Fleiri fréttir

Gleðilegt nýtt ár!

Starfsfólk Fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis óskar lesendum og landsmönnum öllum gleðilegs nýs árs og þakkar samfylgdina á því ári sem nú er liðið.

Árið kvatt í Grafarvogi

Kveikt var í brennum klukkan hálfníu í kvöld. Fjölmargir Reykvíkingar mættu í sannkölluðu áramótaskapi til að skoða brennurnar. Brennan í Gufunesi í Grafarvogi var öll hin glæsilegasta eins og Pjetur Sigurðsson ljósmyndari komst að þegar hann var þar á ferð.

Ísland getur verið í fremstu röð

Ísland getur skipað sér í fremstu röð á alþjóðavettvangi sem grænt hagkerfi, sagði Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra í áramótaávarpi sínu í kvöld. Hún sagði að lega okkar á Norðurslóðum kallaði á forystu Íslendinga í þessum efnum og nágrannalöndin og aðrar heimsálfur horfi nú í auknum mæli til þessa svæðis.

Kryddsíldin 2011 á Vísi

Forsvarsmenn stjórnmálaflokkanna á Alþingi komu að vanda saman í Kryddsíld Stöðvar 2 fyrr í dag. Þar skiptust menn á skotum og ræddu árið sem er að líða og það sem er að ganga í garð. Þeir sem misstu af þættinum geta horft á hann hér á Vísi en búið er að skipta honum niður í nokkra hluta.

Ólafur Ragnar útnefndur maður ársins í Kryddsíldinni

Maður ársins að mati Fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis er Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands. Skemmst er frá því að segja að fáir hafa komið jafn afgerandi við sögu í fréttum á árinu og hann - ekki einungis á innlendum vettvangi heldur líka erlendum.

Stýrir landbúnaðar- og sjávarútvegsráðuneytinu í annað sinn

Steingrímur J. Sigfússon tók við tveimur ráðuneytum á ríkisráðsfundi í morgun, landbúnaðar- og sjávarútvegsráðuneytinu og efnahags- og viðskiptaráðuneytinu. Þetta er í annað sinn sem Steingrímur fer með embætti landbúnaðarráð- og sjávarútvegsráðherra, en hann gegndi embættinu í minnihlutastjórninni sem skipuð var í febrúar 2009.

Margrét vill kosningar á sama tíma og landsdómsmálið verður í hámæli

Margrét Tryggvadóttir sagði að sér lítist vel á þá hugmynd að blása til kosninga strax í vor. Hún sagði það hljóma vel í eyrum þeirra sem vilji halda Sjálfstæðisflokknum sem lengst frá völdum í því ljósi að þá Landsdómsmálið, ákæran gegn Geir Haarde fyrrverandi formanni flokksins, væntanlega í hámæli. Því væri það góður tími til að kjósa til þings.

Vinsælast á Vísi árið 2011 - Umræðan

Á hverjum einasta degi ársins birtust nýjar greinar í Umræðunni á Vísi. Hvort sem það voru fastir pennar Fréttablaðsins og Vísis, aðsendar greinar eða greinaflokkar á borð við Öðlinginn; flest helstu mál samtímans voru krufin til mergjar á þessum vinsæla og lifandi vettvangi.

Sautján brennur á höfuðborgarsvæðinu

Áramótabrennur verða venju samkvæmt haldnar víða um land á gamlárskvöld. Eldvarnareftirlit Slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu hefur veitt leyfi fyrir sautján brennum á starfssvæði sínu og þá verða brennur í flestum öðrum bæjarfélögum.

Skemmtiannáll 2011

Meðfram hefðbundnum fréttaflutningi leggur Fréttastofa Stöðvar 2 töluvert upp úr því að fá áhorfendur til að brosa. Á gamla árinu gafst blessunarlega oft tilefni til þess. Við vorum til dæmis minnt á hver ætti íslenska smjörið og hver gegndi embætti sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Hér eru nokkur skemmtileg augnablik úr fréttatímum Stöðvar 2.

Steingrímur í Kryddsíld: Eftirsjá að Jóni og Árna

Steingrímur J. Sigfússon formaður VG fullyrti í Kryddsíld Stöðvar 2 sem nú stendur yfir að nýskipuð ríkisstjórn njóti meirihlutastuðnings á Alþingi, engar vísbendingar hafi komið fram um annað. Jón Bjarnason var þó ekki tilbúinn til þess að svara því í gærkvöldi hvort hann styðji ríkisstjórnina þegar fréttamenn gengu á hann en Steingrímur segir að menn verði að hafa skilning á því þegar fjölmiðlar hafi herjað á Jón "á erfiðu kvöldi“. Hrókeringarnar í gær hafi verið erfiðar og að þær hafi tekið innan beggja meirihlutaflokkanna. "Við erum meirihlutastjórn,“ sagði Steingrímur.

Kryddsíld Stöðvar 2 í beinni útsendingu

Hin árlega Kryddsíld Stöðvar 2 hefst klukkan 14 og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 og hér á Vísi. Í Kryddsíldinni fara stjórnmálaleiðtogar landsins yfir árið sem er að líða og ræða það sem hæst bar auk þess sem rætt verður um árið sem senn rennur upp.

Draumur um einsemd

Gamlir og nýir andstæðingar EES halda því fram að það sem vont og skaðlegt var fyrir hrun hafi komið með EES-samningnum segir Pawel Bartoszek og bendir á að það yrði galin ákvörðun að segja samningnum upp. Enginn hafi grætt meira á EES en Íslendingar og enginn muni tapa meira á uppsögn samningsins en íslenska þjóðin.

Ríkisstjórnin nær fallin í gær - Kristrún gagnrýnir forystuna harðlega

"Ráðherrakapall Jóhönnu (og Dags og Hrannars) var svo ruglingslegur, ráðalaus, óviss og órökstudd ferð án fyrirheits að enginn var hrifinn og hann í raun féll í umræðu á sögulegum flokkstjórnarfundi Sf í gær.“ Svo ritar á Facebook síðu sína Kristrún Heimisdóttir, fyrrverandi aðstoðarmaður Árna Páls Árnasonar, sem hvarf úr stóli efnahags- og viðskiptaráðherra í dag.

Mugison Maður ársins á Bylgjunni

Örn Elías Guðmundsson, betur þekktur sem Mugison, var valinn maður ársins hjá hlustendum Bylgjunnar nú í morgun. Tilkynnt var um valið í þættinum "Reykjavík árdegis“ en um stjórnartauma þar héldu þeir Kristófer Helgason, Þorgeir Ástvaldsson og Bragi Guðmundsson. Þeir eru vanari að vera í loftinu síðdegis en í dag, gamlársdag, varð breyting á.

Kalkúnn á innan við klukkutíma

Djúpsteiktur kalkúnn hefur lengi verið vinsæll í Suðurríkjum Bandaríkjanna. Eldunaraðferðin hefur nú breiðst út um heiminn, alla leið til Íslands. Sólveig Gísladóttir spjallaði við Júlíus Jónsson , matreiðslumann á Akureyri, sem djúpsteikir kalkún fyrir fjölskylduboðið á gamlársdag og segir stuttan eldunartíma einn helsta kostinn við þessa aðferð.

Ný ríkisstjórn Íslands

Ný ríkisstjórn er tekin til starfa á Íslandi. Oddný G. Harðardóttir hefur tekið við embætti fjármálaráðherra og þeir Árni Páll Árnason og Jón Bjarnason hverfa frá ríkisstjórnarborðinu. Þetta var innsiglað á Ríkisráðsfundi á Bessastöðum nú fyrir hádegið.

Strætóferðir til Hafnar hafnar

Þjónustusvæði Strætó bs. stækkar til muna á Suðurlandi um áramót og leiðum fjölgað. Samtengt leiðakerfi allt frá Höfn í Hornafirði til Reykjavíkur.

Sex hundruð tonn af flugeldum sprengd

Áætlað er að um 600 tonnum af flugeldum verði skotið á loft í dag og kvöld. Þyngdin jafngildir um 200 Land Cruiser jeppum. Neytendastofa bendir á að framleiðendur og dreifingaraðilar flugelda beri skaðabótaábyrgð samkvæmt íslenskum lögum um skaðsemisábyrgð ef varan er gölluð.

Lyklakippa Steingríms þyngist í dag

Steingrímur J. Sigfússon formaður VG verður í aðalhlutverki í dag þegar lyklaskipti fara fram í ráðuneytunum eftir ráðherrakapalinn sem lagður er formlega á Ríkisráðsfundi nú fyrir hádegið. Venju samkvæmt afhenda fráfarandi ráðherrar nýjum ráðherrum lykla sína að ráðuneytunum en í þetta sinn er ekki hægt að gera það á sama tíma allstaðar, þar sem Steingrímur kemur að öllum lyklaskiptunum.

Opið á skíðasvæðunum fyrir norðan

Skíðamenn sem staddir eru norðanlands geta kvatt árið sem er að líða með því að taka nokkrar salíbunur. Hlíðarfjall á Akureyri er opið frá klukkan tíu til þrjú í dag. Þar eru tæpir tíu metrar á sekúndu og hiti rétt yfir frostmarki. Á Siglufirði verður opið í dag gamlársdag frá kl 11-14, veðrið og færið er frábært að sögn starfsmanna. Á Siglufirði hefur svæðið verið opið í sautján daga í desember á þessu ári og hafa gestir verið um eitt þúsund.

Ríkisráðsfundur að hefjast

Þingflokkur Vinstri grænna afgreiddi tillögu um breytingar á ríkisstjórn Íslands í gær með níu atkvæðum af tólf, en þrír sátu hjá. Breytingarnar fela í sér að Jón Bjarnason sjávarútvegsráðherra og Árni Páll Árnason hverfi úr ríkisstjórn og Steingrímur J. Sigfússon taki við sameinuðu ráðuneyti, en Oddný Harðardóttir verði fjármálaráðherra. Jón Bjarnason lét hafa eftir sér að fundinum loknum að hann væri ósáttur við breytingarnar og hann teldi þær gerðar til að greiða fyrir aðildarumsókn við Evrópusambandið. Hann svaraði því ekki afdráttarlaust hvort hann styddi ríkisstjórnina.

Sjö innbrot á höfuðborgarsvæðinu - vankaðist á veitingastað

Töluvert annríki var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt en henni bárust til að mynda sjö tilkynningar um innbrot. Þar á meðal var brotist inn í fyrirtæki í Árbæjarhverfinu, skóla í austurbæ Kópavogs og fyrirtæki á Seltjarnarnesi. Ekki er vitað hverju var stolið en málin eru í rannsókn.

Fíkniefnabrotum fjölgar - öðrum brotum fækkar

Fíkniefnabrotum fjölgaði um 12 prósent frá síðasta ári, samkvæmt bráðabirgðatölum sem lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur tekið saman. Lagt var hald á gríðarlegt magn amfetamíns, eða um þrjátíu kíló.

Innlendur fréttaannáll 2011

Árið 2011 var viðburðaríkt á Íslandi. Eins og stundum áður var titringur í pólítíkinni og jörðinni - en hvarvetna voru fréttamenn Stöðvar 2 með tæki sín og tól. Við rifjum nú upp tíu stærstu fréttirnar af innlendum vettvangi að mati Fréttastofu Stöðvar 2.

Katrín verði fjármálaráðherra þegar hún kemur úr barneignarleyfinu

Katrín Júlíusdóttir mun gegna embætti iðnaðarráðherra þar til hún fer í barneignarleyfi á næstu vikum. Til stendur að þegar hún snúi til baka úr því leyfi, muni hún taka við stjórnartaumunum í fjármálaráðuneytinu af Oddnýju G. Harðardóttur, og verða fjármálaráðherra, samkvæmt heimildum Vísis.

Árni Páll hvatti flokksmenn til að samþykkja

Miklar umræður hafa verið á flokkstjórnarfundi Samfylkingarinnar sem hófst um klukkan sjö í kvöld á Nordica. Fundurinn stendur enn og hafa margir tekið til máls. Fundurinn mun að minnsta kosti standa til klukkan 11.

Viðtal: Jón Bjarnason kveður ósáttur

Jón Bjarnason, fráfarandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, segist ekki sáttur við þær breytingar sem gerðar hafi verið á ríkisstjórninni. Hann segir þær gerðar til að greiða fyrir aðildarumsókn við Evrópusambandið.

Viðtal við Steingrím: Segist spenntur fyrir nýju atvinnuvegaráðuneyti

Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG og fráfarandi fjármálaráðherra, segist spenntur fyrir nýjum áskorunum sem atvinnuvegaráðherra í sameinuðu ráðuneyti sjávarútvegs- og landbúnaðar og efnahags- og viðskiptaráðuneyti en auk þess tekur ráðuneytið að hluta við verkefnum frá iðnaðarráðuneyti.

Fjórir karlar og fjórar konur ráðherrar

Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri Grænna, lætur af embætti fjármálaráðherra og verður nýr atvinnuvegaráðherra. Jón Bjarnason hættir sem sjávarútvegs- og landbúnaðaráðherra.

Yfirlýsing frá Jóni: Stend sáttur upp frá borði

Jón Bjarnason fyrrverandi landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra segir að hann hafi verið látinn fara úr ríkisstjórninni vegna afstöðu sinnar til aðildar Íslands að Evrópusambandinu. Hann segist í yfirlýsingu standa sáttur upp frá borði eftir árangursríkan ráðherraferil.

Oddný verður nýr fjármálaráðherra

Oddný G. Harðardóttir, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, verður fjármálaráðherra. Þetta hefur fréttastofa eftir heimildum af þingflokksfundi Samfylkingarinnar.

Óvíst hvort að Steingrímur muni fylgja áætlun Árna Páls eftir

Vegna breytinganna í ríkisstjórninni er nú algjör óvissa uppi um risavaxið mál sem Árni Páll Árnason hafði í vinnslu í ráðuneyti sínu sem efnahags- og viðskiptaráðherra, en hann hafði í undirbúningi að ná samningi við Evrópusambandið um undanþágu frá Maastricht-skilyrðunum til að geta afnumið gjaldeyrishöftin og tekið upp evru sem gjaldmiðil samhliða aðild.

Færri afbrot skráð hjá lögreglu í ár en í fyrra

Rúmlega 56 þúsund voru skráð hjá lögreglu á árinu sem er að líða, flest brotin eru í flokknum umferðarlagabrot. Þetta kemur fram í samantekt embættis ríkislögreglustjóra á bráðabirgðatölum um fjölda brota á öllu landinu. Tölurnar ná yfir tímabilið 1. janúar til 29. desember.

Vel búnir jeppar sitja fastir

Björgunarsveitir hafa víða verið að störfum vegna ófærðar síðdegis í dag. Á þjóðvegi 1 á Suðurlandi, til móts við Hjörleifshöfða, sátu nokkrir bílar fastir, losa hefur þurft bíla á Þingvallavegi og Biskupstungnabraut og einnig eru sveitir á leið að Skyggnisbraut við Úlfarsfell þar sem vitað er af minnst átta bílum sem sitja fastir þessa stundina. Töluverð ófærð er víða um land og sitja jafnvel vel búnir jeppar fastir, segir í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg.

Mest vonbrigðin með Jón og Árna

"Þetta eru nú kannski þeir ráðherrar sem ég hef orðið fyrir hvað mestum vonbrigðum með sem eru að víkja,“ segir Margrét Tryggvadóttir, þingmaður Hreyfingarinnar, um væntanleg ráðherraskipti. Eins og fram hefur komið eru Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, og Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra, á leið úr ríkisstjórn. Margrét segist ekki treysta sér til að fullyrða um það hvort eitthvað betra komi í staðinn.

Ófært í efri byggðum Reykjavíkur

Ófært er í Úlfarsárdal sem stendur og eingöngu er haldið haldið opinni strætisvagnaleiðinni. Einkabílar sitja fastir og glórulaus skafhríð er þar nú, samkvæmt upplýsingum frá Reykjavíkurborg. Aðrar leiðir en strætisvagnaleiðir verða opnaðar um leið og færi gefst.

Vill ekki horfa á eftir báðum úr ríkisstjórn

"Mér finnst það vissulega ótrúlega mikið á okkur skorið hér í kjördæminu ef báðir ráðherrarnir og báðir Kópavogsbúarnir fara út úr ríkisstjórn,“ segir Ýr Gunnlaugsdóttir, formaður Samfylkingarfélagsins í Kópavogi.

Ekkert lát á snjóhreinsun um áramótin

Starfsmenn sem sinna snjóhreinsun og sorphirðu hafa átt langa vinnudaga að undanförnu og ekki verður mikil hvíld um áramótin. Vinna við snjóhreinsun hefst klukkan fjögur að morgni gamlársdags og verður unnið fram eftir degi. Þá eru einnig vaktir á nýársdag og aukamannskapur verður ræstur út eftir þörfum. Undanfarna daga hefur verið unnið í öllum hverfum borgarinnar. Um 70 starfsmenn á vegum borgarinnar og verktaka á hennar vegum er í vinnu við snjóhreinsun og hafa þeir 50 tæki til verksins, 39 gröfur og 11 vörubíla. Eins og Fréttablaðið greindi frá var gærdagurinn snjóþyngsti dagur í áratugi. Og snjóhreinsun stefnir í að verða afar kostnaðarsöm fyrir Vegagerðina og borgina.

Sjá næstu 50 fréttir