Lögreglan tilnefndi „landsliðið í mótmælum“ Garðar Örn Úlfarsson skrifar 30. október 2014 07:00 Geir Jón Þórisson gerði skýrslu um mótmæli. Fréttablaðið/Stefán
Er Héraðsdómur Reykjavíkur tók fyrir mál þeirra sem ákærðir voru fyrir að ryðjast inn í Alþingishúsið 8. desember 2008 taldi lögreglan nauðsynlegt að hafa viðbúnað. Fjöldi lögreglumanna var í dómhúsinu. „Landslið mótmælenda var mætt á vettvang,“ segir Geir Jón Þórisson, fyrrverandi yfirlögregluþjónn, í skýrslu sinni um mótmæli á hrunárunum. Í landsliðið tilnefnir Geir Jón meðal annars Birgittu Jónsdóttur alþingismann.Mannsöfnuður truflaði dómara „Töluverður hiti var í samfélaginu vegna þessara réttarhalda og því talið nauðsynlegt að lögreglan yrði á staðnum. Fljótlega voru komnir um 70 manns við dómsal 101. Í upphafi höfðu einhverjir sett borða fyrir aðalinngan dómsins og stóð á honum „Heimavarnarliðið“, en borðinn var fjarlægður af lögreglu. Að öðru leyti kom ekki til afskipta lögreglu, en í nokkur skipti truflaði mannsöfnuðurinn dómarann með klappi og upphrópunum. Nokkur fjöldi lögreglumanna var hafður inni í dómhúsinu á meðan þinghald fór fram, auk þess sem laus lögreglutæki voru ekki langt undan;“ lýsir Geir Jón atburðarásinni.Náðist að lempa þetta til „Ljóst var að mótmælendur voru ekki sérstaklega ánægðir með veru lögreglumanna í upphafi og einhverjir létu þá heyra það. Allt gekk þó vel upp að lokum,“ segir áfram í skýrslu yfirlögregluþjónsins fyrrverandi. „Miðað við allan þann atgang og reiði sem í gangi var gekk allt vel upp án mikilla afskipta lögreglu. Enginn handtekinn, eða beittur aflsmuna af hendi lögreglu. Náðist að lempa þetta til eins og aðstæður leyfðu," segir Geir Jón um það hvernig til tókst hjá lögreglunni.
Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Fleiri fréttir Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Sjá meira