Fleiri fréttir

Prestar selja sig dýrt

Kosningabarátta tveggja frambjóðenda um stöðu sóknarprests í Seljasókn hefur vakið mikla athygli. Rekstur á kosningaskrifstofu og auglýsingar í fjölmiðlum er meðal þess sem frambjóðendurnir hafa tekið upp í von um að hljóta atkvæði sóknarbarna.

Íslendingar hljóti að hlusta á óskir NATO um aukin framlög

Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra segir Íslensk stjórnvöld hljóta að hlusta á þær óskir sem nú berist frá Atlantshafsbandalaginu þess efnis að þátttökuríkin auki fjárframlög til bandalagsins. Gunnar Bragi hitti í gær Anders Fogh Rasmussen, framkvæmdastjóra NATO. Þeir ræddu vítt og breitt um þau mál sem efst eru á baugi og lagði framkvæmdastjórinn áherslu á að í ljósi þess að öryggismat í Evrópu væri nú breytt þurfi aðildarríkin nú að auka fjárframlög sín.

Umræðan um Landspítalann galin

„Þetta er flókið kerfi og það hentar stundum pólitískt að gera sér mat úr einhverju sem kannski er ekki fullur skilningur á,“ segir Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra.

Rasmussen hljóp á Seltjarnarnesi

Aðalframkvæmdastjóri NATO birti mynd af sjálfum sér úti að hlaupa á Seltjarnarnesi á Facebook-síðu sinni í morgun.

Ólíklegt að Jasídarnir verði sóttir

Nú er talið ólíklegt að Bandaríkjamenn setji upp loftbrú til þess að flytja fólk af ættbálki Jasída af Sinjar fjalli í Írak. Þar hefur fólkið hafist við síðustu vikur eftir að það flúði unan hersveitum hins Íslamska ríkis sem ræður nú yfir stórum landsvæðum í Írak.

Veiðibann í laxleysi vart talið fært

Stóráin Langá hefur aldrei í sögu sinni gefið eins litla veiði og í sumar. Kallað er eftir rannsóknum á sjávarvist laxins og jafnvel veiðibanni. Efast er um veiðifyrirkomulag í Langá og það sagt ógna stofninum. Fiskistofa telur veiðibann illgerlegt og vísar á ábyrgð veiðifélagsins.

Verksmiðju kippt úr sambandi

Íslenska kalkþörungafélagið fékk að vita með tveggja vikna fyrirvara að verksmiðjan yrði rafmagnslaus yfir daginn næstu daga. Framkvæmdastjórinn telur afköstin munu dragast saman um fjórtán hundruð tonn á meðan.

Fimmtungur af nautakjöti á markaði er innfluttur

Innflutningur hefur aukist á nauta-, svína- og alifuglakjöti. Formaður Neytendasamtakanna segir að farið sé illa með neytendur með verndartollum og hvetur framleiðendur til að merkja allt kjöt með upprunalandi.

Efast ekki um að fólk eigi eftir að sakna bænanna

Dagskrárstjóri Rásar eitt segir litla hlustun á bænir. Dómkirkjuprestur segir bænalesturinn þjónustu við fólkið í landinu. Formaður Landssambands eldri borgara vill að biskup og prestar landsins mótmæli.

Nemendur uppgötvi hæfileika sína

Finninn Pasi Sahlberg frá Harvard-háskóla er einn þriggja fyrirlesara á ráðstefnu um starfsþróun kennara sem er haldin í Reykjavík. Hann vill að Finnar leggi meiri áherslu á að virkja hæfileika hvers nemanda fyrir sig og hvetur íslensk stjórnvöld til að gera slíkt hið sama.

Svona er reynt að svindla á Íslendingum

Tækniframfarir heilla ekki einungis fólk sem vinnur í göfugum tilgangi. Óprúttnir menn eru lagnir við að nýta sér tæknina til að komast í álnir og skýla sér bak við órafjarlægð, fölsuð nöfn og svikaloforð.

Kaupmannahöfn vinsælasti áfangastaður Íslendinga

Boðið var upp á áætlungarflug til fimmtíu og tveggja borga frá Keflavíkurflugvelli í júlí. Gamla höfuðborgin tók toppsætið af Lundúnum á listanum yfir þær borgir sem oftast er flogið til.

Bjarni á móti einkaframkvæmd við fjármögnun nýs spítala

Fjármálaráðherra er mótfallinn því að Landspítalinn fari í einkaframkvæmd eins og með eignatryggðri fjármögnun. Hann segir almennt ekki hafa gefist vel að einkaaðilar byggi tekjumódel sitt á leigugreiðslum ríkisins. Ólíklegt er að nýr spítali verði reistur fyrir eigið fé ríkisins á næstunni.

Anders Fogh í Tjarnargötu: Íhlutun Rússa vakning fyrir NATÓ

Íhlutun Rússa í Úkraínu var vakning og þörf áminning um mikilvægi Atlantshafsbandalagsins, NATÓ, segir Anders Fogh Rasmussen, framkvæmdastjóri bandalagsins. Hann segir að landfræðileg lega Íslands og vera þess í bandalaginu sé enn mikilvægari en áður vegna breytts hlutverks þess.

Reru yfir Indlandshaf og slógu met fyrir Ísland

Þriðja og fjórða heimsmetið í kappróðri var sett fyrir Íslands hönd nú í ágúst. Siglingakappinn ástralski Fiann Paul setti fyrstu metin með leiðangri yfir Atlantshafið og nú með róðri yfir Indlandshaf sem hann segir hafa verið gríðarlega erfiða ferð, í samtali við fréttir Stöðvar tvö í kvöld.

Sænska leiðin reynist vel

Vændismálum fjölgaði gífurlega í fyrra hér á landi en fimm ár eru síðan Ísland gerði kaup á vændi refsiverð með lögum. Dósent í lögfræði segir lögin gagnleg og að aðgerðir lögreglu hafi styrkt þau.

Hamingjusamir kjúklingar koma senn í búðir

Lögfræðingar með áhuga á dýravelferð ákváðu í vetur að vinda kvæði sínu í kross og hefja framleiðslu á svokölluðum velferðarkjúklingi. Fyrsta kjötið er nú á leið í búðir, og stendur Íslendingum því til boða að kaupa kjúkling sem fær að hlaupa frjáls um.

Bænirnar hverfa af RÚV: "Áfall fyrir kristindóminn í landinu“

Vígslubiskupinn í Skálholti er afar óhress með Ríkisútvarpið fyrir að ætli að fella niður morgunbæn, morgunandakt og orð kvöldsins á Rás eitt í lok mánaðarins. "Afar lítil hlustun á þessa dagskrárliði“, segir dagskrárstjóri rásarinnar.

Ólöf Nordal berst við óvænt veikindi

"Ég bjóst ekki við þessu enda er best að búast ekki við svona,“ segir Ólöf Nordal í samtali við Vísi. Illkynja æxli var fjarlægt úr líkama hennar á dögunum.

Kallar eftir yfirvegaðri umræðu

„Dapurlegt er að fylgjast með umræðu fulltrúa meirihluta fjárlaganefndar í kjölfar birtingar árshlutauppgjörs Fjársýslu ríkisins um fjárreiður ríkissjóðs,“ segir formaður BSRB.

Ekki lent í úlfahjörð ennþá

,,Þetta er búið að vera mjög erfitt en ég er alla vega heil og ekki enn dottið af baki. Þetta er gríðarleg keyrsla og ég er orðin mjög þreytt.“

Verndartollar ekki til að verja skort

Ragnheiður Ríkharðsdóttir segir lög ekki gera ráð fyrir að verndartollar séu lagðir á vöru sem ekki er til í landinu eða þegar framleiðendur anna ekki eftirspurn.

Kreppan komin í baksýnisspegilinn

Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir kröftuga uppsveiflu í atvinnulífinu og árið lofi góðu. Störfum hefur fjölgað um 3.200 á einu ári.

Sjá næstu 50 fréttir