Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Borgin kaupi Perluna og sýni náttúruminjar Borgarráð Reykjavíkur hefur óskað eftir viðræðum við mennta- og menningarmálaráðuneytið um uppsetningu náttúruminjasýningar í Perlunni. Forsendan fyrir því er að borgin kaupi Perluna af Orkuveitunni og leigi ríkinu aðstöðu til sýningar í að minnsta kosti 10 ár. 14.7.2012 04:00
Áform um kalkþörungavinnslu Kalkþörungafyrirtækin Celtic Sea Minerals og Kalkþörungafélagið, sem nú þegar reka kalkþörungaverksmiðju á Bíldudal, hafa uppi áform um að starfrækja aðra slíka verksmiðju á norðanverðum Vestfjörðum. 14.7.2012 02:00
Óttast ekki að tannlæknar verði óþarfir Sigurður Benediktsson, formaður Tannlæknafélags Íslands, segir að nýtt efnasamband sem gæti leitt til þess að tannskemmdir heyri sögunni til í náinni framtíð sé mjög spennandi. Vísir sagði frá efninu í gær. Sigurður sagðist í samtali við Reykjavík síðdegis ekki hafa kynnt sér efnið að öðru leyti en því sem hann hefur lesið á Netinu. Það eru tannlæknar í Chile sem hafa hannað þetta efnasamband. 13.7.2012 19:24
Breiðholtshrottar í fjögurra vikna gæsluvarðhald Gæsluvarðhald yfir mönnum sem grunaðir eru um að hafa ráðist inn á heimili manns í Breiðholti aðfararnótt föstudags í síðustu viku hefur verið framlengt um fjórar vikur. Mennirnir sviptu manninn, sem er á sjötugsaldri, frelsi sínu og neyddu hann með ofbeldi og hótunum til að millifæra af bankareikningi sínum inn á reikning sem þeir gáfu upp. Þá stálu þeir munum úr íbúðinni. Þeir héldu honum í sex klukkutíma á heimili hans og það var ekki fyrr en að samstarfsfólk mannsins var farið að óttast um hann og fór heim til hans að árásarmennirnir fóru af vettvangi. 13.7.2012 16:24
Lögreglan komin með rafmagnshjól Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur tekið í notkun tvö rafmagnshjól. Hjólin verða notuð við eftirlit á hjóla- og göngustígum í umdæminu og þykir lögreglunni ekki veita af. T.d. er mikið kvartað undan rafmagnsvespum og ökumenn þeirra sagðir aka ógætilega. Við eftirlitið verður að sjálfsögðu líka fylgst með umferð annarra tækja á hjóla- og göngustígum og þeim vísað á akbrautir þegar við á. 13.7.2012 19:32
Gróf vanræksla á hryssu kærð - dýrið verður aflífað "Þetta er algjört hirðuleysi, það er ekki í lagi að gera svona,“ segir Hjörtur Magnason, héraðsdýralæknir Austurumdæmis en hann fékk ábendingu í morgun um verulega vanhirta hryssu í umdæminu. 13.7.2012 15:30
Tugir manna krefjast fundar með Guðbjarti Um 40 manns eru samankomnir við velferðarráðuneytið til þess að sýna Hjördísi Svan Aðalheiðardóttur samstöðu. Guðbjarti Hannessyni ráðherra verður afhend ályktun til þess að krefjast þess að mál barna Hjördísar verði endurskoðuð. 13.7.2012 14:48
Hundrað þúsund ferðamenn sækja Akureyri heim í sumar Rúmlega 100 þúsund farþegar og áhafnarmeðlimir skemmtiferðaskipa heimsækja Akureyrarbæ í sumar. Bæjarstjórinn segir ferðamannaflauminn hafa mikla þýðingu fyrir bæjarfélagið, en um leið er þetta afrakstur umfangsmikillar markaðssetningar. 13.7.2012 14:22
Ársreikningurinn stóðst lög Ársreikningur Reykjavíkurborgar fyrir síðasta ár var í fullu samræmi við sveitastjórnarlög, samkvæmt áliti innanríkisráðuneytisins. Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins óskuðu eftir áliti ráðuneytisins á því hvort framsetning ársreiknings Reykjavíkurborgar væri í samræmi við ákvæði nýrra sveitastjórnarlaga sem samþykkt voru í fyrra. Málið var til umræðu á borgarráðsfundi í gær og var þá álit innanríkisráðuneytisins kynnt. 13.7.2012 14:04
Árekstur á Selfossi Árekstur varð á gatnamótum við Eyrarveg á Selfossi um hádegisbil í dag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu var um minniháttar árekstur að ræða. Engin slys urðu á fólki þó svo töluverðar skemmdir hafi orðið á bílunum. 13.7.2012 12:42
Boðið upp á rútuferðir yfir Krossá Laugavegsmaraþonið verður haldið í sextánda sinn laugardaginn 14. júlí og af því tilefni munu staðarhaldarar í Húsadal ásamt Ársæli Haukssyni bifreiðastjóra hjá South Coast Adventure bjóða upp á aukaferðir yfir Krossá frá kl. 12 á hádegi og fram eftir degi. 13.7.2012 10:57
Heildarkvótinn í samræmi við ráðgjöf Hafrannsóknar Steingrímur J. Sigfússon sjávarútvegsráðherra hefur tekið ákvörðun um heildarafla á næsta fiskveiðiári sem hefst í lok ágúst n.k. Ákvörðunin er nær nákvæmlega í samræmi við þá ráðgjöf sem Hafrannsóknarstofnunin kynnti í vor. 13.7.2012 10:39
Kveikti eld í sumarbústaðalandi með gasbrennara Slökkvilið Borgarbyggðar þurfti að sinna eldsvoða sem logaði í trjálundi í sumarbústaðahverfi í landi Stóra-Fjalls um klukkan hálf fimm í gær. 13.7.2012 09:59
Þrír teknir eftir þjófnað úr matvöruverslun Lögreglan hafði í nógu að snúast í gærkvöldi og í nótt en um kvöldmatarleytið barst henni tilkynning um að þrír menn hefðu stolið úr matvöruverslun í austurborginni. 13.7.2012 06:33
Tveir teknir með skotvopn í fórum sínum Um hálf tvöleytið í nótt stöðvaði lögreglan bifreið þar sem grunur lék á að fólkið um borð væri með skotvopn á sér. Karlmaður um tvítugt sem var í bifreiðinni var með loftbyssu og skotvopn sem henni fylgdu en ekki er vitað hvað hann ætlaði sér með vopnið. Hann afsalaði sér byssunni og var laus að skýrslutöku lokinni. 13.7.2012 06:31
Segja fjármál borgarinnar þarfnast frekari skoðunar Fjármál Reykjavíkurborgar þarfnast frekari skoðunar að mati eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga, sem hefur yfirfarið ársreikning borgarinanr fyrir árið 2011 ásamt fjárhæsgáætlun fyrir árið 2012 og 2013. 13.7.2012 17:24
Sýknuð af ákæru um 50 milljóna króna fjárdrátt Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í dag fyrrverandi starfsmann við einkabankaþjónustu á eignastýringarsviði Kaupþings af ákæru um að hafa dregið sér samtals 50 milljónir króna sem voru söluandvirði skuldabréfa og vísla sem konan aðstoðaði seljendur við að gefa út. Konan millifærði söluandvirði verðbréfanna af bankareikningum kaupenda bréfanna inn á sinn eigin bankareikning í stað þess að ráðstafa því í þágu seljenda , eins og sagði í ákæru. 13.7.2012 15:08
Valitor og Borgun hafna aðdróttunum Árna Þórs Valitor hafnar alfarið því sem fyrirtækið kallar aðdróttanir Árna Þórs Sigurðsson, þingmanns Vinstri Grænna. Fyrr í dag sagði Árni að Valitor hefði hugsanlega verið tvísaga þegar það var kallað fyrir Allsherjarnefnd ásamt Borgun en fyrirtækin ákváðu að loka fyrir greiðslugátt WikiLeaks á síðasta ári. 13.7.2012 14:47
Nýr framkvæmdastjóri Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna Gréta Ingþórsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna. Hún mun hefja störf í byrjun næsta mánaðar. "Þetta er frábært félag og málstaðurinn auðvitað mikilvægur og nýtur sem betur fer mikils stuðnings og velvilja i samfélaginu. þannig að þetta er gott félag til að vinna fyrir," segir Gréta. 13.7.2012 14:22
Litla sólin - Nýjasta verk Ólafs Elíassonar kynnt Nýjasta verk Ólafs Elíassonar, myndlistamanns, hefur verið opinberað í Tate Modern listasafninu í Lundúnum. Verkefnið er hluti af London 2012 hátíðinni en hún er haldin í tilefni af Ólympíuleikunum sem hefjast í borginni seinna í þessum mánuði. 13.7.2012 13:15
Spyr hvort forsvarsmenn Valitors og Borgunar hafi logið að Alþingi Árni Þór Sigurðsson, þingmaður Vinstri grænna, segir á Facebook-síðu sinni að Valitor og Borgun hafi hugsanlega verið tvísaga þegar þeir voru kallaðir fyrir á fund Allsherjarnefndar þegar fyrirtækin ákváðu að loka fyrir greiðslugátt WikiLeaks á síðasta ári. Áður hafði danska fyrirtækið Teller gert slíkt hið sama. 13.7.2012 11:28
Koss fyrir heilsuna Kossar eru ekki aðeins góðir fyrir sambandið við makann heldur geta þeir einnig verið góðir fyrir heilsu fólks ef marka má rannsóknir á þessu saklausa athæfi. 13.7.2012 10:00
Níu fíkniefnamál á Eistnaflugi Níu fíkniefnamál hafa komið upp á rokkhátíðinni Eistnaflugi í Neskaupsstað samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. Um 1300 manns eru staddir á hátíðinni. Þá hefur einn ökumaður verið stöðvaður grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. 13.7.2012 09:33
Létu eyða tveimur fóstrum - vildu vera örugg Hjónin Paulina Garcia Romero og Friðfinnur Finnbjörnsson hafa eytt tveimur fóstrum af fimm af læknisráði, en þau eru í viðtali í Fréttatímanum í dag. Þar segja hjónin sögu sína en Paulina átti von á fimmburum líkt og Fréttatíminn greindi frá í síðasta mánuði. Í Fréttatímanum kemur fram að sérfræðingur hafi sagt þeim að hann mælti ekki með fimmburameðgöngu nema með mjög reyndu og færu teymi lækna. 13.7.2012 09:19
Þingforseti segir hótel óboðlegt löggjafanum „Ég hef verulegar áhyggjur af þessum tillögum og því sem þær bera með sér gagnvart Alþingi. Það verður að taka tillit til löggjafans,“ segir Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, um vinningstillögu í samkeppni um hótel í Landsímahúsinu gegnt þinginu. Hún hefur sent Reykjavíkurborg bréf þar sem athugasemdum þingsins við tillöguna er komið á framfæri. Þá hefur forsætisnefnd þingsins rætt málið og mun taka það fyrir á sumarfundi sínum í ágúst. 13.7.2012 09:00
Húseiningar standa á víðavangi Húseiningar hafa um nokkra hríð staðið við Reykjanesbraut. Einingarnar eru á nokkuð áberandi stað enda blasa þær við vegfarendum sem keyra Reykjanesbrautina. 13.7.2012 09:00
Segir vörður skemma náttúru og stemningu „Náttúran er ekki ósnortin lengur því þar eru allar þessar fjandans vörður,“ segir Ingó Herbertsson leiðsögumaður, sem telur þann sið ferðalanga að hlaða vörður út um hvippinn og hvappinn vera til mikillar óþurftar. 13.7.2012 08:30
Slasaðist í bílveltu á Suðurlandsvegi Einn slasaðist þegar bíll valt á Suðurlandsvegi við skíðaskálann í Hveradölum í morgun. Viðkomandi mun ekki vera alvarlega slasaður en bíllinn er ónýtur eftir veltuna. Þrír sjúkrabílar eru á staðnum, tveir frá Reykjavík og einn frá Selfossi. 13.7.2012 08:16
Þjóðhátíð nær þolmörkum Búið er að selja um sjö þúsund miða á Þjóðhátíð í Eyjum. Svo mikil aðsókn var í miða í vikunni að netsíðan sem hýsir miðasöluna hrundi. 13.7.2012 08:15
Telja að makríllinn kunni að valda búsifjum sjófugla Erpur Snær Hansson, sviðsstjóri vistfræðirannsókna hjá Náttúrustofu Suðurlands, segir að margir hallist að þeirri kenningu að ágangur makrílsins geti að miklu leyti útskýrt þær búsifjar sem lundinn og aðrir sjófuglar hafi orðið fyrir síðustu ár. 13.7.2012 07:30
Ekki tilefni til verðlækkunar Steingrímur J. Sigfússon iðnaðarráðherra telur ekki tilefni til að endurskoða verðstefnu Landsvirkjunar varðandi raforku. Fréttablaðið sagði frá því í gær að raforkuverð hefði lækkað víða um heim, einkum í Bandaríkjunum, og stóriðjufyrirtæki væru að hugleiða enduropnun lokaðra verksmiðja. 13.7.2012 07:00
Sjómaður puttabrotnaði um borð í togara Sjómaður á togaranum Christina puttabrotnaði þegar skipið var um 100 mílur suðaustur af Skrúði. 13.7.2012 06:58
Vilja fá að framleiða ógerilsneydda osta Beint frá býli, félag bænda sem stunda sjálfstæða sölu eigin afurða, hefur óskað formlega eftir því við sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið að framleiðsla osta úr ógerilsneyddri mjólk verði heimiluð í takmörkuðu magni. 13.7.2012 06:30
Lágmark að halda illgresi í skefjum „Það er lágmarkskrafa að sá meirihluti sem hér er við völd standi undir því einfalda verkefni að láta slá græn svæði í borginni og halda illgresi í skefjum,“ segir í bókun sem fulltrúar Sjálfstæðisflokksins lögðu fram á borgarráðsfundi í gær 13.7.2012 05:30
Augun svíkja ekki lygarann Breskir vísindamenn segjast hafa afsannað þá kenningu að merkja megi lygar af augnagotum fólks. Vísindamennirnir tóku upp myndband með sjálfboðaliðum þar sem þeir ýmist lugu eða sögðu satt. 13.7.2012 05:00
Færri ráðnir án auglýsinga Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, segir mjög hafa dregið úr ráðningum án auglýsinga hjá ríkinu. Fréttablaðið greindi frá bréfi Umboðsmanns Alþingis, þar sem hann hvatti til að slíkum ráðningum yrði fækkað og sagði það myndu efla traust á ríkisvaldinu. 13.7.2012 04:00
Fagnar umræðu um Landssímahúsið "Við verðum að tryggja það að sýndur verði metnaður við skipulagningu á Landssímareitnum." Þetta segir Dagur B. Eggertsson, formaður Borgarráðs. 13.7.2012 11:24
Human Woman troða upp á Faktorý Íslensk Nýdanska dúóið Human Woman mun heiðra Íslendinga með nærveru sinni næstu helgi þegar þeir munu troða upp á Faktorý á laugardaginn næsta. Þrátt fyrir danskar tengingar þá er hljómsveitin alíslensk, en það eru þeir Gísli Galdur og Jón Atli sem skipa hið ofursvala dúó. 12.7.2012 20:24
Pétur Blöndal vill stöðva peningahringekjuna Hægt er að breyta milljónum í innistæðulausa milljarða með tiltölulega einföldum eignatilfærslum á milli hlutafélaga. Karen Kjartansdóttir fékk Pétur Blöndal þingmann til að útskýra hvernig er hægt að koma í veg fyrir slíkar eignabólur, en Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu hefur samþykkt tillögur hans sem miða að því. 12.7.2012 19:30
Sveinn Andri: Aðför kortafyrirtækjanna að málfrelsi stöðvuð Wikileaks getur starfað óhindrað af fullum krafti verði dómur Héraðsdóms Reykjavíkur gegn Valitor fordæmisgefandi annars staðar í heiminum, segir lögmaður Datacell. Vísa þarf að opna aftur greiðslugátt fyrir Datacell sem kortarisinn lokaði vegna tengsla við Wikileaks. 12.7.2012 18:32
Rúta með eldri borgurum hafnaði utan vegar Rúta með 50 eldri borgurum fór út af þjóðvegi 1 við Másvatn, leiðina á milli Lauga og Mývatns, um fimm leytið í dag. Lögreglan á Húsavík fékk tilkynningu um umferðaróhappið skömmu síðar. 12.7.2012 18:00
Snorri í Betel rekinn vegna skoðana sinna Snorra Óskarssyni, sem oft er kenndur við Betel söfnuðinn í Vestmannaeyjum, hefur verið sagt upp störfum sem kennari á Akureyri. Snorri bloggar um málið og segir að hann hafi verið kallaður á fund fræðslustjóra Akureyrarbæjar fyrr í dag. Þar hafi honum verið tilkynnt að honum hefði verið sagt upp. 12.7.2012 17:07
Hluturinn á botni Eystrasaltsins sagður verða vopn Talið er að dularfulli hluturinn sem sænsku kafararnir fundu á botni Eystrasaltsins fyrir nokkrum árum sé í raun leifar frá seinni heimsstyrjöld. Nánar tiltekið áður óséð tæki úr vopnabúri nasista. 12.7.2012 16:36
CCP er besti sjálfstæði leikjaframleiðandi Evrópu CCP var í gærkvöldi valið besti sjálfstæði leikjaframleiðandi Evrópu á Develop Awards. Eldar Ástþórsson telur verðlaunin "heilmikla viðurkenningu fyrir CCP sem fyrirtæki, enda þungavigtarmenn í tölvuleikjaiðnaðinum í dómnefnd." 12.7.2012 15:13
Veðurblíðan og leyndardómur íssalans Veðurblíðan leikur nú við landsmenn. Hiti hefur skriðið yfir 20 stig á nokkrum stöðum og heiðskírt er víðast hvar. Eins og svo oft áður þá er mikið um að vera hjá íssölum þegar viðrar vel — Fríða í Ísbúð Vesturbæjar brosir að minnsta kosti hringinn. 12.7.2012 14:53