„Löggæzlumaður fullyrðir að hafa skotið í neyðarvörn og miðað til jarðar“ Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 29. október 2014 13:25 Úr Nýja dagblaðinu. Skjáskot af vefnum timarit.is.
Í tilefni af umræðunni um vopnabúnað lögreglunnar og byssurnar sem Norðmenn gáfu okkur, eða gáfu okkur ekki, rifjar fréttavefurinn Austurfrétt upp atvik sem varð á Norðfirði þann 1. desember 1934. Þá skaut lögreglumaður varnarskotum að óeirðarseggjum á kvenfélagssamkomu í bænum. Sagt var frá atvikinu í Nýja dagblaðinu. Í fréttinni „Ryskingarnar á Norðfirði“ er vísað beint í skýrslu bæjarfógetans til dómsmálaráðuneytisins og sagt frá því þegar ölvaður maður reyndi að komast inn á kvenfélagssamkomu í bænum. Lögreglumaður bannaði manninum að fara á samkomuna en við það „varð uppþot“ og var veist að lögreglumanninum. Annar lögreglumaður ætlaði þá að koma honum til hjálpar en hann var sleginn í rot. Segir svo orðrétt í fréttinni í Nýja dagblaðinu: „Varð þröng mikil. Löggæzlumaðurinn barinn og illa leikinn. Kylfan slitin af honum og 4 menn tóku hann og báru niður tvo stiga og settu hann út af 2 ½ metra háum tröppupalli. Mannfjöldi þyrptist að með hrópyrðum og ógnunum. Löggæzlumaðurinn skaut þá varnarskotum, 3 að því er hann ber, en aðrir framburðir ósamhljóma. [...] Löggæzlumaður fullyrðir að hafa skotið í neyðarvörn og miðað til jarðar og verður hvorttveggja að teljast líklegt, eins og málið liggur fyrir.“ Í lok fréttarinnar er svo tekið fram að þegar full sönnun hafi legið fyrir því að lögreglumaðurinn beitti skotvopnum hafi dómsmálaráðherra ákveðið að víkja honum frá störfum.
Mest lesið Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Innlent Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Erlent Feli í sér óásættanlega hættu og gefi tilefni til aflífunar Innlent Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Innlent Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Erlent Hitamet í maí slegið í Bretlandi Erlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Innlent Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Innlent Fleiri fréttir Feli í sér óásættanlega hættu og gefi tilefni til aflífunar Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Sjá meira