Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Telja meirihluta þingmanna spilltan Meirihluti þingmanna er spilltur að mati meirihluta Bandaríkjamanna samkvæmt skoðanankönnun Gallup fyrir CNN og USA Today. Ekki nóg með það heldur telja þeir að um fimmtungur þingmanna sé mjög spilltur. 4.1.2006 09:30
Allir námuverkamennirnir í Virginíu látnir nema einn Aðeins einn af kolanámuverkamönnunum sem sátu fastir í námu í Vestur-Virginíu komst lífs af samkvæmt nýjustu fregnum, en svo virðist sem upplýsingum um málið hafi verið snúið við. Tólf menn létu því lífið en ekki einn. Talsmaður kolanámufyrirtækisins greindi fjölskyldum mannanna frá þessu. 4.1.2006 08:09
Omri Sharon segir af sér Omri Sharon, sonur Ariels Sharons, forsætisráðherra Ísraels, sagði í gær af sér þingmennsku eftir að hafa verið sakfelldur fyrir ólöglega fjármögnun kosningabaráttu. Omri tók við erlendum fjárframlögum til að standa straum af kosningabaráttu föður síns í Likud flokknum árið 1999 en erlend fjárframlög eru bönnuð samkvæmt kosningalögum í Ísrael. 4.1.2006 07:00
Tólf námuverkamenn í V-Virginíu fundust á lífi Tólf þeirra kolanámumanna sem festust inni í námu í Vestur-Virginíu í Bandaríkjunum snemma í gærmorgun, fundust á lífi í morgun. Þá var einn látinn. Óttast var að allir hefðu farist en mennirnir voru fastir á um eitt hundrað metra dýpi og sýndu mælingar mikið magn eiturefna í andrúmsloftinu í námunni. 4.1.2006 07:00
Námumennirnir enn lokaðir inni í Sago kolanámunni Ekki er enn búið að bjarga námumönnunum 13 sem lokuðust inni þegar sprenging varð í Sago kolanámunni í Virginíafylki í Bandaríkjunum um hádegi í gær. Óvíst er hversu lengi þeir geta lifað inn í námunni en súrefni er þar af skornum skammti. Mælingar gefa til kynna að kolsýringur mælist langt yfir hættumörkum þar sem mennirnir eru lokaðir inni. Ekki er enn vitað hvað olli sprengingunni en ekki er útilokað að neisti frá eldingu hafi orsakað sprenginguna. 3.1.2006 22:30
Námuverkamennirnir enn fastir í námunni Þrettán námuverkamenn eru enn milli heims og helju í námu í Virginíu í Bandaríkjunum og komast ekki út. Baneitrað kolmónoxíð hefur safnast upp í námunni. Leit að mönnunum stóð enn yfir á sjöunda tímanum í kvöld. 3.1.2006 18:56
Óttast um efnahag Úkraínumanna hækki verð á gasi Svo kann að fara að þjóðaframleiðsla Úkraínumanna lækki um fimm prósent á þessu ári og verðbólga aukist um allt að þrjátíu prósent ef verð á rússnesku gasi, sem selt er til Úkraínu, fjórfaldast líkt og Rússar hafa krafist. 3.1.2006 16:52
Íranar hefja kjarnorkurannsóknir á ný Íranar ætla að hefja kjarnorkurannsóknir á ný þrátt fyrir mikla andstöðu Bandaríkjamanna og Evrópusambandsins. 3.1.2006 16:47
Skipt um sjö undur veraldar Nýr listi yfir sjö undur veraldar verður kynntur við upphaf næsta árs. Aðeins eitt núverandi undur á möguleika á að halda sess sínu, það er Píramídarnir í Gíza í Egyptalandi. 3.1.2006 16:14
Neyðarástandi líklega aflétt í Frakklandi á morgun Jacques Chirac, Frakklandsforseti, tilkynnti í morgun að hann hyggðist afnema neyðarlög sem sett voru í nóvember vegna verstu óeirða þar í landi í tæpa fjóra áratugi. Búist er við að lögin verði afnumin formlega á morgun, rúmum sex vikum fyrr en upphaflega var áætlað. 3.1.2006 13:00
Stórfótaræði í Malasíu Einskonar Bigfoot- eða stórfótaræði hefur gripið um sig í Malasíu vegna fregna úr þjóðgarði þar sem herma að sést hafi til stórfótar, eða þriggja metra hárrar veru. Hún er sögð kafloðin eins og górilla en gangi upprétt á afturfótunum. 3.1.2006 12:45
Þrettán námuverkamenn sitja enn fastir Óvíst er um örlög þrettán námuverkamanna sem sitja fastir tæplega áttatíu metra fyrir neðan yfirborð jarðar eftir að sprenging varð í kolanámu í vesturhluta Virgínuríkis í Bandaríkjunum í gær. 3.1.2006 12:03
Heita að koma gasflutningum til V-Evrópu í samt horf Rússar hafa heitið því að koma gasflutningum til Vestur-Evrópu í samt horf eftir raskanir sem hafa orðið eftir að lokað var fyrir gas til Úkraínu á sunnudag vegna deilna um verðlag. Stjórnmálaskýrendur segja stjórnvöld í Rússland nota gasleiðslur til að fá sínu framgengt. 3.1.2006 11:45
Neyðarástand í Kaliforníu Arnold Schwarzenegger, ríkisstjóri í Kaliforníu, hefur lýst yfir neyðarástandi í sjö sýslum í ríkinu vegna mikilla rigninga sem hafa valdið flóðum og aurskriðum. 3.1.2006 09:59
Lest ekið á fimm íslenska hesta í Danmörku Lögreglan í Köge á Jótlandi í Danmörku telur það ganga kraftaverki næst að morgunlestin, sem fór þar um að morgni nýjársdags, skyldi ekki fara út af sporinu, þegar henni var ekið á þó nokkri ferð á fimm íslenska hesta, sem voru á teinunum, með þeim afleiðingum að þeir drápust allir. 3.1.2006 09:45
Tólf skotnir í Nígeríu fyrir að reyna að stela olíu Öryggissveitir í Nígeríu skutu 12 manns til bana í gær eftir að mennirnir reyndu að stela olíu úr leiðslum í suðurhluta landsins. Að sögn fjölmiðla þar í landi hófst skotbardagi milli öryggissveitanna og mannanna eftir að eftirlitsmenn fundu þá við boranir. 3.1.2006 09:15
Þrír létust í flugskeytaárás Ísraela Að minnsta kosti þrír Palestínumenn féllu í flugskeytaárás Ísraela á bifreið í Jabalya flóttamannabúðunum á Gaza í gærkvöld. Ísraelar segja að í bílnum hafi verið liðsmenn palestínsku samtakanna Heilagt stríð. 3.1.2006 09:00
Snjókoma hamlar neyðaraðstoð í Pakistan Mikil snjókoma hefur hamlað aðstoð við eftirlifendur jarðskjálftanna í Kasmír en talið er að yfir þrjár milljónir manna séu nú heimilislausar. Vegir eru lokaðir og þyrlur í flugbanni sökum óveðursins. Flætt hefur inn í tjöld fólksins sem hírist nú í kulda á svæðinu en neyðarbirgðir hafa ekki borist fólkinu í þrjá daga. 3.1.2006 07:15
Ellefu látnir eftir að þak skautahallar hrundi Tala látinna eftir að þak skautahallar í bænum Bad Reichenhall í Þýskalandi hrundi, er komin í ellefu. Þá eru yfir þrjátíu slasaðir. Slökkviliðsmenn notuðu krana til að færa til þakbrotin svo hægt væri að komast að skautasvellinu en um 300 björgunarmenn komu að björgunaraðgerðum sem gekk brösulega vegna mikillar snjókomu. 3.1.2006 07:00
Sléttur brenna í Oklahoma og Texas Á vesturströnd Bandaríkjanna, þar sem er heitt og vindasamt, hafa slökkviliðsmenn í allan dag barist við mikla elda sem hafa breiðst um þurrar sléttur Oklahoma og Texas. 2.1.2006 21:03
Eldar blossuðu upp í Sidney í Ástralíu í dag Eldar blossuðu upp í Sidney í Ástralíu í dag og loguðu eldar þar á þúsundum hektara lands og náðu þeir mest þrjátíu metra hæð. Hitinn í Sidney fór mest í 44,2 gráður, og hefur ekki mælst svo mikill í borginni í heil 66 ár. 2.1.2006 21:02
Norður Karolína á kafi. Allt er nú á kafi í Norður Karólínu eftir að ár flæddu yfir bakka sína um helgina eftir mikklar rigningar á svæðinu. Tvær miklar vindhviður gengu yfir og nú er allt í aur og leðju á stórum svæðum. 2.1.2006 21:01
Á fjórða tug manna týndi lífi í Indónesíu Mikil flóð hafa verið í Indónesíu í dag og er talið að á fjórða tug manna hafi týnt lífi. Hundruð manna misstu heimili sín í flóðunum og hafast nú við í bænarhúsum og skólum. 2.1.2006 21:00
Ófremdarástand er að skapast víða í Evrópu vegna gasdeilu Rússa og Úkraínumanna. Ófremdarástand er að skapast víða í Evrópu vegna gasdeilu Rússa og Úkraínumanna. Olíurisinn Gazprom skrúfaði í gær fyrir gasleiðslur frá Rússlandi til Úkraínu. Nærri fjórðungur af öllu gasi Evrópu fer í gegnum þessar leiðslur. 2.1.2006 20:38
Fjórir létu lífið og fjölmargir slösuðust þegar þak skautahallar hrundi Að minnsta kosti fjórir létu lífið þegar þak skautahallar í bænum Bad Reichenhall í Suður-Þýskalandi hrundi í dag. Fimmtíu voru í höllinni þegar slysið varð. 2.1.2006 20:31
Pandabirnir fagna nýju ári Sextán pandabirnir sem komu í heiminn í fyrra fögnuðu nýju ári saman í Kína í gær. Sá elsti var ellefu mánaða og sá yngsti fæddur í ágúst. 2.1.2006 20:25
Óvenjuleg nýársgjöf Nýársgjöf Tonys Blairs, forsætisráðherra Bretlands, til bresku þjóðarinnar var heldur óvenjuleg þetta árið. Blair og ráðgjafar hans hafa útbúið myndband sem kallast "dagur í lífi forsætisráðherra" og afhent það öllum fjölmiðlum landsins. 2.1.2006 20:22
Hjálparstarf á jarðskjálftasvæðunum í Pakistan er í uppnámi Hjálparstarf á jarðskjálftasvæðunum í Pakistan er í uppnámi, eftir að fyrsti snjór vetrarins féll um helgina. Tvær og hálf milljón manna hefst enn við í tjöldum og mörg hundruð manns hafa veikst illa af völdum nístingskulda um helgina. 2.1.2006 20:13
Saka Úkraínumenn um stórfelldan gasstuld Stjórnendur rússneska gasfyrirtækisins Gazprom segja að úkraínsk stjórnvöld hafi stolið gasi að jafnvirði tæplega sextánhundruð milljónir króna. Þeir segja að Úkraínumenn hafi hirt gas sem hafi átt að fara um gasleiðslur til Vestur-Evrópu. 2.1.2006 14:45
Zapatistar hefja friðsamlega herferð Forystumenn Zapatista, vinstrisinnaðra skæruliða í Mexíkó, lögðu í gær af stað í hálfs árs ferðalag um Mexíkó og er það í fyrsta sinn í fjögur ár sem þeir yfirgefa sterkustu vígi sín í frumskógum Mexíkó. 2.1.2006 13:15
Lést ekki af völdum fuglaflensu Fjórtán ára tyrkneskur piltur var talinn hafa látist úr fuglaflensu, en sá grunur reyndist ekki á rökum reistur. Drengurinn og systkini hans voru lögð inn á sjúkrahús á laugardag með mikinn hita og innvortis blæðingar. Heilbrigðisstarfsfólk óttaðist að þau hefðu sýkst af fuglaflensu, en rannsóknir sýndu að svo var ekki heldur lést pilturinn af völdum lungnabólgu. 2.1.2006 12:45
Á fjórða tug látinn í flóðum í Indónesíu Í það minnsta þrjátíu og fjórir hafa farist í flóðum og aurskriðum sem féllu á heimili og skóla á Indónesíu í morgun. Mikil rigning hratt aurskriðunum af stað og ár flæddu yfir bakka sína þegar aurskriðurnar féllu í þær. Hundruð manna leituðu skjóls í moskum og skólum en nú er talið að það versta sé yfirstaðið. 2.1.2006 12:30
Logarnir risu 30 metra til himins Einn hjálparstarfsmaður lést af völdum hjartaáfalls og annar liggur á sjúkrahúsi með þriðja stigs bruna á 60 prósentum líkamans eftir baráttu við skógarelda norður af Sidney í Ástralíu. 2.1.2006 11:41
Starbucks vinnur vörumerkjamál í Kína Bandaríska kaffihúsakeðjan Starbucks hefur unnið mál í Kína sem hún höfðaði á hendur þarlendri kaffihúsakeðju vegna þess að vörumerki hennar þótt of líkt vörumerki Starbucks. Málaferlin hafa staðið yfir í tvö ár og var málið talið prófmál í Kína þar sem erlend fyrirtæki hafa mörg hver kvartað undan því að kínversk fyrirtæki reyni að nýta sér fræg vörumerki sér til framdráttar. 2.1.2006 11:00
Ítölskum ferðamönnum rænt í Jemen Fimm ítölskum ferðamönnum var rænt í austurhluta Jemen í gær, þremur konum og tveimur körlum. Eftir því sem fjölmiðlar í Jemen greina frá átti að sleppa konunum en þær neituðu að fara án karlanna og eru því enn í haldi. Yfirvöld í Jemen segja mannræningjana fara fram á að átta föngum verði sleppt í skiptum fyrir Ítalana en ekki er ljóst hvort orðið verður við þeim kröfum. 2.1.2006 10:15
Halda námskeið í íslam fyrir fréttamenn Samtök múslima í Danmörku hafa ákveðið að halda námskeið í íslam fyrir danska fréttamenn. Námskeiðið mun taka einn dag og er áætlað að halda það í apríl. Þar verða fréttamenn fræddir um helstu atriði múhameðstrúar. Talsmaður múslíma í Danmörku segir aðal ástæðuna vera skopteikningarnar af Allah sem birtust í Jótlandspóstinum í síðastliðið haust. 2.1.2006 10:00
Mikil flóð í Kaliforníu um helgina Allt er á floti víða í norðanverðri Kaliforníu eftir að tveir stormar gengu þar yfir um helgina. Hundruð heimila og fyrirtækja eru komin á kaf eftir að vatnsmiklar ár flæddu yfir bakka sína. Íbúar margra bæja unnu við það í gær að hreinsa upp eftir flóðin en máttu margir hverjir láta undan þegar flæddi í annað sinn. 2.1.2006 09:15
Árásir á sunnanvert Gasasvæðið í gærkvöld Ísraelskar herþyrlur gerði loftárás á Khan Younis á sunnanverðu Gazasvæðinu í gærkvöldi og ollu skemmdum á húsnæði sem notað er af hópum sem berjast gegn Ísraelum. Ekkert mannfall varð í árásinni. 2.1.2006 08:30
Bush varði símahleranir Þjóðaröryggisstofnunarinnar George Bush Bandaríkjaforseti varði njósnir bandarísku Þjóðaröryggisstofnunarinnar og hleranir á símtölum bandarískra ríkisborgara án dómsúrskurðar þegar hann ræddi við fréttamenn eftir heimsókn til særðra hermanna í Brooke-hersjúkrahúsinu í Texas í gærkvöldi. 2.1.2006 08:15
Frelsuðu ítalskan gísl í Palestínu Palestínskir lögreglumenn frelsuðu ítalskan gísl úr höndum gíslatökumanna eftir skotbardaga í Khan Younis á Gaza í gær. Vopnaðir menn stöðvuðu í gær rútu sem Alessandro Bernardini ferðaðist með, neyddu hann út úr rútunni og keyrðu burt með hann. Fjórum klukkustundum síðar réðust öryggissveitir palestínsku heimastjórnarinnar inn í hús í Khan Younis, hleyptu af skotum og frelsuðu Bernardini. 2.1.2006 07:45
Grunur leikur á að tyrkneskur piltur hafi verið með fuglaflensu Fjórtán ára tyrkneskur piltur sem gekkst undir rannsóknir til að athuga hvort hann væri með fuglaflensu lést í gær og systir hans liggur mjög veik á sjúkrahúsi. Niðurstöður úr rannsókninni liggja ekki fyrir og því er ekki vitað hvort drengurinn smitaðist af fuglaflensu eða ekki. 2.1.2006 07:17