Fangar taka yfir rammgirt fangelsi 26. febrúar 2006 19:30 Afganskir hermenn koma að Pulecharkhi-fangelsinu utan við Kabúl í dag. MYND/AP
Mörg hundruð fangar hafa tekið völdin í tveimur álmum í einu rammgirtasta fangelsi Afganistans. Þar eru tæplega tvö þúsund fangar í haldi nú og stefnt að því að flytja um hundrað meinta hryðjuverkamenn þangað úr Guantanamo-fangelsinu á Kúbu. Nokkrir fangar í hinu óárennielga Pulecharkhi fangelsi í höfuðborginni Kabúl, reyndu að flýja í gær en varð ekki kápan úr því klæðinu því fangavörðum tókst að koma í veg fyrir þá fyrirætlan. Þá sáu umræddir fangar engin önnur ráð en að taka völdin á bak við rimlana, fengu enn fleiri fanga í lið með sér og saman ráku þeir fangaverðina á flótta úr kvennaálmu fangelsisins. Tveir kvennkyns fangaverðir munu þó vera í haldi glæpamannanna. Fangarnir sem skipulögðu flóttann munu hafa verið í haldi í þeirri álmu þar sem talibanar og al-Qaida liðar eru í haldi í bland við aðra ótýnda glæpamenn. Heimildarmenn breska ríkisútvarpsins, BBC, halda því fram að til blóðugra átaka hafi komið í morgun og minnst sjö hafi látið lífið. Þessu neita yfirvöld. Vitni segja mikla skothríð hafa heyrst innan veggja fangelsisins í dag. Að minnsta kosti tuttugu lögreglubílar og tveir sjúkrabílar eru á vettvangi auk fjölmargra hermanna. Þegar leið á dáginn tóku hátt í 800 fangar í annarri álmu völdin þar og hófu að brenna húsgögn og annað lauslegt til stuðnings þeim sem halda til í kvennaálmunni.
Erlent Fréttir Mest lesið Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Erlent Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ Innlent Tígrisdýrið verður ekki aflífað Erlent „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Innlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Innlent Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Erlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Fleiri fréttir Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Tígrisdýrið verður ekki aflífað Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Fær aukadag til stjórnarmyndunar Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Leó páfi á leið í aðgerð eftir að hnútur fannst á lunga Vara við því að fara um flugvelli í Sádí-Arabíu Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Vill nýjan Úkraínuforseta Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Níu létust eftir skotárás Þrjú börn meðal fimmtán látinna í árás á íbúðarblokkir Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Þúsundum gert að yfirgefa heimili sín vegna Isaias Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Yfir sjötíu þúsund mótmæltu þrátt fyrir umbótatillögur Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Sjá meira