Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Helgarveðrið með hagstæðasta móti Í dag er útlit fyrir sunnan fimm til tíu metra á sekúndu með skýjuðu veðri og lítilsháttar rigningu af og til en á Norður- og Austurlandi verður þurrt og bjart. Hiti verður á bilinu tvö til sjö stig. 5.3.2021 07:43
Ákærðir fyrir að nauðga íslenskri konu á Kanaríeyjum Lögregluyfirvöld á Kanaríeyjum hafa ákært fjóra menn fyrir kynferðisbrot gegn 36 ára gamalli íslenskri konu. Eru mennirnir grunaðir um að hafa nauðgað konunni en þeir sitja allir í gæsluvarðhaldi og eiga ekki möguleika á að losna úr fangelsi gegn tryggingu. 5.3.2021 07:20
Gleymdist að geta Hauks í skýrslu þjóðaröryggisráðs Stjórnvöld hafa beðist afsökunar vegna villu í skýrslu þjóðaröryggisráðs þar sem fjallað er um hryðjuverkaógn. Í skýrslunni var ranglega tekið fram ekki sé vitað um neina Íslendinga sem hafi tekið beinan þátt í aðgerðum bandamanna gegn ISIS-hryðjuverkasamtökunum í Írak og Sýrlandi. 4.3.2021 22:54
Molnaði úr veggjum í skjálftanum: „Fannst eins og sprengju hefði verið varpað á húsið“ Steypa molnaði úr veggjum og ryk féll úr lofti HS-orkuhallarinnar í Grindavík eftir jarðskjálfta upp á 4,2 sem reið yfir klukkan 19:14 í kvöld, einni mínútu áður en flautað var til leiks í viðureign Grindavíkur og Hattar í Domino‘s deildinni í körfubolta. 4.3.2021 22:48
Telur ráðherra hafa misskilið svar Landspítalans um greiningu sýna Yfirmaður meinafræðideildar Landspítalans segir að heilbrigðisráðherra hafi misskilið svar spítalans um hvort að hann gæti tekið að sér greiningu sýna úr leghálskrabbameinsskimun. Verið sé að skoða hvað þurfi til að deildin geti tekið greininguna að sér sem færist að öðrum kosti úr landi. 4.3.2021 21:39
Brunavarnir á Eiðistorgi í lamasessi: Íbúar sagðir verða fyrir tjóni vegna sinnuleysis bæjaryfirvalda Miklar brotalamir eru á brunavörnum á Eiðistorgi. Flóttaleiðir íbúa á eftirhæðum eru ekki fyrir hendi. Þeir hafa ekki getað sinnt nauðsynlegu viðhaldi og eru íbúðir farnar að skemmast. Þak í eigu Seltjarnarnesbæjar skapar stærsta vandann. Sveitarfélagið hefur ekkert aðhafst. 4.3.2021 21:01
Höllin í Grindavík skalf fyrir körfuboltaleik Jarðskjálfti upp á 4,1 sem skók Grindavík í kvöld fannst vel í HS-Orku-höllina rétt áður leikur Grindavíkur og Hattar í körfubolta hófst á áttunda tímanum í kvöld. Titringurinn náðist greinilega á mynd í útsendingu Stöðvar 2 frá höllinni. Upptökuna má sjá neðst í fréttinni. 4.3.2021 20:11
Telur símtöl Áslaugar Örnu ekki afskipti af rannsókn máls Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu segist ekki telja að Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra, hafi haft afskipti af rannsókn sakamáls hjá embættinu með tveimur símtölum á aðfangadag þegar lögreglan greindi frá því að ráðherra hefði verið á meðal gesta á samkomu þar sem sóttvarnareglur voru brotnar. 4.3.2021 19:53
Ný hraunflæðispá: Fjögur svæði þar sem gos gæti komið upp Eldfjallafræði og náttúruvárhópur Háskóla Íslands hefur birt nýja hraunflæðispá þar sem miðað er við þróun jarðhræringanna á Reykjanesi frá því í nótt. Spáin gerir nú ráð fyrir fjórum svæðum þar sem eldgos gæti komið upp. 4.3.2021 19:42
„Við verðum bara að vera undir allt búin“ Engin merki er að finna í nýjustu gögnum um að kvika sé að nálgast yfirborð á Reykjanesi. Aftur á móti er enn óljóst hvort jarðhræringarnar á svæðinu komi til með að líða hjá á næstu dögum eða hvort komi til eldgoss. 4.3.2021 19:21
Tilbúin til að virkja allt sem virkja þarf ef þörf krefur Bæjaryfirvöld í Hafnarfirði eru tilbúin með allar viðbragðsáætlanir ef til eldgossins kemur. Bæjarstjórinn hefur hins vegar litlar áhyggjur og telur ólíklegt að hraun muni flæða inn í bæinn og hvetur til stillingar. 4.3.2021 19:04
Mannréttindadómstóllinn að gefa Íslandi falleinkunn Lögmaður fyrrverandi bankastjóra Landsbankans segir kerfið hafa fengið falleinkunn hjá Mannréttindadómstól Evrópu. Íslenska ríkið hefur viðurkennt að fimm manns hafi ekki hlotið réttláta málsmeðferð í málaferlum eftir hrun bankakerfisins. 4.3.2021 19:00
Ekki vísbendingar um gos á næstu klukkustundum Nýjustu gögn gefa ekki vísbendingar um að eldgos á Reykjanesskaga sé yfirvofandi á næstu klukkustundum. Ennþá eru þó merki um að kvikugangur sé að myndast á svæðinu á milli Fagradalsfjalls og Keilis. 4.3.2021 18:29
Óróasvæðið í beinni útsendingu Grannt er nú fylgst með svæðinu í kringum Keili á Reykjanesskaga vegna mögulegs gosóróa og jarðskjálftavirkni. Vísir er með tvær vefmyndavélar við Keili sem sýna óróasvæðið í beinni útsendingu. 4.3.2021 18:11
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum förum við vandlega yfir stöðuna á Reykjanesi í viðtölum við helstu sérfræðinga, viðbragðsaðila og íbúa. 4.3.2021 18:00
Mikið verk fyrir höndum við uppbyggingu og lagfæringu Hreinsun rústa og björgun muna við Slippinn á Seyðisfirði er komin vel áleiðis eftir tjónið sem þar varð í aurskriðunum sem féllu á Seyðisfirði fyrr í vetur. Mikið verk er enn fyrir höndum við uppbyggingu og lagfæringu þrátt fyrir að nú sjái fyrir endann á hreinsunarstarfi. Þetta kemur fram í færslu á Facebook-síðu Lögreglunnar á Austurlandi. 4.3.2021 17:47
Gervitunglamyndir sýna ekki miklar breytingar Ný gervitunglamynd barst fulltrúum Vísindaráðs almannavarna rétt fyrir fund þeirra nú síðdegis. Elísabet Pálmadóttir, náttúruvársérfræðingur, segir myndina leiða í ljós að ekki séu miklar breytingar frá fyrri myndum. 4.3.2021 17:30
Konan sem lýst var eftir komin í leitirnar Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir sjötugri konu sem síðast sást til í nágrenni við heimili sitt við Fjarðarás í Árbænum um hádegisbil í dag. 4.3.2021 16:29
Drónar mega fljúga og fjölmiðlar frjálsir á skjálftasvæðinu Banni við flugi dróna verður aflétt klukkan 19 í kvöld. Þá mega fjölmiðlar aftur vera á svæðinu án þess að vera í fylgd björgunarsveita. Þetta kemur fram í tilkynningu frá almannavörnum. 4.3.2021 16:19
Myndu verja línuna með varnargörðum eða kælingu Ólíklegt er talið að eldgos á Reykjanesi myndi valda truflunum á raforkuflutningi Suðurnesjalínu á Reykjanesi miðað við nýtt áhættumat. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsneti. Ef útlit sé fyrir að hraun muni ógna háspennulínum verði tími til að grípa til aðgerða og verja línuna með gerð varnargarða eða kælingu með öflugum dælum. 4.3.2021 15:34
Ísland langefst á lista Riot Games Forsvarsmenn fyrirtækisins Riot Games lögðu áherslu á að vel væri haldið á sóttvörnum í landinu þar sem eitt stærsta rafíþróttamót yrði hýst. Starfsmenn Riot litu einnig til netaðstöðu enda væri það gífurlega mikilvægt fyrir mót af þessu tagi. 4.3.2021 14:59
Óttaslegin í stóru blokkinni í Grindavík og vilja annað Kristín María Birgisdóttir, upplýsingafulltrúi og markaðsstjóri Grindavíkur, segist vita um pólska íbúa í stóru blokkinni í Grindavík sem vilja ekki búa þar lengur. Nú ríði á að upplýsa pólska samfélagið og von sé á sérfræðingum frá Veðurstofu til að svara spurningum sem brenni á þeim. Túlkur verði fenginn til að auðvelda fræðsluna. 4.3.2021 14:05
Stuðningsfólk Viðreisnar líklegast til að fara í frí til útlanda á þessu ári 58,7 prósent Íslendinga segja ólíklegt eða útilokað að þeir fari í frí til útlanda á þessu ári samkvæmt könnun Maskínu sem unnin var fyrir fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar. 16,1 prósent svarenda telja mjög líklegt eða alveg öruggt að utanlandsferð sé í kortunum. 4.3.2021 13:01
Evrópusamstarfið þungamiðjan en samskipti við framleiðendur alltaf í gangi Evrópusamstarfið er þungamiðjan í bóluefnakaupum Íslendinga að sögn forsætisráðherra. Stjórnvöld eiga þó áfram í samskiptum við framleiðendur innan þess og utan til þess að tryggja að bólusetning gangi eins hratt og mögulegt getur hér á landi. 4.3.2021 12:47
Haraldur varaði við því að kvika frá Krýsuvík gæti gosið við Reykjavík Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur varaði við því fyrir sex árum að sprungukerfi frá Krýsuvíkureldstöðinni gæti leitt til eldgoss í jaðri Reykjavíkur. Hvatti hann þá til þess að betra áhættumat yrði gert fyrir Reykjavíkursvæðið. 4.3.2021 12:39
Árekstur á mótum Sæbrautar og Langholtsvegar Tveir bílar rákust saman á mótum Sæbrautar og Langholtsvegar skömmu eftir hádegi í dag. 4.3.2021 12:35
Rýmingaráætlun fyrir Vogana á lokametrunum Viðbragðsaðilar á Suðurnesjum eru við öllu búnir og í startholunum ef til eldgoss kemur að sögn Úlfars Lúðvíkssonar, lögreglustjóra á Suðurnesjum, en rætt var við hann í beinni útsendingu í hádegisfréttum Bylgjunnar. 4.3.2021 12:34
Óþægilegt að finna skjálftana færast nær „Það er ekki því að neita að eftir því sem þetta færist nær að þá er þetta óþægilegra, og við finnum það betur á eigin skinni,“ segir Fannar Jónasson, bæjarstjóri í Grindavík. Ekkert lát er á jarðskjálftahrinunni á Reykjanesskaga en skjálftavirknin hefur verið að færast sunnar og nær Grindavík, sem þýðir að Grindvíkingar finna enn meira fyrir skjálftunum en áður. 4.3.2021 12:29
Áfram gert ráð fyrir að gos muni hefjast Áfram er mikil skjálftavirkni á Reykjanesskaganum þó eitthvað hafi dregið úr óróapúlsi í nótt. Þó er enn gert ráð fyrir að eldgos muni hefjast, að sögn Kristínar Jónsdóttur náttúruvársérfræðings. Stór skjálfti reið yfir í morgun en hann er sá stærsti í rúma tvo sólarhringa. 4.3.2021 11:50
Áætla að hefja bólusetningar 70 ára og eldri í næstu viku Til stendur að bólusetja 7.000 einstaklinga í þessari viku og sama fjölda í næstu viku, segir Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir. Hann segir gert ráð fyrir að í næstu viku hefjist bólusetning einstaklinga á aldrinum 70 til 80 ára. 4.3.2021 11:39
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Staðan á Reykjanesi vegna jarðskjálfta og mögulegra eldsumbrota verður að sjálfsögðu tekin í hádegisfréttatíma Bylgjunnar klukkan tólf. 4.3.2021 11:30
Einn greinst með suður-afríska afbrigðið Einn hefur greinst með suður-afríska afbrigði SARS-CoV-2 hér landi, það var fyrir fjórum dögum. Um var að ræða smit á landamærunum. Þetta kom fram í máli Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis á upplýsingafundi vegna Covid-19 rétt í þessu. 4.3.2021 11:14
Aftur greindist enginn innanlands Enginn greindist með kórónuveiruna innanlands í gær, fimmta daginn í röð. Enginn greindist heldur á landamærunum. 4.3.2021 11:02
Svona var 166. upplýsingafundurinn vegna kórónuveirunnar Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis boða til upplýsingafundar klukkan 11 í dag. Fundirnir fara nú fram einu sinni í viku, á fimmtudögum, en faraldurinn er í lægð hér á landi og ekki greinst smit undanfarna daga. 4.3.2021 10:33
Ríkið viðurkennir brot á mannréttindum og greiðir milljónir í bætur Íslenska ríkið viðurkennir að fimm Íslendingar hafi ekki fengið réttláta málsmeðferð hér á landi varðandi dóma sem þeir fengu í kjölfar hrunsins. Ríkið greiðir bætur í málinu og hefur Mannréttindadómstóll Evrópu því fellt niður málin. 4.3.2021 10:04
Telur ekki rétt að rífa Fossvogsskóla en fólk með mygluóþol þoli ástandið illa Sveppafræðingur Náttúrufræðistofnunar Íslands sem greindi sýni í desember úr Fossvogsskóla segir að þó mygla hafi minnkað þar frá síðustu rannsókn hafi hlutfallslega mikið fundist af einni sveppategund. Tegundin sem kallast kúlustrýnebba getur valdið valdið fólki með sveppaóþol miklum óþægindum. Hún telur að ekki þurfi að rífa skólann en erfitt geti verið erfitt að finna upptök myglunnar. 4.3.2021 09:32
Snarpur skjálfti fannst vel á suðvesturhorninu Snarpur skjálfti varð rétt í þessu sem fannst vel á suðvesturhorninu. Skjálftinn var 4,5 að stærð samkvæmt töflu á vef Veðurstofu Íslands og mældist klukkan 08:54. 4.3.2021 08:57
Stjórnvöld skoða aðra kosti í öflun bóluefnis Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir að vandi Evrópusambandsins við öflun bóluefna valdi sér áhyggjum og því skoði íslensk stjórnvöld nú alla kosti í þeim efnum. 4.3.2021 08:56
Meirihlutinn í borginni sækir í sig veðrið Allir flokkar sem eiga fulltrúa í meirihlutanum í borginni myndu bæta við sig fylgi frá síðustu kosningum ef gengið yrði til kosninga nú, ef marka má könnun sem Gallup gerði fyrir Samfylkinguna á dögunum og Fréttablaðiið greinir frá í dag. 4.3.2021 08:48
Fólk geti lent mjög óvænt í aðstæðum sem það kemst ekki úr ef það fer inn á svæðið Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, beinir því til almennings að vera ekki á ferðinni á því svæði á Reykjanesskaga þar sem óróinn og skjálftavirknin er hvað mest. 4.3.2021 08:33
Braut rúðu í lögreglubíl Maður braut rúðu í lögreglubíl í Hafnarfirði í gærkvöldi eftir að lögregla hafði stöðvað hann vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna. 4.3.2021 07:20
Sýknaður af ákæru fyrir árás á fyrrverandi maka Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði karlmann af ákæru um ofbeldi í nánu sambandi í síðustu viku. Karlmaðurinn var ákærður fyrir að ráðast á fyrrverandi maka sinn og barnsmóður, tekið hana hálstaki og hent henni út á stétt. 3.3.2021 22:52
Dagurinn í myndum: „Þetta eru mjög spennandi tímar“ Þetta eru spennandi tímar fyrir jarðvísindin og á hverjum degi sem líður í þeim jarðhræringum sem nú standa yfir á Reykjanesi læra vísindamenn eitthvað nýtt. Þetta segir Páll Einarsson jarðeðlisfræðingur. Síðast varð eldgos á svæðinu á þrettándu öld og nú er útlit fyrir að fljótlega kunni aftur að gjósa, þótt margt sé óljóst ennþá. 3.3.2021 22:11
Koma fyrir mælitækjum vegna mögulegrar gasmengunar í Vogum Búnaður til að mæla styrk brennisteinsdíoxíðs hefur verið komið fyrir í Vogum vegna möguleikans á að gos hefjist í nágrenni Keilis á Reykjanesskaga. Umhverfisstofnun ætlar að setja upp mæla á fleiri stöðum á Reykjanesi eins fljótt og mögulegt er. 3.3.2021 21:54
Um sautján hundruð jarðskjálftar mælst frá miðnætti Óróamerki er einn vel greinanalegt á Reykjanesi suður af Keili við Litla Hrút og sést óróinn best á jarðskjálftastöðvum á Reykjanesskaga, þó það hafi heldur minkað eftir klukkan fimm í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá náttúruvársérfræðingum Veðurstofunnar nú fyrir stundu. 3.3.2021 20:51