Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Abbas tekur öryggissveitir í gegn Mahmoud Abbas, forseti Palestínu, hefur skipað þrjá nýja yfirmenn yfir öyggissveitum landsins. Þá hefur Abbas einnig neytt nokkur hundruð starfsmenn öryggissveita landsins til þess að fara á eftirlaun með nýjum lögum sem kveða á um að starfsmenn sveitanna verði að hætta störfum þegar sextugsaldri er náð. 25.4.2005 00:01
Sneru til baka úr alþjóðageimstöð Rússnesk geimskutla með áhöfn frá alþjóðageimstöðinni lenti í Kasakstan seint í gærkvöldi. Um borð voru Rússi og Bandaríkjamaður sem hafa verið í geimstöðinni síðan í október auk Ítala sem dvaldi þar undanfarna átta daga. Lendingin gekk vel og er áhöfnin við hestaheilsu að eigin sögn. 25.4.2005 00:01
Segir af sér vegna spillingar Stanislav Gross, forsætisráðherra Tékklands, sagði af sér embætti í morgun. Afsögnin kemur í kjölfar þess að upp komst um spillingu Gross við fjármögnun íbúðar sem hann keypti sér fyrir sex árum. Jiri Paroubek, félagi Gross í flokki Sósíaldemókrata, tekur við starfi forsætisráðherra Tékklands á hádegi í dag. 25.4.2005 00:01
Talinn hafa misnotað 445 drengi Finnskur karlmaður á fimmtugsaldri hefur verið hnepptur í varðhald grunaður um að hafa beitt 445 taílenska drengi kynferðisofbeldi. Hann hefur farið 26 sinnum til Taílands síðan árið 1989 og í fórum hans fannst nákvæmt bókhald yfir athafnir hans með drengjunum. Þetta er langumsvifamesti barnaníðingur í sögu Finnlands og sjálfsagt þótt víðar væri leitað, en upp komst um hann vegna rannsóknar hollensku lögreglunnar á svipuðu máli Hollendings. 25.4.2005 00:01
Rússar stjórni lýðræðisþróun Rússar ákveða sjálfir hvernig lýðræði þróast í landinu, sagði Vladímír Pútín í ávarpi til þjóðarinnar í gær og svaraði þannig meðal annars gagnrýni Condoleezzu Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Hún gagnrýndi nýlega þróunina í Rússlandi en Pútín þykir í vaxandi mæli minna á valdamikla ráðamenn Sovétríkjanna fyrr á dögum. 25.4.2005 00:01
Versta lestarslys í 40 ár í Japan Fimmtíu hið minnsta týndu lífið þegar farþegalest fór út af sporinu á háannatíma skammt frá borginni Osaka í Japan. Lestin brunaði beint inn í hús skammt frá teinunum. 300 manns slösuðust. 25.4.2005 00:01
Skattayfirvöld hætti ofsóknum Rússar ákveða sjálfir hvernig lýðræði þróast í landinu, sagði Vladímír Pútín í ávarpi til þjóðarinnar í gær. Hann skipaði einnig skattayfirvöldum að hætta ofsóknum á hendur stórfyrirtækjum. 25.4.2005 00:01
Ekki tilkynnt um ríkisstjórn í dag Enn á ný var því frestað að tilkynna um nýja ríkisstjórn í Írak í dag. Sem fyrr voru það deilur um einstök ráðuneyti milli ólíkra trúarhópa sem settu strik í reikninginn, en bandalag sjíta, sem hlaut flest atkvæði í þingkosningum í lok janúar, vinnur að því að mynda stjórn með Kúrdum og súnnítum. 25.4.2005 00:01
Níu létust í slysi í Suður-Afríku Níu létust og 59 slösuðust í árekstri lestar og rútu í norðurhluta Suður-Afríku í dag. Svo virðist sem ökumaður rútunnar hafi virt stöðvunarskyldumerki að vettugi og ekið yfir lestarteina um leið og flutningalest nálgaðist með fyrrgreindum afleiðingum. Allir þeir sem létust og meiddust voru í rútunni og voru hinir slösuðu fluttir með þyrlum og sjúkrabílum á fimm sjúkrahús. 25.4.2005 00:01
Sigrast á fuglaflensu í N-Kóreu Tekist hefur að hefta útbreiðslu fuglaflensu í Norður-Kóreu og reyndist veiran ekki skyld þeirri sem borist getur úr fuglum í menn. Frá þessu greindi Matvælastofnun Sameinuðu þjóðanna í dag. Að sögn talsmanna stofnunarinnar reyndist fuglaflensuveiran af stofninum H7 sem veldur alvarlegum veikindum í fiðurfénaði en hann er ekki skyldur H5N1-stofninum sem borist hefur í menn og dregið 52 til dauða í Kambódíu, Víetnam og Taílandi. 25.4.2005 00:01
Grunaður um morðið í Kristjaníu Tuttugu og fimm ára gamall maður af írökskum uppruna hefur verið handtekinn í tengslum við morðárásina í Kristjaníu í Kaupmannahöfn í síðustu viku. 25.4.2005 00:01
Neita öllum sakargiftum Réttarhöldin yfir 24 meintum al-Kaída-liðum á Spáni sem grunaðir eru um að hafa skipulagt hryðjuverkaárásirnar 11. september 2001 standa nú sem hæst. 25.4.2005 00:01
Tekist á í Nepal Stjórnarherinn í Nepal hóf í gær stórsókn gegn uppreisnarmönnum í landinu og létu þyrlur meðal annars sprengjur rigna yfir búðir þeirra. 25.4.2005 00:01
Rúmar 2 milljónir í fangelsi í BNA Ríflega 2,1 milljón manna situr í fangelsi í Bandaríkjunum, eftir því sem fram kemur í ársuppgjöri fyrir síðasta ár frá dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna. Þetta jafngildir því að 726 af hverjum 100 þúsund íbúum sitji inni fyrir glæp. Þar kemur einnig fram að föngum hafi fjölgað um 2,3 prósent í fyrra. 25.4.2005 00:01
Allt í hnút í Írak Hvorki gengur né rekur í stjórnarmyndunarviðræðunum í Írak og á meðan berast landsmenn á banaspjót. 25.4.2005 00:01
Glæpaalda í Svíþjóð Fleiri lík finnast grafin á víðavangi í Svíþjóð. Tvennt fannst myrt grafið í malargryfju á Gotlandi um helgina. 25.4.2005 00:01
Pútín flytur stefnuræðu sína Vladimír Pútín, forseti Rússlands, flutti í gær sjöttu stefnuræðu sína. Hann eyddi mestu púðri í að fullvissa fjárfesta um að gráðugir embættismenn, óstöðugt efnahagsástand og umfangsmiklar skattrannsóknir heyrðu sögunni til. 25.4.2005 00:01
Níutíu ár frá Gallipoli Í gær voru liðin níutíu ár síðan einn mannskæðasti bardagi heimsstyrjaldarinnar fyrri hófst, orrustan á Gallipoli-skaga í Tyrklandi. Þúsundir manna minntust atburðarins í Canakkale í Tyrklandi í gær. 25.4.2005 00:01
Finni misnotaði 445 unga drengi Finnskur karlmaður hefur verið handtekinn í Finnlandi vegna gruns um að hann hafi misnotað 445 drengi í Taílandi síðastliðin 15 ár. 25.4.2005 00:01
Verður að synda til Ameríku Nú hefur komið á daginn að hinn hálfíslenski eigandi og forstjóri tölvufyrirtækisins Opera Software í Noregi, Jón Stephenson von Tetzchner, verður að standa við stóru orðin og synda til Ameríku frá Noregi. 25.4.2005 00:01
Stúlkur eru hin gleymdu fórnarlömb Tæpur helmingur barna sem þvinguð eru til að taka þátt í stríðsátökum er stúlkur. Í hernaðinum eru þær beittar margvíslegu oftbeldi og að átökum loknum eiga þær erfiðara en piltar með að laga sig að þjóðfélaginu á ný. 25.4.2005 00:01
Nýir ríkisarfar væntanlegir Nýr danskur ríkisarfi er væntanlegur í heiminn í haust og undir áramót er fjölgunar von í norsku konungsfjölskyldunni. 25.4.2005 00:01
Íraksmálin aftur í brennidepli Íhaldsmenn kalla Tony Blair lygara og frjálslyndir krefjast þess að hann upplýsi um samskipti þeirra Goldsmith lávarðar, ráðgjafa ríkisstjórnarinnar, í aðdraganda innrásarinnar í Írak. 25.4.2005 00:01
Ríflega fimmtíu dóu í lestarslysi Nær 60 manns fórust og á fimmta hundrað slösuðust í miklu lestarslysi í Japan í gærmorgun. Talið er að óreyndur lestarstjórinn hafi ekið lestinni allt of hratt með þeim afleiðingum að hún þeyttist út af sporinu. 25.4.2005 00:01
Segist hafa rænt sex Súdönum Íslamskur uppreisnarhópur, Her Ansars al-Sunna, lýsti því yfir í dag að hann hefði rænt sex súdönskum bílstjórum sem störfuðu á vegum Bandaríkjahers í Írak. Þetta kom fram í yfirlýsingu frá hópnum sem birt var á Netinu í dag. Uppreisnarmennirnir sögðust einnig ætla senda frá sér myndband fljótlega af sexmenningunum, en þeim var rænt skömmu eftir að þeir höfðu yfirgefið herstöð vestur af Bagdad í dag. 25.4.2005 00:01
Fólks enn leitað eftir lestarslys Fólks er enn leitað í flaki japanskrar farþegalestar sem þeyttist út af sporinu í morgun. 57 fórust og á fimmta hundrað slasaðist. 25.4.2005 00:01
Fundu lyf sem frestar Alzheimer Lyf hefur fundist sem virðist fresta því að fólk fái Alzheimer-sjúkdóminn. Það vekur vonir um að hægt sé að fyrirbyggja sjúkdóminn með öllu. 25.4.2005 00:01
Mótmæltu nýjum samkeppnislögum Starfsmenn Samkeppnisstofnunar og Löggildingarstofu mótmæltu harðlega fyrirhuguðum breytingum á samkeppnislögum á fundi efnahags- og viðskiptanefndar í morgun. Fulltrúi starfsmanna furðar sig á að það eigi að gera slíkar breytingar án þess að stjórnsýsluúttekt hafi verið gerð á núverandi fyrirkomulagi. 25.4.2005 00:01
Barðist fyrir pólitísku lífi sínu Einn litríkasti stjórnmálamaður Evrópu barðist fyrir pólitísku lífi sínu í beinni sjónvarpsútsendingu í morgun. Joscka Fischer, utanríkisráðherra Þýskalands, bar þá vitni fyrir rannsóknarnefnd þingsins, en mikil spenna ríkti vegna vitnisburðarins. 25.4.2005 00:01
Þjarmað að Joshka Fischer Joshka Fischer, utanríkisráðherra Þýskalands, mátti í allan gærdag svara spurningum þingmanna um fyrirmæli sín um útgáfu vegabréfsáritana til erlendra ferðamanna sem andstæðingar hans segja að hafi orðið til þess að opna austur-evrópskum glæpamönnum leið inn í Þýskaland og þar með á allt evrópska efnahagssvæðið. 25.4.2005 00:01
Benedikt XVI formlega orðinn páfi Benedikt páfi söng messu á Péturstorginu í Róm í morgun en hún markar embættistöku hans formlega. Tugþúsundir pílagríma hlýddu á páfa, margir frá Þýskalandi þaðan sem Benedikt rekur ættir sínar, auk fjölda þjóðarleiðtoga. 24.4.2005 00:01
Sprengingar við lögregluskóla Að minnsta kosti sjö létust og tugir særðust í tveimur sjálfsmorðsprengingum sem gerðar voru í námunda við lögregluskóla í bænum Tíkrit í Írak í morgun. Fyrri sprengjan sprakk þegar árásarmaðurinn ók bifreið að byggingunni og sprengjan sprakk innan um fjölda lögreglumanna. 24.4.2005 00:01
Grýtt til bana vegna framhjáhalds Afgönsk kona var grýtt til bana í morgun. Konan, sem hét Amina og var 29 ára gömul, voru gefnar þær sakir að hafa verið manni sínum ótrú. 24.4.2005 00:01
Reknir fyrir að vera of feitir Hópur rútubílstjóra í Ástralíu hefur höfðað mál á hendur fyrrum vinnuveitenda sínum og halda því fram að forsvarsmenn fyrirtækisins hafi viljað losnað við þá úr vinnu vegna þess hversu feitir þeir eru. 24.4.2005 00:01
Ábyrgð Rumsfelds könnuð Mannréttindasamtökin Human Rights Watch í Bandaríkjunum krefjast þess að ábyrgð Donalds Rumsfelds varnarmálaráðherra og annarra háttsettra yfirmanna bandaríkjahers, á misþyrmingum hermanna á föngum í Írak, verði könnuð. 24.4.2005 00:01
Hömlur á innflutning fatnaðar? Evrópusambandið hyggst athuga hvort aukinn innflutningur á klæðnaði sem framleiddur er í Kína skaði evrópskan fataiðnað. Innflutningur til landa innan Evrópusambandsins hefur aukist um 50 til 530 prósent á fyrsta ársfjórðungi þessa árs og eru ráðamenn innan sambandsins afar áhyggjufullir af þróun mála. 24.4.2005 00:01
Kristnir menn í eina hjörð Benedikt páfi minnti á sameiginlega arfleið kristinna manna í innsetningarmessu sinni á Péturstorginu í Róm í morgun. Í predikun sagði hann að þeir ættu að mynda eina hjörð og yfir henni ætti einn hirðir að vaka. 24.4.2005 00:01
Fimm börn látast í sprengingu Fimm börn létust í sprengingu í Nepal í dag þegar sprengja sprakk þar sem þau voru að leik. Þrjú önnur börn særðust í sprengingunni. Uppreisnarmenn maóista eru grunaðir um ódæðið en þeir hafa frá árinu 1996 barist fyrir stofnun sjálfstæðs ríkis innan Nepal undir merkjum kommúnista. 24.4.2005 00:01
Sprengjuárás á Rúmena í Afganistan Rúmenskir hermenn urðu fyrir sprengjuárás í Afganistan í dag. Sprengjan sprakk í vegarkanti þegar bílalest þeirra átti leið um þjóðveg nærri Kandahar-borg í suðurhluta landsins. Engar fregnir hafa borist af mannfalli en talið er að talíbanar hafi staðið fyrir árásinni. 24.4.2005 00:01
Enn manntjón í kínverskum námum Að minnsta kosti átta námuverkamenn eru látnir eftir að vinnuvél varð alelda í námu í Kína í dag. Einnig er óttast um afdrif tæplega 70 manna eftir að skyndilegt flóð lokaði þá inni í annarri námu í Kína í dag. 24.4.2005 00:01
23 þúsund borgarar taldir af Talið er að fleiri en þrjátíu þúsund manns, þar af 23 þúsund óbreyttir írakskir borgarar, hafi látið lífið í átökum í Írak frá því Bandaríkjamenn og Bretar gerðu innrás í landið fyrir rúmum tveimur árum. 24.4.2005 00:01
Páfinn sagður hafa brotið lög Hinn nýkjörni páfi, Benedikt sextándi, skipaði svo fyrir árið 2001 að allar rannsóknir vegna meintrar kynferðislegrar misnotkunar kirkjunnar manna á börnum færu fram í kyrrþey og án utanaðkomandi aðstoðar. Kemur þetta fram í bréfi sem hann sendi öllum biskupum kirkjunnar og breska blaðið Observer hefur komist yfir. 24.4.2005 00:01
Simpansi með reykingafíkn Það er meira en að segja það að hætta að reykja. Dýrahirðar í Suður-Afríku ætla samt að reyna að fá simpansann Charlie til að hætta þessum ósið. 24.4.2005 00:01
Ratzinger vígður páfi Benedikt sextándi er formlega tekinn við embætti páfa. Hátíðleg innsetningarathöfn var haldin í gær í Péturskirkjunni í Róm. Í ræðu sinni sagðist páfi ekki ætla að stjórna samkvæmt sínum eigin vilja, "heldur að hlusta, ásamt allri kirkjunni, á orð og vilja drottins". 24.4.2005 00:01
Vill málamiðlun um Kosovo Vojislav Kostunica, forsætisráðherra Serbíu, sagðist í gær reiðbúinn til að fallast á málamiðlanir í deilunum um Kosovo-hérað. Hann sagðist geta fallist á að Kosovo fengi víðtækt sjálfræði, en hafnaði þó algerum aðskilnaði héraðsins frá Serbíu. 24.4.2005 00:01
Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent