Fær miskabætur vegna rannsóknar á nauðgun - eiginkonan skildi við hann 27. mars 2012 14:08 Héraðsdómur Reykjavíkur.
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur gert Íslenska ríkinu að greiða karlmanni hálfa milljón króna í miskabætur eftir að lögreglan handtók hann í maí árið 2009 þar sem hann var grunaður um að hafa nauðgað gesti skemmtistaðar í Reykjavík. Lögreglan fór því næst fram á að maðurinn sætti gæsluvarðhaldi og samþykkti Héraðsdómur Reykjavíkur kröfu lögreglustjórans um vikulangt varðhald. Fram kemur í dóminum að strax í fyrstu skýrslutöku hjá lögreglu, eftir að hann var handtekinn, hafi hann bent á að hann hefði fjarvistarsönnun. Hann hafi verið við vinnu á veitingastaðnum þegar brotið hafi átt að eiga sér stað. Hann hafi bent á að samstarfsmaður hans við dyravörslu á veitingastaðnum, gæti staðfest fjarvistarsönnun hans. Lögregla tók hinsvegar ekki vitnaskýrslu af vinnufélaganum fyrr en fimm dögum síðar. Þá kom fram að sá handtekni hefði ekki yfirgefið veitingastaðinn fyrr en hann hafi verið handtekinn af lögreglu undir morgun. Mikið hafi verið að gera og því gátu í mesta lagi hafa liðið fimm til tíu mínútur áður en vinnufélaginn hefði farið að undrast um hinn handtekna í dyravörslunni. Svo segir orðrétt í dómsorði: „Stefnandi telji að grunur sá sem lögregla hafi beint að honum hafi eingöngu byggst á framburði brotaþola í málinu, eins langt og hann hafi náð, þrátt fyrir að fyrir hafi legið að hún hafi verið mjög ölvuð þessa nótt og að engin sönnunargögn eða skýrslur vitna styddu að stefnandi hefði brotið gegn henni." Fram kemur í kröfu mannsins að handtaka hans og gæsluvarðhald hafi í kjölfarið haft mikil áhrif á líf mannsins. Hann hafi verið um árabil í hjúskap með konu. Málið hafi orðið þess valdandi að eiginkona hans hafi óskað eftir skilnaði fljótlega eftir að það hafi komið upp. Þá var manninum að auki vikið úr starfi sem dyravörður, en hann hafi lengi haft dyravörslu sem aukastarf til þess að auðvelda framfærslu fjölskyldu sinnar. Málið gegn manninum var fellt niður tæplega hálfu ári síðar. Maðurinn krafðist tíu milljóna í miskabætur en fékk hálfa.
Mest lesið Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent „Tíminn er á þrotum“ Erlent Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Innlent Hrákinn endaði í andliti og auga Innlent Nauðlenti vegna sprengjuhótunar Erlent Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Erlent Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife Innlent Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Fleiri fréttir Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Sjá meira