Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Nú þegar keypt bóluefni fyrir rúma tvo milljarða króna Íslensk stjórnvöld hafa samið við fimm lyfjaframleiðendur um kaup á bóluefni við Covid-19 fyrir 2.150 milljónir króna. Þá hafa þau jafnframt tryggt sér kauprétt á bóluefni fyrir 1.800 milljónir króna til viðbótar. 6.3.2021 09:31
Barði bíla í miðbænum með hamri Karlmaður var í handtekinn í miðbæ Reykjavíkur í nótt þar sem hann barði í bifreiðar með hamri. Að sögn lögreglu var maðurinn í annarlegu ástandi og með fíkniefni meðferðis. Hann var vistaður í fangaklefa vegna málsins. 6.3.2021 08:42
Fróaði sér í vitna viðurvist á Canopy Hotel Héraðssaksóknari hefur ákært karlmann fyrir kynferðisbrot með því að hafa berað kynfæri sín og fróað sér inni á salerni á Canopy Hotel á Smiðjustíg 4 í Reykjavík í mars 2019. 6.3.2021 08:30
Áfram mikil skjálftavirkni: Sex skjálftar um og yfir þremur að stærð í nótt Rúmlega 800 jarðskjálftar hafa mælst frá því á miðnætti, sá stærsti að stærð 3,7 við Fagradalsfjall klukkan 4:11. Fimm aðrir skjálftar hafa mælst um eða yfir þremur að stærð frá miðnætti og hefur mesta virknin verið bundin við Fagradalsfjall. Skömmu fyrir miðnætti, klukkan 23:29, varð svo skjálfti að stærð 3,5 sem mældist sömuleiðis við Fagradalsfjall. 6.3.2021 07:16
Syngjandi leigubílstjóri í Rangárvallasýslu Leigubílstjóri í Rangárvallasýslu segir rólegt í akstri á tímum Covid, það sé helst um helgar, sem nokkrir túrar komi. Bílstjórinn er duglegur að syngja fyrir farþega sína og hann var að kaupa sinn þrettánda Land Cruiser leigubílinn sinn. 6.3.2021 07:14
Selfyssingar aftur komnir með rafmagn Rafmagn er aftur komið á Selfoss eftir að það datt út á ellefta tímanum í kvöld. Selfosslína er ennþá úti en verið er að skoða hana samkvæmt upplýsingum frá Landsneti. 5.3.2021 23:15
Rafmagnslaust á öllu Selfossi Straumlaust er nú á Selfossi vegna útleysingar á Selfosslínu 1. Stjórnstöð Landsnets segir að unnið sé að því að koma rafmagni aftur á bæinn. 5.3.2021 22:30
Rafmagn komið aftur á í Grindavík: „Pjúra óheppni að þetta skuli gerast í Grindavík“ Allur Grindavíkurbær er kominn með rafmagn aftur fyrir utan eitt fyrirtæki en brunninn háspennurofi er talinn orsök rafmagnsleysisins sem hófst klukkan 13:40 í dag. Ekki er talið að bilunin tengist jarðhræringum síðustu daga. 5.3.2021 21:09
„Er ég bara einstakt tilfelli eða er þetta eitthvað kerfislægt?“ Kona sem greindist með frumubreytingar við leghálsskimun í fyrra, en var ekki boðuð í endurkomu eins og átti að gera í febrúar óttast að fleiri konur hafi gleymst eins og hún. 5.3.2021 21:00
Þór sendur til Grindavíkur með varaafl Varðskipið Þór er nú á leið til Grindavíkur þar sem það verður til taks ef framleiða þarf varaafl fyrir hluta bæjarins. Rafmagnslaust hefur verið í helmingi bæjarins frá því klukkan 13:40 í dag. 5.3.2021 20:50
Komu upp varaafli fyrir fjarskipti í Grindavík Björgunarsveitin Þorbjörn í Grindavík hefur unnið með fleiri aðilum að því að koma varaafli á mikilvæga staði í bænum, þar á meðal fjarskiptainnviði, eftir að rafmagn fór af bænum um miðjan daginn. 5.3.2021 20:33
Segir mál Lilju vonda lögfræði og enn verri pólitík Dómur Héraðsdóms Reykjavíkur um að Lilja Alfreðsdóttir, menntamálaráðherra, hafi brotið jafnréttislög við skipan ráðuneytisstjóra var afdráttarlaus um að leikreglur hafi verið brotnar að mati þingmanns Viðreisnar. Í málinu sé vond lögfræði og ennþá verri pólitík. 5.3.2021 20:24
Rafmagn komið á helming Grindavíkur Búið er að koma rafmagni á helming Grindavíkur og unnið er að því að koma því á í bænum öllum. Rafmagn fór af klukkan 13:40 og því hefur verið rafmagnslaust í helmingi bæjarins í um sex klukkustundir. 5.3.2021 19:34
Sex kílómetrar á fjögurra klukkustunda fresti í 48 tíma Hörku átök í fjörutíu og átta klukkustundir bíða nú ungs manns, sem hyggst hlaupa rúma 77 kílómetra til styrktar vini sínum. Þeir eru báðir spenntir fyrir framtakinu en söfnunarfé verður nýtt í baráttu fyrir bættu aðgengi fatlaðra. 5.3.2021 19:32
Áfrýjar dómi um brot á jafnréttislögum Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, ætlar að áfrýja dómi Héraðsdóms Reykjavíkur sem hafnaði kröfu hennar um að úrskurður kærunefndar jafnréttismála vegna ráðningar ráðuneytisstjóra yrði ógiltur í dag. 5.3.2021 19:20
Mátti kalla barnsföður sinn ofbeldismann á Facebook Landsréttur staðfesti sýknu yfir konu sem var kærð fyrir meintar ærumeiðingar um barnsföður sinn á samfélagsmiðlinum Facebook. Konan vísaði til mannsins sem ofbeldismanns í nokkrum færslum á miðlinum. 5.3.2021 19:01
Kristján Þór lang óvinsælasti ráðherrann Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, er lang óvinsælasti ráðherra ríkisstjórnarinnar samkvæmt nýrri könnun. Einungis níu prósent segjast ánægð með störf hans. 5.3.2021 19:00
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Kaup á nýju varðskipi, skjálftahrinan á Reykjanesi, dómur yfir menntamálaráðherra og margt fleira í kvöldfréttum Stöðvar 2 sem hefjast klukkan 18:30. 5.3.2021 18:19
Enn rafmagnslaust í Grindavík Rafmagnslaust hefur nú verið í Grindavík í um fimm klukkustundir. Landsnet segist hafa komist fyrir bilun sem varð í tengivirki í Svartsengi en starfsmenn HS Veitna leita enn að orsökinni hjá sér. 5.3.2021 18:12
Ekki miklar líkur á eldgosi í núverandi ástandi Engar vísbendingar eru um að kvika færist hratt nær yfirborði á Reykjanesskaga og telur vísindaráð almannavarna ekki miklar líkur á eldgosi á meðan það ástand varir. Jarðskjálfti upp á allt að 6,5 að stærð er talinn á meðal líklegustu sviðsmynda í jarðskjálftavirkninni á svæðinu. 5.3.2021 17:26
Ný gögn staðfesta grunsemdir um að kvikan sé komin ansi nálægt yfirborði „Það sem þessir nýju líkanreikningar sýna okkur er að kvikan hefur náð ansi nálægt yfirborði í þessum kvikugangi og þetta er nánast lóðréttur kvikugangur sem liggur þarna á svæðinu milli Fagradalsfjalls og Keilis,“ segir Freysteinn Sigmundsson, jarðeðlisfræðingur við Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands. Líklegt er að kvikan hafi náð upp á allt að tveggja kílómetra dýpi í jarðskorpunni. 5.3.2021 16:59
Samkomulag SA og ASÍ um breytingar á kjarasamningi Alþýðusamband Íslands og Samtök atvinnulífsins hafa gert breytingar á kjarasamningi aðila um lífeyrismál, en samningurinn er stofnskjal og bakhjarl lífeyrissjóða á almennum vinnumarkaði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ASÍ. 5.3.2021 15:36
Rafmagnslaust í Grindavík Rafmagnslaust hefur verið í Grindavík og nágrenni síðan klukkan 13:14 þegar leysti út spennir í tengivirkinu í Svartsengi. Landsnet leitar að orsök bilunar, segir í tilkynningu. 5.3.2021 14:57
Nýtt varðskip sem fær líklega nafnið Freyja Ríkisstjórnin hefur fallist á tillögu dómsmálaráðherra þess efnis að hafist verði handa við kaup á nýlegu varðskipi. Ástæðan er alvarleg bilun í vél varðskipsins Týs. Kostnaður við viðgerð er talin nema meiru en sem svarar verðmæti skipsins eða um hundrað milljónum króna. 5.3.2021 14:23
Verjandinn segir Gunnar Jóhann í skýjunum Gunnar Jóhann Gunnarsson mun vera í skýjunum yfir að dómur yfir honum fyrir að hafa banað hálfbróður sínum hafi verið styttur úr þrettán árum í fimm. Þetta hefur norski vefurinn iFinnmark eftir verjanda hans. 5.3.2021 14:11
Í tveggja vikna varðhald vegna morðsins í Rauðagerði Karlmaður á fimmtugsaldri var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald í tvær vikur vegna rannsóknar lögreglunnar á morðinu í Rauðagerði þann 13. febrúar. 5.3.2021 12:15
Menntamálaráðherra tapaði í héraðsdómi Héraðsdómur Reykjavíkur hefur hafnað kröfu Lilju Alfreðsdóttur, menntamálaráðherra, um ógildingu úrskurðar kærunefndar jafnréttisnefndarmála vegna ráðningar ráðuneytisstjóra í menntamálaráðuneytið. 5.3.2021 12:12
Fleiri Reykvíkingar ánægðir með borgarstjóra en óánægðir Fleiri Reykvíkingar eru ánægðir með störf Dags B. Eggertssonar borgarstjóra en óánægðir. Dæmið snýst hins vegar við þegar horft er til landsbyggðarinnar. Þetta kemur fram í nýrri könnun Maskínu þar sem ánægja með störf borgarstjóra var könnuð. 5.3.2021 12:02
„Stórundarlegt“ að ekki hafi verið brugðist við Bæjarfulltrúi minnihlutans í Seltjarnarnesbæ telur stórundarlegt að bæjaryfirvöld hafi ekki enn brugðist við athugasemdum slökkviliðs vegna brunavarna á Eiðistorgi. Ólýðandi sé að eignir bæjarins séu að valda skemmdum á eignum bæjarbúa. Bærinn segir brunamál á Eiðistorgi í vinnslu. 5.3.2021 11:59
Reykjavíkurborg telur kristinfræðifrumvarp ekki til að auka víðsýni og efla mannskilning Reykjavíkurborg er „alfarið á móti þeirri nálgun að heiti námsgreinarinnar trúarbragðafræði verði breytt í kristinfræði og trúarbragðafræði og telur þá aðferð ekki til þess fallna að styðja við víðsýni og efla mannskilning.“ 5.3.2021 11:41
„Skjálftavirknin sýnir að þetta er ekkert búið” Skjálftavirknin á Reykjanesskaga sýnir að þetta er ekki búið, segir jarðeðlisfræðingur. Ekki eru merki um að gos séu að hefjast í dag en ómögulegt að spá fyrir um næstu daga. Um þúsund skjálftar hafa mælst frá miðnætti. 5.3.2021 11:36
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Skjálftavirknin á Reykjanesskaga sýnir að atburðarásinni er ekki lokið. Þetta segir Magnús Tumi Guðmundsson jarðeðlisfræðingur. 5.3.2021 11:27
Enginn greindist með veiruna innanlands sjötta daginn í röð Enginn greindist með kórónuveiruna innanlands í gær, sjötta daginn í röð. 5.3.2021 11:02
Skipuleggjendur sumarhátíða eru bjartsýnir á þróun mála Ef bólusetningar ganga jafn vel hérlendis og vonir standa til, eru skipuleggjendur bjartsýnir á að geta blásið til sumarhátíða. Þeir segjast þó hafa lært að gera ráð fyrir öllum mögulegum útkomum og eru við öllu búnir. 5.3.2021 10:10
Átti að vera í sóttkví en var að bíða eftir fari Lögreglan á Suðurnesjum hafði í vikunni afskipti af karlmanni þar sem hann var staddur fyrir utan búð í Njarðvík vegna gruns um brot á sóttvarnarlögum. 5.3.2021 09:53
Vilja frelsa Dillonshús úr „Árbæjar-Gúlaginu“ Árni Snævarr, blaðamaður, Gísli Marteinn Baldursson, fjölmiðlamaður, Guðjón Friðriksson, sagnfræðingur, Kristinn Hrafnsson, ritstjóri Wikileaks, og Sif Sigmarsdóttir, rithöfundur og pistlahöfundur, segja Árbæjarsafn tímaskekkju nú þegar þétting byggðar sé „alfa og ómega“ í bæjarpólitíkinni í Reykjavík. 5.3.2021 09:03
Páfinn ætlar að stappa stálinu í kristna Íraka sem hafa átt undir högg að sækja Frans Páfi leggur leið sína til Íraks í dag þar sem hann mun hitta kristna Íraka. Þeim hefur fækkað gífurlega á undanförnum árum vegna ofbeldis í landinu og af ótta við ofbeldi gegn þeim. 5.3.2021 08:47
Helgarveðrið með hagstæðasta móti Í dag er útlit fyrir sunnan fimm til tíu metra á sekúndu með skýjuðu veðri og lítilsháttar rigningu af og til en á Norður- og Austurlandi verður þurrt og bjart. Hiti verður á bilinu tvö til sjö stig. 5.3.2021 07:43
Ákærðir fyrir að nauðga íslenskri konu á Kanaríeyjum Lögregluyfirvöld á Kanaríeyjum hafa ákært fjóra menn fyrir kynferðisbrot gegn 36 ára gamalli íslenskri konu. Eru mennirnir grunaðir um að hafa nauðgað konunni en þeir sitja allir í gæsluvarðhaldi og eiga ekki möguleika á að losna úr fangelsi gegn tryggingu. 5.3.2021 07:20
Gleymdist að geta Hauks í skýrslu þjóðaröryggisráðs Stjórnvöld hafa beðist afsökunar vegna villu í skýrslu þjóðaröryggisráðs þar sem fjallað er um hryðjuverkaógn. Í skýrslunni var ranglega tekið fram ekki sé vitað um neina Íslendinga sem hafi tekið beinan þátt í aðgerðum bandamanna gegn ISIS-hryðjuverkasamtökunum í Írak og Sýrlandi. 4.3.2021 22:54
Molnaði úr veggjum í skjálftanum: „Fannst eins og sprengju hefði verið varpað á húsið“ Steypa molnaði úr veggjum og ryk féll úr lofti HS-orkuhallarinnar í Grindavík eftir jarðskjálfta upp á 4,2 sem reið yfir klukkan 19:14 í kvöld, einni mínútu áður en flautað var til leiks í viðureign Grindavíkur og Hattar í Domino‘s deildinni í körfubolta. 4.3.2021 22:48
Telur ráðherra hafa misskilið svar Landspítalans um greiningu sýna Yfirmaður meinafræðideildar Landspítalans segir að heilbrigðisráðherra hafi misskilið svar spítalans um hvort að hann gæti tekið að sér greiningu sýna úr leghálskrabbameinsskimun. Verið sé að skoða hvað þurfi til að deildin geti tekið greininguna að sér sem færist að öðrum kosti úr landi. 4.3.2021 21:39
Brunavarnir á Eiðistorgi í lamasessi: Íbúar sagðir verða fyrir tjóni vegna sinnuleysis bæjaryfirvalda Miklar brotalamir eru á brunavörnum á Eiðistorgi. Flóttaleiðir íbúa á eftirhæðum eru ekki fyrir hendi. Þeir hafa ekki getað sinnt nauðsynlegu viðhaldi og eru íbúðir farnar að skemmast. Þak í eigu Seltjarnarnesbæjar skapar stærsta vandann. Sveitarfélagið hefur ekkert aðhafst. 4.3.2021 21:01
Höllin í Grindavík skalf fyrir körfuboltaleik Jarðskjálfti upp á 4,1 sem skók Grindavík í kvöld fannst vel í HS-Orku-höllina rétt áður leikur Grindavíkur og Hattar í körfubolta hófst á áttunda tímanum í kvöld. Titringurinn náðist greinilega á mynd í útsendingu Stöðvar 2 frá höllinni. Upptökuna má sjá neðst í fréttinni. 4.3.2021 20:11
Telur símtöl Áslaugar Örnu ekki afskipti af rannsókn máls Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu segist ekki telja að Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra, hafi haft afskipti af rannsókn sakamáls hjá embættinu með tveimur símtölum á aðfangadag þegar lögreglan greindi frá því að ráðherra hefði verið á meðal gesta á samkomu þar sem sóttvarnareglur voru brotnar. 4.3.2021 19:53