Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Vegfarendum beint annað Aðkoma bíla og götur umhverfis mótsstað Landsmóts hestamanna í Víðidal í Reykjavík anna ekki umferð þúsunda bíla. Umferðarstofa hefur því hvatt vegfarendur og íbúa í hverfinu umhverfis mótstaðinn til að hjóla eða ganga um svæðið, annars velja aðrar leiðir. 28.6.2012 02:45
ETS-kerfið fyrir losun tilbúið Umhverfisstofnun (UMST) hefur opnað ETS-skráningarkerfið fyrir losunarheimildir fyrir allt EES-svæðið. Kerfið er rekið miðlægt af framkvæmdastjórn Evrópusambandsins en UMST heldur utan um og hefur umsjón og eftirlit með kerfinu hér á landi. 28.6.2012 02:30
Nýr Stúdentakjallari byggður Félagsstofnun stúdenta hefur undirritað samning við Íslenska aðalverktaka um byggingu 561 fermetra Stúdentakjallara í viðbyggingu við Háskólatorg. Að auki verður torgið sjálft stækkað um 238 fermetra og 194 fermetra geymslu- og sorpbygging reist. 28.6.2012 02:15
Tom Cruise farinn frá Akureyri Tom Cruise er farinn frá Akureyri. Nágrannar hans við lúxusvilluna Hrafnabjörg, gegnt Akureyri, þar sem leikarinn góðkunni hefur dvalið undanfarið fullyrða, í samtali við Akureyri Vikublað, að gæslubílll sé farinn þaðan og að flutningabíll hafi sótt dót sem leikarinn hafði með sér. Leikarinn góðkunni er staddur hér á landi til að taka upp myndina Oblivion, eins og þekkt er orðið. 28.6.2012 00:01
Gefa vöfflur og benda á skaðsemi hvalveiða SEEDS sjálfboðaliðar munu fræða vegfarendur um skaðsemi hvalveiða á Reykjavíkurhöfn næsta föstudag milli 11 og 14. Uppákoman er hluti af átakinu "Meet us, don't eat us". 27.6.2012 23:56
"Ég hefði eins getað keypt fjandans bílinn“ Jack Ass stjarnan Bam Margera hefur lent í ýmsum ævintýrum í dvöl sinni hér á landi, en hann þurfti meðal annars að greiða 1,2 milljónir króna vegna skemmda á bílaleigubíl sem hann var með á leigu. Fréttastofa rakst á hann á göngu á Hverfisgötu í dag, þar sem hann sagðist hafa málað bílinn. 27.6.2012 23:48
Forsetaefnin á þeytingi Keppinautarnir um Bessastaði eru á þeytingi núna á lokaspretti kosningabaráttunnar og það er æði margt sem brennur á kjósendum, eins og Lóa Pind Aldísardóttir komst að í hádeginu þegar hún fylgdi þeim eftir sem líklegastir eru til að fagna sigri á sunnudaginn. 27.6.2012 22:33
Telja að útflutningur á hestum muni aukast Íslenskir hestamenn telja að útflutningur hesta komi til með að aukast á árinu. Útflutningurinn minnkaði verulega í kjölfar hestapestarinar sem hér geisaði árið 2010. 27.6.2012 22:28
Aukinn stuðning þarf svo 85% hreyfi sig árið 2020 Þórdís Lilja Gísladóttir, sérfræðingur um íþróttir og heilsu, telur gerlegt að ná markmiði borgarstjórnar að meira en 85% borgarbúa stundi skipulega hreyfingu árið 2020. Hún segir hins vegar að til þess þurfi að koma stuðningur og fjármagn frá borginni til íþróttafélaga. 27.6.2012 22:06
Fyrsti dagurinn í fríinu var hrein martröð Íslenskir þremenningar lentu í gær í þeim hörmungum að vera rændir rétt fyrir utan Malaga á Spáni stuttu eftir að þeir stigu útúr flugvélinni. 27.6.2012 21:13
Fíkniefnastríðið er ekki tapað Stríðið við fíkniefni eins og við þekkjum það er ekki tapað. Við ætlum ekki að breyta okkar afstöðu eða aðferðum í bili. Þetta segir Héðinn Svarfdal Björnsson, fyrir hönd embætti Landslæknis. 27.6.2012 20:49
"Ég er eini lögreglumaðurinn á vakt í Þingeyjarsýslu“ Í kvöld er einn lögreglumaður á vakt á Norðaustur-landi á svæði sem spannar frá Víkurskarði og austur á Bakkafjörð. "Ég er eini lögreglumaðurinn á vakt í Þingeyjarsýslu. Og það eru ekki til peningar til að leysa menn af. Ef að ég myndi veikjast þá yrði bara lokað. Þá yrðu menn bara ræstir út ef upp kæmu neyðartilvik," segir lögreglumaður á vakt á Húsavík. 27.6.2012 19:42
Lottóvinningshafinn óskar nafnleyndar Konan sem vann 73 milljónir í lottó á dögunum og gaf sig fram í gær hefur óskað nafnleyndar. Þetta segir Stefán Konráðsson, framkvæmdastjóri Íslenskrar getspár. Almenningur mun því ekki fá að vita hver þessi heppna kona er. 27.6.2012 17:39
Milljóna króna halli hjá kaffistofu Samhjálpar Það stefnir í milljóna króna halla á rekstri kaffistofu Samhjálpar í ár. Rekstrarstjórinn segir fordóma ríkja til kaffistofunnar. Þó fjölgi skjólstæðingum þeirra um leið og matvælaaðstoð annarra hjálparsamtaka fer í sumarfrí. 27.6.2012 20:18
Mótmælir mosku með bréfi prýddu hauskúpu Íbúar í grend við Sogamýri hafa margir fengið bréf þar sem varað er við byggingu mosku á svæðinu og hætta sem bréfritari telur stafa af múslíum er tíunduð. Formaður Félags múslíma á Íslandi segir áróðurinn svipaður ruglinu í Breivik. 27.6.2012 20:02
Guðrún orðin fyrsti kvenkyns bæjarstjóri Hafnafjarðar Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir var í dag ráðin bæjarstjóri í Hafnarfirði. Hún tekur við af Guðmundi Rúnari Árnasyni sem hefur verið bæjarstjóri frá því í júlí 2010. Bæjarstjóraskiptin eru hluti af samkomulagi sem meirihluti Samfylkingar og Vinstri grænna í Hafnarfirði gerðu í upphafi kjörtímabilsins. 27.6.2012 19:03
Lögreglustjóri hvetur stjórnsýsluna til að byrja á facebook Stefán Eiríksson, lögreglustjóri, segir notkun samfélagsmiðla mikilvæga fyrir lögregluna í nýjum pistli. Hann segir lögregluna hafa jákvæða reynslu af notkun samfélagsmiðla og telur að hægt sé að yfirfæra hana á alla aðra opinbera starfsemi. 27.6.2012 18:28
Dómari á ekki að víkja sæti vegna hrákans Héraðsdómarinn Sveinn Sigurkarlsson er ekki vanhæfur til að fara með mál ákæurvaldsins gegn Berki Birgissyni, Annþóri Kristjáni Karlssyni og fleirum. Hæstiréttur felldi úr gildi úrskurð dómarans um að hann væri vanhæfur til að fara með sakamálið vegna þess að Börkur hrækti á annan dómara við sama dómstól. 27.6.2012 17:57
Heimsmeistari úr leik Heimsmeistarinn í fjórgangi í hestaíþróttum er úr leik á Landsmótinu í Víðidal eftir að hún viðbeinsbrotnaði í keppni í b-flokki gæðinga í gær. Heismeistarinn, Berglind Ragnarsdóttir, var að keppa á Frakki frá Laugavöllum þegar óhappið varð. Hún segir að það hafi verið bleyta á vellinum sem olli því að hesturinn rann og missti fótana þegar hann var á stökki 27.6.2012 13:13
Mekka íslenska hestsins er á Íslandi Sigurbjörn Bárðarson segir mikilvægt að selja graðhesta úr landi. Í viðtali í útvarpsþættinum Reykjavík síðdegis í dag var hann spurður hvort hestamenn væru að skjóta sig í fótinn með því að selja graðhesta úr landi og hvort hestaræktin myndi þá ekki færast alfarið til útlanda. 27.6.2012 00:02
Karl afhenti lyklana Karl Sigurbjörnsson, fráfarand biskup, afskrýddist biskupskápu sinni við athöfn við lok prestastefnu í Dómkirkjunni í dag. Hann afhenti svo Agnesi M. Sigurðardóttur nývígðum biskupi lykla embættisins. Agnes tekur svo formlega við störfum á biskupsstofu á mánudag. Sömuleiðis afhenti Karl henni hirðisstaf biskups sem var gjöf rússnesku kirkjunnar til embættisins og minnti hana í leiðinni á mikilvægi gestrisninnar. 27.6.2012 18:57
Viðræður um verksamning hófust í dag "Ég met það þannig að verkframkvæmdir, ef allt gengur eftir, gætu verið að hefjast í byrjun september," segir Karl Þráinsson, forstjóri ÍAV, eftir fyrsta fund með Vegagerðinni í dag um gerð verksamnings vegna Vaðlaheiðarganga. Karl býst við að einhverjar vikur taki að ganga frá samningum, því verksamningurinn er ekki sá eini. Hlutafélagið Vaðlaheiðargöng þarf að gera lánasamning við fjármálaráðuneytið og síðan að semja við Vegagerðina um að halda utan um verkefnið, en hún mun væntanlega koma fram sem verkkaupi gagnvart verktökunum, ÍAV og Marti. 27.6.2012 18:15
Meintum barnaníðingi gert að yfirgefa réttarsal Karlmanni, sem er ákærður fyrir að hafa beitt stúlku og dreng kynferðislegt ofbeldi, er gert að yfirgefa réttarsalinn á meðan þau bera vitni. Hæstiréttur Íslands staðfesti úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur. 27.6.2012 16:53
Náttfari missti afl Skipverjar á hvalaskoðunarskipinu Náttfara urðu varir við gangtruflanir í skipinu rétt fyrir tvö í dag og ákváðu að drepa á aðalvél skipsins. Aflandsvindur var og engin hætta á ferð og því ákveðið að taka bátinn í tog af öðrum bát félagsins. Til að gæta fyllsta öryggis var Björgunarsveitinni Garðari gert viðvart og fór hún á vettvang á hraðbát. 27.6.2012 16:39
Kanadískur ferðamaður endurheimti farangur sinn Kanadískur ferðamaður varð fyrir því óláni um helgina að farangri hans var stolið á hóteli, sem hann gisti á í miðborginni. 27.6.2012 16:29
Nýr biskup tekinn við lyklavöldum Prestastefnu lauk í dag með athöfn í Dómkirkjunni. Að lokinni guðþjónustu og altarisgöngu afhenti Karl Sigurbjörnsson,fráfarandi biskup Íslands, nývígðum biskupi, Agnesi Sigurðardóttur, lykla embættisins. Agnes biskup mun formlega hefja störf á biskupsstofu á mánudaginn næstkomandi, en hún var vígð í embættið síðastliðinn sunnudag. 27.6.2012 15:26
Lífshættulegt að leyfa börnum að hlaupa meðfram bílum Það er mjög hættulegt þegar vegfarendur ganga eða hlaupa meðfram ökutækjum sem eru á hreyfingu. Sérstaklega þarf að gæta varúðar þegar börn eiga í hlut. Ökumenn geta hæglega misst sjónar af börnum vegna smæðar þeirra. Þetta kemur fram í varnaðarorðum Rannsóknarnefndar umferðarslysa sem lauk nýverið rannsókn fimm banaslysa í umferðinni sem urðu árið 2011. 27.6.2012 14:00
Morðrannsókn eftir gassprengju í Oldham Lögreglurannsókn er hafin eftir að barn deyr í gassprengju í Oldham, Bretlandi. 27.6.2012 13:35
Börkur dæmdur í hálfs árs fangelsi Börkur Birgisson var dæmdur í 6 mánaða fangelsi fyrir brot gegn valdstjórninni þegar hann hrækti á skikkju héraðsdómara og kallaði hana "tussu“. Börkur mætti ekki fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur í morgun að eigin ósk en síðast þegar hann mætti þangað reyndi ungur karlmaður að koma úlpu í hans hendur þvert á vilja lögreglunnar. Sá var handtekinn og verður líklega einnig ákærður fyrir brot gegn valdstjórn. 27.6.2012 11:37
Oddný komin í hóp olíumálaráðherra og olíuforstjóra Oddný Harðardóttir iðnaðarráðherra er fulltrúi Íslands á ráðherrafundi um olíuleit á Norðurslóðum, sem fram fer í Þrándheimi í Noregi í dag. Olíu- og orkumálaráðherrar ríkja við Norðurskautið eru meðal þátttakenda á fundinum ásamt fulltrúum stærstu olíufyrirtækja heims, eins og ExxonMobil, BP, Statoil, Gazprom, ConocoPhilips og Shell. 27.6.2012 11:02
Útgefnum vegabréfum fjölgaði um 10% milli ára í maí Í maí s.l. voru gefin út 6.344 íslensk vegabréf. Til samanburðar voru gefin út 5.753 vegabréf í maí í fyrra. Fjölgar því útgefnum vegabréfum um 10,3 % milli ára. 27.6.2012 10:02
Tófa á tölti um Garðabæ í morgun Ökumaður sem var að aka framhjá golfvelli Oddfellowa í Garðabæ í morgun sá hvar tófa rölti yfir veginn ekki fjarri afleggjaranum inn í Heiðmörk. "Tófan labbaði bara yfir veginn," sagði Úlfar Antonsson líffræðingur en hann var að aka eftir svokölluðum Ofanbyggðavegi á milli golfvallarins og Vífilsstaðavatns um hálfsjöleytið. "Ætli hún hafi ekki verið að koma úr mat í Garðabænum," sagði Úlfar. "Tófurnar eru miklu nær okkur en við höldum. Þær eru alveg ofan í byggðinni." Úlfar segir að tófan hafi ekki virst hrædd. Hann kvaðst hafa verið á Snæfellsnesi fyrir nokkrum dögum og séð þá tófu í Breiðuvík. "Hún hegðaði sér allt öðruvísi og var stressuð. Þessi sem ég sá í morgun var miklu rólegri. Tölti bara í rólegheitum yfir í veginn og hvarf svo inn í kjarrið," sagði Úlfar. 27.6.2012 09:30
Yfir tíu skip komin á makrílveiðar Tíu til 15 skip eru nú byrjuð makrílveiðar hér við land og veiðist hann bæði út af Suðausturlandi, Suðurlandi og Vesturlandi. 27.6.2012 07:23
Þyrla sótti veikan mann á Arnarvatnsheiði Karlmaður veiktist alvarlega þegar hann var staddur í litlu veiðihúsi á Arnarvatnsheiði í gærkvöldi. Þar sem hann þótti sýna einkenni heilablóðfalls var óskað eftir þyrlu Gæslunnar, sem sótti hann og kom með hann til Reykjavíkur á öðrum tímanum í nótt, þar sem hann var lagður inn á Landsspítalann. 27.6.2012 07:08
Ógnuðu starfsmanni í ráni í söluturni Rán var framið í söluturni við Langholtsveg í Reykjavík upp úr klukkan níu í gærkvöldi. Af skeyti frá lögreglu má ráða að fleiri en einn hafi verið þar að verki og hafi þeir ógnað starfsmanni og komist undan með einhverja fjármuni. 27.6.2012 07:05
Lífshættuleg flog vegna lyfja Ný samheitalyf við flogaveiki hafa að undanförnu orsakað alvarleg flog hjá sjúklingum. Dæmi eru um að einstaklingar sem hafa verið lausir við flog í mörg ár verði alvarlega veikir eftir að hafa verið teknir af lyfinu Keppra og settir á samheitalyf. 27.6.2012 07:00
Fólk hvatt til að láta mæla sig Allir sem eru með öndunarfæraeinkenni eins og hósta eða áreynslumæði eru hvattir til að fara í öndunarmælingu vikuna 24. júní til 1. júlí. Alþjóðlegur dagur öndunarmælinga er í dag. 27.6.2012 06:45
Töluvert tjón í eldsvoða á Selfossi Töluvert tjón varð á húsnæði og á munum innanstokks, þegar eldur kviknaði í nytjamarkaði Hvítasunnusafnaðarins vi Eyrarveg á Selfossi í gærkvöldi. 27.6.2012 06:33
Stjórnsýslan verður gerð aðgengilegri Stýrihópur um rafræna stjórnsýslu og rafrænt lýðræði kom til fyrsta fundar á mánudag en verkefni hópsins er að vinna úr tillögum nefndar um eflingu sveitarstjórnarstigsins varðandi rafræna stjórnsýslu og lýðræði. Hópnum er ætlað að skila áfangaskýrslu til innanríkisráðherra í október. 27.6.2012 06:30
Lifandi pöddur hjá Yggdrasil Yggdrasill heildverslun hefur innkallað hýðishrísgrjón og döðlur eftir að aðskotahlutir fundust í vörupakkningum frá fyrirtækinu. Um var að ræða lítil lifandi skordýr. 27.6.2012 06:15
Vilja veðbanka á kappreiðarnar "Við erum ekki alveg úrkula vonar um að leyfið fáist endurnýjað, svo menn geti starfrækt veðbanka á kappreiðunum. Það væri gaman ef menn mættu veðja aðeins á þann hest sem þeir telja líklegastan,“ segir Haraldur Þórarinsson, formaður Landssamtaka hestamannafélaga. 27.6.2012 06:00
Hafa vart undan að tína rusl í hrauninu Árvakur lesandi sendi Fréttablaðinu ábendingu um mikið rusl við Krýsuvíkurveg í Hafnarfirði. 27.6.2012 05:45
Lögreglumaður káfaði á stúlku Héraðsdómur Norðurlands vestra hefur dæmt fyrrverandi lögregluvarðstjóra í hálfs árs fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn fimmtán ára dóttur vinahjóna sinna. Honum er jafnframt gert að greiða stúlkunni 300 þúsund krónur í miskabætur. 27.6.2012 05:15
Þrjú ár ætluð í þriðja bindið Bæjarráð Akraness hefur samþykkt samning við Hjálmar Gunnlaug Haraldsson um áframhaldandi ritun Sögu Akraness. Tvö bindi, sem ná út átjándu öld, eru þegar komin út en áætlað er að ritun þriðja bindis fari fram á árunum 2012 til 2014. Einn bæjarfulltrúinn sagði að vegna fjárhagsstöðu Akraneskaupstaðar teldi hann ekki forsvaranlegt að ganga til samninga um ritun þriðja bindis Sögu Akraness. Verkið hefur verið gagnrýnt vegna mikils kostnaðar sem þegar er kominn yfir eitt hundrað milljónir króna. Þá hafa verið skiptar skoðanir meðal gagnrýnenda um vinnubrögð höfundarins.- gar 27.6.2012 05:00
Húsbíll tókst á loft og endaði í skurði Hjónin Vilhelm Guðbjartsson og Guðrún Ragnarsdóttir lentu í kröppum dansi á dögunum þegar þau óku milli Hofsóss og Siglufjarðar. Húsbíll þeirra tók á sig vindhviðu og valt að minnsta kosti tvær veltur út af veginum áður en hann staðnæmdist í skurði undir vegbrúninni. 27.6.2012 04:45