Fleiri fréttir

Frumvarp er í þingflokkunum

Frumvarp innanríkisráðherra um forvirkar rannsóknarheimildir hefur verið kynnt í ríkisstjórn og er nú til umfjöllunar í þingflokkum stjórnarflokkanna. Ögmundur Jónasson sagði á þingi í gær að hann mundi leggja áherslu á að flýta framlagningu þess á þingi.

Segir embættismenn hafa ánetjast ESB

Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra hefur áhyggjur af því að stofnanaveldið, eins og hann orðaði það, hafi ánetjast Evrópusambandinu. Hann lýsti þeirri skoðun sinni undir glymjandi bjölluhljómi forseta Alþingis í gær, en ráðherra var kominn þó nokkuð fram yfir tímamörk sín.

Réttarhöldin yfirborðskennd tilraun til þess að hvítþvo stjórnmálamenn

Ögmundur Jónasson sagði réttarhöldin yfir Geir H. Haarde yfirborðskennda tilraun til þess að hvítþvo stjórnmálin af hruninu. Þetta sagði hann á fjölmennum fundi sem Vinstri Græn í Reykjavík boðuðu til í kvöld en um 60 manns voru á fundinum, þar á meðal Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, þingmaður.

Fasteignagjöld hesthúsa hærri en á híbýlum manna

"Kostnaður við hestahald hefur stóraukist á síðustu árum og eitt sem hestamenn eru hvað ósáttastir við er að sveitarfélögin hafi sett hesthúsin í flokk með iðnaðarhúsnæðum og því þarf að borga svívirðilega há fasteignagjöld af hesthúsunum,“ segir Haraldur Þórarinsson, formaður Landsambands hestamanna, sem ræddi við félagana í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag.

Eina leiðin að mynda meirihluta með sjálfstæðismönnum

Eina leiðin til að mynda meirihluta í Kópavogi í ljósi þeirrar stöðu sem upp er komin er að Samfylkingin og Vinstri grænir nái samkomulagi við sjálfstæðismenn. Þetta segir oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogsbæ.

Í gæsluvarðhald fyrir íkveikju - ætlaði að brenna sýkla í burtu

Hæstiréttur Íslands staðfesti gæsluvarðhald yfir karlmanni sem hefur játað að hafa kveikt í íbúð sinni nærri Kleppsspítala 14. janúar síðastliðinn. Í úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur kemur fram að maðurinn hefði játað að hafa kveikt í íbúð sinni. Hann virðist hafa notað blöð og pappír og borið eld að pappakössum með bókum í.

Snjóhvítt Reykjavíkurskáld og sliguð tré - myndir

Vetrarkonungur hefur farið mikinn í dag eins og íbúar á höfuðborgarsvæðinu hafa orðið varir við. Lítill vindur er á höfuðborgarsvæðinu og verður áfram í dag og í nótt. Þannig sligar snjórinn trjágreinar auk þess sem styttur mega sætta sig við hvíta hatta og snjóhvít föt.

Dirty Night á Akureyri aflýst

Samkomulag hefur náðst um að aflýsa Dirty Night-kvöldi sem halda átti á Sjallanum á Akureyri laugardagskvöldið 4. febrúar næstkomandi.

Ný framboð hugnast kjósendum vel

Markaðsrannsóknafyrirtækið MMR hefur kannað afstöðu fólks til þess að kjósa nokkur ný stjórnmálaöfl sem annaðhvort hafa lýst yfir framboði eða rætt hefur verið um að mæti til leiks fyrir næstu kosningar. Svo virðist sem Íslendingum hugnist ágætlega að kjósa eitthvað nýtt í næstu kosningum en 52 prósent þeirra sem taka afstöðu segja eitthvert framboðanna sem nefnt var koma til greina sem valkostur við næstu kosningar.

Auðlindarentan verði sýnileg

Nefnd um stefnumörkun ríkisins í auðlindamálum sem forsætisráðherra skipaði í júlí 2011 hefur skilað af sér minnisblaði um stöðu verkefnisins. Þar segir meðal annars að mikilvægt sé að svokölluð auðlindarenta og ráðstöfun hennar í þágu samfélagsins verði sýnileg. Í því sambandi sé mikilvægt að stofna auðlindasjóð.

Ferðamaðurinn látinn

Grískur ferðamaður sem varð fyrir fólskulegri líkamsárás í miðbæ Reykjavíkur í maí árið 2010 er látinn. Ríkissaksóknari hefur fengið þær upplýsingar frá Europol að hann hafi látist í desember síðastliðnum. Ekki er þó vitað hvort andlát hans tengist árásinni. Þrír menn hafa verið ákærðir fyrir að ráðast á manninn en við aðalmeðferð málsins í morgun neituðu þeir sök. Í ákæru segir að mennirnir hafi veist að manninum, sem var grískur ferðamaður hér á landi, með ofbeldi, meðal annars með ítrekuðum höggum og spörkum víðsvegar um líkama hans, höfuð og andlit. Maðurinn hlaut 2 cm langt sár aftan á höfði, nefbrot, mar og yfirborðsáverka á andlit og yfirborðsáverka á kvið, bak, mjaðmagrind og á hendi, segir í ákærunni. Árásin átti sér stað aðfaranótt föstudagsins 7. maí árið 2010 í Þingholtsstræti og nokkru síðar í Bankastræti, til móts við veitingastaðinn Sólon. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu neituðu mennirnir þrír, sök við aðalmeðferðina í morgun og sögðust ekki muna eftir árásinni.

Markmið endurskoðunar stjórnarskrár "óljós og umdeild"

Fræðimenn í lögfræði við Háskóla Íslands og Háskólann á Akureyri gagnrýna tillögur stjórnlagaráðs í umsögn til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis, sem hefur tillögurnar til umfjöllunar. Þeir segja að markmið endurskoðunar stjórnarskrárinnar nú séu óljós og umdeild.

Hálka og erfið færð víðast hvar

Hálka er á Hellisheiði og í Þrengslum og Mosfellsheiði er þungfær. Á Suðurlandi er víða þæfingur eða jafnvel þungfært í uppsveitum en annars staðar er snjóþekja eða hálka.

Gunnar og Róbert eru nördar ársins

Úrslitin í vali á nörd ársins voru kunngjörð á síðbúinni nýársgleði upplýsingatæknifyrirtækisins Advania sem fram fór um liðna helgi. Í tilkynningu frá Advania segir að í aðdraganda gleðinnar hafi verið efnt til samkeppni meðal viðskiptavina og samstarfsaðila fyrirtækisins og NÖRD ÁRSINS valinn. "Alls bárust um 630 tilnefningar frá 10 þúsund manns og þar af fengu 20 manns fleiri en fimm atkvæði. Dómnefnd fór síðan yfir tilnefningar og valdi NÖRD ÁRSINS með hliðsjón af þeim.“

Daginn lengt um eina og hálfa klukkustund

Skammdegið víkur nú hratt og hefur daginn lengt um meira en eina og hálfa klukkustund frá því dagur var stystur þann 22. desember. Þá telst 24. janúar vera sá dagur þar sem mestar líkur eru á meira en 15 stiga frosti á Íslandi. En hver skyldi vera kaldasti dagur ársins að meðaltali?

Sílikonbrjóstin farin að leka: "Maður er náttúrulega hræddur"

Kona með PIP-sílíkonfyllingar fékk í gær staðfest að sílíkonið væri farið að leka um líkamann. Frá því fregnir bárust af mögulegri skaðsemi fyllinganna hefur hún hvergi fengið að panta tíma í ómskoðun, en með hörku fékk hún loks að fara í skoðun.

Öflugur sólstormur á leið til jarðar

Óvenju kraftmikill sólstormur skellur á jörðinni í dag og næstu daga en gríðaröflugt sólgos átti sér stað í gær á norðurhveli sólarinnar. Um er að ræða stærsta sólstorm síðustu sex ára. Að sögn bandarísku geimferðastofnunarinnar NASA mun stormurinn ekki hafa mikil áhrif á jörðunni en truflanir gætu þó orðið á gerfitunglum á braut hennar.

Snjókoma í allan dag - og í kvöld

Það var mörgum sem brá þegar þeir komu út í morgun enda var allt nánast á kafi í snjó og á sumum stöðum blasti við sjón sem ekki er óalgengt að sjá á póstkorti. Snjórinn sem nú er úti féll á aðeins tveimur klukkutímum í morgun og gefur það auga leið að það hafi snjóað nokkuð duglega.

Harmleikur á Hótel Frón: Móðirin er sakhæf

Agné Krataviciuté, litháísk kona, sem ákærð hefur verið fyrir að skilja nýfætt barn sitt eftir í ruslagámi við Hótel Frón í sumar, er sakhæf. Þetta kom fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun þegar mál hennar var tekið fyrir.

Vöktu mikla athygli í Abu Dhabi

Umhverfisvæn steinsteypa sem Ólafur H. Wallevik prófessor hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands og erlendir samstarfsaðilar hafa þróað hefur vakið mikla athygli á Heimsþingi hreinnar orku sem fram fór í Abu Dhabi í síðustu viku. Kolefnisspor nýju steypunnar er aðeins 0,05 kg/kg eða rétt um fjórðungur þess sem steypa af sama styrkleikaflokki hefur.

Rafmagnslaust um tíma á Vesturlandi

Rafmagn fór af Borgarfirði og Snæfellsnesi þegar spennir leysti út í aðveitustöð við Vatnshamra um klukkan sjö í morgun. Rafmagn komst fljótlega aftur allt svæðið. Tæpum klukkutíma síðar leysti Reykholtsdalslína út en fljótlega tókst að koma rafmagni að Deildartungu og rétt fyrir klukkan níu komst rafmagn aftur á allt svæðið. Eiga nú allir notendur á að vera komnir með rafmagn að því er fram kemur í tilkynningu frá RARIK.

Flughált og slæm færð víða

Það er hálka á Sandskeiði, Hellisheiði og í Þrengslum. Á Suðurlandi er víðast hálka, snjóþekja eða jafnvel þæfingur. Flughált er austan Hvolsvallar.

Flugfélag Íslands frestar fyrstu ferðum í dag

Flugfélag Íslands hefur frestað fyrstu ferðum sínum innnlands fram á níunda tímann vegna ófærðar og skólaakstur hefur verið felldur niður á Hvammstanga, þar sem ekkert ferðaveður er þar um slóðir.

Vindhviðurnar náðu fellibylsstyrk

Vindur fór upp í 47 metra á sekúndu í vindhviðu að Hvammi, austan við Markarfljót í nótt, en það er aftakaveður eða fellibylsstyrkur.

550 sílíkonaðgerðir á ári

Árlega láta að minnsta kosti 550 konur hér á landi stækka á sér brjóstin eða endurnýja gamlar sílíkonfyllingar. Er þessi fjöldi miðaður við síðustu þrjú ár. Hlutfall endurnýjana getur verið allt að fjórðungur af heildartölunni, en oftast er mælst til þess að púðar séu endurnýjaðir á fimm til tíu ára fresti. Brjóstastækkun kostar á bilinu 400 til rúmlega 520 þúsund krónur.

Helmingur erlendra fanga búsettur hér

Hlutfall erlendra fanga sem búsettir eru hér á landi hefur aukist mikið síðan árið 2000. Í dag býr um helmingur fanga hér, en árið 2000 sátu sjö erlendir einstaklingar í fangelsi á Íslandi og af þeim var einungis einn búsettur hér.

Stundum er sígandi lukka best

Íslendingar borða aðeins heilsusamlegri mat en síðast þegar mataræði þeirra var kannað árið 2002. Ný könnun sýnir að sykrað gos hefur látið undan síga en sykurlaust gos sækir á. Skortur á D-vítamíni er eitt alvarlegasta vandamálið sem taka þarf á. Ný skýrsla Landlæknis, Matvælastofnunar og Rannsóknastofu í næringarfræði sýnir stöðuna 2010-2011.

Safna svo fáist augnlæknir

Augnlæknir fæst ekki lengur til starfa á Heilbrigðisstofnuninni á Blönduósi vegna tækjaskorts. Þetta kemur fram í tilkynningu frá hollvinasamtökum HSB um söfnunarátak fyrir nýjum búnaði fyrir HSB.

Sjá næstu 50 fréttir