Innlent

Vélhjólaslys við Nauthólsveg: Fór mun betur en á horfðist

Frá vettvangi nú í kvöld.
Frá vettvangi nú í kvöld. Mynd / Valli
Fólksbíll og vélhjól lentu í árekstri við gatnamót Hringbrautar og Nauthólsvegar um klukkan hálf níu í kvöld.

Ökumaður vélhjólsins slasaðist en samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins fór mun betur en á horfðist í fyrstu.

Ökumaður bifreiðarinnar slasaðist ekki og er málið í rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×