Fleiri fréttir

Stelpurnar standa í stað

Íslenska kvennalandsliðið er í fimmtánda sæti styrkleikalista Alþjóðaknattspyrnusambansins, FIFA, og stendur í stað frá síðustu útgáfu.

Er beint lýðræði tvíeggjað sverð?

Á undraskömmum tíma hafa tugþúsundir manna skrifað undir kröfu þess efnis að Alþingi falli frá lækkun veiðigjalds. Spurningar vakna um beint lýðræði í þessu samhengi. Þar undir brennur grundvallarspurningin um hvort gjaldið er skattur eða afgjald af auðlind þjóðar.

Barnaklám hjá starfsmanni frístundamiðstöðvar

Rúmlega sextugur starfsmaður á frístundaheimili hefur verið ákærður fyrir vörslu barnakláms. Hann var sendur í leyfi í desember. Maðurinn var bundinn, keflaður og rændur fyrir ári. Ræningjarnir sögðu hann vera "barnaperra“.

Meiri möguleikar innan ESB en utan

Bresk stjórnvöld stefna ekki að því að yfirgefa Evrópusambandið (ESB) heldur vera í fararbroddi um breytingar á eðli sambandsins. Þetta er meðal þess sem kom fram í máli Davids Lidington, Evrópumálaráðherra Bretlands, á opnum umræðufundi í Háskóla Íslands í gær.

Svöðusár á íslenskri tónlistarmenningu

Mikið ósætti ríkir um fyrirhugaðar framkvæmdir við Hljómalindarreit í Reykjavík. Tónleikastaðnum Faktorý verður lokað í ágúst. "Átti að bola okkur út með fantabrögðum og lagaklækjum,“ segir Arnar Fells Gunnarsson, einn þriggja eigenda Faktorý.

Lítil Ítalía leynist á Laugaveginum

Nino lét draum sinn rætast þegar hann opnaði sinn eigin veitingastað í miðbæ Reykjavíkur. Staðurinn heitir Piccolo Italia og bíður upp á veitingar sem unnar eru úr alvöru ítölsku hráefni. Nino heillaðist af friðsemdinni í Reykjavík.

Skrifaði á ennið á Julius von Bismarck

"Við fórum á opnun þar sem hann var,“ útskýrir tónlistarkonan Guðný Guðmundsdóttir sem er búsett í Berlín en það má segja að hún hafi hefnt fyrir meint spellvirki á íslenskri náttúru þegar hún skrifaði fornafn listamannsins Julius von Bismarck á ennið á honum. Hún segir að málið hafi augljóslega haft mikil áhrif á hann.

Ferðamaðurinn fluttur til Reykjavíkur

Ferðamaðurinn sem lenti í sjónum við Reynisfjöru er lítið slasaður en verður engu að síður færður undir læknishendur í Reykjavík.

Vélhjólaslys við Nauthólsveg

Vélhjólaslys varð á Nauthólsvegi fyrir skömmu. Ekki er vitað hvort um alvarlegt slys sé að ræða en samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu var einn sjúkrabíll sendur á vettvang.

Sumarið mætt í borgina

Reykvíkingar voru orðnir langeygir eftir sumrinu en nú virðist það loksins komið. Hrund Þórsdóttir og Egill Aðalsteinsson tökumaður heilsuðu upp á glaðbeitta borgarbúa sem tóku sólinni fagnandi í dag.

Þarf einfalda lagabreytingu til

Veiðigjaldsnefnd fær ekki nauðsynlegar upplýsingar til að geta reiknað sérstaka veiðigjaldið, því segir sjávarútvegsráðherra það óframkvæmanlegt. Hagfræðingur segir aðeins þurfa einfalda lagabreytingu, ríkisstjórnin noti tæknilega vinkil sem afsökun fyrir lækkun á gjaldi.

Þetta getur þú gert til að koma í veg fyrir innbrot

Innbrotum á höfuðborgarsvæðinu hefur fækkað um tuttugu prósent það sem af er ári, miðað við saman tímabil í fyrra. Þrátt fyrir það má fólk ekki sofna á verðinum, sérstaklega nú þegar sumarið nær hámarki, sérfræðingur í forvörnum.

Faktorý lokar

"Þetta er bara alveg glatað. Ég tala bæði sem tónlistarútgefandi og tónleikahaldari og þetta er mikill missir fyrir íslenskt tónlistarlíf.”

Góð en skrýtin tilfinning

"Þetta var bara rosalega góð, en jafnframt skrýtin tilfinning,“ segir Jóhanna María Sigmundsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, sem flutti jómfrúrræðu sína á Alþingi í morgun.

Höfða einkamál á hendur þjófum

IKEA á Íslandi hefur aukið öryggi í verslun sinni eftir að upp komst um langvarandi, stórfellt fjársvikamál í versluninni fyrr á árinu. IKEA hyggst einnig höfða einkamál á hendur þeim aðilum sem frömdu verknaðinn.

Útúrsnúningar og ódýr rök ráðherra

Steingrímur J. Sigfússon, fyrrverandi atvinnuvegaráðherra, telur viðbrögð sjávarútvegsráðherra við undirskriftum gegn lækkun eða afnámi veiðigjalda, einkennast af útúrsnúningum.

Tímasetning og orðalag ESB-atkvæðagreiðslu enn óákveðið

Fjölmörg stórmál eru á könnu Gunnars Braga Sveinssonar sem tók nýlega við embætti utanríkisráðherra. Hann segir ekkert hafa verið ákveðið um tíma eða form þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald ESB-viðræðna en vill styrkja EES-samstarfið og efla veru Íslands í

Munurinn á Fischer og Snowden

Ríkisborgararéttur til handa Fischer var pólitísk ákvörðun að sögn Birgittu Jónsdóttur, þingmanns Pírata.

Nýting háhitasvæða áfram í sama farvegi

HS Orka hefur ekki tekið neinar stefnumótandi ákvarðanir í ljósi erfiðleika í rekstri Hellisheiðarvirkjunar. Forstjóri Landsvirkjunar segir það hafa verið rétta stefnu að hægja á nýtingaráformum á háhitasvæðum á Norðausturlandi.

Síbrotamaður ákærður fyrir rán með kúbeini

Margdæmdur ofbeldismaður barði apóteksstarfsmann með kúbeini í fyrra og rændi peningum ásamt vinkonu sinni, að því segir í ákæru. Sérsveitarmenn fóru í Grímsey sumarið 2008 og handtóku hann eftir að hann hótaði sjóstangveiðifólki.

Bíða rannsókna í máli níðingsins í Vesturbæ

Lögregla bíður eftir niðurstöðum geðrannsóknar og DNA-rannsóknar til að geta lokið rannsókn á máli manns sem talinn er hafa numið tíu ára stúlku á brott í Vesturbæ og brotið gegn henni kynferðislega.

700 tilkynningar um töpuð reiðhjól

Um 700 tilkynningar um töpuð reiðhjól bárust til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í fyrra en um 650 árið þar áður. Árlega endurheimta tíu til þrjátíu manns hjólin sín hjá óskilamunadeild lögreglunnar en um eitt hundrað reiðhjól seljast á hverju ári á uppboði deildarinnar.

Hjólreiðakeppni til styrktar Barnaheillum

Hjólreiðakeppnin WOW Cyclothon hófst í gær en þetta er annað árið í röð sem keppnin er haldin. Keppnin stendur yfir til 22. júní og verður hjólað með boðsveitarformi hringinn í kringum landið samtals 1.332 kílómetra.

Gígur á Merkúríusi nefndur Laxness

Örnefnanefnd Alþjóðasambands stjarnfræðinga samþykkti í gær tillögu vísindamanna sem starfa við MESSENGER leiðangur NASA, að nefna gíg á Merkúríusi, Laxness, eftir íslenska rithöfundinum Halldóri Kiljan Laxness. Þetta kemur fram á Stjörnufræðivefnum.

Hjólasala Barnaheilla

Á morgun, fimmtudaginn 20. júní, standa Barnaheill – Save the Children á Íslandi fyrir hjólasölu að Síðumúla 35 (bakatil), þar sem hjól sem gengu af í hjólasöfnun samtakanna verða seld á sanngjörnu verði.

Ólafur Rafnsson bráðkvaddur

Forseti Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands og forseti FIBA Europe, Ólafur Eðvarð Rafnsson, er látinn, fimmtugur að aldri. Þetta kemur fram á vef ÍSÍ.

Sorg í Bolungarvík - söfnun hafin

Bolvíkingar hafa sett af stað söfnun fyrir foreldra ungs drengs, Ísaks Inga, sem féll frá í liðinni viku eftir skammvinn veikindi. Við fengum leyfi til að birta meðfylgjandi pistil ásamt mynd af drengnum sem var tólf ára gamall þegar hann féll frá en hluta úr pistlinum sem birtist á fréttavef Bolvíkinga þar sem bæjarbúar eru hvattir til að styðja við bakið á foreldrum Ísaks má lesa hér:

Efla menntun í Síerra Leóne

Fjárframlög frá Íslandi hafa stórbreytt landslaginu í menntamálum í Síerra Leóne, einu fátækasta ríki heims. En á síðustu fjórum árum hafa 340 milljónir komið í gegnum UNICEF á Íslandi til uppbyggingar í landinu.

Netbankar í hættu

Tölvuþrjótar reyndu í dag að útvega sér aðgangsupplýsingar viðskiptavina Íslandsbanka í netbönkum þeirra, með því að senda svikatölvupóst á stóran hóp fólks. Markmiðið var að afla sér fjár með ólögmætum hætti.

Segir fjölda undirskrifta koma sér á óvart

Yfir tuttugu og eitt þúsund undirskriftir hafa nú safnast gegn frumvarpi um lækkun veiðigjalda. Sjávarútvegsráðherra segir fjölda undirskrifta koma sér á óvart því engar breytingar á veiðigjöldunum þýði engin veiðigjöld á næsta fiskveiðiári.

Sjá næstu 50 fréttir