Óupplýst hver stóð á bak við stærsta fíkniefnainnflutning síðasta árs VG skrifar 25. maí 2012 12:25 Lögfræðingar sakborninganna.
Enn er óupplýst hverjir stóðu að innflutningi tíu kílóa af amfetamíni og rúmlega átta þúsund MDMA tafla til Straumsvíkur í svokölluðu Straumsvíkurmáli, en Sævar Sverrisson var hinsvegar dæmdur fyrir að flytja fíkniefnið til landsins. Í dómsorði segir að hann hafi ekki vitað hvað var í kössunum sem fluttir voru hingað til lands fyrir jól. Hann játaði hinsvegar skýlaust innflutning stera. Auk Sævars var Geir Hlöðver Ericsson dæmdur í málinu. Þeir tveir voru báðir dæmdir fyrir að smygla sterum inn í landið. Sævar hlaut þyngsta dóminn, eða fjögurra og hálfs árs fangelsi. Geir fékk tveggja ára fangelsi. Í niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur segir að þó það sé sannað að mennirnir hafi flutt inn steraefnin, sem komu með sömu sendingu og hin fíkniefnin, þá þýði það ekki sjálfkrafa að þeir félagar hafi einnig flutt inn harðari fíkniefnin í kössunum. Hitt sé þó óumdeilt, Sævar flutti kassana, sem innihéldu fíkniefnin, til landsins. Hann var því sakfelldur fyrir innflutninginn, ásetningurinn hafi þó verið lítill, eins og fram kemur í dómsorði. Eina vitnið sem gat upplýst um það hverjir stóðu að fíkniefnaflutningnum var Íslendingur búsettur í Hollandi. Sá pakkaði efnunum inn í kassana sem síðar voru fluttir til Straumsvíkur. Hann bar vitni símleiðis, en neitaði að gefa upp nafn eða nöfn mannanna sem stóðu á bak við innflutninginn. Birgir var sérstaklega spurður hvort sá sem stæði á bak við fíkniefnin væri Geir Hlöðver. Birgir sagðist þá ekki nafngreina neinn. Hann sagði einfaldlega dóminn verða að draga ályktun um það hvort þetta þýddi að Geir Hlöðver væri ekki maðurinn sem bað hann um að koma efnunum fyrir ásamt sterunum í kössunum.
Tengdar fréttir Tæplega fimm ára fangelsi í Straumsvíkurmálinu Sævar Sverrisson, höfuðpaurinn í Straumsvíkurmáinu, var dæmdur í fjögurra og hálfs árs óskilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur. Geir Hlöðver Ericsson var dæmdur í tveggja ára fangelsi. 25. maí 2012 09:30 Mest lesið Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Erlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Héldu námskeið um heiðursofbeldi Innlent Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Fleiri fréttir Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Sjá meira
Tæplega fimm ára fangelsi í Straumsvíkurmálinu Sævar Sverrisson, höfuðpaurinn í Straumsvíkurmáinu, var dæmdur í fjögurra og hálfs árs óskilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur. Geir Hlöðver Ericsson var dæmdur í tveggja ára fangelsi. 25. maí 2012 09:30