Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hleypir fantasíum kvenna út Hildur Sverrisdóttir lögfræðingur vinnur nú að bók þar sem íslenskar konur deila sögum af kynferðislegum fantasíum sínum með öðrum. Hún sagði Kjartani Guðmundssyni frá mikilvægi þess að konur geti notið kynferðislegs efnis á sínum forsendum. 26.5.2012 16:06
Íslenskir rithöfundar kepptust um athygli á Crimefest Íslendingar eiga tvo fulltrúa á alþjóðlegu glæpasagnaráðstefnunni Crimefest þetta árið. Það eru þau Yrsa Sigurðardóttir og Ragnar Jónasson. Ráðstefnuna sækja um fjögur hundruð rithöfundar, lesendur, útgefendur og gagnrýnendur. Metsölubók Yrsu, Ég man þig, er væntanleg í Bretlandi á næstunni, en sú bók keppir jafnframt um Glerlykilinn fyrir Íslands hönd þetta árið. Nýjasta bók Ragnars, Myrknætti, var nýverið seld til þýska útgáfurisans Fischer Verlage. 26.5.2012 15:28
Hvítasunnuhelgin byrjar vel - umferð þung en gengur vel Ein stærsta ferðahelgi ársins stendur nú yfir. Fjöldi fólks hefur lagt leið sína út á land og segir lögregla að umferð hafi að mestu gengið vel fyrir sig. Þá segir stöðvarstjóri lögreglunnar á Selfossi að umferð hafi verið stöðug og að ökumenn hafi sýnt töfum skilning. 26.5.2012 14:14
Skjaldborg hafin á Patreksfirði Heimildarmyndahátíðin Skjaldborg á Patreksfirði hófst í gærkvöldi. Opnunarmynd hátíðarinnar var Hreint hjarta eftir Grím Hákonarson en hún fjallar um sér Kristinn Friðfinnsson, sóknarprest á Selfossi, sálgæslu hans við sóknarbörn og útistöður við kirkjuyfirvöld. 26.5.2012 13:32
Árleg sýning Ljósmyndaskólans hefst í dag Árleg ljósmyndasýning fyrsta árs nema við Ljósmyndaskólann opnar í dag. Alls munu 19 nemendur sýna verk sín þar sem ýmislegt verður tekið, þar meðal má nefna portrait, landslag, kynferðislegt ofbeldfi, tísku og átröskun. 26.5.2012 13:07
Óvæntir gestir í för með íslenska Eurovision-hópnum Svíum er spáð sigri en Íslendingum sautjánda sæti í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva sem fram fer í kvöld. Tveir óvæntir gestir fá að vera með íslenska hópnum í græna herberginu á stóru stundinni. 26.5.2012 12:45
Ákæra vegna brots á þagnarskyldu opinberra starfsmanna fordæmalaus Aldrei í réttarsögunni hefur verið ákært fyrir brot á þagnarskyldu opinberra starfsmanna, að sögn ríkissaksóknara. Lögreglumennirnir tveir sem seldu þrotabúi trúnaðarupplýsingar sem þeir öfluðu í starfi sínu yrðu þeir fyrstu, ef þeir verða ákærðir. 26.5.2012 12:45
Skiptar skoðanir um fjármögnun Vaðlaheiðaganga Skiptar skoðanir eru á meðal stjórnarliða um frumvarp fjármálaráðherra um heimild til að fjármagna Vaðlaheiðargöng. Þingmaður Framsóknar telur að málið nái ekki að fara í gegnum þingið. 26.5.2012 12:08
Viðrar vel á hvítasunnu Svo virðist sem að vel muni viðra um hvítasunnuhelgina. Hiti á landinu hefur aukist jafnt og þétt síðustu daga og er spáð allt að 23 stiga hita á austanverðu landinu. 26.5.2012 11:36
Rætt um Vaðlaheiðagöng fram eftir miðnætti Umræður um frumvarp fjármálaráðherra um heimild til að fjármagna gerð jarðganga undir Vaðlaheiði stóðu fram eftir miðnætti á Alþingi í nótt. Þá voru sjö enn á mælendaskrá, þar af helmingur stjórnarliðar. 26.5.2012 10:45
Nítján ára dúx á leið í Listaháskólann Auður Lóa Guðnadóttir dúxaði í Fjölbrautarskólanum í Breiðholti, en útskriftarathöfnin var í gær. Auður Lóa tók stúdentspróf af listnámsbraut á þremur árum og komst í vikunni inn í BA-nám í myndlistardeild Listaháskóla Íslands. 26.5.2012 10:30
"Ekkert fréttnæmt" af lögreglu í nótt Nóttin var tíðindalítil hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Það tíðindalítil, að lögreglan treystir sér til að fullyrða í tilkynningu að "ekkert fréttnæmt" hafi átt sér stað. 26.5.2012 10:10
Með dólgslæti á Akureyri - stakk sér í sjóinn Karlmaður á þrítugsaldri gisti fangageymslu lögreglunnar á Akureyri í nótt. Maðurinn hafði verið með dólgslæti við vegfarendur bænum áður en lögreglu bað að garði. 26.5.2012 09:32
Góðgerðarstarf líður fyrir tekjuhrun í spilakössum Tekjur Íslandsspila hafa lækkað um fimmtung frá hruni. Góðgerðarstarf Rauða krossins, Landsbjargar og SÁÁ líður fyrir. Netspilun tekur sífellt stærri sneið af kökunni. Frjáls félagasamtök fá ekki aðgang að netinu. 26.5.2012 09:00
Meirihluti vill kjósa um Evrópusambandið Tæplega sex af tíu vilja þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort halda eigi aðildarviðræðum við ESB áfram samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2. 26.5.2012 08:30
Átti ekki von á að grunur um brot kæmi upp Sérstakur saksóknari var meðvitaður um fyrirætlanir þeirra Guðmundar Hauks Gunnarssonar og Jóns Óttars Ólafssonar um að hefja störf sem sjálfstæðir rannsakendur eftir að þeir létu af störfum hjá embættinu. 26.5.2012 08:00
Hentar ekki öllum að vera viðskiptavinir MP MP Banki mun leggja nýtt gjald á viðskiptavini sem annað hvort eiga eða skulda minna en tvær milljónir. Forstjórinn segir bankann vera að staðsetja sig gagnvart helstu markhópum. Það henti mögulega ekki öllum að vera hjá MP. 26.5.2012 07:30
Verðbólga lækkaði merkjanlega Tólf mánaða verðbólga lækkaði úr 6,4 prósentum í 5,4 prósent í maímælingu Hagstofunnar. Var það talsvert meiri lækkun en búist hafði verið við en greiningardeildir bankanna höfðu spáð verðbólgumælingu upp á 5,9 til 6 prósent. Lækkunin var einnig talsvert meiri en Seðlabankinn virðist hafa gert ráð fyrir í nýjustu hagspá sinni sem hljóðaði upp á 5,9 prósent verðbólgu á öðrum ársfjórðungi. 26.5.2012 06:45
Risaratsjár Monge forða geimárekstrum Franska skipið Monge liggur við Reykjavíkurhöfn. Það er einstaklega vel tækjum búið og fylgist meðal annars með eldflaugatilraunum og aðskotahlutum í geimnum. Getur numið hlut á stærð við 100 krónu mynt í 800 km hæð. 26.5.2012 06:00
Viðræður um fjármögnun hefjast í næstu viku Formlegar viðræður um fjármögnun Hverahlíðarvirkjunar hefjast í næstu viku. Að sögn Ingvars Stefánssonar, fjármálastjóra Orkuveitunnar, hafa óformlegir fundir átt sér stað frá því stjórn Orkuveitunnar veitti í lok apríl umboð til að hefja viðræðurnar. 26.5.2012 04:00
Framhaldið af Hungurleikunum komið út á íslensku Slökkviliðsbíll var til taks þegar bóksalar sóttu framhald Hungurleikanna, Eldar kvikna, á lager Forlagsins við Fiskislóð í dag, í stað þess að bíða eftir að bókin færi í almenna dreifingu. Viðlíka áhuga bóksala hefur ekki orðið vart síðan Rannsóknarskýsla Alþingis kom út. 25.5.2012 21:54
Matarolía af ökrum íslenskra bænda Íslensk matarolía af akrinum er það nýjasta sem íslenskir bændur bjóða landsmönnum en þetta er afurð repjuræktar undir Eyjafjöllum. Repjuakurinn hjá Ólafi Eggertssyni, bónda á Þorvaldseyri, þekkist úr á gula litnu. Repjan var þegar farin að blómstra í síðustu viku en henni var sáð í fyrrasumar. 25.5.2012 21:45
Mikill spenningur í Bakú - Gréta og Jónsi tilbúin „Ég held að þetta fari þannig að Svíþjóð vinni," segir Gréta Salóme Stefánsdóttir, sem keppir fyrir Íslands hönd á úrslitakvöldinu í Eurovision annað kvöld ásamt Jónsa. 25.5.2012 21:02
Jónsa og Grétu Salóme spáð 2. sæti OGAE, eða Organisation Générale des Amateurs d l'Eurovision, er heiti á alþjóðlegum samtökum opinberra aðdáendaklúbba Eurovision. Meðlimir klúbbanna koma frá þrjátíu og fjórum evrópulöndum. Í kvöld birtu samtökin niðurstöður úr könnun sem aðdáendur keppninnar frá öllum löndunum tóku þátt í og þar er Íslandi spáð 2. sæti. 25.5.2012 20:02
Hvað gerum við ef við vinnum Eurovision? "Það er ekki til nein viðbragðsáætlun í þessu máli,“ segir Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra og æðsti yfirmaður Eurovision hér á landi. Íslendingar taka þátt í aðalkeppninni á morgun og er íslenska laginu spáð góðu gangi. 25.5.2012 18:13
Catalina markaði djúp spor í flugsögu Íslands Íslenskir flugáhugamenn fá langþráðan draum uppfylltan á Reykjavíkurflugvelli um helgina; að skoða Catalina-flugbát en þessar vélar hafa markað hvað dýpst spor í íslenska flugsögu. Íslendingar kynntust Catalinum fyrst á stríðsárunum þegar þær gegndu lykilhlutverki í hernaði Bandamanna gegn kafbátum Þjóðverja á Atlantshafinu. 25.5.2012 19:45
Raunhæft að ljúka viðræðunum fyrir kosningar Stefan Füle, stækkunarstjóri Evrópusambandsins, segist telja að öll spilin í aðildarviðræðum Íslands og Evrópusambandsins muni verða á borðinu fyrir þingkosningar á næsta ári. Það sé vel raunhæft á ljúka viðræðum á því ári sem sé til stefnu. 25.5.2012 19:20
Lögreglumenn fóru að selja trúnaðarupplýsingar haustið 2011 Lögreglumennirnir tveir sem sérstakur saksóknari hefur kært til ríkissaksóknara vegna brots á þagnarskyldu hófu að selja skiptastjóra Milestone trúnaðarupplýsingar í lok september 2011, löngu áður en þeir hættu hjá embættinu. Þeir héldu áfram að yfirheyra sakborninga og starfa hjá embættinu sem verktakar. 25.5.2012 18:30
Harður árekstur í Hafnarfirði Harður tveggja bíla árekstur varð á gatnamótum Hafnarfjarðarvegar og Álftanesvegar fyrir skömmu. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins eru meiðsl á fólki talin vera minniháttar. Annar bíllinn er á hliðinni. Tveir sjúkrabílar og dælubíll var sendur á staðinn en ekki þarf að klippa farþega og bílstjóra út. Nánari upplýsingar liggja ekki fyrir að svo stöddu. 25.5.2012 17:50
Þriðjungur ökumanna óku of hratt Brot 33 ökumanna voru mynduð í Langarima í Reykjavík í dag. Samkvæmt tilkynningu lögreglu var fylgst með ökutækjum sem var ekið Langarima í suðurátt, að Rósarima. 25.5.2012 17:34
Kannabis í kjallara Tvö hundruð grömm af marijúana í sölupakkningum fundust við húsleit í kjallaraíbúð í miðborginni í gær. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu játaði húsráðandi, karlmaður á þrítugsaldri, aðild sína að málinu. 25.5.2012 17:32
Ólafur og Þóra jöfn samkvæmt nýrri könnun MMR Nákvæmlega sami fjöldi myndi kjósa Þóru Arnórsdóttur og Ólaf Ragnar Grímsson í forsetakosningum, samkvæmt niðurstöðum skoðanakönnunar MMR sem gerð var dagana 21-24 maí. 25.5.2012 16:55
Segir aðgerðirnar bitna mest á höfuðborgarsvæðinu "Þessar aðgerðir bitna mest á höfuðborgarsvæðinu, meirihluti þeirra sem láta af störfum eru þaðan, það er því ekki rétt að aðgerðirnar bitni verst á landsbyggðinni,“ segir Kristján Kristjánsson, upplýsingafulltrúi Landsbankans, en mikil óánægja er með hagræðingaraðgerðir Landsbankans úti á landi þar sem til stendur að loka útibúum bankans og sameina öðrum. 25.5.2012 16:33
Safna hjólum fyrir efnaminni börn Hjól sem standa óhreyfð inni í bílskúr geta nú öðlast nýtt líf. Barnaheill og hjólreiðakeppnin WOW Cyclothon standa fyrir hjólasöfnun á landsvísu sem stendur til 11. júní næstkomandi. 25.5.2012 16:30
Grunaðir innbrotsþjófar úrskurðaðir í gæsluvarðhald Tveir karlar á þrítugsaldri hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 1. júní að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og var það gert á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Mennirnir voru handteknir í gærmorgun eftir að þeir höfðu brotist inn í hús í Grafarvogi en þýfi fannst í fórum þeirra. Þjófarnir eru grunaðir um innbrot í fleiri hús á höfuðborgarsvæðinu. Þriðji maðurinn var handtekinn í tengslum við rannsóknina en ekki var farið fram á gæsluvarðhald yfir honum. 25.5.2012 15:47
Hlakkar til að hefja störf á nýjum vettvangi Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, segist hlakka til að hefja störf hjá OPUS lögmönnum, en það var tilkynnt í dag að hann myndi hefja störf hjá lögfræðistofunni. 25.5.2012 15:39
Hvetur til áhlaups á Landsbankann Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, hvetur íbúa á Fáskrúðsfirði og Eskifirði til þess að taka peninga sína út úr Landsbankanum og leggja þá inn á reikninga annarsstaðar. 25.5.2012 15:37
Björn Valur: "Það er eitthvað súrt við þetta“ "Þetta slær menn,“ segir Björn Valur Gíslason, þingflokksformaður Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs, um ákvörðun Landsbankans um að loka og sameina útibú á Austurlandi, Vestfjörðum, Snæfellsnesi og í Reykjavík. Starfsmönnum útibúanna úti á landi munu því fækka um 50 við þessar aðgerðir, 29 starfsmönnum hefur verið sagt upp en 15 verið boðinn starfslokasamningur vegna aldurs. 25.5.2012 14:21
Krakkar í Álfhólsskóla komu færandi hendi Hressir krakkar í 7 EJ í Álfhólsskóla í Kópavogi komu með gömul hjól og gáfu í söfnun Barnaheilla og Wow Cyclothon fyrir hádegi í dag. Söfnunin stendur til 11. júní næstkomandi. Hjólunum verður safnað á endurvinnslustöðvum Gámaþjónustunnar og Hringrásar um landið allt og hjá Sorpu á höfuðborgarsvæðinu. Hjólin eru ætluð börnum sem ekki hafa kost á því að kaupa sér reiðhjól. Á leiðinni fundu börnin að afhendingarstað fundu börnin í Álfhólsskóla eitt hjól. Það var svo gamalt og úrelt að börnin drógu þá ályktun að enginn ætti það og kipptu þau hjólinu því með. 25.5.2012 13:40
Yfirlögregluþjónn kærir falsaða undirskrift á lista Ástþórs Daníel Guðjónsson, yfirlögregluþjónn á Akureyri, hefur kært fölsun á undirskrift sinni á meðmælandalista Ástþórs Magnússonar forsetaframbjóðanda í Norðausturkjördæmi, til lögreglunnar. Hann sagði í viðtali við RÚV í hádeginu að hann hefði fengið að skoða umræddan listann, þar sem í ljós kom að einhver hefur skrifað nafn hans á listann án hans vitneskju. 25.5.2012 13:26
Segir eðlilegt að lögreglan rannsaki framboðslista Ástþór Magnússon forsetaframbjóðandi hefur skilað hátt í 200 undirskriftum til viðbótar í Reykjavík eftir að yfirkjörstjórn gerði athugasemdir við lista sem hann sendi inn í kjördæmið. Í viðtali í gær við Pál Hlöðvesson, formann yfirkjörstjórnar í Norðausturkjördæmi, kom fram að úttekt kjörstjórnar í kjördæminu hafi leitt í ljós að einstaklingar á lista Ástþórs könnuðust ekki við að hafa skrifað sig á listann. Það virðist einnig hafa átt við í Reykjavík. 25.5.2012 12:28
Óupplýst hver stóð á bak við stærsta fíkniefnainnflutning síðasta árs Enn er óupplýst hverjir stóðu að innflutningi tíu kílóa af amfetamíni og rúmlega átta þúsund MDMA tafla til Straumsvíkur í svokölluðu Straumsvíkurmáli, en Sævar Sverrisson var hinsvegar dæmdur fyrir að flytja fíkniefnið til landsins. Í dómsorði segir að hann hafi ekki vitað hvað var í kössunum sem fluttir voru hingað til lands fyrir jól. Hann játaði hinsvegar skýlaust innflutning stera. 25.5.2012 12:25
Fangelsismálastjóri: Reynslulausn fylgja ströng skilyrði Rúnar Bjarki Ríkharðsson, sem fékk einn þyngsta dóm sem fallið hefur hér á landi, fyrir morð og tvær nauðganir, er kominn á reynslulausn. Fangelsismálastjóri segir það almennt minnka líkur á endurteknum afbrotum að setja fanga á reynslulausn, með tilheyrandi eftirliti, en að halda þeim lokuðum inni. Fjallað er um málið í DV í dag. Rúnar Bjarki var dæmdur árið 2000 og afplánaði hann tólf ár af átján ára dómi sínum. Afbrot Rúnars Bjarka vöktu mikla athygli á sínum tíma. Í forsíðuumfjöllin DV árið 2007 var hann kallaður "hættulegasti maður Íslands" og vildi enginn af viðmælendum blaðsins koma fram undir nafni af ótta við hefndaraðgerðir.. Páll Winkel, fangelsismálastjóri, segist ekki geta tjáð sig sérstaklega um reynslulausn Rúnars Bjarka en svarar þess í stað almennt. "Alltaf séu tveir kostir í stöðunni, að láta fanga sitja inni út dóm sinn "og síðan kveður hann okkur og vitum við ekkert um hann það sem eftir er. Hinn kosturinn er að veita fanganum lausn til reynslu. Þá getum við sett ýmis skilyrði. Við getum sett skilyrði um að viðkomandi mæti til sálfræðings, til geðlæknis, haldi sig á ákveðnum stöðum, umgangist ekki tiltekið fólk, neyti ekki fíkniefna, og svo framvegis. Við teljum einfaldlega, og það hefur sýnt sig, að reynslulausn með miklum skilyrðum sé mun vænlegri til þess að tryggja að viðkomandi brjóti ekki af sér aftur, heldur en einfaldlega að loka hann inni í ákveðin ár og henda honum síðan út." Brjóti fangar skilyrði reynslulausnar fara þeir almennt aftur í fangelsi, og það séu því þeirra hagsmunir að halda sig við skilyrði Fangelsismálastofnunar. 25.5.2012 12:23
Geir Haarde kominn í nýja vinnu Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, hefur gengið til liðs við OPUS lögmenn sem ráðgjafi í alþjóðlegum verkefnum. Einn af eigendum stofunnar er Borgar Þór Einarsson, stjúpsonur Geirs. 25.5.2012 11:38
Með loftbyssu og skotfæri í Leifsstöð Karlmaður var með loftbyssu og skotfæri í fórum sínum í Flugstöð Leifs Eiríkssonar í fyrradag. Höfðu munirnir komið fram við skimun öryggisgæslu á farangri mannsins. Eigandinn, erlendur ferðamaður, kvaðst hafa komið með skipi frá Noregi og vera á leiðinni til Grænlands með flugi. Honum var gerð grein fyrir að óleyfilegt væri að ferðast með muni af þessu tagi og lagði lögreglan á Suðurnesjum síðan hald á loftbyssuna, tvo kassa af loftþrýstihylkjum og fjögur box af skotfærum. 25.5.2012 11:27