Fleiri fréttir

Lengri skipunartími myndi auka sjálfstæði

Til að auka sjálfstæði Seðlabanka Íslands mætti lengja skipunartímann, til dæmis í átta ár án endurskipunarmöguleika. Þetta sagði Stefán Jóhann Stefánsson, ritstjóri Seðlabanka Íslands, í erindi sem hann hélt á málstofu Seðlabankans á þriðjudag.

Vistaður á réttargeðdeildinni

Maðurinn sem grunaður er um að hafa orðið konu sinni að bana á heimili þeirra í Stelkshólum í lok síðasta mánaðar hefur verið vistaður á réttargeðdeildinni á Kleppi.

Vilja skaðabætur frá bænum vegna skóla

Íbúar í nágrenni Krikaskóla í Mosfellsbæ segja skólann skerða útsýni og valda hávaðamengun og krefjast skaðabóta. Niðurstaða yfirmats er að verðgildi eignanna skerðist vegna skólans. Mosfellsbær fellst ekki á skaðabótaskyldu bæjarins.

Gríðarlegur niðurskurður áformaður í Reykjanesbæ

Skýrsla Haraldar L. Haraldssonar á rekstrarstöðu Reykjanesbæjar dregur upp dökka mynd af rekstrarstöðu bæjarins. Skýrslan og áætlun KPMG um aðgerðir til að snúa stöðunni við voru kynntar á íbúafundi í gær.

Gosmengun í byggð gæti versnað í vetur

Veðuraðstæður í vetur geta valdið enn hærri mengunartoppum en hafa sést hingað til frá gosinu í Holuhrauni. Mengun er þó miklu meiri en búist var við í upphafi. Gosmengun þar sem svifryk er landlægt gæti skapað sérstakt vandamál.

Atvinnuleysi ekki minna síðan árið 2008

Á þriðja ársfjórðungi voru að meðaltali 7.700 manns án vinnu og í atvinnuleit, eða fjögur prósent vinnuaflsins, samkvæmt nýbirtum tölum Hagstofu Íslands.

Hreyfing í upphafi skóladags eykur einbeitingu

Sjá má árangur af breyttu skipulagi skóladags hjá yngstu nemendum Flataskóla í Garðabæ. Hreyfing, lestur og stærðfræði fyrir hádegi. Byggja þarf á nýjustu rannsóknum, segir Hermundur Sigmundsson prófessor. Breytingarnar þurfa ekki að kosta skólana mikið.

Þrír handteknir á Ísafirði

Fram kemur á vef Bæjarins besta að lögreglan hafi brotið sér leið inn í íbúðarhús í bænum og framkvæmt húsleit en fíkniefnahundur var einnig á svæðinu.

Dæmdur fyrir vörslu fíkniefna

Á heimili mannsins í Hafnarfirði fundust átta kannabisplöntur, tæpt kíló af maríjúana og tæp tvö kíló af kannabislaufum en maðurinn hafði um nokkurt skeið ræktað greindar plöntur.

Segir Ísland enga femínistaparadís

Annadís Greta Rúdólfsdóttir, stjórnandi Jafnréttisskóla Sameinuðu þjóðanna við Háskóla Íslands, ritar grein í The Guardian í tilefni af nýrri skýrslu Alþjóðaefnahagsráðsins um jafnrétti kynjanna á heimsvísu.

Segir Framsókn ekki hafa sóst eftir eignarhlut í DV

Hrólfur Ölvisson, framkvæmdastjóri Framsóknarflokksins, segir að hvorki hann fyrir hönd flokksins, né flokkurinn hafi farið þessa á leit og að fullyrðingar Ólafs M Magnússonar þar um séu rangar.

Biskupsritari á Selfoss

Séra Þorvaldur Karl Helgason, fyrrverandi biskupsritari, hefur verið settur sem afleysingaprestur í Selfossprestakalli í vetur.

Drengirnir rata ekki heim til „afa feita“

Rannsókn kynferðisbrotadeildar lögreglunnar á meintum barnaníðingi stendur yfir. Búið er að kæra manninn út af tveimur brotaþolum, fimm ára gömlum vinum.

Segir kokteilsósuna alíslenska

„Það var Maggi í Aski sem fann þetta upp,“ segir Úlfar Eysteinsson matreiðslumeistari um uppruna kokteilsósunnar.

Fimm hjartaþræðingum frestað í dag vegna verkfalls

Fimm hjartaþræðingum og tveimur sérhæfðum hartaaðgerðum hefur verið frestað á Landspítalanum í dag útaf verkfalli lækna á lyflækningasviði. Deiluaðilar ætla að funda í húsnæði ríkissáttasemjara í dag en launakröfur lækna muni kosta ríkið um fjóra milljarða.

Blokkin hennar Birnu að fyllast

Stærsta fjölbýlishúsið í Grindavík, sem gnæft hefur nánast mannlaust yfir bæinn í þónokkur ár, hefur nú skyndilega öðlast líf og eru allar 32 íbúðirnar að fyllast af fólki.

Lögreglan nýtur áfram mest trausts

MMR kannaði á dögunum traust til helstu stofnana samfélagsins. Flestir sögðust bera mikið traust til lögreglunnar, Háskóla Íslands, Háskólans í Reykjavík, Ríkisútvarpsins og Landsvirkjunar.

Tekinn án bílbeltis og hótaði lögreglu ofbeldi

Karlmaður á þrítugsaldri hefur verið ákærður af ríkissaksóknara fyrir að hóta lögreglumanni í kjölfar þess að hann var tekinn undir stýri án bílbeltis í október fyrir tveimur árum.

Sjá næstu 50 fréttir