Fleiri fréttir

Týnd stúlka

Lögregla leitar nú að Fríðu Níelsdóttur, 14 ára stúlku úr Grindavík. Fríða er 162 cm á hæð og um 58 kg. Hún er með ljósbrúnt hár niður fyrir axlir og blá augu. Fríða var klædd í svarta hettuspeysu með nafninu hennar á bakinu, svörtum legging og bleikum Kawasaki skóm.

Fjölmenni á hjólauppboði

Um tvö til þrjú hundruð manns mættu á reiðhjólauppboð lögreglunnar í dag. Boðin voru upp reiðhjól sem fundist hafa á höfuðborgarsvæðinu og enginn hefur hirt um að sækja. Uppboðið fór fram í húsnæði Vöku í Skútuvogi.

Forsetaefnin skýra áherslur sínar

Forsetaframbjóðendurnir skýrðu afstöðu sína til fjögurra málefna sem varða hlutverk forseta í Fréttablaðinu í dag. Fram komu m.a. skoðanir frambjóðenda á siðareglum, málskotsréttinum og tengslum forseta við viðskiptalífið.

Forsetaefnin fjalla um stór pólitísk málefni

Forsetaefnin lýstu skoðun sinni á því hvort forseti ætti að taka afstöðu til stórra pólitískra mála í Fréttablaðinu í dag. Spurt var: Á forseti að lýsa yfir afstöðu sinni til stórra pólitískra deilumála á borð við umsókn um aðild að Evrópusambandinu?

Forsetaefnin fjalla um utanríkisstefnu forseta

Forsetaefnin fjölluðu um hlutverk forseta á alþjóðavettvangi í Fréttablaðinu í dag. Spurt var: Á forseti markvisst að lýsa eigin sjónarmiðum á alþjóðavettvangi, jafnvel þótt þau gangi gegn stefnu sitjandi ríkisstjórnar?

Forsetaefnin fjalla um málskotsréttinn

Forsetaefnin lýstu skoðunum sínum á málskotsréttinn í 26. gr. stjórnarskrárinnar í Fréttablaðinu í dag. Spurt var: Hver er afstaða þín til beitingar málskotsréttar forseta samkvæmt 26. grein stjórnarskrárinnar?

Forsetaefnin fjalla um siðareglur forseta

Forsetaefnin skýrðu áherslur sínar varðandi siðareglur forseta og tengsl hans við viðskiptalífið í Fréttablaðinu í dag. Spurt var: Finnst þér að setja eigi siðareglur um samskipti forseta við viðskiptalífið? Hvernig á forsetinn að beita sér í þágu einstakra fyrirtækja og atvinnugreina?

Kalli í Pelsinum setur Apótekið á sölu

Karl J. Steingrímsson, betur þekktur sem Kalli í Pelsinum, hefur boðið Austurstræti 16 eða Apótekið til sölu eða leigu. Húsið er fimm hæðir auk kjallara og rishæðar, alls einir 2773 fermetrar.

Aukin framlög til NATO

Íslendingar juku við framlög sín til Atlantshafsbandalagsins, NATO, í kjölfar þess að varnarsvæðinu á Suðurnesjum var lokað árið 2006. Þá ákvað ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks að Ísland gerðist aðili að mannvirkjasjóði NATO.

Hjólauppboð lögreglu í dag

Rúmlega hundrað reiðhjól verða boðin upp hjá óskilamunadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í dag. Um er að ræða reiðhjól sem fundist hafa í umdæminu en enginn hefur hirt um að sækja.

Fundur fram á miðja nótt

Þingfundi lauk á fjórða tímanum í nótt, og voru þá enn þingmenn á mælendaskrá. Rætt var um ríkisstjórnarfrumvarp um veiðigjöld en sú umræða hefur staðið í sex daga. Ekkert samkomulag liggur fyrir um þinglok. Boðað hefur verið til þingfundar klukkan hálf ellefu og verður þá umræðu um veiðigjöld haldið áfram. Enn er um áttatíu málum ólokið á Alþingi, þar á meðal umdeilt frumvarp um breytingar á kvótakerfinu, rammaáætlun og fjármögnun Vaðlaheiðarganga.

Landsbyggðin tapar konum

Konur eru alls staðar á landsbyggðinni færri en karlar, en þær hafa í meira mæli flutt burt á síðustu árum. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn sem gerð var fyrir Byggðastofnun.

Ískyggilegt ástand á ýsustofninum

Þorskveiði á næsta fiskveiðiári verður aukin um 19 þúsund tonn verði ráðgjöf fylgt. Innan seilingar er 250 þúsund tonna þorskkvóti verði haldið rétt á spilunum. Vondu fréttirnar eru hins vegar þær að ástand ýsustofnsins er ískyggilegt og veiðibann er ekki fjarlægur möguleiki.

70 milljóna lottóvinningur í kvöld

Vinningurinn er orðinn sjöfaldur og stefnir í yfir 70 milljónir króna í lottó í kvöld. Því er til mikils að vinna og margir hafa lagt leið sína í Happahúsið í Kringlunni og aðrar sjoppur í dag. Vinningar í lottó eru skattfrjálsir og arðurinn af getspánni rennur til góðra málefna eins og Öryrkjabandalagsins og íþróttahreyfingarinnar.

Ár síðan barkaígræðsla læknaði krabbamein

Í dag er eitt ár frá því að nemandi við Háskóla Íslands gekkst undir tímamótaaðgerð þegar plastbarki baðaður stoðfrumum var græddur í hann. Erítreubúinn Andemariam T. Beyene greindist með illvígt krabbamein í hálsi en fyrir nákvæmlega ári tókst að bjarga lífi hans með aðgerð á Karolinska-sjúkrahúsinu í Svíþjóð.

Vilja ræða mögulega sameiningu

Bæjarstjórn sveitarfélagsins Garðs samþykkti á síðasta fundi sínum að verða við ósk frá fulltrúum Reykjanesbæjar um að funda um mögulega sameiningu sveitarfélaganna Garðs, Sandgerðis og Reykjanesbæjar.

Reykvískir víkingar ósáttir við borg sína

Víkingafélagið Einherjar í Reykjavík telur stuðning borgarinnar forsendu þess að hægt verði að setja upp víkingahátíð í ætt við þá sem haldin er í Hafnarfirði. Félagið fékk félagsheimili hjá borginni, en gæti misst það komist hátíðin ekki á.

Ný tækni í sýnatöku í brjóstholi

Hafin er söfnun fyrir berkjuómspeglunartæki fyrir Landspítalann. Um er að ræða tæki sem notað er til sýnatöku úr eitlum í brjóstholi.

Æfa viðbrögð við slysi á sjó

Almannavarnanefnd Þingeyinga og embætti Lögreglustjórans á Húsavík standa í dag, laugardag, fyrir sjóslysaæfingu á Skjálfanda og á Húsavík. Um samstarf við almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og Landhelgisgæsluna er að ræða.

Advania hyggst þjálfa upp nýja sérfræðinga

Upplýsingatæknifyrirtækið Advania hefur ákveðið að bregðast við skorti á fólki með þekkingu á bæði upplýsingatækni og viðskiptafræði með því að ráða til sín 10 til 20 reynsluminni einstaklinga sem verða fyrsta starfsár sitt þjálfaðir í að vinna ráðgjafastörf fyrir fyrirtækið.

Fransk-íslenska endurvakið

Fransk-íslenska viðskiptaráðið verður endurvakið á fundi næstkomandi þriðjudag. Samkvæmt tilkynningu er markmiðið að „auka viðskipti milli landanna og miðla þekkingu og upplýsingum um viðskiptatækifæri og viðskiptaumhverfi“.

Yfirtakan á SpKef eitt allsherjar klúður - einhver þarf að axla ábyrgð

Yfirtaka ríkisins á Sparisjóðnum í Keflavík er eitt allsherjar klúður sem einhver þarf að axla ábyrgð á, segir formaður Sjálfstæðisflokksins. Yfirtakan kostar ríkissjóð 19 milljarða króna, eða 8 milljörðum meira en gefið var út þegar sparisjóðurinn var sameinaður Landsbankanum.

Bíræfnir þjófar í Norðlingaholti - leikskólabörn fundu þýfið

Talsverður erill hefur verið hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í dag en um klukkan tíu í morgun var tilkynnt um glæfralegan akstur eftir götu í Mosfellsbæ. Fáeinum mínútum síðar var tilkynnt um bifreiðina stórskemmda fyrir utan veg og tvo menn á hlaupum frá henni. Skömmu síðar kom í ljós að bifreiðinni hafði verið stolið. Mennirnir komust undan.

Aukning þorskafla skapar 8 milljarða tekjur

Aukning þorskafla um 19 þúsund tonn á næsta fisveiðiári skapar þjóðinni yfir 8 milljarða í auknum útflutningstekjum. Þorskaflinn stefnir í 250 þúsund tonn á næstu árum segir forstjóri Hafrannsóknarstofnunar.

Þakklátur að löggan stoppaði mig

"Ég taldi að áfengið væri runnið úr mér. Ég mátti vita betur - það var rangt hjá mér að taka þá afstöðu,“ segir Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins, sem var tekinn á dögunum ölvaður undir stýri. Hann missir bílprófið í 8 mánuði.

Fékk sér húðflúr með mynd af pabba

Persónuleg húðflúr eru að verða vinsælustu húðflúrin sem fólk fær sér um þessar mundir, segir Össur Hafþórsson einn af skipuleggjendum húðflúrhátíðar sem haldin er á Bar 11 um helgina. Hann tekur dæmi um stelpu sem kom til hans með mynd af pabba sínum og vildi að hún yrði flúruð á.

Rekstrarniðurstaða neikvæð um rétt rúman milljarð

Óendurskoðaður árshlutareikningur A- hluta Reykjavíkurborgar fyrir tímabilið janúar - mars 2012 var lagður fram í borgarráði í gær. Til A hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum. Um er að ræða aðalsjóð, þ.e. rekstur fagsviða, og eignasjóð.

Borgin kaupir Alliance húsið á 340 milljónir

Borgarráð samþykkti á fundi sínum í gær kaupsamning sem Reykjavíkurborg hefur gert um kaup á Alliance húsinu og meðfylgjandi lóðarréttindi að Grandagarði 2 samkvæmt tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Umferðartafir vegna bílveltu á Miklubraut

Bíll valt á Miklubraut, rétt við Ártúnsbrekkuna, nú rétt eftir klukkan tvö í dag. Varðstjóri hjá sjúkraliðinu sagði í samtali við Vísi að bíllinn væri á hliðinni en allir væru komnir út. Enginn slasaðist í veltunni en eitthvert magn af olíu lak niður og þreif slökkviliðið það upp.

Valtýr Sigurðsson: Óvenjuleg og kaldrifjuð árás

Valtýr Sigurðsson, fyrrverandi ríkissaksóknari, sagðist ýmsu vanur þegar hann bar vitni í réttarhöldunum yfir Guðgeiri Guðmundssyni í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Hann bætti við að hann hefði þekkt Skúla Eggert Sigurz lengi, en hrottafengin árás Guðgeirs á vinnufélaga Valtýs hefur haft mikil áhrif á hann.

Guðgeir vildi að hann hefði eytt meiri tíma í World of Warcraft

"Ég íhugaði mikið að fremja sjálfsmorð," sagði Guðgeir Guðmundsson í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun Þar sem réttað er yfir honum út af lífshættulegri árás en hann stakk Skúla Eggert Sigurz ítrekað með hnífi þannig að minnstu munaði að Skúli létist af áverkum sínum.m.

Fjögur ný hringtorg á þjóðvegi í Árnessýslu

Hringtorg við Borg í Grímsnesi er eitt af fjórum nýjum hringtorgum í Árnessýslu sem Vegagerðin hyggst láta gera í sumar við nokkra umferðarþyngstu ferðamannavegi Suðurlands. Þrjú þeirra eru á Biskupstungnabraut, eitt við Borg og tvö við Reykholt, en fjórða torgið verður í austurjaðri Selfoss, við gatnamót Gaulverjabæjarvegar. Framkvæmdir eru þegar hafnar við torgin við Reykholt en þau eiga að vera tilbúin 15. ágúst.

Skúli Eggert: Fæ ekki martraðir, en hugsa mikið um þetta

Skúli Eggert Sigurz, framkvæmdastjóri Lagastoða, var á leiðinni út af lögfræðiskrifstofunni þegar Guðgeir Guðmundsson kom þangað hinn örlagaríka dag sem hann stakk Skúla fimm sinnum með beittum veiðihníf. Þetta kom meðal annars fram í málflutningi Skúla í aðalmeðferð Héraðsdóms Reykjavíkur í morgun.

Rúmur helmingur segist ekki vel upplýstur

Rúmur helmingur Íslendinga telur sig ekki vel upplýstan um Evrópumál, eða 56%. Þrír af hverjum fjórum Íslendingum telja landa sína heldur ekki vera vel upplýsta um þau mál, ef marka má nýja Eurobarometer skoðanakönnun sem kynnt verður á málþingi í Háskólanum á Akureyri sem hefst klukkan eitt í dag.

Þingmenn í myrkri

Rafmagn fór af að hluta í húsakynnum Alþingis við upphaf þingfundar í morgun. Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylkingarinnar, var í pontu að ræða störf þingsins þegar ljósin slokknuðu. Hann og aðrir þingmenn létu þetta lítið á sig fá, enda var enn hægt að tala í hljóðnemann úr ræðustól. Innan við tíu mínútum síðar voru ljósin komin aftur á.

Þingmaður missti bílpróf vegna ölvunaraksturs

Höskuldur Þórhallsson þingmaður Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi missti bílprófið nýlega eftir að hann var tekinn ölvaður á bíl. Þetta kemur fram í blaðinu í Vikudegi sem kom út í gær. Höskuldur missti bílprófið í átta mánuði.

Sumarbústaður brann til kaldra kola

Mannlaus sumarbústaður Norðlingaholtsmegin við Elliðavatn, brann til kaldra kola í gærkvöldi. Bústaðurinn var alelda þegar slökkviliðið kom á vettvang. Hann var ekki lengur í notkun og ekki var rafmagn tengt í hann þannig að líklegt er að kveikt hafi verið í honum. Ekki er vitað hver var þar að verki.

Bíll valt í Ártúnsbrekkunni

Bíll valt í Ártúnsbrekkunni, á móts við Ingvar Helgason, nú rétt eftir klukkan tvö í dag. Varðstjóri hjá sjúkraliðinu sagði í samtali við Vísi að bíllinn væri á hliðinni en allir væru komnir út.

Óheimilt hafi verið að semja við Samhjálp

Innkaupastofnun og borgarlögmaður hafa staðfest að innkaupareglur borgarinnar voru brotnar þegar samið var við Samhjálp um rekstur gistiskýlisins fyrir karla að Þingholtsstræti 25. Þetta fullyrða fulltrúar VG og Sjálfstæðisflokksins í borgarráði og segja jafnframt ljóst að um sé að ræða meðvitað brot þar sem sviðið hafi skömmu áður samið við Rauðakross Íslands um rekstur gistiskýlis fyrir konur og þá fylgt innkaupareglum í hvívetna.

Segir Ólaf Ragnar hafa styrkt stöðu sína enn frekar eftir þáttinn í gær

Stefanía Óskarsdóttir, stjórnmálafræðingur, telur að Ólafur Ragnar Grímsson hafi aðeins styrkt stöðu sína eftir umræðuþátt með forsetaframbjóðendum í gærkvöldi. Þóra Arnórsdóttir hefur hins vegar saxað á forskot Ólafs Ragnars samkvæmt nýrri könnun og munurinn á milli þeirra er nú sjö prósentustig.

Segist hata lögfræðinga

"Ég hata lögfræðinga," svaraði Guðgeir Guðmundsson þegar Skúli Eggert Sigurz spurði hvað gengi að honum á lögfræðistofunni Lagastoðum í mars síðastliðnum. Þá hafði Guðgeir stungið Skúla að minnsta kosti einu sinni í snarpri en gríðarlega ofbeldisfullri árás.

Hálendisvegir opnaðir

Vegagerðin er byrjuð að opna hálendisvegina einn af öðrum og er það heldur fyrr en í meðal ári. Nú síðast var vegurinn að Langasjó opnaður og og fjallabaksleið nyrðri, en syðri Fjallabaksleið er enn lokuð. Það er líka búið að opna Dómadalsleið og nú er opið í Landmannalaugar eftir öllum leiðum. Búið er að opna veginn inn í Laka, en Kjalvegur er aðeins jeppafær, enn sem komið er. Það er líka búið að opna veginn upp í Veiðivötn. Að sögn Bjarna Jónssonar vegaverkstjóra eru þessir vegir opnaðir heldur fyrr en í meðalári þar sem frost fór fyrr úr jörðu en vant er, en það er forsenda þess að óhætt sé að opna hálendisvegina. Öðrum kosti myndu þeir vaðast út í aurbleytu.

Skúli ber vitni gegn árásarmanninum

Skúli Sigurz sem hlaut alvarleg sár þegar hann var stunginn á lögmannsstofunni Lagastoð í mars ber vitni gegn árásarmanninum, Guðgeiri Guðmundssyni. Aðalmeðferð í málinu hófst klukkan níu og stendur fram eftir degi. Í ákæru er Guðgeiri gefið að sök tilraun til manndráps með því að stinga Skúla ítrekað. Þá er hann jafnframt sakaður um alvarlega líkamsárás þegar hann stakk Guðna Bergsson lögmann í lærið þegar Guðni hugðist koma Skúla til bjargar.

Olíuvinnsla skal háð ströngustu reglum

Árið 2025 má búast við olíuvinnslu á þremur svæðum norðan Íslands. Samkomulag við Grænlendinga og Norðmenn um víðtækt samstarf er komið á dagskrá stjórnvalda. Afrakstur olíuvinnslu er best geymdur í sérstökum auðlindasjóði.

Nefndirnar ætla að skila í haust

Rannsóknarnefnd um fall sparisjóðanna mun skila Alþingi lokaskýrslu í fyrsta lagi þann 1. september næstkomandi. Nefndarmaður á þó frekar von á því að skilin dragist fram eftir árinu 2012.

Sjá næstu 50 fréttir