Viðræður um fjármögnun hefjast í næstu viku 26. maí 2012 04:00 Í Hverahlíð Orkuveitan hefur þegar lagt í nokkurn kostnað við tilraunaboranir á Hellisheiði. Fréttablaðið/Vilhelm
Formlegar viðræður um fjármögnun Hverahlíðarvirkjunar hefjast í næstu viku. Að sögn Ingvars Stefánssonar, fjármálastjóra Orkuveitunnar, hafa óformlegir fundir átt sér stað frá því stjórn Orkuveitunnar veitti í lok apríl umboð til að hefja viðræðurnar. Ramminn í mögulegu eignarhaldi virkjunarinnar hefur legið fyrir í nokkurn tíma, en stefnt er að svokallaðri verkefnafjármögnun með aðkomu lífeyrissjóða. Gert er ráð fyrir að Orkuveitan leggi til félags um virkjunina þá fjárfestingu sem þegar hefur verið lagt í vegna hennar. Virkjunin er forsenda þess að Orkuveitan fái staðið við orkusamninga vegna álversins í Helguvík. „Uppleggið er þannig að engin áhætta verði fólgin í verkefninu fyrir Orkuveituna eða eigendur hennar,“ segir Ingvar. Ósamið sé hins vegar um allar stærðir, svo sem varðandi arðsemi og kostnað. „Við gefum okkur ákveðinn tíma í samningslotu núna, svona fram á mitt sumar,“ segir hann, en gerir um leið ráð fyrir því að heldur lengri tíma taki að koma á endanlegum samningi. „Ég reikna með að þetta geti tekið að minnsta kosti hálft ár,“ segir hann. Áður hefur komið fram að stjórn Orkuveitunnar geri ráð fyrir því að fullgerð virkjun gangi til baka til Orkuveitunnar í lok samningstímans. - óká
Mest lesið Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Erlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Héldu námskeið um heiðursofbeldi Innlent Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Fleiri fréttir Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Sjá meira