Fleiri fréttir

Lækka gatnagerðargjöld um helming

Bæjarráð Stykkishólms hefur samþykkt að lækka gatnagerðargjöld um 50% á ákveðnum lóðum. Einnig var samþykkt að fella niður gjald vegna uppfyllingar ákveðinnar lóðar. Ástæðan er sögð sú að skortur sé á íbúðarhúsnæði og rétt sé að hvetja til bygginga. Einnig er talið að aðgerðirnar geti eflt byggingariðnað á svæðinu. Frá þessu er sagt á vef Skessuhorns.

Lögregla með tuskudýr í vörslu sinni

Nokkur fjöldi tuskudýra, sem öll fundust á sama staðnum, er í óskilum hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Eigandinn getur vitjað þeirra hjá lögreglunni en krafist verður staðfestingar á eignarhaldi. Upplýsingar eru veittar í síma 444-1000 en einnig má senda fyrirspurnir í tölvupósti á netfangið abending@lrh.is.

Dómstólar misnota gæsluvarðhald á grundvelli almannahagsmuna

Lögmaðurinn Ragnar Aðalsteinsson sakar íslenska dómstóla um að mistúlka og misnota heimild til að úrskurða sakborninga í gæsluvarðhald á grundvelli almannahagsmuna. Í nýjasta tölublaði Úlfljóts, tímarits laganema, skrifar hann grein ásamt lögfræðingnum Fanney Hrund Hilmarsdóttur þar sem íslensk dómaframkvæmd er m.a. borin saman við dómaframkvæmd Mannréttindadómstólsins.

DUST 514 og EVE tengjast í fyrsta sinn

Tölvuleikirnir EVE online og DUST 514 munu tengjast í fyrsta sinn eftir rétt rúma viku. Þá munu spilendur beggja leikjanna geta talað saman, skipulagt árásir og fleira í fyrsta sinn.

Ökufantar stungu af

Ekið var á tvær kyrrstæðar og mannlausar bifreiðar á bifreiðastæðum í Reykjanesbæ um helgina, önnur þeirra stóð gegnt Hótel Keflavík og hin á Skógarbraut á Ásbrú framan við byggingu 1106, stigagang 2.

Mannlaus vagn fékk hvatningarverðlaun Hinsegin daga

Vagninn hér til hliðar hlaut hvatningarverðlaun Hinsegin daga 2012. Honum var mannlausum ekið í Gleðigöngunni með þessari einu áletrun "Fyrir vini okkar sem hafa ekki frelsi til að fagna Hinsegin dögum".

Rannsókn lokið á máli hrottanna í Breiðholti

Lögreglan hefur lokið við rannsókn á máli tveggja manna sem réðust inn á karlmann í Breiðholti fyrr í sumar, sviptu hann frelsi sínu í sex klukkustundir og neyddu hann til að millifæra pening af bankareikningi sínum yfir á þeirra bankareikning. Málið hefur verið sent ríkissaksóknara sem tekur ákvörðun um það hvort mennirnir verði ákærðir eða ekki. Mennirnir hafa setið í gæsluvarðhaldi frá því að þeir voru handteknir.

Margir nota grænu hjólin í ljósmyndasamkeppni

Nú keppist fólk um að fanga stemninguna á Sumargötum Borgarinnar með linsunni, enda stendur yfir ljósmyndasamkeppni á vegum Reykjavíkurborgar. María Markó, vöruhönnuður, sem stendur fyrir verkefninu segir að fjöldi mynda hafi skilað sér en hvetur fólk til að nýta síðustu dagana og koma sínum myndum að. Keppninni lýkur 19. ágúst.

Ólga í VG

Svo virðist sem ólga sé komin í raðir Vinstri Grænna eftir að ráðherrarnir Katrín Jakobsdóttir og Svandís Svavarsdóttur tóku nýverið undir með Ögmundi Jónassyni um að endurmeta þurfi aðildarferlið.

Upplýsingafulltrúi gæti aukið traust á dómskerfið

Það stendur dómstólum nær að efla kynningarstarf sitt og reyna að auka trúverðugleika sinn, mögulega með því að gera út upplýsingafulltrúa Hæstaréttar. Þetta segir Sindri M. Stephensen, ritstjóri Úlfljóts, tímarits laganema í stuttu ávarpi fremst í nýjasta tölublaðinu. Þar veltir hann vöngum yfir litlu trausti þjóðarinnar á dómskerfi landsins.

Ungir sjálfstæðismenn vilja prófkjör fyrir næstu kosningar

Ungir sjálfstæðismenn skora á kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins í öllum kjördæmum að halda prófkjör fyrir alþingiskosningarnar næsta vor. Í ályktun sem ungliðarnir sendu frá sér í morgun segir að lýðræði í flokknum hafi verið aukið á ýmsa vegu með breytingum sem gerðar voru á skipulagsreglum flokksins á síðasta landsfundi. Það væri í hrópandi ósamræmi við þá stefnumörkun landsfundar að halda ekki prófkjör enda séu prófkjör lýðræðislegasta leiðin til velja fulltrúa flokksins í kosningum.

Missti hníf á fótinn á sér

Síðasta vika gekk ekki slysalaust fyrir sig á Suðurlandi í síðustu viku. Til að mynda lenti kona með fingur í hekkklippum og hlaut stóran skurð á fingurinn. Konan fór á slysavakt á heilsugæslunni á Selfossi þar sem nokkur spor voru saumuð í fingurinn. Maður slasaðist á höfði og braut tönn þegar hann datt á andlitið á tjaldsvæðinu í Miðdal.

Vetraráætlun Strætó tekur gildi

Vetraráætlun Strætó á höfuðborgarsvæðinu tók gildi í gær. Vetraráætlun er því viku fyrr á ferðinni en vanalega og er það liður í að koma til móts við farþega með því að auka tíðni fyrr og ná fram úrbótum á leiðarkerfi farþegum til hagsbóta.

Yfir tvö hundruð eyðibýli rannsökuð í sumar

Rannsóknarverkefnið Eyðibýli á Íslandi hélt áfram í sumar þegar 231 hús á Vestur- og Norðausturlandi voru rannsökuð. Rannsóknarferðum er nú lokið en rannsóknarteymið vinnur að útgáfu bóka sem eiga að koma út í september.

Besta sumar frá upphafi á Hótel Flatey?

Sumarið í Hótel Flatey var væntanlega það besta frá upphafi. Þetta segir Sara Sesselja Friðriksdóttir starfsmaður hótelsins á vef Reykhólahrepps. Margvíslegir viðburðir hafa verið á hótelinu í allt sumar, nú síðast tróð hljómsveitin Spaðar þar upp um helgina.

Vonar náttúrunnar vegna að tillaga sín verði samþykkt

Ásmundur Einar Daðason, alþingismaður Framsóknarflokksins, vill gera refaveiðar markvissari. Hann segir að í stað þess að vinna að friðun refa og skera alveg niður fjárveitingar til veiðanna hefði verið skynsamlegra að skipuleggja þær betur og gera markvissari.

Ekkert spurst til landnámshæna

Ekkert hefur enn spurst til 26 landnámshæna, sem stolið var úr hænsnakofa í hesthúsahverfinu við Hópsheiði í Grindavík í fyrrakvöld. Lögreglan, hefur ekki fengið neinar vísbendingar, enn sem komið er, en það ætti að vekja athygli ef einhver hefur skyndilega komið sér upp svo myndarlegum hænsnahópi á einni nóttu. Landnámshænurnar eru líka óvenju skrautlegar á litinn og skera sig úr hvítu hænunum, sem eru ríkjandi hér á landi.-

Ómerktur lögreglubíll við hraðamælingar.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu ætlar að vera með ómerktan lögreglubíl við hraðaeftirlit við Breiðagerði í dag. Íbúar við götuna hafa kvartað undan miklum hraðakstri við götuna og hafa íbúar óskað eftir að fleiri hraðahindranir verði settar upp.

Rétttrúnaðarkirkjan keypti auglýsinguna

Í Fréttablaðinu á laugardag birtist auglýsing undir yfirskriftinni "Ef kristið fólk þegir þá talar Biblían“ Þar var birt tilvitnun í fyrra Korintubréf Biblíunnar. Þau mistök voru gerð við birtingu auglýsingarinnar að krefjast þess ekki að auglýsandinn nafngreindi sig. Kaupandi auglýsingarinnar er Söfnuður Moskvu-Patríarkatsins á Íslandi, öðru nafni Rússneska rétttrúnaðarkirkjan. Beðist er afsökunar á mistökunum. - bj

Starfsfólki sendiráða mismunað

Íslenskir starfsmenn erlendra sendiráða njóta ekki sömu kjara og annað launafólk í landinu, skrifar Guðlaug Kristjánsdóttir, formaður Bandalags háskólamanna, í aðsendri grein í Fréttablaðinu í dag.

Átta af tólf vilja endurmeta viðræður um ESB

Átta af 12 þingmönnum Vinstri grænna vilja endurmeta viðræður um aðild Íslands að Evrópusambandinu, samkvæmt könnum sem Morgunblaðið hefur gert um afstöðu þingmanna flokksins til málsins. Eins og fram kom í fréttum um helgina, lýstu tveir ráðherrar flokksins, þær Svandís Svavarsdóttir og Katrín Jakobsdóttir því yfir að endurmeta þyrfti viðræðurnar. Áður hefur Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra lýst andstöðu sinni við aðild að Evrópusambandinu.

Rennsli hefur aukist í laxveiðiám

Rennsli hefur stór aukist í laxveiðiám suðvestanlands í rigningunni að undanförnu. Rennslið í Norðurá sexfaldaðist til dæmis um helgina frá því sem það var orðið í þurrkunum og mátti líkja því við flóð um helgina. Við slíkar aðstæður gruggast árnar líka þannig að eitthvað slær á veiðina, en nú eru árnar að jafna sig og binda laxveiðimenn vonir við góða veiði á næstunni, eftir dræma veiði í vatnsleysinu.-

Sótti veikan mann á Fagurhólsmýrar

Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti veikan erlendan ferðamann til Fagurhólsmýrar síðdegis í gær og flutti hann á Landspítalann. Hann hafði fengið hastarlegan brjótsverk og var kallað eftir aðstoð. Fyrst kom sjúkrabíll á vettvang og ók hann manninum til móts við þyrluna. Hann mun vera á batavegi.-

Krotuðu á veggi Héraðsdóms Reykjavíkur

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók tvo menn um þrjúleytið í nótt, þar sem þeir voru að krota á veggi Héraðsdóms Reykjavíkur við Lækjartorg. Engar nánari upplýsingar er að hafa um hvað þeim gekk til, né hvað þeir voru að krota á húsið.

Portúgalar sinna loftrýmisgæslu

Flugsveit úr flugher portúgalska flughersins er nú á leið hingað til lands til að annast loftrýmisgæslu á vegum Atlantshafsbandalagsins NATO hér á landi næstu vikurnar. 60 til 70 liðsmenn munu koma hingað með sex F-6 herþoturm og dvelja hér fram í september. Þetta er í fyrsta sinn sem Portúgalir senda fugsveit hingað og er hún heldur fámennari en aðrar NATO þjóðir hafa sent hingað. Portúgalarnir eiga ekki von á hernaðarátökum í dvölinni hér, en hafa óskað eftir því við Landhelgsgæsluna að hún smali saman knattspyrnuliði til að keppa við þá, til dægrastyttingar.-

Súðavík þarf að bera kostnað af eldunum

Súðavíkurhreppur ber allan kostnað af slökkvistarfi í Laugadal í Ísafjarðardjúpi. Þar hafa logað eldar síðan fimmtudaginn 2. ágúst og eru um tíu hektarar lands brunnir og auðnin ein. Hátt í sextíu menn hafa barist við eldana síðan þeirra varð vart.

Njála sem mun ná tæpa hundrað metra

Sunnlendingar og Húnvetningar hafa nú hafist handa við að koma höfuðritum sínum á refla að hætti evrópskra miðaldamanna. Húnvetningar eru þó lengra á veg komnir með sinn Vatnsdælurefil en ekki er enn búið að stinga nál í Njálurefil þeirra Sunnlendinga.

Engin viðbragðsáætlun til staðar

?Slökkviliðin hafa farið í gegnum gríðarlegt lærdómsferli en engin viðbragðsáætlun var til staðar sem hægt var að vinna eftir. Eftir situr mikill lærdómur um það hvernig á að takast á við jarðvegselda.? Meðal annars var notast við haugsugur, þyrla Landhelgisgæslunnar tók þátt og grafinn var skurður til að hamla útbreiðslu eldsins.

Dílaskarfi vex ásmegin vestra

Dílaskarfur hefur náð góðri fótfestu í Strandabyggð og blómleg byggð þessa tígulega fugls fer nú stækkandi. Fréttavefurinn strandir.is segir frá. Aðalvarpstaðir dílaskarfs eru í Breiðafirði og Faxaflóa og lítið sem ekkert utan þeirra svæða en ekki er vitað um annað dílaskarfsvarp á Ströndum.

Sænska leiðin ýtir undir mansal

Sænska leiðin hefur orðið til þess að enn erfiðara er að koma fórnarlömbum mansals til bjargar og jafnvel ýtt undir það. Þetta segir Pye Jakobsson, stofnandi hagsmunasamtaka fólks í vændi í Svíþjóð. Hún segir að með því að gera kaupendur vændis að glæpamönnum sé komið í veg fyrir að hægt sé að hægt sé að tilkynna mansal. Slíkar tilkynningar komi annars aðallega frá vændiskaupendum.

Rannsókn á Lindsor-málinu komin á skrið hjá sérstökum

Kaupþing var að reyna að greiða upp eigin skuldabréf og afstýra falli bankans þegar hundrað sjötíu og ein milljón evra var millifærð til Lúxemborgar til félags sem stjórnendur bankans stýrðu í miðju hruni, sama dag og bankinn fékk stóran hluta neyðarfjár íslenska ríkisins að láni hjá Seðlabanka Íslands. Rannsókn málsins er komin af stað hjá sérstökum saksóknara eftir eins og hálfs árs bið eftir gögnum.

Solveig Lára nýr vígslubiskup á Hólum

Sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir var vígð til embættis vígslubiskups á Hólum í dag. Biskup Íslands, frú Agnes M. Sigurðardóttir, sá um vígsluna. Séra Solveig er önnur konan sem tekur biskupsvígslu en frú Agnes hafði áður gegnt embættinu.

Á bleiku skýi á Selfossi

Delludagurinn stendur nú yfir á Selfossi en hann er í tengslum við bæjarhátíðina Sumar á Selfossi. Þá sýna ökumenn ýmsa hæfileika sína í nokkrum þrautum.

Sigrid enn leitað

Lögreglan í Ósló leitar enn hinnar sextán ára gömlu Sigridar Schjetne. Hún hvarf þegar hún var á leiðinni heim til sín fyrir rúmri viku.

Fyrsta gifting samkynhneigðra hjá Siðmennt

Fyrsta gifting samkynhneigðra sem athafnarstjóri hjá Siðmennt stýrði átti sér stað í gær. Það voru þær Jana Björg Ingadóttir og Jóhanna Kristín Gísladóttir sem giftu sig með persónulegri athöfn og í viðurvist sinna nánustu.

Órói við Mýrdalsjökul

Nokkur skjálftavirkni hefur verið í og við Mýrdalsjökul í dag. Í morgun varð jarðskjálfti upp á 2.7 stig norður af Goðabungu. Lítill órói hefur verið í Mýrdalsjökli vegna þessa skjálfta og er ekki vitað til þess að leiðni í ám sem renna frá jöklinum hafi aukist. Lítil skjálftavirkni hefur verið í jöklinum síðustu vikur og sýna mælingar að spenna í jarðskorpunni fer minnkandi.

Solveig Lára vígð til embættis vígslubiskups

Í dag kl. 14 verður sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir vígð til embættis vígslubiskups á Hólum. Sr. Solveig Lára er önnur konan sem tekur biskupsvígslu á Íslandi, á eftir biskupi Íslands, frú Agnesi Sigurðardóttur.

Melrakkinn þjóðardýr Íslendinga

Melrakkasetur Íslands í Súðavík stefnir að því að gera melrakkann að þjóðardýri Íslendinga. Á fréttavefnum BB.is er vitnað í ársskýrslu setursins en þar kemur fram að unnið verði að því leynt og ljóst enda nokkurn veginn í höfn að tófan sé orðin einkennisdýr Vestfjarða.

Fíkniefnamál á Fiskideginum mikla

Fjölmenni var á Dalvík í gær. Fiskudagurinn mikli fór þar fram og lék veðrið við hátíðargesti. Fjögur fíkniefnamál komu upp í bænum í nótt og var maður tekinn með töluvert magn af alsælu og kókaíni.

Róleg nótt í miðbænum

Skemmtanahald fór víða fram í miðbæ Reykjavíkur í gærkvöld og nótt vegna Hinsegin daga. Mikill fjöldi fólks var í bænum þrátt fyrir rigningu og rok.

Skattleysi Dorritar vegna tvísköttunarsamnings við Bretland

Dorrit Moussaieff forsetafrú ber að greiða skatta á Íslandi þar sem hún hefur lögheimili hér á landi í samræmi við meginreglu skattaréttar. Hún telur fram hér en vegna tvísköttunarsamnings við Bretland greiðir hún ekki skatta á Íslandi.

Enginn með allar tölur réttar

Enginn var með allar tölur réttar í Lottóinu í kvöld. Vinningstölurnar voru 2, 12, 24, 28 og 38. Bónustalan var 18.

Sjá næstu 50 fréttir