Hjúkrunarfræðingar vilja nýjan Landspítala í forgang Samúel Karl Ólason skrifar 29. október 2014 16:11 Vísir/GVA „
Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga lýsir yfir þungum áhyggjum af núverandi stöðu á Landspítala vegna ófullnægjandi húsakosts og álags á starfsfólk.“ Þetta kemur fram í ályktun stjórnarinnar sem send var á Kristján Þór Júlíusson, heilbrigðisráðherra. Í ályktuninni segir að ljóst sé að húsnæði Landspítala sé úr sér gengið og ekki hentugt fyrir þá starfssemi sem hátæknisjúkrahús þurfi til afnota. „Bæta þarf verulega aðstöðu skjólstæðinga og starfsmanna spítalans og mun ný bygging skila miklum ábata fyrir þjóðina ásamt því að draga úr álagi á starfsfólk með bættum vinnuaðstæðum.“ Því skorar stjórnin á stjórnvöld að setja byggingu nýs Landspítala í forgang og tryggja nægjanlegt fjármagn til verkefnisins, „þjóðinni allri til heilla.“Vanda þarf til undirbúnings Stjórnin sendi einnig frá aðra ályktun þar sem stjórnvöld eru hvött til að vanda vel til undirbúnings viðbragða við mögulega móttöku sjúklinga með ebólu. „Ebóla er alvarlegur sjúkdómur sem dregur stóran hluta þeirra sem af henni smitast til dauða. Heilbrigðisstarfsmenn, einkum hjúkrunarfræðingar, munu standa í framvarðasveit þegar kemur að meðhöndlun ebólusjúklinga.“ Þá segir að nýja athuganir á Spáni sýni að af 108 innlitum á stofu ebólusjúklinga hafi 102 þeirra verið sinnt af hjúkrunarfræðingum. Því séu þeir í talsverðri hættu á mögulegu smiti, séu aðstæður og búnaður ekki fullnægjandi hvað varði smitgát og varnir. „Hjúkrunarfræðingar hafa þekkingu og færni til að sinna ebólusjúklingum líkt og öðrum sjúklingum. Hins vegar krefst svo flókin hjúkrunarmeðferð sérstakrar þjálfunar þar sem vanda verður til verka. Þjálfun sem þessi er afar kostnaðarsöm og krefst mikils mannafla og tækjabúnaðar.“ Því hvetur stjórnin stjórnvöld til að tryggja Landspítala ásamt öðrum heilbrigðisstofnunum fjármagn til þjálfunar heilbrigðisstarfsmanna, kaupa á nauðsynlegum búnaði og fullnægjandi sjúkdóma- og líftryggingu. „Öryggi heilbrigðisstarfsmanna verður ávallt að vera forgangsatriði í allri þjónustu og skapa þeim aðstæður til að sinna starfi sínu á fullnægjandi hátt. Til þess þarf fjármagn, tíma til þjálfunar og samstillt átak heilbrigðisstarfsmanna, heilbrigðisstofnana og stjórnvalda.“
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira