Fleiri fréttir

Laun verða að hækka

Laun verða að hækka meira en sem nemur verðbólgu, segja forystumenn ETUC, heildarsamtaka sextíu milljóna launþega í ríkjum Evrópusambandsins. Þeir segja engu skipta þó stjórnendur Seðlabanka Evrópu láti að því liggja að þeir bregðist við launahækkunum umfram verðbólgu með því að hækka vexti.

Grunuðum hryðjuverkmönnum sleppt

Fjórir menn frá Norður-Afríku sem bíða þess að vera vísað frá Bretlandi vegna gruns um aðild að hryðjuverkum verða leystir úr haldi lögreglu gegn tryggingu. Sérstakur dómstóll sem fjallaði um mál mannanna ákvað þetta í dag en neitaði fimm um lausn og máli eins var frestað.

Býður almenningi á ball

Haraldur Noregskonungur hefur ákveðið að bjóða fimm hundruð og fimmtíu þegnum sínum, víðs vegar að úr Noregi og úr öllum stéttum, til dansleiks í næsta mánuði. Haraldur, sem hefur átt til rölta um götur Oslóar og líta í verslanir án þess að mikið sé um sýnilega öryggisgæslu, telur dansleikinn tækifæri til að auka enn tengsl sín við landsmenn.

David keppir við David

Tveir menn með sama fornafn berjast um leiðtogaembættið hjá breska Íhaldsflokknum. David Cameron og David Davis fengu flest atkvæði í kjöri þingmanna flokksins um hverjir skyldu fá að vera í framboði þegar 300 þúsund félagar í Íhaldsflokknum velja sér leiðtoga.

Tugþúsundir í bráðri hættu

Tugir þúsunda eru í bráðri hættu og deyja á næstu dögum verði ekki gripið til víðtækra aðgerða þegar í stað. Þetta er mat yfirmanna Sameinuðu þjóðanna sem tóku óvenju djúpt í árinni í dag þegar þeir lýstu hörmungarástandinu í Kasmír.

Gripið til víðtækra ráðstafana

Í dag lést tæplega fimmtugur Taílendingur úr fuglaflensu. Í Indónesíu virðist heil fjölskylda hafa smitast sem vekur ótta um stökkbreytingu vírussins. Bretar ætla að kaupa bóluefni fyrir hvern einasta íbúa Bretlandseyja. Austurríkismenn og Þjóðverjar hafa bannað lausagöngu alifugla.

20 þúsund enn í neyðarskýlum

Enn er ekki ljóst hvernig koma á upp heimilum fyrir þá einu milljón manna, kvenna og barna sem misstu heimili sín þegar fellibylurinn Katrína reið yfir suðurríki Bandaríkjanna fyrir tæpum tveimur mánuðum síðan. 20 þúsund manns hafast enn við í neyðarskýlum.

Vindurinn úr Wilmu

Nokkuð hefur dregið úr vindhraða fellibylsins Wilmu. Engu að síður hafa þúsundir yfirgefið heimili sín í Flórída og í ríkjum Mið-Ameríku.

Laug til um árásina

Anne-Lise Jønch Pedersen, frambjóðandi danska Framfaraflokksins í héraðskosningum á Sjálandi, er í vondum málum eftir að upp komst að hún laug því að hópur innflytjenda hefði ráðist á sig.

Tugþúsundir enn í hættu

Ríki heims hafa einungis reitt fram einn áttunda hluta af þeirri neyðaraðstoð sem Sameinuðu þjóðirnar fara fram á. Óttast er að með útbreiðslu farsótta og versnandi veðri muni tala látinna á hamfarasvæðunum hækka enn frekar.

Kosið milli Camerons og Davis

Keppinautum um flokksleiðtogastólinn í breska Íhaldsflokknum fækkaði í gær niður í tvo. Á næstu sex vikum skera almennir flokksmenn úr um hvor þeirra skuli leiða flokkinn í næstu þingkosningum.

Norðmenn sækja ekki um ESB-aðild

Utanríkisráðherra Noregs segir nýja atlögu að því að koma landinu í Evrópusambandið ekki á dagskrá á kjörtímabilinu. Áfram verði byggt á EES-samningi.

Fleygði börnunum sínum í sjóinn

Bandarísk kona hefur verið ákærð fyrir að hafa myrt öll þrjú börnin sín. Lashaun Harris, 23 ára gömul kona búsett í Oakland, játaði sök skömmu eftir að hún var handtekin. Lögreglan hefur upplýst að konan hafi sagst hafa fleygt börnunum fram af bryggjunni eftir að raddir í höfði hennar höfðu sagt henni að gera það.

Wilma orðin 4. stigs fellibylur

Hitabeltisstormurinn Wilma er nú orðinn að fellibyl á fjórða stigi og fer enn vaxandi. Um tólfta fellibylinn á þessu svæði er að ræða á þessu ári en svo margir hafa þeir ekki verið á einu ári frá árinu 1969.

Alheimsfaraldur ekki í nánd

Markos Kyprianou, sem fer með heilbrigðis- og neyslumál í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, segir fuglaflensutilvikin sem komið hafi upp í suðausturhluta Evrópu í vikunni ekki gefa tilefni til að ætla að alheimsfaraldur sé í nánd.

Kominn inn í rússneska landhelgi

Rússneski togarinn Elektron, sem tekinn var við ólöglegar veiðar við Svalbarða á laugardag en stakk síðan af með tvo norska strandgæslumenn, er kominn inn í rússneska landhelgi. Togarinn er á leið til Múrmansk í fylgd rússnesks herskips sem beið hans við landhelgismörkin.

Vilja fresta réttarhöldunum

Lögfræðingar Saddams Hussein, fyrrum einræðisherra Íraks, hafa óskað eftir því að réttarhöldum yfir forsetanum fyrrverandi verði frestað um þrjá mánuði. Saddam og sjö samstarfsmönnum hans er gefið að sök að hafa fyrirskipað morð á 150 sjítamúslimum í kjölfar þess að reynt var að ráða Saddam af dögum árið 1982.

Mótmæla lausn fanganna

Hundruð komu saman við höfuðstöðvar Sameinuðu þjóðanna í borginni Trípoli í Líbíu í gær til að mótmæla ákvörðun Bandaríkjaforseta að láta lausa fimm búlgarska hjúkrunarfræðinga sem í maí árið 2004 voru dæmdir til dauða fyrir að sýkja yfir 400 börn af HIV-veirunni í tilraunaskyni til að finna lækningu við alnæmi.

730 kíló af heróíni gerð upptæk

Lögregluyfirvöld í Kína og nágrannaríkinu Myanmar gerðu tæplega 730 kíló af heróíni upptæk á dögunum sem smygla átti yfir landamærin til Kína. Sjötíu manns voru handteknir í aðgerðinni auk þess sem hald var lagt á töluvert magn vopna og tugi milljóna í bandarískum dollaraseðlum.

Clarke dottinn úr leik

Kenneth Clarke, fyrrverandi fjármálaráðherra Bretlands, er dottinn úr leik í baráttunni um það hver verði næsti leiðtogi breska Íhaldsflokksins en Clarke fékk fæst atkvæði. Kosið verður að nýju á fimmtudag um þá þrjá sem eftir eru en þeir eru Liam Fox, David Cameron og David Davis en sá síðasti fékk flest atkvæði í kosningunni.

Blóðugasta tímabil frá innrásinni

Fjórir létust og þrír særðust í árásum í suðurhluta Afganistans í gærkvöldi.  Um ellefu hundruð manns hafa fallið í átökum í Afganistan það sem af er þessu ári, sem er þar með það blóðugasta síðan Bandaríkjamenn réðust inn í landið fyrir fjórum árum.

Öflugur eftirskjálfti í Kasmír

Öflugur eftirskjálfti reið yfir Kasmírhérað í morgun en ekki hafa fengist upplýsinga um hversu stór hann var. Skjálftinn vakti mikinn ótta meðal hjálparstarfsmanna og fórnarlamba stórskjálftans sem varð yfir fimmtíu og fjögur þúsund manns að bana fyrir rúmri viku en sá skjálfti var 7,6 á Richter.

Réttarhöldunum frestað

Réttarhöld yfir Saddam Hussein, fyrrverandi forseta Íraks, hófust í morgun en var frestað fyrir stundu að beiðni lögfræðinga hans til 28. nóvember.

Fá að sækja strandgæslumenn

Norska strandgæslan hefur fengið leyfi til að sækja tvo strandgæslumenn um borð í rússneska togarann Elektron. Igor Dygalo, talsmaður rússneska norðurflotans, tilkynnti fyrir stundu að norska strandgæslan hefði fengið leyfi til að fara um inn í rússneska lögsögu til að sækja strandgæslumennina. Þeir mega þó ekki sækja þá fyrr en á morgun.

Heliosvél snúið við vegna bilunar

Flugvél kýpverska flugfélagsins Helios þurfti að snúa aftur til Kýpur þegar bilunar varð vart skömmu eftir flugtak. Þetta er í þriðja skipti á innan við mánuði sem flugvélar félagsins verða að breyta út af áætlun sinni vegna tæknivandamála. 121 fórst þegar flugvél frá Helios hrapaði í fjöllunum norður af Aþenu, höfuðborg Grikklands, í ágúst.

Öflugasti fellibylur Atlantshafs

Fellibylurinn Wilma setti met í dag og er nú skráður sem öflugasti fellibylur sem geisað hefur á Atlantshafinu og mældist ferð hans 280 kíilómetrar á klukkstund. Leið Wilmu liggur nú til vestur Kúbu og Yucatan-skagans í Mexíkó og búist er við honum á Flórída eftir því sem líður á kvöldið.

Vill handtaka hermenn vegna morðs

Dómari við dómstól á Spáni hefur gefið út alþjóðlega handtökuskipun á hendur þremur bandarískum hermönnum í tengslum við dauða spænsks myndatökumanns í Írak. Maðurinn léstn í apríl 2003 þegar skotið var úr skriðdreka á Palestine-hótelið í Bagdad sem var aðsetur flestra blaðamanna skömmu eftir innrás bandamanna í Írak.

Telja blaðamanni hafa verið rænt

Óttast er að blaðamanni á vegum breska dagblaðsins <em>Guardian</em> hafi verið rænt í Írak eftir að ekkert hefur spurst til hans síðari hluta dags. Írski blaðamaðurinn Rory Carroll mun hafa verið í viðtali í bresku útvarpi í morgun vegna réttarhaldanna yfir Saddam Hussein en samkvæmt yfirlýsingu frá <em>Guardian</em> munu vopnaðir menn hafa rænt honum í höfuðborginni Bagdad.

Tala fórnarlamba hækkar enn

Fórnarlömbum hamfaranna í Kasmír fjölgar með hverjum deginum sem líður. Nú er talið að 80 þúsund manns hafi látið lífið í jarðskjálftanum. Aðstæður eftirlifenda eru svo hrikalegar að tugþúsundir manna eru í hættu verði ekki gripið til róttækra björgunaraðgerða.

Viðbúnaður vegna Wilmu víða

Wilma kostaði tíu manns lífið á Haítí þar sem aurskriður urðu í kjölfar mikillar rigningar. Síðan hefur henni vaxið ásmegin og ef fer sem horfir verður hún af kröftugustu gerð fellibylja þegar hún skellur á Kúbu og Mexíkó. Hún er ný þegar öflugasti atlantshafsfellibylur sem mælst hefur. Vindhraðinn í henni var til að mynda ríflega sextíu og sex metrar á sekúndu í morgun.

Rice útilokar ekki langa hersetu

Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, neitaði í gær að útiloka að bandarískir hermenn kynnu að verða í heilan áratug enn í Írak né að hervaldi yrði beitt gegn Sýrlandi eða Íran.

Stefnt að feðraorlofi í Bretlandi

Feður á Bretlandi munu fá þriggja mánaða launað feðraorlof ef frumvarp viðskiptaráðherra Bretlands nær fram að ganga. Samkvæmt núverandi lögum eiga mæður aðeins rétt á hálfs árs fæðingarorlofi á launum ásamt hálfu ári til viðbótar launalausu en feður hafa engan rétt til fæðingarorlofs á launum.

Borða allt nema grænmetið

Því meiri matur sem fólki er boðið upp á þeim mun meira borðar það, nema maturinn sé grænmeti. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri skýrslu bandarískra vísindamanna sem leita leiða til að draga úr offitu.

Herferð gegn Darwinisma

Bandarískur dómstóll fjallar nú um hvort grunnskóli nokkur megi kenna svonefnda heimshönnuðarkenningu sem valkost við þróunarkenninguna.

Allt að 79.000 taldir af

Stórir eftirskjálftar riðu yfir pakistanska Kasmír í gær og fylgdu þeim skriðuföll. Nú er talið að allt að 79.000 manns hafi farist í skjálftanum mikla 8. október.

Einn heima með látinni móður

Lögregla í Edinborg -braust inn í íbúð í Leith um helgina og fann þar þriggja ára gamlan dreng illa á sig kominn. Í íbúðinni var einnig lík móður hans en talið er að hún hafi látist hálfum mánuði áður.

Reifst og skammaðist við dómarann

Í réttarhöldunum sem hófust í gær yfir Saddam Hussein og sjö samverkamönnum hans kvaðst einræðisherrann fyrrverandi vera saklaus. Dómhaldi hefur verið frestað um nokkrar vikur.

Lífslíkur aukast

Ný bresk rannsókn sýnir að lífslíkur hafa aukist meðal kvenna sem greinast með brjóstakrabbamein. Danskar rannsóknir benda til svipaðra niðurstaða. Ný lyf og bætt meðferðarúrræði hafa á síðustu áratugum aukið lífslíkur meðal þeirra sem greinast með brjóstakrabbamein.

Bretar bregðast við fuglaflensu

Landlæknir í Bretlandi segir ekki ólíklegt að 750 þúsund manns smitist af fuglaflensu í Bretlandi á næstu tveimur árum.

Ung stúlka finnst á lífi

Sex ára stúlku var bjargað úr rústum húss í fjallaþorpi austur af Balakot í Pakistan í dag en níu dagar eru síðan jarðskjálfti af stærðinni 7,6 á Richter reið yfir norðurhluta landsins.

Biðraðir til trafala

Eigandi veitingastaðar í Whitby á Norður Englandi á yfir höfði sér kæru vegna gríðarlegra biðraða við veitingastaðar hans. Ekki er óalgengt að sjá yfir eitt hundrað manns í biðröð eftir að komast inn en kokkurinn, sem er verðlaunakokkur, hefur auglýst að þar sé að fá besta fisk og bestu franskar í heimi.

Baðolía í stað vodka

Vodki hefur lengi vel verið vinsæll drykkur í Rússlandi og ódýr. Svo virðist þó sem nýr drykkur hafi tekið við hjá þeim Rússum sem hafa einfaldlega ekki efni á vodka, sem kostar frá 140 krónum, og drekka þeir því í staðinn baðolía sem inniheldur mikið magn af alcoholi og kostar aðeins 30 krónur.

Fáir ferðamenn í New Orleans

Illa gengur að fá ferðamenn til New Orleans þrátt fyrir öfluga markaðsherferð heimamanna til að fá fólk til borgarinnar. Bourbon stræti, sem er hvað þekktust fyrir líflega tónlist og góða veitingastaði, hefur smám saman verið að taka við sér.

Sjá næstu 50 fréttir