Harma að landsleikur fari fram: „Í skjóli landsráns og mannréttindabrota“ Stefán Árni Pálsson skrifar 29. október 2014 14:05 visir/daníel/ap
Hreyfingin BDS harmar að Handknattleikssamband Íslands taki á móti ísraelska landsliðinu í handknattleik í dag. Íslenska landsliðið í handknattleik tekur á móti því ísraelska í undankeppni Evrópumótsins í Laugardalshöllinni í kvöld. Samtökin vekja athygli á því í tilkynningu að á sama tíma og Ísland gengst inn á að taka þátt í sameiginlegum kappleikjum með Ísrael, þverbrjóta ísraelsk stjórnvöld alþjóðalög og mannréttindasáttmála, sem bæði Ísrael og Ísland eiga aðild að, sem og samþykktir Sameinuðu þjóðanna með áratuga löngu hernámi og landráni í Palestínu. „Nýjustu fréttir herma að ísraelsk stjórnvöld láti almenna óánægju víðs vegar um heiminn ekkert á sig fá og hyggur á áframhaldandi víðtækt landrán með því að byggja þúsundir nýrra kolólöglegra landtökubyggða í Austur-Jerúsalem, á landi sem tilheyrir Palestínumönnum,“ segir í tilkynningunni. Hreyfingin BDS hefur áður bent á að ísraelsk landslið séu fulltrúar ríkis sem stundi grimmilegar árásir á óbreytta borgara í Palestínu, hernám og landrán á palestínsku landi eins og segir í tilkynningunni. „Herskylda í Ísrael er þrjú ár fyrir karlmenn og tvö ár fyrir konur – og því er verið að bjóða hér velkomna tilvonandi og fyrrverandi hermenn í her sem stundar mannréttindabrot og hefur að mati mannréttindasamtaka stundað stríðsglæpi í innrás sinni á Gasa síðasta sumar.“ BDS Ísland segir það beinlínis andstætt íþróttaandanum að bjóða ísraelskt landslið velkomið til Íslands, á meðan komið er í veg fyrir að palestínskir íþróttamenn geti stundað íþróttir eða leikið fyrir land sitt og þjóð. „Hernám Ísraelshers í Palestínu og skerðing á ferðafrelsi íbúa herteknu svæðanna – sem og árásir á íþróttafólk, fangelsanir og eyðilegging á íþróttamannvirkjum – kemur í veg fyrir að palestínsk landslið og íþróttamenn geti keppt í sínu heimalandi og í fjölmörgum tilvikum á erlendum vettvangi. Dugar þar að líta til palestínska karlalandsliðsins í knattspyrnu, en liðsmenn þess hafa verið fangelsaðir og neitað um ferðaheimildir.“ Hreyfingin BDS Ísland hvetur Handknattleikssamband Íslands, Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, sem og íslensk stjórnvöld, til að beita sér fyrir sniðgöngu gagnvart Ísrael á vettvangi íþróttakappleikja og öðrum samstarfsvettvangum þangað til hernámi, aðskilnaðarstefnu, mannréttindabrotum og ofbeldi Ísraelsmanna gagnvart Palestínumönnum, muni ljúka. BDS Ísland, sniðganga fyrir Palestínu, er hreyfing sem nýlega var stofnuð á Íslandi. Tilgangur hreyfingarinnar er að svara alþjóðlegu ákalli Palestínumanna um sniðgöngu og þvinganir gegn ísraelskum stjórnvöldum.
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira