Fleiri fréttir

Segir gagnrýni byggða á misskilningi

Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, segir að gagnrýni flokkssystkina á ákvarðanir hennar í Landsdómsmálinu byggi á misskilningi. Að minnsta kosti fimm stjórnarþingmenn vilja að hún víki sæti sem forseti Alþingis.

Outlaws-maður áfram í gæsluvarðhaldi

Hæstiréttur Íslands staðfesti áframhaldandi gæsluvarðhald yfir einum af meintum skotárásarmönnum sem var handtekinn í nóvember síðastliðnum. Manninum er gefið að sök að hafa skotið á bifreið manns við Sævarhöfða þann 18. nóvember síðastliðinn en talið er að ástæðan sé óuppgerð fíkniefnaskuld. Maðurinn er talinn tengjast vélhjólagenginu Outlaws.

Egill aftur kærður fyrir nauðgun

Önnur kona hefur kært Egil "Gillzenegger" Einarsson fyrir nauðgun, samkvæmt því sem kemur fram á fréttavef Ríkisútvarpsins. Þar segir að konan hafi farið til lögreglu í dag og lagt kæruna fram. Björgvin Björgvinsson, yfirmaður kynferðisbrotadeildar lögeglunnar, vildi ekki staðfesta frétt RÚV í samtali við Vísi nú fyrir stundu.

Dæmigerðir ferðamenn: Barnlausir Ameríkanar sem eyða 370 þúsundum

Hinn dæmigerði erlendi sumarferðamaður eru tæplega fertug bandarísk hjón sem koma barnlaus í 10 daga frí, skoða Gullfoss og Geysi og kaupa vöru og þjónustu fyrir 370.000 kr. Og þau ætla að koma aftur, ef marka má niðurstöður könnunar sem Ferðamálastofa lét framkvæma síðasta sumr á meðal erlendra ferðamanna. Sagt er frá könnuninni á vef iðnaðarráðuneytisins í dag um leið og þess er getið að rúmlega 565 þúsund erlendir ferðamenn hafi heimsótt Ísland á síðasta ári. Þar er um að ræða 15,8 prósent fjölgun frá fyrra ári. "Mikilvægi ferðaþjónustunnar fer stöðugt vaxandi fyrir samfélagið og hún er komin á bekk með sjávarútveginum og stóriðjunni þegar kemur að sköpun gjaldeyristekna,“ segir ennfremur.

Framfleytti sér og fjölskyldu sinni með vændi í fimm ár

Í Íslandi í dag í kvöld kemur fram kona sem leiddist út í vændi vegna fátæktar og framfleytti sér og börnum sínum samhliða láglaunaðri vaktavinnu í fimm ár. Hún hélt því leyndu fyrir fjölskyldu sinni og var með 10-15 kúnna.

Sykurminna morgunkorn

Á næstunni munu morgunkornin Cocoa Puffs og Honey Cheerios fara í sölu með nýrri uppskrift í verslunum um land allt. "Þessar tegundir sem auðkenndar eru með bláum topp og íslenskum umbúðum munu leysa eldri tegundir af hólmi á næstu vikum. Þær innihalda mun lægra magn sykurs en forverar þeirra ásamt því að innihalda minni fitu og salt. Þessar breytingar á uppskrift eru gerðar til að koma til móts við auknar kröfur neytenda um minni sykur og salt í matvöru,“ segir í tilkynningu frá Nathan & Olsen.

Þrettán undir áhrifum

Þrettán ökumenn voru teknir fyrir akstur undir áhrifum á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Átta af þeim voru ölvaðir undir stýri en þetta voru sjö karlar á aldrinum 23 til 70 ára og ein kona, 17 ára. Þá voru fimm sem óku undir áhrifum fíkniefna en um er að ræða fjóra karla á aldrinum 23 til 36 ára og eina konu, 24 ára. Fjórir af ökumönnunum þrettán höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi.

PIP-málið: Tveir læknar búnir að svara landlækni

"Við erum líklega komin með svör frá tveimur lýtalæknum og munum funda með læknafélaginu á morgun til þess að athuga hvernig við getum fengið þessar upplýsingar eins hratt og hægt er,“ segir Geir Gunnlaugsson, landlæknir.

Klippt af 160 ökutækjum

Um helgina voru skráningarnúmer fjarlægð af eitt hundrað og sextíu ökutækjum víðsvegar á höfuðborgarsvæðinu. Í tilkynningu frá lögreglu segir að þau hafi verið ýmist ótryggð eða óskoðuð og jafnvel hvorutveggja.

Íslendingar taka sig á í mataræðinu

Niðurstöður landskönnunar á mataræði landsmanna 2010-2011 benda til þess að mataræði mataræði Íslendinga hefur þokast nær ráðleggingum um heilsusamlegt mataræði frá árinu 2002.

Ákærður fyrir aðild að úraráni - átti að koma þýfinu úr landi

Ríkissaksóknari hefur ákært mann fyrir aðild sína að ráni í úra- og skartgripaversluninni Michelsen á Laugavegi í október síðastliðnum Maðurinn hefur setið í gæsluvarðhaldi eftir að þýfið fannst í fórum hans en talið er að hann hafi átt að koma því úr landi.

Heimaeyjargosið hófst fyrir 39 árum

Í dag eru þrjátíu og níu ár liðin síðan að Heimaeyjargosið hófst í Vestmannaeyjum. Gosið var fyrsta eldgos sem hefst í byggð á Íslandi en jörðin austan við Kirkjubæ opnaðist rétt eftir miðnætti 23. janúar 1973. Gosið stóð til 3. júlí sama ár en fjölmörg hús fóru undir hraun. Á vef Eyjafrétta segir að vel hafi tekist að koma Eyjamönnum frá Heimaey þar sem flotinn hafi verið að mestu leyti í landi vegna óveðurs daginn áður en gosið hófst.

Vinstri grænir ánægðastir með Skaupið - sjálfstæðismenn ósáttari

Áramótaskaupið virðist hafa fallið flestum landsmönnum vel í geð, ef marka má nýja könnun MMR. Þar var fólk spurt hvað því fannst um Skaupið og sögðu 64,8 prósent þeirra sem afstöðu tóku að þeim hefði fundist það gott. 18 prósent fannst það bæði gott og slæmt og 17,2 prósent voru á því að það hefði verið slakt.

Fagnar hertum reglum um klámefni

Forstöðumaður Barnahúss fagnar nýju frumvarpi innanríkisráðherra sem flokkar bæði teiknimyndaklám og klám þar sem fullorðnir eru barngerðir sem barnaklám. Hann segir að þannig sé hægt að draga úr líkunum á barnamisnotkun í framtíðinni.

Óánægja með Ástu Ragnheiði - 5 stjórnarþingmenn vilja hana burt

Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar, telur rétt að Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir láti af embætti forseta Alþingis. Hann ætlar að styðja tillögu þessa efnis sem nú er í undirbúningi. Mikil óánægja er með störf Ástu Ragnheiðar meðal þingmanna Samfylkingarinnar eftir atkvæðagreiðsluna um Landsdómsmálið á föstudag.

Sveik út 450 þúsund - sagði tvífara sinn vera þjófinn

Kona á sextugsaldri var dæmd í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag fyrir fjársvik. Konan notaði tvo greiðslukort sem hún komst yfir í 23 skipti til að kaupa vörur að andvirði 446 þúsund króna. Brotin áttu sér stað í febrúar og nóvember árið 2009.

Helstu átökin nú innan ríkisstjórnarinnar

Eiríkur Bergmann Einarsson, stjórnmálafræðingur og kennari í Háskólanum á Bifröst, segir deilurnar innan ríkisstjórnarinnar blasa við öllum, í kjölfar þeirra ákvörðunar þingsins að fella tillögu um að vísa frá tillögu Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, um að draga ákæru á hendur Geir H. Haarde til baka.

Borgarafundur í Háskólabíói í kvöld

Boðað hefur verið til borgarafundar í Háskólabíóí í kvöld þar sem staða lánþega verður í brennidepli. Fundurinn hefst klukkan 20:00 og stendur í tvo tíma. Auk reynslusagna verður farið í það hvernig verðtryggingin virkar og bent á lausnir. Fundurinn er sjálfstætt framhald fjölmenns fundar sem haldinn var á sama stað síðastliðið haust. Fundarstjórar verða þau Eiríkur S. Svavarsson og Rakel Sigurgeirsdóttir.

Guðrún enn spurningarmerki - viðræðurnar ekki komnar langt

"Það er eitt af þessum málum sem þarf að fara virkilega vel yfir," segir Hjálmar Hjálmarsson, bæjarfulltrúi Næst besta flokksins í Kópavogi, aðspurður hvort að Guðrún Pálsdóttir haldi áfram sem bæjarstjóri. Nú um helgina hófust formlegar viðræður á milil Sjálfstæðisflokksins, Y-Lista Kópavogsbúa og Næst besta flokksins um að mynda nýjan meirihluta í bæjarstjórn.

Samráð við íbúa um Hljómalindarreit

Íbúar, hagsmunaaðilar og Reykjavíkurborg eiga að fá að vera með í ráðum um skipulag á Hljómalindarreitnum svokallaða sem afmarkast af Laugavegi, Hverfisgötu, Klapparstíg og Smiðjustíg.

Þetta voru greinilega mistök hjá okkur

Fyrirtækið Emmess hefur hætt dreifingu á stelpu- og strákaís vegna harðra viðbragða almennings. „Þetta voru greinilega mistök hjá okkur að gera þetta því við höfum fengið mjög hörð viðbrögð,“ segir Leifur Grímsson, markaðsstjóri Emmess.

Mikki mús styður Ólaf Ragnar áfram í embætti forseta

Hægt er að skrá hvaða bull nafn sem er og hvaða kennitölurugl sem er, í undirskriftasöfnun,sem hófst á netinu fyrir helgi, þar sem skorað er á Ólaf Ragnar Grímsson forseta, að gefa áfram kost á sér í embættið.

Mannekla hjá lögreglu vandamál í Leifsstöð

Dæmi eru um að starfsmenn á Keflavíkurflugvelli komist ekki leiðar sinnar um völlinn vegna útrunna starfsmannapassa sem þeir fá ekki endurnýjaða. Um 160 umsóknir varðandi endurnýjaða starfsmannapassa liggja nú á borði lögreglunnar á Suðurnesjum, en endurnýjunar var krafist á þriggja ára fresti.

Áhyggjur af sterkum efnum í tannhvíttun

Heilbrigðisfulltrúar í landinu hafa orðið varir við að sterkari efni séu notuð á tannhvíttunarstofum en leyfilegt er, að sögn Sigríðar Kristjánsdóttur, deildarstjóra á deild hollustuverndar Umhverfisstofnunar.

Fá aðgang að trúnaðargögnum

Borgarráð skipaði á fimmtudag þriggja manna úttektarnefnd til að skoða stjórnsýsluna og stjórnkerfið í borginni í ljósi skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis um bankahrunið.

Állinn nær allt að fjörutíu ára aldri

Rannsóknir Veiðimálastofnunar á bjartál í Elliðaánum sýna að áll sem elst upp á Íslandi getur náð háum aldri. Álar sem Veiðimálastofnun rannsakaði í göngu niður Elliðaárnar voru allt að 40 ára.

Vill styðja fjárfestingu og efla tengsl

Kína styður viðleitni Evrópuþjóða til þess að viðhalda fjármálalegum stöðugleika og hagvexti. Fréttavefur Kínverska ríkisútvarpsins (CRI) greinir frá því að Wen Jiabao, forsætisráðherra Kína, hafi látið þessi orð falla á fundi með Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands, í byrjun síðustu viku þegar þeir hittust á heimsþingi hreinnar orku í Abu Dhabi í Sameinuðu arabísku furstadæmunum.

Gagnrýnir markaðssetningu á nýjum gosdrykk

Gosdrykkur sem er nýkominn á íslenskan markað er sagður auka brennslu líkamans svo um munar. Fullyrðingin á ekki við rök að styðjast að mati næringarfræðings sem telur slík fyrirheit geta verið neytendum skaðleg.

Eitt tonn af kennslubókum frá Kína

Rúmlega eitt tonn af kennslubókum í kínversku á íslenskri tungu bárust hingað til lands á dögunum. Þær eru gjöf frá Kínverjum en bækurnar eru ætlaðar fyrir allt niður í fimm ára börn.

Leitar stuðnings við vantraust á Ástu Ragnheiði

Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Hreyfingarinnar, er farin af stað með undirskriftarsöfnun til þess að safna stuðningi við vantrauststillögu á hendur Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur, forseta Alþingis.

Allt tiltækt lið kallað að Já

Allt tiltækt lið slökkviliðsins var kallað að höfuðstöðvum Já, sem gefur út Símaskrána, nú rétt fyrir hádegi. Reykur barst úr vararafstöð en slökkvitæki voru notuð til að slökkva þann eld sem var og var flestum slökkviliðsbílum snúið frá. Staðurinn var reykræstur en enn liggur ekki fyrir hvort einhverjar skemmdir hafi orðið.

Flensan að gera vart við sig

Árleg inflúensa virðist vera að ná sér á strik en sóttvarnarlæknir segir sífellt stærra hlutfall þeirra sem leita til læknis hafa fundið fyrir einkennum flensunnar.

Finnst koma til greina að Ögmundur víki úr ríkisstjórn

Álfheiður Ingadóttir, þingmaður VG, segir að sér finnist koma til greina að Ögmundur Jónasson láti af embætti ráðherra vegna afstöðu sinnar í atkvæðagreiðslu um frávísunartillögu á tillögu Bjarna Benediktssonar um að láta málshöfðun gegn Geir Haarde forsætisráðherra niður falla. Í Sprengisandi á Bylgjunni í dag sagði Álfheiður að Ögmundur sæti á ráðherrastól í umboði þingflokks VG, að tillögu formanns flokksins. Hún réði því ekki ein hvort hann sæti áfram.

Handtóku skammbyssumann - verður yfirheyrður

Karlmaður var handtekinn grunaður um brot á vopnalögum um miðnættið í gær. Upplýsingar höfðu borist lögreglunni um skammbyssu í hans vörslu. Maðurinn var færður á næstu lögreglustöð og síðan vistaður í fangageymslu og verður yfirheyrður frekar.

Vilja nýja sundlaug í Fossvogi

Borgarráð Reykjavíkur vill tryggja að mögulegt verði að gera sundlaug í Fossvogsdal. Málið var rætt á borgarráðsfundi síðastliðinn fimmtudag. Samkvæmt hugmyndinni er gert ráð fyrir að sundlaugin verði byggð í samvinnu við Kópavogsbæ og sveitarfélögin tvö munu skipta með sér kostnaði ef að verkinu verður.

Tæplega 12 þúsund skora á forsetann til endurkjörs

Nú hafa rúmlega 11600 manns skorað á Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands, að gefa kost á sér til að sitja áfram í forsetaembættinu á næsta kjörtímabili. Undirskriftarsöfnun þess efnis fer fram á vefsíðu sem sett var upp fyrir tæpum tveimur sólarhringum. Kjörtímabili forsetans lýkur í lok júlí næstkomandi. Ólafur Ragnar hefur þá setið í embættinu í sextán ár. Í nýársávarpi sínu gaf hann það sterklega til kynna að hann myndi hverfa af stóli forseta, en útilokaði þó ekki að hann myndi gefa kost á sér áfram.

Fundu fíkniefni á ökumanni

Lögreglan á Selfossi stöðvaði ökumann sem grunaður var um að aka undir áhrifum fíkniefna í nágrenni við Selfoss í nótt. Þegar lögreglumenn höfðu afskipti af manninum fannst lítilræði af fíkniefni á honum. Hann hafði aldrei hlotið réttindi til þess að aka bíl. Þá var annar ökumaður stöðvaður í nágrenni við Selfoss nú í morgunsárið. Sá reyndist vera undir áhrifum áfengis og hafði auk þess verið sviptur ökuréttindum.

Tvö umferðarslys á Hafnarfjarðarvegi

Tvö umferðarslys urðu með stuttu millibili í nótt á Hafnarfjarðarvegi í Kópavogi, skammt frá Nýbílavegi, þar sem bílum var í báðum tilfellum ekið á ljósastaura. Í fyrra tilfellinu voru tveir sendir á slysadeild til aðhlynningar, en ekki er vitað hvort fólkið sé alvarlega slasað. Í seinna tilfellinu slasaðist enginn.

Kópavogsbær heiðrar Hallfríði

Hallfríður J. Ragnheiðardóttir hlaut í dag Ljóðstaf Jóns úr Vör fyrir ljóð sitt Triptych í árlegri ljóðasamkeppni lista- og menningarráðs Kópavogs. Hallfríður er ellefti handhafi verðlaunanna en tilgangur samkeppninnar er að efla og vekja áhuga á íslenskri ljóðlist.

Ég er frjáls eins og fuglinn

Þegar Lára Jónsdóttir var um fimmtugt seldi hún þakið ofan af höfði sér, sagði upp góðri framkvæmdastjórastöðu og fann til mikils léttis. Síðan hefur hún ferðast vítt og breitt um heimsbyggðina, meðal annars til hins hertekna Gasasvæðis.

Hægt verði að afgreiða málið fyrir aðalmeðferð

Formaður þingnefndar sem á að fjalla um tillögu um að afturkalla ákærur á hendur Geir H. Haarde vonast til að Alþingi verði búið að afgreiða málið áður en aðalmeðferð hefst í málinu í mars. Málið verður líklega tekið fram fyrir önnur mál í nefndinni.

Bílvelta á Vesturlandsvegi

Bílvelta varð á gatnamótum Suðurlandsvegar og Vesturlandsvegar um klukkan sex í dag. Lögreglan og sjúkralið voru kölluð á staðinn, en engin meiðsl urðu á fólki.

Jóhann er bæjarlistamaður Seltjarnarness

Jóhann G. Jóhannsson leikari er bæjarlistamaður Seltjarnarness árið 2012. Þetta er í fimmtánda sinn sem Seltirningar útnefna bæjarlistamann, en það var gert fyrst árið 1996. Þá var það Gunnar Kvaran sellóleikari sem var bæjarlistamaður Seltjarnarness. Jóhann tók við nafnbótinni við hátíðlega athöfn í Bókasafni Seltjarnarness þar sem Katrín Pálsdóttir formaður Menningarnefndar Seltjarnarness afhenti honum heiðursskjal og starfsstyrk.

Sjá næstu 50 fréttir