningja. Árásir hersins á flugvélar eða skip verða leyfðar jafnvel þótt gíslar séu um borð. Báðar deildir rússneska þingsins höfðu samþykkt frumvarp til laganna. Lögin eru sett í kjölfar sífellt fjölgandi hryðjuverka í Rússlandi á undanförnum árum. 6.3.2006 19:13
Niðurstaðna að vænta í vikunni Íranar hafa aukið framleiðslu á eldflaugum sem geta borið kjarnaodda. Íransstjórn lofar að leggja meiri áherslu á auðgun úrans en áður, ákveði Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna að beita refsiaðgerðum gegn Íran. 6.3.2006 19:09
Fuglaflensa í Póllandi Grunur leikur á að hið hættulega H5N1 afbrigði fuglaflensu hefur greinst í Póllandi í fyrsta sinn. Milljónum fugla hefur verið slátrað í Írak til að hefta útbreiðslu veirunnar. 6.3.2006 14:15
Fatah-liðar gengu á dyr Þingmenn Fatah-hreyfingar Mahmouds Abbas, forseta Palestínumanna, gengu útaf fyrsta þingfundi nýrrar heimastjórnar Palestínumanna í dag. Þingið er nú undir stjórn Hamas-samtakanna og á fundinum ætluðu Hamas-liðar að breyta nýrri löggjöf sem sett var síðasta dag fyrra þings þar sem völd forsetans voru aukin. 6.3.2006 13:47
Íraksþing kemur saman síðar í mánuðinum Nýkjörið þing Íraks verður kallað saman til síns fyrsta fundar þann 12. mars næstkomandi. Illa hefur gengið að mynda þjóðstjórn í landinu og hafa átök sjía- og súnní-múslima síðustu vikur ekki hjálpað til í þeim efnum. Að minnsta kosti níu féllu í röð sprengjuárása í Bagdad og næsta nágrenni í morgun. 6.3.2006 13:36
Babic svipti sig lífi Milan Babic, fyrrverandi leiðtogi Króatíu-Serba, svipti sig lífi í morgun. Babic var í fangelsi í Haag í Hollandi en stríðsglæpadómstóllinn þar í borg hafði sakfellt hann fyrir glæpi gegn mannkyninu og dæmt hann í 13 ára fangelsi. 6.3.2006 12:15
Ákveðið í dag hvort Öryggisráð SÞ tekur á málinu Alþjóða kjarnorkumálastofnunin ákveður í dag hvort kjarnorkuþróun Írana verður vísað fyrir Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna. Ríkisstjórn Írans hótar enn frekari auðgun úrans ef ákveðið verður að vísa málinu fyrir ráðið. Mohamed El Baradei, yfirmaður stofnunarinnar, segist gera sér vonir um að hægt verði að semja við Írana um kjarnorkuáætlun þeirra áður en vikan er úti. 6.3.2006 12:00
Amnesty segir fanga í Írak ekki fá rétta meðferð Mörg þúsund föngum í haldi alþjóðaherliðsins í Írak er enn neitað um grundvallar réttindi að sögn mannréttindasamtakanna Amnesty International. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu samtakanna þar sem segir að þúsundir Íraka séu í haldi herliðsins án þess að þeim sé birt ákæra. Amensty byggir niðurstöður sínar á viðtölum við fanga sem hafa verið látnir lausir. 6.3.2006 10:00
Enga lifandi fugla frá meginlandi Kína til Hong Kong Kínverjar hafa hætt sölu á lifandi fuglum til Hong Kong í þrjár vikur. Þetta var gert eftir að kínverska heilbrigðisráðuneytið greindi frá því að maður hefði látist af völdum H5N1 afbrigðis fuglaflensu í Guangdong-héraði í Kína. Þar með hafa níu látist þar í landi af völdum flensunnar en fimmtán sýkst. 6.3.2006 09:52
H5N1 í Póllandi Tveir dauðir svanir sem fundust í Norður-Póllandi á dögunum voru sýktir af hinu hættulega H5N1 afbrigði fuglaflensu. Pólskir fjölmiðlar greindu frá þessu í morgun og hefur eftir starfsmönnum rannsóknarstofu sem greindu sýni úr fuglunum. 6.3.2006 09:50