Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Stendur ekki til að semja við blaðakonuna Í innanríkisráðuneytinu hefur ekki komið til tals að reyna að ná sáttum við blaðakonuna Erlu Hlynsdóttur um tvö dómsmál sem þegar hafa verið send út til Mannréttindadómstóls Evrópu. Samkvæmt upplýsingum úr ráðuneytinu stendur ekki til að setjast að samningaborðinu í bili en þó er ekki útilokað að ákvörðun um það verði tekin síðar. 12.7.2012 13:15
Magnús sest í bæjarstjórastólinn eftir helgi Magnús Stefánsson fyrrverandi félagsmálaráðherra hefur störf sem bæjarstjóri í Garði strax eftir helgi. Bæjarstórnarfundur var haldinn fyrir hádegi þar sem gengið var formlega frá ráðningu hans. Magnús á að baki langa sögu í pólitísku starfi og stjórnsýslustörfum en hann var þingmaður Framsóknarflokksins um árabil og ráðherra til skamms tíma. 12.7.2012 13:06
Stærsta skemmtiferðaskipið sem kemur Skemmtiferðaskipið Celebrity Eclipse fór frá bryggju í Reykjavík í gær eftir að hafa verið í sólarhring á Íslandi. Skipið er stærsta skemmtiferðaskipið sem kemur til Íslands þetta sumar. Skipið er einungis tveggja ár gamalt, en það var vígt í apríl 2010, og er hið allra glæsilegasta eins og meðfylgjandi myndir bera með sér. Samkvæmt áætlun mun skipið koma aftur þann 7. ágúst næstkomandi og vera hér í sólarhring. 12.7.2012 10:37
Óléttar konur eiga ekki að borða fyrir tvo Sagan segir að óléttar konur eigi að borða fyrir tvo en staðreyndirnar tala öðru máli. Fjallað er um málið á fréttamiðli BBC. 12.7.2012 17:16
Strandveiðar stöðvast á svæði B eftir helgi Strandveiðar á svæði B munu stöðvast á þriðjudaginn næsta. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið sendi frá sér auglýsingu þess efnis í dag. Svæðið er frá Strandabyggð til Grýtubakkahrepps á norðurlandi. 12.7.2012 12:47
Fá að kynnast lífsháttum frumbyggja Almenningi verður um helgina boðið að setja sig í fótspor frumbyggja í Viðey. Skátar í Landnemum munu kenna áhugasömum að reisa skýli, kveikja eld og ýmislegt fleira sem var frumbyggjum lífsnauðsynlegt á árum áður. 12.7.2012 11:59
Vaxtamöguleikar í skógrækt á Íslandi óendanlegir Á næstu 20 árum má gera ráð fyrir um 600 ársverkum við grisjun nytjaskóga á Íslandi. Aðalsteinn Sigurgeirsson á Mógilsá, forstöðumaður rannsóknarstöðvar skógræktar á Mógilsá, segir að þó það séu ekki mörg störf séu vaxtamöguleikarnir í greininni í raun óendanlegir. 12.7.2012 11:10
Björn Friðfinnsson látinn Björn Friðfinnsson lögfræðingur og fyrrverandi ráðuneytisstjóri lést þann 11. júlí síðastliðinn, 72 ára að aldri. Björn Friðfinnsson lögfræðingur og fyrrverandi ráðuneytisstjóri lést þann 11. Júlí síðastliðinn, 72 ára að aldri. Björn átti að baki langan og farsælan starfsferil í opinberri stjórnsýslu. Hann starfaði sem ráðuneytisstjóri í viðskiptaráðuneyti, sameinuðu viðskipta- og iðnaðarráðuneyti og í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu. Hann var einn af framkvæmdastjórum ESA (EFTA Surveillance Authority) í Brussel, fjármálastjóri Reykjavíkurborgar og framkvæmdastjóri lögfræði-og stjórnsýsludeildar borgarinnar, fjármálastjóri Rafmagnsveitu Reykjavíkur, framkvæmdastjóri Kísiliðjunnar í Mývatnssveit og bæjarstjóri á Húsavík, formaður Almannavarnaráðs og formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga. 12.7.2012 11:09
Selurinn Eva fær ekki að koma til Íslands Dýravinir sem björguðu íslenskum sel sem villtist og synti til Lincolnskíris í Bretlandi vilja senda hann aftur til Íslands. Þau geta það hins vegar ekki vegna andstöðu íslenskra yfirvalda. Það var hópurinn Skegness Natureland sem bjargaði selnum Evu í desember síðastliðnum. Þau fengu þau svör að óttast væri að Eva myndi bera sjúkdóma með sér. Málið hefur vakið athygli í Bretlandi og gerir fréttastofa breska ríkisútvarpsins BBC því ítarleg skil í dag. 12.7.2012 10:14
Bændur eru sérlegir naglar Skráð vinnuslys meðal bænda eru mun færri en hjá öðrum stéttum. Yfirlæknir Vinnueftirlitsins telur að fleiri bændur verði fyrir vinnuslysum en tölur gefa til kynna en flestir harki af sér án þess að leita til Vinnueftirlitsins. Þetta kemur fram í Bændablaðinu í dag. 12.7.2012 09:59
Grímuklæddir menn ógnuðu starfsfólki með hnífi Tveir karlmenn um tvítugt, ruddust grímuklæddir inn á videoleigu og hótuðu bæði starfsfólki og viðskiptavinum með hnífi. Þetta átti sér stað í Bónusvideo í Fellahverfi í Breiðholti um hálf tíu leytið í gærkvöldi. 12.7.2012 09:50
Sveinn Andri: Niðurstaða héraðsdóms er "rock solid“ Ef Valitor ákveður að áfrýja dómi, um að fyrirtækinu beri að opna fyrir greiðsluþjónustu við WikiLeaks, verður það ekki á lögfræðilegum forsendum. Þetta segir Sveinn Andri Sveinsson, lögmaður DataCell, sem tekur við styrktarframlögum til Wikileaks. Sveinn Andri segir að rökstuðningur héraðsdóms sér "rock solid". 12.7.2012 16:04
Tónleikar til styrktar strokuþræl Tónleikar til styrktar strokuþrælnum Mohammed Lo verða haldnir á Faktorý í kvöld, 12. júlí. Fram koma hljómsveitirnar Retro Stefson, Ojba Rasta og Sudden Weather Change. 12.7.2012 15:45
Greinir ösku í kílómetra fjarlægð Breska lággjaldaflugfélagið EasyJet hefur hafið prófanir á öskunema sem á að lágmarka áhættu flugfarþega þegar flogið er um svæði mettað af eldfjallaösku. Eldgosið í Eyjafjallajökli árið 2010 og afleiðingar þess er stór þáttur í að þessi tækni er prófuð nú. 12.7.2012 08:00
Íslenskur salatbóndi leiðbeinir Kínverjum „Ég er mjög stoltur af hugmyndum þeirra um að láta peninga í þetta verkefni og gera það vel,“ segir Hafberg Þórisson, eigandi gróðrarstöðvarinnar Lambhaga, sem nýkominn er heim frá Kína þar sem hann ráðlagði heimamönnum um gróðurhúsaræktun. 12.7.2012 07:30
Eldur í bát norður af Siglufirði Eldur kom upp í vélarrúmi báts norður af Siglufirði um áttaleytið í gærkvöld. Engan sakaði og náðu skipverjar að ráða niðurlögum eldsins. 12.7.2012 07:03
Þyrla sótti slasaða konu í Landmannalaugar Kona slasaðist skammt frá Landmannalaugum, milli Bláhnjúka og Brennisteinsöldu um hálf níu leytið í gærkvöld. 12.7.2012 07:00
Góður árangur af aðgerðum hér 99 prósent sjúklinga sem fara í skurðaðgerðir vegna lungnakrabbameins á Íslandi lifa aðgerðina af og lífslíkur þeirra sem ganga undir aðgerðir hafa batnað mikið. Árangurinn af skurðaðgerðum hér á landi er mjög góður í alþjóðlegum samanburði. 12.7.2012 07:00
Lítið mál að flokka sorp - Fréttaskýring Það er lítið mál að umbylta ruslamálum þjóðarinnar, aðalatriðið er að fræða almenning. Þessu heldur Agnes Gunnarsdóttir fram. Hún er framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs hjá Íslenska gámafélaginu sem þjónar fjöldamörgum sveitarfélög um allt land. 12.7.2012 06:30
Fjórir handteknir eftir rán og innbrot Lögreglan handtók fjóra menn í tveimur málum í gærkvöldi og nótt. Í öðru málinu var um rán að ræða og innbrot í hinu. 12.7.2012 06:19
Bændum bannað að gera ógerilsneyddan ost Kúabændur furða sig á nýrri reglugerð sem heimilar ferðalöngum að flytja til landsins takmarkað magn af ógerilsneyddum ostum. Samkvæmt reglugerðum er íslenskum kúabændum óheimilt að framleiða ógerilsneyddar mjólkurvörur. 12.7.2012 06:00
Erfðabreytileiki hefur áhrif á Alzheimer Rannsóknir vísindamanna hjá Íslenskri erfðagreiningu hafa sýnt fram á erfðabreytileika í mönnum sem minnkar mjög líkur á Alzheimer-sjúkdómnum og öðrum elliglöpum. 12.7.2012 05:00
Sækja fótbrotna konu í Landmannalaugum Þyrla Landhelgisgæslunnar er á leið í Landmannalaugar að sækja slasaðan ferðamann. Um er að ræða konu sem virðist hafa fótbrotnað. Líklega verður konan flutt á Landspítalann í Fossvogi, þó það sé ekki endanlega útséð með það. 11.7.2012 21:20
Jón Magnússon: Yfirmaður öryggismála ætti að vera settur af "Það er ósköp eðlilegt að menn reyni að koma sér undan ábyrgð, en þetta er með því aumkunarverðasta sem maður hefur séð,“ segir hæstaréttarlögmaðurinn og fyrrverandi þingmaðurinn Jón Magnússon, sem gagnrýnir viðbrögð Isavia harkalega fyrir að hafa brugðist öryggishlutverki sínu. Jón ræddi við Reykjavík síðdegis í dag um málefni tveggja hælisleitenda sem komust inn á Keflavíkurflugvöll og um borð í flugvél Icelandair. Þar fundust þeir skömmu síðar á klósettinu. 11.7.2012 20:00
Gilenya tekið í notkun á Landspítalanum á næstunni MS-lyfið Gilenya verður tekið í notkun á Landspítalanum á næstunni. Formaður MS félags Íslands segir það ánægjuefni og hafa mikla þýðingu fyrir þá sjúklinga sem fá lyfið. 11.7.2012 19:45
Allir sjúkrabílar úti í verkefnum á sama tíma Annir urðu í sjúkraflutningum á sjötta tímanum í dag hjá Slökkviliði Akureyrar. Tveir bílar fóru í neyðarflutning fram í Eyjafjörð. 11.7.2012 19:39
Segir innanríkisráðherra þurfa að virða skipulagsvald Reykjavíkur Reykjavíkurborg fer með skipulagsvald á flugvallarsvæðinu og það verður innanríkisráðherra að virða eins og aðrir. Þetta segir formaður borgarráðs sem telur að áætlanir um íbúabyggð í Vatnsmýrinni standist og flugvöllurinn verði farinn þaðan árið 2024. 11.7.2012 19:30
Einn handtekinn á mótmælunum - segir lögregluna hafa farið offari "Það var sérkennilegt að sjá hversu mikill viðbúnaður var þarna,“ segir María Lilja Þrastardóttir, sem ásamt hópi mótmælenda tóku sér stöðu fyrir framan rússneska sendiráðið í dag til þess að sýna hljómsveitinni Pussy Riot samhug. Konurnar í hljómsveitinni voru handteknar í Rússlandi í mars síðastliðnum fyrir að halda pönktónleikar í kirkju þar sem þær kröfðust þess að Vladimar Pútin, forsætisráðherra Rússlands, yrði settur af. 11.7.2012 18:23
Breiðholtshrottanir: Rændu hálfri milljón af manni á sjötugsaldri Mennirnir tveir sem ruddust inn á heimili karlmanns á sjötugsaldri í Breiðholti á dögunum skulu sæta gæsluvarðhaldi til 13. júlí. 11.7.2012 17:28
Mótmæltu meðferðinni á Pussy Riot Hópur fólks kom saman við rússneska sendiráðið við Garðastræti í Reykjavík í dag til að mótmæla því að þrír af meðlimum rússnensku pönksveitarinnar Pussy Riot hafa verið úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald í Moskvu. 11.7.2012 16:46
Sjúklingar gleðjast yfir ákvörðun yfirvalda "Við hjá félaginu erum afskaplega glöð með að þetta fékk svona skjóta og góða afgreiðslu,“ segir Berglind Guðmundsdóttir, formaður MS félagsins. Ákveðið hefur verið að ríkið taki þátt í greiðslukostnaði vegna lyfsins Gilenya. Gilenya-meðferð verður veitt þeim MS sjúklingum sem hafa nú þegar reynt MS-lyfið Tysabri og orðið að hætta notkun þess. 11.7.2012 15:38
Langt í mikla timburframleiðslu Það verður ekki fyrr en eftir um 20 ár að almennilegur skriður kemst á timburframleiðslu á Íslandi að sögn Brynjólfs Jónssonar, framkvæmdastjóra Skógræktarfélags Íslands. Brynjólfur er þó viss um að þegar fram líða stundir verði hægt að framleiða timbur á Íslandi. Það tekur hins vegar langan tíma. 11.7.2012 15:31
Karlmaður tekinn ölvaður á reiðhjóli Karl á fimmtugsaldri var stöðvaður í austurborginni í gærmorgun. Sá var á reiðhjóli en ófær um að stjórna því enda ölvaður. Sami maður kom svo aftur við sögu lögreglu í hádeginu, en þá var hann kominn í miðborgina og var til ófriðar í ónefndri verslun. Maðurinn var handtekinn og vistaður í fangageymslu, en sleppt nokkru síðar. Afskiptum af manninum var hins vegar ekki lokið þann daginn því í gærkvöldi varð hann aftur á vegi lögreglunnar. Þá virtist reyndar verið runnið af honum, en það breytti því ekki að hann hafði tekið ýmsa hluti. Grunur lék á því að um þýfi væri að ræða og var manninum gert að afhenda hlutina, sem og hann gerði mótþróalaust. 11.7.2012 15:00
Verðlaunahafar í ljósmyndakeppni Vísis og WOW Gríðarleg þátttaka var í ljósmyndakeppni Vísis og WOW Air sem fór fram í júní. Alls bárust inn um fjögurþúsund myndir og skiptust þær í þrjá flokka, náttúru, fólk og húmor. Þær tíu myndir sem fengu flest like í hverjum flokki fóru í úrslit og það var fagnefnd skipuð ljósmyndadeild Fréttablaðsins og Vísis, fulltrúum Vísis og WOW Air sem valdi á milli þeirra. 11.7.2012 14:27
Brynjar rassskellir fjölmiðla Brynjar Níelsson, fyrrverandi formaður Lögmannafélagsins, hellir sér yfir fjölmiðla í bloggi á Pressunni í dag. Tilefnið er upphrópanir í fjölmiðlum í kjölfar niðurstöðu Mannréttindadómstóls Evrópu um að íslenska ríkið hefði brotið mannréttindi á tveimur blaðakonum. 11.7.2012 14:47
Dýrðlegt veður í dag Veðrið á Íslandi er í einu orði sagt dýrðlegt í dag, hvert sem farið er. Eins og meðfylgjandi mynd ber með sér var víðast heiðskírt í hádeginu. Helga Ívarsdóttir veðurfræðingur segir þó að það sé örlítið skýjað fyrir austan, aðeins við Eyjafjörðinn og við Höfn sé hálfskýjað. Veðurspáin fyrir næstu daga lítur vel út. "Við gefum út spá fram á þriðjudag og það er í raun og veru bara mjög fín spá, hæglætisveður og hlýtt í veðri,“ segir Helga. Hún segir að hugsanlega verði fólk vart við einstaka dropa á stöku stað en það verði minniháttar. Víðast hvar verði bjart. 11.7.2012 14:40
Brátt hægt að framleiða timbur úr íslenskum skógum Skógarbætur gætu framleitt timbur fyrir um milljarð króna á ári áður en langt um líður. Þetta kom fram í fréttum Ríkissjónvarpsins í gær. Framleiðslan ætti að geta hafist strax á næsta ári. 11.7.2012 14:13
Nýtt MS lyf samþykkt Greiðsluþátttaka ríkisins í MS lyfinu Gilenya hefur verið samþykkt, en Landspítalinn óskaði eftir flýtimeðferð á afgreiðslu umsóknar um innleiðingu lyfsins þann 28. júní síðastliðinn. 11.7.2012 14:12
Sakar stjórnvöld um að þverbrjóta reglur varðandi flóttamenn Íslensk stjórnvöld hafa þverbrotið alþjóðlegar reglur um meðhöndlun flóttamanna. Þetta segir formaður nýstofnaðra samtaka sem hafa það að markmiði að varpa ljósi á málefni flóttafólks og hælisleitenda á Íslandi. 11.7.2012 13:10
Slökkviliðsstjóri hefur áhyggjur af þurrkum Slökkviliðsstjórinn í Árnessýslu hefur vaxandi áhyggjur af langvarandi þurrkum á Suðurlandi. Hann segir slökkviliðið vera skíthrætt við einnota grill og önnur ný tæki sem geta verið mjög varasöm úti í náttúrunni. 11.7.2012 12:53
Hringtorg við Rauðavatn lokað í kvöld Í kvöld eru fyrirhugaðar malbikunarframkvæmdir í hringtorgi við Rauðavatn á mótum Suðurlandsvegar og Breiðholtsbrautar. Vegna þessa verður hringtorgið lokað að hluta frá klukkan 21 og fram eftir nóttu. Opið verður fyrir umferð að austan til vesturs fram eftir kvöldi, svo verður lokuninni snúið við. Um eða eftir miðnætti gæti orðið um tímabundna lokun að ræða. Settar verða upp merktar hjáleiðir í gegnum Norðlingaholt og Árbæ. Vegfarendur eru beðnir um að sýna aðgát. 11.7.2012 12:13
Hallveigarliðar harma fyrirhugaðar breytingar á miðbænum Ungir Jafnaðarmenn í Reykjavík harma fyrirhugaðar endurbætur á Ingólfstorgi, Fógetagarðinum og Austurvelli. 11.7.2012 11:42
Segir ráðningar án auglýsinga grafa undan trausti á ríkinu Umboðsmaður Alþingis vill að þeir sem hafa ráðningarvald hjá hinu opinbera gæti betur að því sem býr að baki lögum um auglýsingaskyldu. Hann telur að með því sé hægt að auka traust á stjórnsýslunni. Þá telur hann mikilvægt að þegar auglýst er, sé ráðið í störfin í samræmi við þau sjónarmið sem fram koma í auglýsingu. 11.7.2012 11:30
Bílastæði gert vistvænna Við sportvöruverslunina Tri við Suðurlandsbraut getur nú að líta venju fremur vistvænt bílastæði. Eigendur verslunarinnar ákváðu að tími væri til kominn að gera hjólafólki hátt undir höfði og lögðu eitt bílastæði undir hjólagrind. Stæðið hefur vakið lukku meðal hjólafólks en stæðið er beint fyrir framan innganginn. Að sögn eiganda var hugmyndin sú að veita hjólafólki besta aðgengið að búðinni enda er hún ætluð m.a. fyrir hjólreiðarmenn. 11.7.2012 11:29
Jakob Frímann fær lífsýni úr Davíð Stefánssyni Jakob Frímann Magnússon tónlistarmaður mun fá að gang að lífsýnum Davíðs Stefánssonar skálds frá Fagraskógi og tveggja annarra einstaklinga, samkvæmt úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur frá í morgun. Þetta kemur fram á mbl.is Jakob hyggst nýta lífsýnin til ættfræðirannsókna 11.7.2012 11:23