Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Dómur kveðinn upp í stóru fíkniefnamáli Dómur verður kveðinn upp í einu stærsta fíkniefnamáli síðasta árs klukkan korter yfir níu í dag. Málið snýst um mikið magn fíkniefna sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lagði hald á fyrr í þessum mánuði í Straumsvík. Það hafði komið hingað til lands um borð í gámaskipinu Franciscu frá hollensku skipafélagi og búið um það í nokkrum pakkningum. Skipið var að koma frá Rotterdam í Hollandi. 25.5.2012 08:59
Ólafur Ragnar tekur forystu Stuðningur við áframhaldandi setu Ólafs Ragnars Grímssonar í embætti forseta hefur aukist verulega eftir að hann hóf kosningabaráttu sína í síðustu viku samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2. Stuðningur við Þóru Arnórsdóttur dalar á sama tíma. Aðrir frambjóðendur njóta lítils stuðnings. 25.5.2012 06:18
Sluppu vel eftir 40 metra fall Tveir ferðamenn, karl og kona, sluppu ótrúlega vel þegar brún á Lágey Dyrhólaeyjar, sem þau stóðu á, gaf sig um hádegisbil í gær. 25.5.2012 11:00
Vinnuhópur meti afnám hafta Íslensk stjórnvöld og framkvæmdastjórn Evrópu tilkynntu í gær um myndun sameiginlegs vinnuhóps um afnám gjaldeyrishafta á Íslandi. Í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu segir: „Frjálst flæði fjármagns er einn meginþátturinn í fjórfrelsinu á sameiginlegum innri markaði Evrópu og því liggur fyrir að ríki með gjaldeyrishöft geta ekki gerst aðilar að Evrópusambandinu.“ 25.5.2012 08:00
Tilraun til hættulegrar árásar Hæstiréttur staðfesti í gær dóm yfir 38 ára gömlum karlmanni, Herði Þráinssyni, fyrir fjölmörg brot. Hann hafði verið dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi í héraðsdómi. 25.5.2012 07:30
Tugir mála á leið til sérstaks saksóknara Skattrannsóknarstjóri hefur sent 66 mál til sérstaks saksóknara og tugir til viðbótar eru á leiðinni. Sakfelling hefur fengist í öllum málum sem lokið hefur með dómi. Stærstu málin sem rannsökuð eru snúast um milljarða undandrátt. 25.5.2012 07:30
Reglur hertar vegna Annþórs og Barkar Öryggisgangur á Litla-Hrauni verður rýmdur fyrir tvo fanga sem grunaðir eru um manndráp áður en þeir losna úr einangrun, samkvæmt fyrirmælum fangelsismálastjóra. Þar verða þeir einir og réttindi þeirra í löglegu lágmarki. 25.5.2012 07:00
Málflutningur í september Munnlegur málflutningur í máli ESA gegn Íslandi fyrir EFTA-dómstólnum vegna Icesave hefst 18. september næstkomandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu. 25.5.2012 06:30
Kosið um sameiningu í haust Íbúar Garðabæjar og Álftaness munu greiða atkvæði um það í haust hvort sameina eigi sveitarfélögin. 25.5.2012 06:00
Hefta vind og binda kolefni Vísbendingar eru um að aukinn trjágróður og byggð innan borgarmarka Reykjavíkur hafi dregið úr vindi svo nemi allt að 0,1 metra á sekúndu á hverjum áratug frá því um 1950. Þetta kemur fram í grein sem Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur ritar í fyrsta tölublað Skógræktarritsins á árinu sem nú er komið út. 25.5.2012 06:00
Herferðin kom til af nauðsyn Lækkun á veiðigjaldi frá því sem nú er í frumvarpi ríkisstjórnarinnar skiptir ekki máli. Formaður LÍÚ segir Svavari Hávarðssyni að um lamandi hækkun fyrir fyrirtækin sé að ræða eftir sem áður. Hann segir að völd LÍÚ séu ofmetin og hagkerfið sjái um að kom 25.5.2012 06:00
Brjóstabollan gaf 1,5 milljónir Landssamband bakarameistara, LABAK, safnaði 1,5 milljónum króna til styrktar grunnrannsóknum á brjóstakrabbameini dagana 10. til 13. maí. Átakið var til stuðnings styrktarfélaginu Göngum saman sem styrkir grunnrannsóknir á brjóstakrabbameini. 25.5.2012 05:30
Boðar skoðun á innra skipulagi embættisins Verklagsreglur hjá sérstökum saksóknara verða endurskoðaðar í kjölfar þess að embættið kærði tvo fyrrum starfsmenn til ríkissaksóknara fyrir brot á þagnarskyldu. Málið hefur ekki áhrif á dómsmál þrotabús Milestone, segir skiptastjóri. 25.5.2012 05:30
50 milljónir gegn glæpastarfsemi Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis beinir þeim tilmælum til innanríkisráðherra að undirbúa aðgerðaáætlun gegn skipulagðri glæpastarfsemi. Þá vill nefndin að 50 milljónir fari á fjáraukalög í heimild fyrir lögreglu til að starfrækja sérstakt rannsóknar- og aðgerðateymi gegn skipulagðri glæpastarfsemi og mansali. 25.5.2012 05:00
50 missa vinnuna í hagræðingu Starfsmönnum Landsbanka Íslands fækkar um 50 um mánaðamótin vegna hagræðingaraðgerða. Átta útibúum verður lokað eða þau sameinuð öðrum og deildir í höfuðstöðvum bankans verða sameinaðar. 25.5.2012 05:00
Sendu Samkeppniseftirliti kvörtun Wow air hefur kært til Samkeppniseftirlitsins synjun IGS, dótturfélags Icelandair, á því að veita Wow air þjónustu við flugafgreiðslu á Keflavíkurflugvelli. Vallarvinir, annað fyrirtæki sem annast flugafgreiðslu í Keflavík, hefur einnig hafnað því að þjónusta Wow air. 25.5.2012 04:30
Segir jafnréttismál í ólestri Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir ríkisstjórnina ekki hafa staðið við gefin fyrirheit í jafnréttismálum, þrátt fyrir að hafa sett þau í öndvegi. 25.5.2012 04:00
Verjandi líkti al-Thani málinu við mál Mladic Ragnar H. Hall, verjandi Ólafs Ólafssonar, í al Thani málinu líkti stöðu sakborninga þess máls við stöðu Radko Mladic við fyrirtöku í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. 24.5.2012 21:34
Björk fékk Webby verðlaunin Björk Guðmundsdóttur voru veitt Webby verðlaunin í vikunni í flokknum listamaður ársins. Webby verðlaunin er árlegur viðburður og í ár eru 16 ár liðin frá því að Webby verðlaunin voru stofnuð. Verðlaunin eru veitt framúrskarandi árangri tengdum internetinu. Þau eru framsett af The International Academy of Digital Arts and Sciences, en meðlimir eru einstaklingar á sviði tækni og viðskipta og eru einhver helsta viðurkenning sem veitt er í Bandaríkjunum á því sviði. 24.5.2012 21:30
Búinn að skila meðmælendalista „Við erum búin að skila meðmælendalistunum," segir Hannes Bjarnason, forsetaframbjóðandi. Alls vantaði 126 undirskriftir á listann svo að hann yrði samþykktur af yfirkjörstjórnum Reykjavíkurkjördæma norðurs og suðurs. 24.5.2012 21:28
Íslendingar duga ekki á Drekasvæðið - gefast upp Útgerðarmaðurinn sem er á leið í olíuleit á Drekasvæðinu segir að ekki þýði lengur að hafa Íslendinga í áhöfn, þeir hafi ekki úthald í langa túra. Við ræddum í gær við eiganda Valbergs VE en skipið fer eftir helgi á Drekasvæðið sem aðstoðarskip í norskum rannsóknarleiðangri að leita merkja um olíu með hljóðbylgjumælingum. 24.5.2012 20:30
"Menntaskólakerfið er undirlagt af kannabisneyslu" Magnús Stefánsson, forvarnarfulltrúi, hefur miklar áhyggjur af aukinni neyslu ungmenna á kannabisefnum. Hann var gestur í útvarpsþættinum Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag og ræddi við þáttastjórnendur um það mikla framboð fyrir kannabisefnum sem myndast hefur hér á landi. 24.5.2012 20:00
Jóhanna og Füle ræddu gjaldeyrishöftin Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, fundaði í dag með Stefan Füle, framkvæmdastjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, í Stjórnarráðinu. 24.5.2012 19:56
Catalina lenti á Reykjavíkurflugvelli Catalina flugbáturinn, sem verður helsti sýningargripur flugdagsins í Reykjavík, lenti á Reykjavíkurflugvelli fyrir stuttu. 24.5.2012 19:30
Verjandi Barkar furðar sig á umfjöllun fjölmiðla Verjandi Barkar Birgissonar, sem grunaður er um að hafa banað mann á Litla Hrauni 17. maí síðastliðinn ásamt Annþóri Kristjáni Karlssyni, furðar sig á því hvernig rannsóknargögn málsins hafi ratað í hendur fjölmiðla. 24.5.2012 18:49
Íhuga að hætta við komu skemmtiferðaskips vegna tollalaga Franskt félag íhugar að hætta við fyrirhugaða siglingu skemmtiferðaskips við Íslandsstrendur í sumar vegna tollalaga. Félaginu er gert að greiða háar fjárhæðir í skatta og aðflutningsgjöld umfram önnur skemmtiferðaskip þar sem ætlunin er að taka nýja farþega um borð hér á landi. 24.5.2012 18:45
Fjölskyldufyrirtæki tapaði gengismáli Skuldastaða yfir þúsund fyrirtækja er í uppnámi eftir að Hæstiréttur sýknaði Lýsingu nú síðdegis um ólögmæta gengistryggingu þúsunda lánasamninga. "Vonbrigði,“ segja hjónin sem eiga fyrirtækið Smákrana og töpuðu málinu. 24.5.2012 18:30
Hæstiréttur sýknar Fylki Hæstiréttur sýknaði í dag Íþróttafélagið Fylkir af kröfum Sveins Rafns Eiðssonar en hann slasaðist alvarlega þegar hann stökk yfir vegg við Fylkisheimilið í september árið 2005. Sveinn féll 3.8 metra og lenti á steinsteyptri stétt hinum megin við vegginn. 24.5.2012 17:58
Byssumaður reyndist vera leikari Sem betur fer eru útköll lögreglu stundum byggð á misskilningi. Þannig var því t.d. farið í gær þegar tilkynning barst um byssumann á ferli á höfuðborgarsvæðinu. 24.5.2012 16:58
Lögmenn Annþórs ósáttir við framgang lögreglu Lögmenn Annþórs Kristjáns Karlssonar, sem grunaður er um að hafa banað Sigurði Hólm Sigurðssyni, samfanga sínum á Litla Hrauni ásamt Berki Birgissyni, segja að ekkert bendi til þess, á þessu stigi, að Annþór eigi hlut að máli. Hann hafi staðfastlega neitað sök. 24.5.2012 16:42
Í aðgerð vegna fótbrots - konan hryggbrotnaði Karlmaðurinn, sem féll niður um 40 metra þegar að brún á Lágey Dyrhólaeyjar gaf sig í dag, er í aðgerð vegna fótbrotsins sem hann hlaut af fallinu. 24.5.2012 16:17
Könnuðust ekki við að styðja Ástþór Stikkprufur sem yfirkjörstjórn í Norðausturkjördæmi hefur framkvæmt hefur leitt í ljós að minnsta kosti tíu einstaklingar kannast ekki við að hafa skrifað nafn sitt á undirskriftarlista Ástþórs Magnússonar forsetaframbjóðanda. 24.5.2012 15:36
Þjóðaratkvæðagreiðsla fer fram um tillögur stjórnlagaráðs Þingmenn samþykktu nú á þriðja tímanum tillögur um þjóðaratkvæðagreiðslu um tillögu stjórnlagaráðs um stjórnarskrána. 35 þingmenn samþykktu atkvæðagreiðsluna en 15 voru á móti. Því er ljóst að þjóðaratkvæðagreiðslan fer fram ekki síðar en 20. október næstkomandi. 24.5.2012 14:59
Íbúar kjósa um sameiningu í haust Íbúar Garðabæjar og Álftaness munu í haust greiða atkvæði um það hvort að sameina eigi sveitarfélögin. Samstarfsnefnd um sameiningu sveitarfélaganna samþykkti þetta samhljóða á fundi sínum fyrr í dag. 24.5.2012 14:56
Næstum helmingur ók of hratt í Sigtúni Brot 46 ökumanna voru mynduð í Sigtúni í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sigtún í austurátt, við Ásmundarsafn. 24.5.2012 14:48
Kannabis í Kópavogi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í húsi í Kópavogi eftir hádegi í gær. Við húsleit fundust 25 kannabisplöntur og viðurkenndi húsráðandi, karl á fertugsaldri, aðild sína að málinu. 24.5.2012 14:47
Björgunarsveitarmaður: Kraftaverk hvað þau sluppu vel "Þetta er ekkert annað en kraftaverk,“ segir Grétar Einarsson úr björgunarsveitinni Víkverja í Vík, en sveitin kom fyrst á vettvang eftir að brún á Lágey Dyrhólaeyjar gaf sig með þeim afleiðingum að tveir ferðamenn, karl og kona, féllu niður um 40 metra. Eins og sjá má á myndunum er hreint út sagt ótrúlegt að þau hafi sloppið lifandi. 24.5.2012 14:16
Tekur 500 klukkustundir að fara yfir málskjölin Ætla má að það taki verjendur 500 klukkustundir að fara yfir málskjöl í al-Thani málinu gegn fyrrverandi stjórnendum Kaupþings. Þetta sagði Ragnar H. Hall, verjandi eins sakborningsins, við fyrirtöku í morgun. Skjölin eru á 7000 blaðsíðum. 24.5.2012 14:08
Druslugangan haldin í annað sinn "Þetta gekk rosalega vel í fyrra og þátttakan var framar öllum vonum. Þess vegna er ekkert því til fyrirstöðu að endurtaka leikinn í ár,“ segir María Lilja Þrastardóttir, einn af skipuleggjendum Druslugöngunnar sem haldin verður þann 23. júní næstkomandi. 24.5.2012 14:00
Tillaga um að setja ESB í þjóðaratkvæði í haust felld á þingi Tillaga Vigdísar Hauksdóttur þingkonu Framsóknarflokksins um hvort efna skuli til þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort stöðva eigi aðildarviðræður við Evrópusambandið var felld á þingi rétt í þessu með 34 atkvæðum gegn 25. Fjórir þingmenn voru fjarverandi. Stjórnarþingmennirnir Guðfríður Lilja Grétarsdóttir og Jón Bjarnason studdu tillögu Vigdísar. Þingmenn Hreyfingarinnar sögðu hinsvegar nei og það gerðu þau Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Siv Friðleifsdóttir og Guðmundur Steingrímsson líka, auk stjórnarþingmanna. 24.5.2012 12:42
Vill að Alþingi kaupi Landsímahúsið undir skrifstofur Falla á frá byggingaráformum á skrifstofuhúsnæði Alþingis við Austurvöll en kaupa þess í stað gamla Landssímahúsið við Austurvöll. Þá þarf að fara fram á að borgarstjóri geri bragarbót á svæðinu en það hefur verið illa hirt að undanförnu. Þetta kom fram í máli þingmanns í umræðu um störf þingsins í morgun. 24.5.2012 12:25
Féllu af syllu í Dyrhólaey Fjórir ferðamenn duttu niður af syllu í Dyrhólaey í dag þegar hún gaf sig og slösuðust þrír þeirra. Einn fótbrotnaði en hinir slösuðust minna. Björgunarsveitamenn og þyrla Landhelgisgæslunnar hafa verið kölluð út vegna slyssins. Töluverður viðbúnaður varð fyrst eftir að tilkynning barst um slysið en nú hefur verið dregið úr honum. 24.5.2012 11:58
Ekki þorandi að flytja Börk í dóminn - úrskurðað um varðhald í fangelsinu Kveða átti upp gæsluvarðhaldsúrskurð yfir Annþóri Kristjáni Karlssyni og Berki Birgisson í Héraðsdómi Suðurlands klukkan ellefu í morgun. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu var það ekki gert í dómnum heldur kom dómari á Litla Hraun og kvað upp úrskurð þar. Þeir voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 13. júní næstkomandi. 24.5.2012 11:21
Viðbrögð Grétu og Jónsa - myndband Gréta Salóme og Jónsi stóðu sig með stakri prýði í forkeppni Eurovision á þriðjudaginn. Þau komust upp úr fyrri riðlinum og keppa fyrir Íslands hönd á laugardaginn í aðalkeppninni sem fer fram í Bakú, höfuðborg Aserbaídjan. 24.5.2012 11:09
Allt að þriggja ára fangelsi liggur við brotum starfsmannanna Fyrrverandi lögreglumennirnir hjá sérstökum saksóknara gætu átt yfir höfði sér allt að þriggja ára fangelsi verði þeir fundnir sekir um að hafa rofið þagnarskyldu. Komið hefur fram að mennirnir voru að störfum fyrir þrotabú Milestone á sama tíma og þeir störfuðu fyrir embætti sérstaks saksóknara. Fram hefur komið að þeir unnu skýrslu fyrir þrotabúið sem þeir fengu greiddar 30 milljónir fyrir. 24.5.2012 11:00