Fleiri fréttir Íslendingar fylgja ákvörðunum annarra Lene Espersen fer fyrir Evrópunefnd danska þingsins sem er í heimsókn hér á landi. Hún er bjartsýn á að viðunandi lausnir finnist á landbúnaðar- og sjávarútvegsmálum Íslendinga í aðildarviðræðum við ESB. Hún segir aðild hafa gefið Dönum ótalmörg tækifæri og telur skynsamlegt fyrir Ísland að ganga í ESB til að taka þátt í ákvörðunum. Nú þurfi Ísland að fylgja ákvörðunum annarra ríkja í gegnum EES. 27.6.2012 02:45 Kópavogsbær fær gæðavottun Kópavogsbær hefur fyrst íslenskra sveitarfélaga hlotið alþjóðlega vottun (ISO 9001) fyrir gæðakerfi stjórnsýslusviðs. Unnið hefur verið að innleiðingu gæðakerfisins síðustu misseri. Markmiðið er að tryggja góða og skilvirka þjónustu, gagnsæja stjórnsýslu, aukið öryggi og bætt eftirlit með kostnaði. 27.6.2012 02:45 Verður kynnt á Ríó-ráðstefnu Sameinaði leikskólinn Drafnarborg og Dvergasteinn fékk fyrstu verðlaun fyrir verkefni sitt í samkeppni sem helguð var degi umhverfisins í Belgíu. 27.6.2012 02:30 Eldi á flúru getur hafist Umhverfisstofnun hefur gefið út starfsleyfi fyrir fiskeldisstöð Stolt Sea Farm Holdings Iceland hf. við Reykjanesvirkjun. 27.6.2012 02:15 Vel gekk að slökkva eldinn Eldur kom upp í viðbyggingu við Nytjamarkaðinn á Eyravegi 3 á Selfossi um klukkan átta í kvöld. Allt tiltækt slökkvilið var sent á vettvang og vel gekk að slökkva eldinn. 26.6.2012 23:26 Fyrsta kartöfluuppskeran hálfum mánuði fyrr en vant er Fyrsta kartöfluuppskeran er komin í hús á Auðsholti í Hrunamannahreppi.Uppskeran fer beint á bændamarkað á Flúðum. 26.6.2012 22:18 Löggan gerir status um hraðamælingar Lögreglan hefur tekið upp á því að láta vita fyrirfram á Facebook hvar hún er við hraðamælingar. 26.6.2012 22:02 Hannes trúir á Guð Hannes Bjarnason, forsetaframbjóðandi, er kristinn og trúir á Guð. Þó hann sé ekki alltaf sammála því sem prestar segja í prédikunum sínum segir hann barnatrúna hafa hjálpað sér á erfiðum stundum. 26.6.2012 21:38 Varð stjörf þegar hún frétti af stórvinningnum Lottóvinningshafinn sem vann 73 milljónir 9. júní og leitað hefur verið síðustu vikurnar varð stjörf þegar hún heyrði af tíðindunum. Hún keypti miðann um leið og hún setti bensín á bílinn sinn og hafði ekki hugmynd um að hún hefði hlotið stórvinning þegar hún bað um að farið væri yfir miðann hennar í gær. 26.6.2012 21:32 Andrea styður þjóðaratkvæðagreiðslu um samband ríkis og kirkju Andrea Ólafsdóttir fær ekki skilið hvers vegna ekki hefur verið haldin þjóðaratkvæðagreiðsla um samband ríkis og kirkju. "Samband ríkis og kirkju er ekki órjúfanlegt og það á að vera í höndum þjóðarinnar að ákveða það,“ segir hún. 26.6.2012 21:20 Eldur á Selfossi Eldur kom upp í gámi við Nytjamarkaðinn á Eyravegi 3 á Selfossi rétt í þessu. Eldurinn barst frá gámnum og yfir í húsnæði þar við hliðina á. Allur tiltækur mannskapur slökviliðsins á Selfossi var kallaður út. Þegar hefur tekist að ráða niðurlögum eldsins. Að sögn er uppi grunur um íkveikju. Fréttastofa mun greina nánar af framvindu mála þegar upplýsingar berast. 26.6.2012 20:52 Eldur fyrir ofan Gallerí 17 Eldur kom upp á þriðju hæð við Laugarveg 91 í kvöld. Mikill reykjarmökkur stóð upp af húsnæðinu. Allt tiltækt lið slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu var sent á staðinn. Fljótlega kom þó á daginn að eldsvoðinn var minniháttar og öllu liðinu var snúið við nema einum dælubíl. Slökkvilið réði fljótt niðurlögum eldsins með handslökkvitækjum. 26.6.2012 20:04 Alþjóðleg handtökuskipun á hendur Íslendingi Alþjóðleg handtökuskipun hefur verið gefin út á hendur Íslendingi sem grunaður er um aðild að umfangsmiklu kókaínsmygli hingað til lands. Tveir aðrir hafa setið í gæsluvarðhaldi í mánuð vegna málsins. 26.6.2012 19:28 Bannað að henda pappír með almennu sorpi 26.6.2012 19:15
Sjá næstu 50 fréttir
Íslendingar fylgja ákvörðunum annarra Lene Espersen fer fyrir Evrópunefnd danska þingsins sem er í heimsókn hér á landi. Hún er bjartsýn á að viðunandi lausnir finnist á landbúnaðar- og sjávarútvegsmálum Íslendinga í aðildarviðræðum við ESB. Hún segir aðild hafa gefið Dönum ótalmörg tækifæri og telur skynsamlegt fyrir Ísland að ganga í ESB til að taka þátt í ákvörðunum. Nú þurfi Ísland að fylgja ákvörðunum annarra ríkja í gegnum EES. 27.6.2012 02:45
Kópavogsbær fær gæðavottun Kópavogsbær hefur fyrst íslenskra sveitarfélaga hlotið alþjóðlega vottun (ISO 9001) fyrir gæðakerfi stjórnsýslusviðs. Unnið hefur verið að innleiðingu gæðakerfisins síðustu misseri. Markmiðið er að tryggja góða og skilvirka þjónustu, gagnsæja stjórnsýslu, aukið öryggi og bætt eftirlit með kostnaði. 27.6.2012 02:45
Verður kynnt á Ríó-ráðstefnu Sameinaði leikskólinn Drafnarborg og Dvergasteinn fékk fyrstu verðlaun fyrir verkefni sitt í samkeppni sem helguð var degi umhverfisins í Belgíu. 27.6.2012 02:30
Eldi á flúru getur hafist Umhverfisstofnun hefur gefið út starfsleyfi fyrir fiskeldisstöð Stolt Sea Farm Holdings Iceland hf. við Reykjanesvirkjun. 27.6.2012 02:15
Vel gekk að slökkva eldinn Eldur kom upp í viðbyggingu við Nytjamarkaðinn á Eyravegi 3 á Selfossi um klukkan átta í kvöld. Allt tiltækt slökkvilið var sent á vettvang og vel gekk að slökkva eldinn. 26.6.2012 23:26
Fyrsta kartöfluuppskeran hálfum mánuði fyrr en vant er Fyrsta kartöfluuppskeran er komin í hús á Auðsholti í Hrunamannahreppi.Uppskeran fer beint á bændamarkað á Flúðum. 26.6.2012 22:18
Löggan gerir status um hraðamælingar Lögreglan hefur tekið upp á því að láta vita fyrirfram á Facebook hvar hún er við hraðamælingar. 26.6.2012 22:02
Hannes trúir á Guð Hannes Bjarnason, forsetaframbjóðandi, er kristinn og trúir á Guð. Þó hann sé ekki alltaf sammála því sem prestar segja í prédikunum sínum segir hann barnatrúna hafa hjálpað sér á erfiðum stundum. 26.6.2012 21:38
Varð stjörf þegar hún frétti af stórvinningnum Lottóvinningshafinn sem vann 73 milljónir 9. júní og leitað hefur verið síðustu vikurnar varð stjörf þegar hún heyrði af tíðindunum. Hún keypti miðann um leið og hún setti bensín á bílinn sinn og hafði ekki hugmynd um að hún hefði hlotið stórvinning þegar hún bað um að farið væri yfir miðann hennar í gær. 26.6.2012 21:32
Andrea styður þjóðaratkvæðagreiðslu um samband ríkis og kirkju Andrea Ólafsdóttir fær ekki skilið hvers vegna ekki hefur verið haldin þjóðaratkvæðagreiðsla um samband ríkis og kirkju. "Samband ríkis og kirkju er ekki órjúfanlegt og það á að vera í höndum þjóðarinnar að ákveða það,“ segir hún. 26.6.2012 21:20
Eldur á Selfossi Eldur kom upp í gámi við Nytjamarkaðinn á Eyravegi 3 á Selfossi rétt í þessu. Eldurinn barst frá gámnum og yfir í húsnæði þar við hliðina á. Allur tiltækur mannskapur slökviliðsins á Selfossi var kallaður út. Þegar hefur tekist að ráða niðurlögum eldsins. Að sögn er uppi grunur um íkveikju. Fréttastofa mun greina nánar af framvindu mála þegar upplýsingar berast. 26.6.2012 20:52
Eldur fyrir ofan Gallerí 17 Eldur kom upp á þriðju hæð við Laugarveg 91 í kvöld. Mikill reykjarmökkur stóð upp af húsnæðinu. Allt tiltækt lið slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu var sent á staðinn. Fljótlega kom þó á daginn að eldsvoðinn var minniháttar og öllu liðinu var snúið við nema einum dælubíl. Slökkvilið réði fljótt niðurlögum eldsins með handslökkvitækjum. 26.6.2012 20:04
Alþjóðleg handtökuskipun á hendur Íslendingi Alþjóðleg handtökuskipun hefur verið gefin út á hendur Íslendingi sem grunaður er um aðild að umfangsmiklu kókaínsmygli hingað til lands. Tveir aðrir hafa setið í gæsluvarðhaldi í mánuð vegna málsins. 26.6.2012 19:28
Vinna við Vaðlaheiðargöng gæti hafist síðsumars Fyrsti fundur um gerð verksamnings vegna Vaðlaheiðarganga verður á morgun milli Vegagerðarinnar og lægstbjóðanda. Verktakinn segist geta hafist handa eftir tvo mánuði. Tveimur vikum eftir að Alþingi samþykkti með 29 atkvæðum gegn 13 að ríkissjóður lánaði allt að 8,7 milljarða króna til Vaðlaheiðarganga er komið að því að stíga næsta skref. 26.6.2012 19:15
Gott veður og þurrt óvenju lengi Veðrið hefur leikið við Íslendinga það sem af er sumri. Óli Þór Árnason, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands segir að góðviðriskaflinn hafi haldist óvenjulega lengi og úrkoman hafi verið langt undir meðallagi. "Það er búið að vera mjög einsleitt veður í júní. Það er kannski það sem er óvenjulegt í þessu," segir hann. 26.6.2012 17:44
Dæmdur fyrir að rækta kannabisplöntur Rétt tæplega fertugur karlmaður var dæmdur í fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun fyrir að hafa haft undir höndum samtals 102 kannabisplöntur. 26.6.2012 16:26
Hámarkshraði lækkaður vegna hestamóts Landsmót hestamanna stendur nú yfir í Víðidal í Reykjavík, en því lýkur sunnudaginn 1. júlí. Búast má við mikilli umferð á og við svæðið, en hámarkshraði á Breiðholtsbraut hefur verið lækkaður vegna þessa og er nú 50 samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. 26.6.2012 15:47
Jackass-stjarna borgaði milljón fyrir skemmdir á Land Cruiser Jackass-stjarnan, Bam Margera, stórskemmdi Toyota Land Cruiser bílaleigubíl hérna á Íslandi á dögunum, en hann hefur verið hér í fríi undanfarna daga. Bíllinn fannst við hótel í Reykjanesbæ um miðnætti í gærkvöld, fimm dögum eftir að leigutíminn hafði runnið út. Bíllinn var allur dældaður, rispaður og málningarslettur voru á honum. 26.6.2012 15:36
Íslendingur tekinn með 500 e-töflur í Leifsstöð Íslendingur um tvítugt var í fyrrinótt stöðvaður við komuna til landsins frá Danmörku við hefðbundið eftirlit tollgæslunnar í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Við leit á honum fundust fíkniefnapakkningar, auk þess sem hann reyndist hafa fleiri fíkniefnapakkningar innvortis. Alls reyndist hann vera með rúmlega 500 ectacy-töflur og rúmlega sextíu grömm af kókaíni. Málið er til rannsóknar hjá lögreglunni á Suðurnesjum sem veitir ekki frekari upplýsingar um það að svo stöddu. 26.6.2012 15:25
Dæmdur morðingi og hrotti ákærðir fyrir fjárkúgun og frelsissviptingu Tveir dæmdir ofbeldismenn hafa verið ákærðir fyrir frelsissviptingu, fjárkúgun og tilraun til ráns þegar þeir neyddu karlmann upp í útibú Íslandsbanka á Stórhöfða í september síðastliðnum í þeim tilgangi að láta hann taka fé út af reikningi sínum. Mennirnir tveir fóru heim til bræðra og ógnuðu þeim meðal annars með vasahníf. Mennirnir hótuðu öðrum manninum ofbeldi og kröfðust þess að hann afhenti þeim hálfa milljón króna. 26.6.2012 14:30
Lögreglan hafði afskipti af nöktum rössum Lögreglunni á Suðurnesjum barst um nýliðna helgi tilkynning um að hópur unglingspilta væri uppi á þaki skólabyggingar í umdæminu og væru þeir að "múna," þ.e. reka nakinn afturendann framan í vegfarendur. Þegar lögregla kom á staðinn höfðu piltarnir, allir nema einn, hlaupið í burtu. Sá sem eftir var viðurkenndi að hafa verið uppi á þakinu en kannaðist ekki við að hafa verið að "múna" á fólk á förnum vegi. Lögreglumenn gerðu honum grein fyrir því að umrædd hegðun væri ekki í lagi og lofaði hann bót og betrun. 26.6.2012 14:18
Lottómilljónamæringurinn gaf sig fram Hinn lukkulegi vinningshafi sem keypti vinningsmiðann sinn í Lottóinu þann 9. júní síðastliðinn í Leirunesti á Akureyri og vann rúmlega 73 milljónir króna er búinn að gefa sig fram. Ekki liggur fyrir á þessari stundu hver hinn heppni er, en Íslensk getspá ætlar að gefa nánari upplýsingar um málið þegar búið er að greiða út vinninginn. 26.6.2012 13:52
Bjargaði kind á hvolfi Lögreglan á Selfossi barst sérkennilegt útkall í síðustu viku. Þá var tilkynnt var um "kind á hvolfi“ í mólendi skammt austan Þjórsárbrúar. 26.6.2012 10:38
Eineltið mótaði Guðgeir - hataði líka lækna Það var einelti ásamt öðrum áföllum sem mótuðu persónuleika Guðgeirs Guðmundssonar, sem var dæmdur í fjórtán ára fangelsi í morgun fyrir tilraun til manndráps og hættulega líkamsárás. Guðgeir stakk framkvæmdastjóra Lagastoða, Skúla Sigurz, fimm sinnum í mars síðastliðnum og stakk svo Guðna Bergsson, samstarfsmann og lögfræðing, tvívegis í lærið þegar hann kom vinnufélaga sínum til bjargar. 26.6.2012 09:55
Fundu lítinn yrðling og tóku hann í fóstur "Mamma var að keyra Ströndina og sá eitthvað hreyfast á veginum. Hún ákvað að kíkja á þetta og sá að þetta var yrðlingur. 26.6.2012 06:00
Ferðamenn stórskemmdu Land Cruiser Landcruiser bílaleigubíll, sem leigður var erlendu pari reyndist vera stórskemmdur þar sem hann fannst við hótel í Reykjanesbæ um miðnætti í gærkvöld, fimm dögum eftir að leigutíminn hafði runnið út. 26.6.2012 14:49
Fær ekki aðgang að upplýsingum um Kaupþingsmenn Úrskurðarnefnd um upplýsingamál hefur hafnað ósk lögmanns um að fá afhent frá Þjóðskjalasafni upplýsingar um skýrslutökur yfir fimm fyrrverandi starfsmönnum og stjórnendum Kaupþings hjá rannsóknarnefnd Alþingis. 26.6.2012 13:35
Enn beðið eftir niðurstöðum lækna vegna andláts á Litla-Hrauni Enn er beðið eftir niðurstöðum krufningar á andláti fanga sem lést á Litla-Hrauni í maí. Maðurinn, sem var 49 ára gamall, er talinn hafa látist af völdum innvortis blæðinga. 26.6.2012 13:30
Verklok áætluð í febrúar 2013 FramkvæmdirFramkvæmdir við stækkun Háskólatorgs HÍ eru nú að hefjast. Ráðgert var að hefja framkvæmdir í apríl síðastliðnum en það dróst þar til nú. Áætlað er að Stúdentakjallarinn opni samkvæmt upphaflegri áætlun þann 1. desember. 26.6.2012 13:30
Vantar sárlega sérhæfðan lækni „Við viljum vekja athygli á því að hér er enginn barnagigtarlæknir. Jón Kristinsson hefur séð um börn með gigt síðustu tuttugu til þrjátíu árin. Hann er krabbameinslæknir og er alveg frábær. Hann mun hætta eftir eitt ár. Það er búið að finna einn í staðinn en hann er ekki barnagigtarlæknir“, segir Birna Kristrún Halldórsdóttir, foreldri barns með gigt. 26.6.2012 12:30
Lömb drepast daglega Lömb drepast nú daglega þegar þau verða fyrir bílum á þjóðvegum landsins. Dæmi eru um að allt að þrjú lömb hafi drepist í einu, og stafar vegfarendum líka hætta af þessu. 26.6.2012 12:00
Tryggt búsetuöryggi helsta forsenda fyrir breytingum Nálægt 30% fólks innan vébanda BSRB gæti hugsað sér að leigja húsnæði ef búsetuöryggi þeirra væri tryggt. Af þeim sem eiga húsnæði sitt í dag gætu 22% þeirra vel hugsað sér að færa sig yfir á leigumarkaðinn, ef þeir ættu það ekki á hættu að leigunni yrði sagt upp með stuttum fyrirvara. 26.6.2012 11:30
Hreinsaður af ásökunum um svindl á Reykjavíkurskákmótinu Norsk skákyfirvöld hafa hreinsað dreng, sem grunaður var um að hafa svindlað á skákmóti í Reykjavík, af ásökunum um svindlið. Faðir hans var hins vegar dæmdur í eins ársbann. 26.6.2012 11:08
Lög um varnir hafs og stranda samþykkt Alþingi hefur samþykkt breytingu á lögum um varnir gegn mengun hafs og stranda. Breytingunum er ætlað að styrkja framkvæmd mála vegna bráðamengunar á sjó og að tryggja að brugðist sé við á viðeigandi hátt þegar bráðamengun verður. Breytingarnar eru tilkomnar vegna óskar Hafnasambands Íslands um endurskoðun skipulags viðbragða vegna bráðamengunaróhappa innan hafnarsvæða. 26.6.2012 11:00
Þurfti að slá fundi af vegna mætingar Hætta þurfti við fundi í umhverfis- og samgöngunefnd og atvinnuveganefnd Alþingis í gær þar sem þingmenn stjórnarandstöðunnar sögðust komnir í sumafrí. Aðeins tveir nefndarfundir hafa verið haldnir síðan þingi var frestað 19. júní. 26.6.2012 11:00
Stunginn í kviðinn - þrír menn í haldi Maður var stunginn í kviðinn í heimahúsi í miðborg Reykjavíkur klukkan fimm í nótt. Stungan mun hafa verið grunn og er maðurinn ekki í lífshættu, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni. Þrír menn eru í haldi vegna málsins og bíða yfirheyrslu. Maðurinn fullyrti aftur á móti við lögreglumenn á staðnum að hann hefði sjálfur veitt sér áverkana. Mikil ölvun var á vettvangi þar sem þetta gerðist, en ekki hafa fengist frekari upplýsingar um málið. 26.6.2012 10:53
Sjómaður flæktist í veiðarfæri Maður slasaðist á fæti þegar hann klemmdist milli kara við löndun úr bát í Þorlákshöfn í síðastliðinni viku. Meiðsl hans eru þó talin minniháttar samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Selfossi. 26.6.2012 10:43
Vegir á Suðurlandi stórhættulegir í heitu veðri Það getur verið stórhættulegt fyrir ökumenn, einkum ökumenn bifhjóla, að keyra um vegi á Suðurlandi. Eyrarvegurinn, sem liggur um Selfoss, er dæmi um slíkt. Klæðning sem Vegagerðin hefur sett á veginn er úr repju og þegar heitt er í veðri myndast mikil hálka á veginum. 26.6.2012 10:26
Norska kirkjan hliðstæð okkar Karl Sigurbjörnsson biskup, gerði framtíð þjóðkirkjunnar að umtalsefni er hann setti prestastefnu í gær. 26.6.2012 10:00
Guðgeir í fjórtán ára fangelsi Guðgeir Guðmundsson, sem réðst á Skúla Sigurz á lögmannsstofunni Lagastoð í mars, var dæmdur í fjórtán ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Hann var jafnframt dæmdur til að greiða Skúla þrjár milljónir króna í miskabætur. Guðgeir réðst jafnframt á Guðna Bergsson lögmann. Hann þarf að greiða Guðna átta hundruð þúsund í miskabætur. Árásin var hrottafengin og í ákæruskjalinu kemur fram að 50 lítrar af blóði runnu úr líkama Skúla eftir árásina. 26.6.2012 09:07
Sjö grásleppubátar sviptir veiðileyfum Sjö breiðfirskir grásleppubátar hafa verið sviptir veiðileyfum og mega ekki stunda veiðar á næstu vertíð. 26.6.2012 06:59
Ekið á lömb í Víkurskarði Bíl var ekið á lamb á Grenivíkurvegi, rétt við afleggjarann upp í Víkurskarð í gærkvöldi, og drapst lambið. Þetta var fjórða lambið sem hlýtur þessi örlög á sama stað á skömmum tíma. 26.6.2012 06:55
Teknir við að flytja 120 kannabisplöntur milli bíla Tveir karlmenn voru handteknir á bílastæði í ausutrborginni undir kvöld í gær, þar sem þeir voru að flytja kannabisplöntur á milli bíla. 26.6.2012 06:53
Fjórir slösuðust í bílslysi Fjórir slösuðust, en engin alvarlega eftir því sem best er vitað, þegar kona missti stjórn á bíl sínum á Svalbarðsstrandarvegi við Eyjafjörð í gærkvöldi, og bíllinn þeyttist út af veginum. 26.6.2012 06:50
Lyfjafræðingar afar ósáttir við fyrirhugaða lagabreytingu og boða aðgerðir ef ekki rætist úr Innlent