Sýknuð af ákæru um 50 milljóna króna fjárdrátt Jón Hákon Halldórsson skrifar 13. júlí 2012 15:08
Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í dag konu sem er fyrrverandi starfsmaður við einkabankaþjónustu á eignastýringarsviði Kaupþings af ákæru um að hafa dregið sér samtals 50 milljónir króna sem voru söluandvirði skuldabréfa og víxla sem konan aðstoðaði seljendur við að gefa út. Konan millifærði söluandvirði verðbréfanna af bankareikningum kaupenda bréfanna inn á sinn eigin bankareikning í stað þess að ráðstafa því í þágu seljenda , eins og sagði í ákæru. Konan játaði að hafa lagt söluandvirði bréfanna inn á eigin reikning, en sagði að um hefði verið að ræða endurgreiðslu á lánum sem hún hafi veitt seljendum bréfana til kaupa á þeim. Héraðsdómur Reykjavíkur segir að skýringar konunnar séu í samræmi við frásagnir eigenda þeirra félaga sem seldu bréfin, en þar var um að ræða félögin Yl-hús og Hraunbær 107. Þá segir Héraðsdómur Reykjavíkur jafnframt að ekki hafi farið fram nein rannsókn á því hvort fé vanti inn í sjóði félaganna. Bókhald þeirra virðist ekki hafa verið rannsakað nema að hluta til. Sönnunarbyrði hvíli að meginstefnu til á ákæruvaldinu og þar sem rannsókn málsins sé ekki tæmandi, sé ekki unnt að leggja eitthvað upp úr því að ákærða kveðst hafa glatað gögnum máli sínu til stuðnings. Það var á þessum forsendum sem Héraðsdómur sýknaði konuna.
Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Fleiri fréttir Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm Sjá meira