Fleiri fréttir Hundar og kettir í bann Útgöngubann hefur verið sett á hunda og ketti í Þýsklanadi þar sem fuglaflensan hefur komið upp. Ekki hefur verið ákveðið hvenær banninu verður aflétt 1.3.2006 22:17 Hagnaður Bayer 124 milljarðar króna Hagnaður þýska lyfjarisans Bayer nam 124 milljörðum króna, á síðasta ári. Bayer mun greina nánar frá afkomu félagsins á mánudag, en vinnuskjal frá fyrirtækinu lak út og því var greint frá hagnaði félagsins nú. Hlutabréf Bayer hækkuðu lítilsháttar í verði í Kauphöllinni í Frankfurt í dag. 1.3.2006 17:14 Forsætisráðherra Kosovo hættur Forsætisráðherra Kosovo-héraðs í Serbíu tilkynnti í dag afsögn sína en hann hefur mætt miklu andstreymi flokksmanna sinna. Sameinuðu þjóðirnar hafa stýrt Kosovo frá því að stríði Atlantshafsbandalagsins gegn stjórnvöldum í Belgrad, lauk árið 1999. Yfirvöld í Belgrad hafa sagt ógerlegt að slíta Kosovo frá Serbíu en stjórnmálapekingar segja þó líklegt að ekki líði á löngu þar til Kosovo verði gert að sjálfstæðu ríki. 1.3.2006 16:54 FL Group bætir við sig í Royal Unibrew FL Group hefur bætt við hlut sinn í Royal Unibrew og á eftir kaupin 16,35% í félaginu. Fyrr í mánuðinum keypti FL Group 10,7 prósenta hlut í danska félaginu. Royal Unibrew er annar stærsti drykkjarvöruframleiðandi í Skandinavíu. Meðal vörumerkja eru eru danski bjórinn Faxe sem margir Íslendingar þekkja. Félagið velti tæpum 30 milljörðum íslenskra króna árið 2004 og dreifir til yfir 65 landa. 1.3.2006 16:10 Hussein játar Saddam Hússein, fyrrverandi forseti Íraks, játaði fyrir rétti í Bagdad í dag að hafa fyrirskipað árás á bændabýli þar sem uppreisnarmenn sem sýndu honum banatilræði árið 1982 héldu sig. 1.3.2006 16:08 Afganistan öðrum þjóðum fyrirmynd George Bush, forseti Bandaríkjanna, segir Afgani vera öðrum þjóðum fyrirmynd og hvatning. Lýðræðið sé augljóslega farið að skjóta rótum í landinu. 1.3.2006 15:54 Ónóg lög um leyniþjónustur Evrópuríki þurfa strangari reglur um eftirlit með leyniþjónustum sínum og betra eftirlit með erlendum útsendurum sem starfa innan landamæra þeirra. Þetta sagði Terry Davis, forseti Evrópuráðsins, þegar hann kynnti skýrslu Evrópuráðsins um fangaflug bandarísku leyniþjónustunnar CIA. 1.3.2006 14:07 Brestir í viðræðum um stjórnarmyndun Brestir eru komnir í samningaviðræður um nýja ríkisstjórn í Írak. Forseti landsins er æfur út í forsætisráðherrann fyrir að fara í opinbera heimsókn til Tyrklands. 1.3.2006 12:45 Bush í fyrsta sinn til Afganistan George Bush kom í morgun í óvænta heimsókn til Afghanistan og er þetta í fyrsta sinn sem forsetinn heimsækir landið eftir hryðjuverkaárásirnar ellefta september 2001. 1.3.2006 09:45 Halda stjórnarmyndun áfram Ofbeldið í Írak undanfarna daga mun ekki koma í veg fyrir myndun nýrrar ríkisstjórnar á næstu vikum. Þetta segir Ibrahim al-Jafaari, forsætisráðherra Íraks, sem nú er í opinberri heimsókn í Tyrklandi. 1.3.2006 07:58 Felldu þrjátíu uppreisnarmenn Pakistanskar hersveitir felldu þrjátíu uppreisnarmenn í áhlaupi við landamæri Afganistan snemma í morgun. Fjölmennt herlið lét til skarar skríða á þyrlum og af jörðu niðri, án þess að uppreisnarmennirnir fengju rönd við reist. 1.3.2006 07:53 Köttur smitaður af fuglaflensu Þýsk yfirvöld hafa fundið dauðan kött sem var smitaður af H5N1 stofni fuglaflensunnar. Ekki er enn vitað hvort kötturinn dó af völdum fuglaflensunnar eða af öðrum orsökum en verið er að rannsaka hræið. Kötturinn fannst á sömu slóðum og fuglarnir sem fundust í Þýskalandi fyrr í mánuðinum. Ekki er enn vitað til þess að menn geti smitast af fuglaflensunni af köttum en fundurinn vekur óneitanlega ugg hjá mönnum um að fuglaflensan geti borist í aðrar dýrategundir. 28.2.2006 16:00 Börn krefjast að múhameðsteiknarar verði hengdir Fimmþúsund börn allt niður í átta ára gengu fylktu liði um götur stærstu borgar Pakistan í morgun og kröfðust þess að teiknarinn sem teiknaði skopmyndirnar af Múhammeð spámanni yrði hengdur. Hingað til hefur fullorðna fólkið að mestu séð um mótmælin vegna skopmyndanna í MiðAusturlöndum, en það breyttist heldur betur í dag. 28.2.2006 15:30 Viðbúnaður hugsanlega í áhættustig tvö Hættulegt afbrigði fuglaflensunnar hefur fundist í villtum andfuglum í suðurhluta Svíþjóðar. Samkvæmt leiðbeiningum Landbúnaðarstofnunar um áhættustig þýðir þetta að viðbúnaður vegna flensunnar verði færður á stig tvö hér á landi. Veiran greindist í tveimur skúföndum við Oskarshamn. 28.2.2006 13:58 Tuttugu ár frá morðinu á Olof Palme Í kvöld verða nákvæmlega tuttugu ár síðan Olav Palme, þáverandi forsætisráðherra Svíþjóðar, var myrtur í miðborg Stokkhólms. Rannsókn á morðinu er komin í fullan gang á ný og margir verða yfirheyrðir vegna þess á næstunni. 28.2.2006 13:15 Áframhaldandi óöld í Írak Gjáin milli súnnía og sjía í Írak gæti breikkað enn eftir sprengjuárás við legstein föðurs Saddams Hússein í morgun. Minnst þrjátíu og tveir hafa fallið í fimm sprengjuárásum fyrir hádegið. 28.2.2006 13:00 Fuglaflensa greinist í Svíþjóð Hið hættulega afbrigði fuglaflensunnar, af stofni H5N1, hefur greinst í suðurhluta Svíþjóðar. 28.2.2006 12:05 Vinna harðar að auðgun úrans Íranar vinna nú harðar en nokkru sinni að auðgun úrans, og halda áfram að hundsa fyrirspurnir kjarnorkueftirlitsmanna. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Alþjóða kjarnorkumálastofnunarinnar. Aðeins tæpar tvær vikur eru síðan Íranar hófu notkun á tíu nýjum skilvindum í því augnaamiði að auðga úran. Með tilliti til þess hve lítinn samstarfsvija Íransstjórn hafi sýnt, sé alls ekki hægt að fullyrða að tilgangurinn sé með öllu friðsamlegur. 28.2.2006 10:30 Maóistar drápu fimmtíu manns Uppreisnarmenn úr röðum maóista drápu fimmtíu manns með fjarstýrðri sprengju í morgun. Sprengjan sprakk undir sendibifreið sem í var hópur fólks sem unnið hefur gegn maóistum. Þá slösuðust margir í sprengingunni, en ekki liggur fyrir hvort einhverjir þeirra séu í lífshættu. 28.2.2006 10:30 Flugmenn SAS með áfangasigur 28.2.2006 10:00 Maður og geit í það heilaga Maður í Súdan neyðist til að kvænast geit að því er fram kemur á bt.dk í dag. Málsatvik eru þau að maðurinn var í ástaratlotum við geitina þegar eigandi hennar kom að honum. Eigandi krafðist þess að maðurinn gengi að eiga geitina og að hann borgaði fyrir hana brúðargjald. Öldungaráð ráð bæjarins fundaði um málið og komst að þeirri niðurstöðu að maðurinn og geitin skyldu heitbindast 28.2.2006 09:00 Súkkulaðiát hin hollasta iðja Ný, bandarísk rannsókn bendir afdráttarlaust til þess að súkkúlaðiát sé hin hollasta iðja. Rannsakendur skoðuðu hóp eldri karlmanna frá Hollandi í meira en áratug og í ljós kom að blóðþrýstingur þeirra sem borðuðu súkkúlaði á hverjum degi var mun lægri en þeirra sem ekki voru fyrir súkkúlaðið, auk þess sem lífslíkur þeirra voru hreinlega meiri en hinna. 28.2.2006 08:45 Danskir læknar lokkaðir til Noregs Þúsundir danskra lækna nýta frítíma sinni til að vinna í Noregi þar sem þeir fá að minnsta kosti tvöfalt hærri laun. Þetta leiðir til verri þjónustu á dönskum spítölum þar sem ekki er hægt að manna alla vaktir þar eftir því sem fram kemur í Jótlandspóstinum. 28.2.2006 08:30 Bin Laden sagður besta skinn Osama bin Laden er kurteis, hógvær og feiminn maður. Þetta segir ástralskur maður sem var í gær dæmdur fyrir að þiggja styrki frá al-Qaida. Hann starfaði undir handleiðslu bin Laden aðeins nokkrum mánuðum áður en al-Qaida gerðu hryðjuverkaárásirnar í Bandaríkjunum 11. september 2001. 28.2.2006 08:00 Sprengja sprakk við legstein föður Husseins Níu sundurskotin lík fundust á víðavangi nærri borginni Bakúba í Írak í morgun. Ekki liggur fyrir hve langt er síðan fólkið var skotið, en líklega var það myrt í óöldinni í Írak í síðustu viku þegar meira en tvö hundruð manns féllu í landinu eftir sprengjuárás á eina helgustu mosku sjía. Og nú í morgunsárið sprakk svo sprengja við legstein föður Saddams Hussein í borginni Tíkrit. 28.2.2006 07:15 Sextíu þúsund manns á kjötkveðjuhátíð í Ríó Minnst sextíu þúsund manns komu saman á hápunkti kjötkveðjuhátíðarinnar í Ríó í gærkvöldi. Þúsundir samba-dansara sýndu listir sínar á Sambadrome-leikvanginum, ásamt hundruðum trommuleikara. 27.2.2006 19:08 George Michael handtekinn vegna gruns um fíkniefnanotkun Poppsöngvarinn George Michael var handtekinn vegna gruns um fíkniefnanotkun um helgina. Þetta kemur fram í götublaðinu Sun. Þar segir að söngvarinn hafi fundist í annarlegu ástandi í bíl sínum í Lundúnum snemma á laugardagsmorgun og verið handtekinn vegna gruns um að hafa fíkniefni í fórum sínum. 27.2.2006 15:56 Norskir laxeldismenn sjá mikið sóknarfæri vegna fuglaflensunnar Norskir laxeldismenn sjá mikið sóknarfæri inn á Evrópumarkaðinn vegna fuglaflensunnar. Intra Fish greinir til dæmis frá því að kjúklinganeysla hafi dregist saman um 70 prósent á Ítalíu vegna ótta fólkis við flensusmit úr alifuglum og þess í stað aukist meðal annars fiskneysla. 27.2.2006 15:53 Þrjátíu þúsund manns mótmæla í París Meira en þrjátíu þúsund manns gengu fylktu liði um götur Parísar í gær, til að mótmæla morði á gyðingi, sem kynþáttahatarar pyntuðu í þrjár vikur. Lík mannsins fannst illa brennt og handjárnað um miðjan febrúar, þrem vikum eftir að glæpagengi rændi honum í suðurhluta Parísar. 27.2.2006 15:48 ESB bjargar Palestínumönnum frá gjaldþroti Evrópusambandið ætlar að bjarga Palestínumönnum frá gjaldþroti. Framkvæmdastjórn sambandsins samþykkti í morgun að styrkja heimastjórnina um tæpa tíu milljarða króna. 27.2.2006 14:30 Bono og Geldof tilnefndir til friðarverðlauna Nóbels Rokksöngvararnir eru Bono og Bob Geldof eru meðal þeirra sem tilnefndir eru til friðarverðlauna Nóbels í ár. Þeir eru í hópi 191 einstaklings og hóps sem tilnefndir eru en báðir hafa látið sig málefni þriðja heimsins varða. 27.2.2006 14:15 Málaferli vegna Da Vinci lykilsins hefjast í Lundúnum Tveir breskir rithöfundar saka höfund bókarinnar Da Vinci lykillinn um að hafa stolið hugmyndinni að bókinni. Kvikmynd sem byggð er á bókinni gæti seinkað vegna málaferla. 27.2.2006 13:45 Fólk enn hrætt í Bagdad þrátt fyrir kyrrð í morgun Þriggja daga samfelldu útgöngubanni var aflétt í Bagdad í morgun. Hræðsla er þó enn ofarlega í huga fólks og margir óttast að kyrrðin í morgun sé bara lognið á undan storminum. 27.2.2006 12:15 Danir skipta oftast Evrópuþjóða um vinnu Danir skipta oftast Evrópuþjóða um vinnu samkvæmt nýrri rannsókn sem gerð var á vegum framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. Frá þessu er greint á fréttavef danska ríkisútvarpsns. 27.2.2006 10:30 Sjá sóknarfæri vegna fuglaflensu Norskir laxeldismenn sjá mikið sóknarfæri inn á Evrópumarkaðinn vegna fuglaflensunnar. Intra Fish greinir til dæmis frá því að kjúklinganeysla hafi dregist saman um 70 prósent á Ítalíu vegna ótta fólks við flensusmit úr alifuglum og þess í stað aukist meðal annars fiskneysla. 27.2.2006 10:15 Húsnæðisverð langhæst í Kaupmannahöfn Húsnæðisverð í Kapmannahöfn er orðið hið langhæsta á Norðurlöndum og er meðalverð á fermetra komið upp í um það bil 300 þúsund íslenskar krónur. Það er því orðið hærra en í Stokkhólmi sem lengi hefur státað af titlinum dýrasta borg í Skandinavíu. 27.2.2006 10:00 Bang og Olufsen flytur hluta starfseminnar frá Danmörku Danski raftækjaframleiðandinn Bang og Olufsen, sem FL Group keypti nýverið hlut í, hefur ákveðið að flytja hluta starfsemi sinnar frá Danmörku bæði vegna skorts á verkfræðingum og til að draga úr launakostnaðil. 27.2.2006 09:30 Fimm uppreisnarmenn drepnir í Sádi-Arabíu Fimm uppreisnarmenn týndu lífi eftir tveggja klukkustunda samfellda skotbardaga við lögreglu í Sádi-Arabíu í nótt. 27.2.2006 09:19 Þrjátíu þúsund mótmæltu gyðingahatri Meira en þrjátíu þúsund manns gengu fylktu liði um götur Parísar í gær til að mótmæla morði á gyðingi, sem kynþáttahatarar pyntuðu í þrjár vikur. 27.2.2006 08:45 Lögregla í Sádi-Arabíu berst við uppreisnarmenn Skotbardagar milli lögreglu og uppreisnarmanna í Sádi-Arabíu hafa staðið í alla nótt. Uppreisnarmennirnir eru grunaðir um að hafa ætlað að sprengja stærsta olíuhreinsunarfyrirtæki heims og lögregla hefur verið á hælunum á þeim um nokkurt skeið. 27.2.2006 08:30 Gripið í rassinn Kólumbískur karlmaður hefur verið dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir að grípa í afturenda konu sem hann hjólaði fram hjá. Að sögn BBC hjólaði maðurinn í burtu eftir rassgripið en komst ekki langt áður en hann var gripinn af öðrum vegfarendum. 27.2.2006 08:00 Útgöngubanni aflétt í Bagdad Útgöngubanni var í morgun aflétt í Bagdad, höfuðborg Íraks, eftir hrinu árása í kjölfar sprengingar við al-Askari moskuna, einn heilagasta stað sjía, í síðustu viku. 27.2.2006 07:45 Fuglaflensa finnst í Sviss Fuglaflensan er komin til Sviss. Þarlend yfirvöld greindu frá því í gær að veira af H5 stofninum hefði greinst í dauðri önd í Genf. Veiran hefur ekki áður greinst í Sviss, en ekki liggur enn fyrir hvort um mannskæða stofninn H5N1 er að ræða. 27.2.2006 07:14 Samningsdrög á borðinu Íranar og Rússar hafa gert grundvallarsamkomulagi um samvinnu ríkjanna um auðgun úrans. Fulltrúar ríkjanna funduðu í Íran í dag. Rússar hafa boðist til að taka að sér auðgun úrans fyrir Írana. 26.2.2006 19:36 Fangar taka yfir rammgirt fangelsi Mörg hundruð fangar hafa tekið völdin í tveimur álmum í einu rammgirtasta fangelsi Afganistans. Þar eru tæplega tvö þúsund fangar í haldi nú og stefnt að því að flytja um hundrað meinta hryðjuverkamenn þangað úr Guantanamo-fangelsinu á Kúbu. 26.2.2006 19:30 Sjá næstu 50 fréttir
Hundar og kettir í bann Útgöngubann hefur verið sett á hunda og ketti í Þýsklanadi þar sem fuglaflensan hefur komið upp. Ekki hefur verið ákveðið hvenær banninu verður aflétt 1.3.2006 22:17
Hagnaður Bayer 124 milljarðar króna Hagnaður þýska lyfjarisans Bayer nam 124 milljörðum króna, á síðasta ári. Bayer mun greina nánar frá afkomu félagsins á mánudag, en vinnuskjal frá fyrirtækinu lak út og því var greint frá hagnaði félagsins nú. Hlutabréf Bayer hækkuðu lítilsháttar í verði í Kauphöllinni í Frankfurt í dag. 1.3.2006 17:14
Forsætisráðherra Kosovo hættur Forsætisráðherra Kosovo-héraðs í Serbíu tilkynnti í dag afsögn sína en hann hefur mætt miklu andstreymi flokksmanna sinna. Sameinuðu þjóðirnar hafa stýrt Kosovo frá því að stríði Atlantshafsbandalagsins gegn stjórnvöldum í Belgrad, lauk árið 1999. Yfirvöld í Belgrad hafa sagt ógerlegt að slíta Kosovo frá Serbíu en stjórnmálapekingar segja þó líklegt að ekki líði á löngu þar til Kosovo verði gert að sjálfstæðu ríki. 1.3.2006 16:54
FL Group bætir við sig í Royal Unibrew FL Group hefur bætt við hlut sinn í Royal Unibrew og á eftir kaupin 16,35% í félaginu. Fyrr í mánuðinum keypti FL Group 10,7 prósenta hlut í danska félaginu. Royal Unibrew er annar stærsti drykkjarvöruframleiðandi í Skandinavíu. Meðal vörumerkja eru eru danski bjórinn Faxe sem margir Íslendingar þekkja. Félagið velti tæpum 30 milljörðum íslenskra króna árið 2004 og dreifir til yfir 65 landa. 1.3.2006 16:10
Hussein játar Saddam Hússein, fyrrverandi forseti Íraks, játaði fyrir rétti í Bagdad í dag að hafa fyrirskipað árás á bændabýli þar sem uppreisnarmenn sem sýndu honum banatilræði árið 1982 héldu sig. 1.3.2006 16:08
Afganistan öðrum þjóðum fyrirmynd George Bush, forseti Bandaríkjanna, segir Afgani vera öðrum þjóðum fyrirmynd og hvatning. Lýðræðið sé augljóslega farið að skjóta rótum í landinu. 1.3.2006 15:54
Ónóg lög um leyniþjónustur Evrópuríki þurfa strangari reglur um eftirlit með leyniþjónustum sínum og betra eftirlit með erlendum útsendurum sem starfa innan landamæra þeirra. Þetta sagði Terry Davis, forseti Evrópuráðsins, þegar hann kynnti skýrslu Evrópuráðsins um fangaflug bandarísku leyniþjónustunnar CIA. 1.3.2006 14:07
Brestir í viðræðum um stjórnarmyndun Brestir eru komnir í samningaviðræður um nýja ríkisstjórn í Írak. Forseti landsins er æfur út í forsætisráðherrann fyrir að fara í opinbera heimsókn til Tyrklands. 1.3.2006 12:45
Bush í fyrsta sinn til Afganistan George Bush kom í morgun í óvænta heimsókn til Afghanistan og er þetta í fyrsta sinn sem forsetinn heimsækir landið eftir hryðjuverkaárásirnar ellefta september 2001. 1.3.2006 09:45
Halda stjórnarmyndun áfram Ofbeldið í Írak undanfarna daga mun ekki koma í veg fyrir myndun nýrrar ríkisstjórnar á næstu vikum. Þetta segir Ibrahim al-Jafaari, forsætisráðherra Íraks, sem nú er í opinberri heimsókn í Tyrklandi. 1.3.2006 07:58
Felldu þrjátíu uppreisnarmenn Pakistanskar hersveitir felldu þrjátíu uppreisnarmenn í áhlaupi við landamæri Afganistan snemma í morgun. Fjölmennt herlið lét til skarar skríða á þyrlum og af jörðu niðri, án þess að uppreisnarmennirnir fengju rönd við reist. 1.3.2006 07:53
Köttur smitaður af fuglaflensu Þýsk yfirvöld hafa fundið dauðan kött sem var smitaður af H5N1 stofni fuglaflensunnar. Ekki er enn vitað hvort kötturinn dó af völdum fuglaflensunnar eða af öðrum orsökum en verið er að rannsaka hræið. Kötturinn fannst á sömu slóðum og fuglarnir sem fundust í Þýskalandi fyrr í mánuðinum. Ekki er enn vitað til þess að menn geti smitast af fuglaflensunni af köttum en fundurinn vekur óneitanlega ugg hjá mönnum um að fuglaflensan geti borist í aðrar dýrategundir. 28.2.2006 16:00
Börn krefjast að múhameðsteiknarar verði hengdir Fimmþúsund börn allt niður í átta ára gengu fylktu liði um götur stærstu borgar Pakistan í morgun og kröfðust þess að teiknarinn sem teiknaði skopmyndirnar af Múhammeð spámanni yrði hengdur. Hingað til hefur fullorðna fólkið að mestu séð um mótmælin vegna skopmyndanna í MiðAusturlöndum, en það breyttist heldur betur í dag. 28.2.2006 15:30
Viðbúnaður hugsanlega í áhættustig tvö Hættulegt afbrigði fuglaflensunnar hefur fundist í villtum andfuglum í suðurhluta Svíþjóðar. Samkvæmt leiðbeiningum Landbúnaðarstofnunar um áhættustig þýðir þetta að viðbúnaður vegna flensunnar verði færður á stig tvö hér á landi. Veiran greindist í tveimur skúföndum við Oskarshamn. 28.2.2006 13:58
Tuttugu ár frá morðinu á Olof Palme Í kvöld verða nákvæmlega tuttugu ár síðan Olav Palme, þáverandi forsætisráðherra Svíþjóðar, var myrtur í miðborg Stokkhólms. Rannsókn á morðinu er komin í fullan gang á ný og margir verða yfirheyrðir vegna þess á næstunni. 28.2.2006 13:15
Áframhaldandi óöld í Írak Gjáin milli súnnía og sjía í Írak gæti breikkað enn eftir sprengjuárás við legstein föðurs Saddams Hússein í morgun. Minnst þrjátíu og tveir hafa fallið í fimm sprengjuárásum fyrir hádegið. 28.2.2006 13:00
Fuglaflensa greinist í Svíþjóð Hið hættulega afbrigði fuglaflensunnar, af stofni H5N1, hefur greinst í suðurhluta Svíþjóðar. 28.2.2006 12:05
Vinna harðar að auðgun úrans Íranar vinna nú harðar en nokkru sinni að auðgun úrans, og halda áfram að hundsa fyrirspurnir kjarnorkueftirlitsmanna. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Alþjóða kjarnorkumálastofnunarinnar. Aðeins tæpar tvær vikur eru síðan Íranar hófu notkun á tíu nýjum skilvindum í því augnaamiði að auðga úran. Með tilliti til þess hve lítinn samstarfsvija Íransstjórn hafi sýnt, sé alls ekki hægt að fullyrða að tilgangurinn sé með öllu friðsamlegur. 28.2.2006 10:30
Maóistar drápu fimmtíu manns Uppreisnarmenn úr röðum maóista drápu fimmtíu manns með fjarstýrðri sprengju í morgun. Sprengjan sprakk undir sendibifreið sem í var hópur fólks sem unnið hefur gegn maóistum. Þá slösuðust margir í sprengingunni, en ekki liggur fyrir hvort einhverjir þeirra séu í lífshættu. 28.2.2006 10:30
Maður og geit í það heilaga Maður í Súdan neyðist til að kvænast geit að því er fram kemur á bt.dk í dag. Málsatvik eru þau að maðurinn var í ástaratlotum við geitina þegar eigandi hennar kom að honum. Eigandi krafðist þess að maðurinn gengi að eiga geitina og að hann borgaði fyrir hana brúðargjald. Öldungaráð ráð bæjarins fundaði um málið og komst að þeirri niðurstöðu að maðurinn og geitin skyldu heitbindast 28.2.2006 09:00
Súkkulaðiát hin hollasta iðja Ný, bandarísk rannsókn bendir afdráttarlaust til þess að súkkúlaðiát sé hin hollasta iðja. Rannsakendur skoðuðu hóp eldri karlmanna frá Hollandi í meira en áratug og í ljós kom að blóðþrýstingur þeirra sem borðuðu súkkúlaði á hverjum degi var mun lægri en þeirra sem ekki voru fyrir súkkúlaðið, auk þess sem lífslíkur þeirra voru hreinlega meiri en hinna. 28.2.2006 08:45
Danskir læknar lokkaðir til Noregs Þúsundir danskra lækna nýta frítíma sinni til að vinna í Noregi þar sem þeir fá að minnsta kosti tvöfalt hærri laun. Þetta leiðir til verri þjónustu á dönskum spítölum þar sem ekki er hægt að manna alla vaktir þar eftir því sem fram kemur í Jótlandspóstinum. 28.2.2006 08:30
Bin Laden sagður besta skinn Osama bin Laden er kurteis, hógvær og feiminn maður. Þetta segir ástralskur maður sem var í gær dæmdur fyrir að þiggja styrki frá al-Qaida. Hann starfaði undir handleiðslu bin Laden aðeins nokkrum mánuðum áður en al-Qaida gerðu hryðjuverkaárásirnar í Bandaríkjunum 11. september 2001. 28.2.2006 08:00
Sprengja sprakk við legstein föður Husseins Níu sundurskotin lík fundust á víðavangi nærri borginni Bakúba í Írak í morgun. Ekki liggur fyrir hve langt er síðan fólkið var skotið, en líklega var það myrt í óöldinni í Írak í síðustu viku þegar meira en tvö hundruð manns féllu í landinu eftir sprengjuárás á eina helgustu mosku sjía. Og nú í morgunsárið sprakk svo sprengja við legstein föður Saddams Hussein í borginni Tíkrit. 28.2.2006 07:15
Sextíu þúsund manns á kjötkveðjuhátíð í Ríó Minnst sextíu þúsund manns komu saman á hápunkti kjötkveðjuhátíðarinnar í Ríó í gærkvöldi. Þúsundir samba-dansara sýndu listir sínar á Sambadrome-leikvanginum, ásamt hundruðum trommuleikara. 27.2.2006 19:08
George Michael handtekinn vegna gruns um fíkniefnanotkun Poppsöngvarinn George Michael var handtekinn vegna gruns um fíkniefnanotkun um helgina. Þetta kemur fram í götublaðinu Sun. Þar segir að söngvarinn hafi fundist í annarlegu ástandi í bíl sínum í Lundúnum snemma á laugardagsmorgun og verið handtekinn vegna gruns um að hafa fíkniefni í fórum sínum. 27.2.2006 15:56
Norskir laxeldismenn sjá mikið sóknarfæri vegna fuglaflensunnar Norskir laxeldismenn sjá mikið sóknarfæri inn á Evrópumarkaðinn vegna fuglaflensunnar. Intra Fish greinir til dæmis frá því að kjúklinganeysla hafi dregist saman um 70 prósent á Ítalíu vegna ótta fólkis við flensusmit úr alifuglum og þess í stað aukist meðal annars fiskneysla. 27.2.2006 15:53
Þrjátíu þúsund manns mótmæla í París Meira en þrjátíu þúsund manns gengu fylktu liði um götur Parísar í gær, til að mótmæla morði á gyðingi, sem kynþáttahatarar pyntuðu í þrjár vikur. Lík mannsins fannst illa brennt og handjárnað um miðjan febrúar, þrem vikum eftir að glæpagengi rændi honum í suðurhluta Parísar. 27.2.2006 15:48
ESB bjargar Palestínumönnum frá gjaldþroti Evrópusambandið ætlar að bjarga Palestínumönnum frá gjaldþroti. Framkvæmdastjórn sambandsins samþykkti í morgun að styrkja heimastjórnina um tæpa tíu milljarða króna. 27.2.2006 14:30
Bono og Geldof tilnefndir til friðarverðlauna Nóbels Rokksöngvararnir eru Bono og Bob Geldof eru meðal þeirra sem tilnefndir eru til friðarverðlauna Nóbels í ár. Þeir eru í hópi 191 einstaklings og hóps sem tilnefndir eru en báðir hafa látið sig málefni þriðja heimsins varða. 27.2.2006 14:15
Málaferli vegna Da Vinci lykilsins hefjast í Lundúnum Tveir breskir rithöfundar saka höfund bókarinnar Da Vinci lykillinn um að hafa stolið hugmyndinni að bókinni. Kvikmynd sem byggð er á bókinni gæti seinkað vegna málaferla. 27.2.2006 13:45
Fólk enn hrætt í Bagdad þrátt fyrir kyrrð í morgun Þriggja daga samfelldu útgöngubanni var aflétt í Bagdad í morgun. Hræðsla er þó enn ofarlega í huga fólks og margir óttast að kyrrðin í morgun sé bara lognið á undan storminum. 27.2.2006 12:15
Danir skipta oftast Evrópuþjóða um vinnu Danir skipta oftast Evrópuþjóða um vinnu samkvæmt nýrri rannsókn sem gerð var á vegum framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. Frá þessu er greint á fréttavef danska ríkisútvarpsns. 27.2.2006 10:30
Sjá sóknarfæri vegna fuglaflensu Norskir laxeldismenn sjá mikið sóknarfæri inn á Evrópumarkaðinn vegna fuglaflensunnar. Intra Fish greinir til dæmis frá því að kjúklinganeysla hafi dregist saman um 70 prósent á Ítalíu vegna ótta fólks við flensusmit úr alifuglum og þess í stað aukist meðal annars fiskneysla. 27.2.2006 10:15
Húsnæðisverð langhæst í Kaupmannahöfn Húsnæðisverð í Kapmannahöfn er orðið hið langhæsta á Norðurlöndum og er meðalverð á fermetra komið upp í um það bil 300 þúsund íslenskar krónur. Það er því orðið hærra en í Stokkhólmi sem lengi hefur státað af titlinum dýrasta borg í Skandinavíu. 27.2.2006 10:00
Bang og Olufsen flytur hluta starfseminnar frá Danmörku Danski raftækjaframleiðandinn Bang og Olufsen, sem FL Group keypti nýverið hlut í, hefur ákveðið að flytja hluta starfsemi sinnar frá Danmörku bæði vegna skorts á verkfræðingum og til að draga úr launakostnaðil. 27.2.2006 09:30
Fimm uppreisnarmenn drepnir í Sádi-Arabíu Fimm uppreisnarmenn týndu lífi eftir tveggja klukkustunda samfellda skotbardaga við lögreglu í Sádi-Arabíu í nótt. 27.2.2006 09:19
Þrjátíu þúsund mótmæltu gyðingahatri Meira en þrjátíu þúsund manns gengu fylktu liði um götur Parísar í gær til að mótmæla morði á gyðingi, sem kynþáttahatarar pyntuðu í þrjár vikur. 27.2.2006 08:45
Lögregla í Sádi-Arabíu berst við uppreisnarmenn Skotbardagar milli lögreglu og uppreisnarmanna í Sádi-Arabíu hafa staðið í alla nótt. Uppreisnarmennirnir eru grunaðir um að hafa ætlað að sprengja stærsta olíuhreinsunarfyrirtæki heims og lögregla hefur verið á hælunum á þeim um nokkurt skeið. 27.2.2006 08:30
Gripið í rassinn Kólumbískur karlmaður hefur verið dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir að grípa í afturenda konu sem hann hjólaði fram hjá. Að sögn BBC hjólaði maðurinn í burtu eftir rassgripið en komst ekki langt áður en hann var gripinn af öðrum vegfarendum. 27.2.2006 08:00
Útgöngubanni aflétt í Bagdad Útgöngubanni var í morgun aflétt í Bagdad, höfuðborg Íraks, eftir hrinu árása í kjölfar sprengingar við al-Askari moskuna, einn heilagasta stað sjía, í síðustu viku. 27.2.2006 07:45
Fuglaflensa finnst í Sviss Fuglaflensan er komin til Sviss. Þarlend yfirvöld greindu frá því í gær að veira af H5 stofninum hefði greinst í dauðri önd í Genf. Veiran hefur ekki áður greinst í Sviss, en ekki liggur enn fyrir hvort um mannskæða stofninn H5N1 er að ræða. 27.2.2006 07:14
Samningsdrög á borðinu Íranar og Rússar hafa gert grundvallarsamkomulagi um samvinnu ríkjanna um auðgun úrans. Fulltrúar ríkjanna funduðu í Íran í dag. Rússar hafa boðist til að taka að sér auðgun úrans fyrir Írana. 26.2.2006 19:36
Fangar taka yfir rammgirt fangelsi Mörg hundruð fangar hafa tekið völdin í tveimur álmum í einu rammgirtasta fangelsi Afganistans. Þar eru tæplega tvö þúsund fangar í haldi nú og stefnt að því að flytja um hundrað meinta hryðjuverkamenn þangað úr Guantanamo-fangelsinu á Kúbu. 26.2.2006 19:30