Innlent

Valitor og Borgun hafna aðdróttunum Árna Þórs

Viðar Þorkelsson, forstjóri Valitor.
Viðar Þorkelsson, forstjóri Valitor.
Valitor og Borgun hafnaa alfarið því sem fyrirtækin kallaa aðdróttanir Árna Þórs Sigurðsson, þingmanns Vinstri Grænna. Fyrr í dag sagði Árni að Valitor hefði hugsanlega verið tvísaga þegar það var kallað fyrir Allsherjarnefnd ásamt Borgun en fyrirtækin ákváðu að loka fyrir greiðslugátt WikiLeaks á síðasta ári.

Í samtali við fréttastofu sagði Haukur Oddson, forstjóri Borgunar, það vera af og frá að fyrirtækið hafi logið að Alþingi.

„Við höfnum því alfarið að hafa verið tvísaga," segir Haukur. „Enda hefur Borgun aldrei verið í viðskiptum við WikiLeaks."

Í fréttatilkynningu frá Valitor kemur fram að það sé ekki rétt að fyrirtækið hafi verið í viðskiptasambandi við WikiLeaks eða DataCell í desember 2010 þegar Allsherjarnefnd Alþingis fjallaði um málið.

Haukur Oddson, forstjóri Borgunar.
Það hafi hins vegar verið danska stórfyrirtækið Teller sem veitti WikiLeaks greiðsluþjónustu í gegnum fyrirtækið Kortaþjónustan á Íslandi á þessum tíma.

Þá hafi lokun Valitor á DataCell ekki átt sér stað fyrr en 7 mánuðum seinna og þá tengt öðru máli og eftir að DataCell hafði veitt rangar upplýsingar í umsókn sinni til Valitor og þannig komist í viðskipti við félagið um hríð.

„Það er því ljóst að Árni ruglar þessum tveimur aðskildu málum saman," segir fréttatilkynningunni.

Þá segir Valitor að fyrirtækið hafi aldrei verið umboðsaðili fyrir Teller, líkt og Árni staðhæfir. „Gera verður þær lágmarkskröfur til þingmanna að þeir setji sig inn í málin áður en þeir tjá sig opinberlega um slík mál," segir í tilkynningu.


Tengdar fréttir

Spyr hvort forsvarsmenn Valitors og Borgunar hafi logið að Alþingi

Árni Þór Sigurðsson, þingmaður Vinstri grænna, segir á Facebook-síðu sinni að Valitor og Borgun hafi hugsanlega verið tvísaga þegar þeir voru kallaðir fyrir á fund Allsherjarnefndar þegar fyrirtækin ákváðu að loka fyrir greiðslugátt WikiLeaks á síðasta ári. Áður hafði danska fyrirtækið Teller gert slíkt hið sama.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×