Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Í vandræðum í veðurhamnum Fólk lenti víða í hættulegum aðstæðum í illviðri sem gekk yfir landið í gærkvöldi, en ekki er vitað til að neinn hafi slasast. Björgunarsveit var kölluð út til að aðstoða fólk í þremur bílum á Ólafsfjarðarvegi upp úr miðnætti, en þar þorði fólk ekki að hreyfa bílana vegna óveðurs og flug hálku. 22.12.2011 07:03
Dauð síld eykur samstarf skipa „Útgerðirnar taka fréttir af dauðri síld á Breiðafirði mjög alvarlega og munu leggja sig allar fram um að áhrif veiðanna verði eins lítil og mögulegt er,“ segir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri sambandsins. 22.12.2011 07:00
Sóknarnefndar og presta að marka stefnu Prestar og sóknarprestur Selfosskirkju eru ekki á einu máli um hvort heimilt sé öðrum en biskupi að meina prestum sem uppvísir hafa orðið að kynferðisbrotum að þjóna í kirkjunni. 22.12.2011 06:15
Á skilorð eftir árásir og hótanir Karlmaður hefur í Héraðsdómi Reykjaness verið dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast með ofbeldi á þáverandi sambýliskonu sína, hrinda henni í gólfið, kýla hana fyrir framan tveggja ára barn hennar og sparka nokkrum sinnum í maga hennar. Bótakröfu konunnar var vísað frá dómi. 22.12.2011 06:00
Myndaði stjörnu í foreldrahúsum Myndir ljósmyndarans Magnúsar Unnars af ofurfyrirsætunni Elisu Sednaoui prýða forsíðu bandaríska tímaritsins the journal. Sednaoui hefur setið fyrir í fjölda virtra tímarita og sýnt fyrir stærstu nöfnin í tískubransanum. 22.12.2011 06:00
Fjárfest fyrir 200 milljónir í Breiðdalsá á nokkrum árum Strengir hafa gert tíu ára leigusamning um veiðiréttinn í Breiðdalsá. Þröstur Elliðason segir erfitt að rækta upp laxveiðiár á Austur- og Norðurlandi. Endurheimtur laxaseiða séu lakar. 125 þúsund seiðum sleppt í vor. 22.12.2011 05:00
Nötrandi og í miklu uppnámi Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur þess efnis að tveir karlmenn sem ákærðir hafa verið fyrir að nauðga konu í bíl við Reykjavíkurflugvöll skuli sæta gæsluvarðhaldi til 13. janúar. 22.12.2011 05:00
Umhleypingar tefja farþegaflug Talsverðar seinkanir urðu í gær í innanlandsflugi. Að sögn Árna Gunnarssonar, framkvæmdastjóri Flugfélags Íslands, var um að kenna erfiðum brautarskilyrðum í Reykjavík. 22.12.2011 00:15
Össur: Það á enginn frátekið pláss í þessari ríkisstjórn Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, segir að það gefi aðildarviðræðum við Evrópusambandið trúverðugleika að hafa Jón Bjarnason sem sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. 21.12.2011 20:17
Íslendingar búnir að kaupa 500 þúsund lítra af jólabjór Íslendingar eru bjórþyrstir þessi jól líkt og hin fyrri en tæplega fimmhundruð þúsund lítrar af jólabjór hafa nú þegar verið seldir. Sá allra vinsælasti er danskur en íslenski Víkingurinn veitir honum harða samkeppni. 21.12.2011 19:30
Ofurtalan kom upp - en enginn með aðaltölurnar réttar Ofurtalan kom upp í Víkingalottóinu í kvöld en enginn var með allar tölur réttar og því gekk vinningurinn ekki upp, enn hann hljómaði upp á um 4 milljarða króna. 21.12.2011 19:20
Pössum okkur að borða ekki of mikið yfir hátíðarnar "Þó að við tökum hraustlega til matar þá er samt sem áður gott að hafa þessi heilræði í farteskinu; að borða ekki of mikið - og sérstaklega ekki alltaf of mikið,“ segir Steinar B. Aðalbjörnsson næringarfræðingur, sem var gestur í þættinum Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag. 21.12.2011 17:55
Svartamarkaðsviðskipti með lúðu Fisksali sér fram á svartamarkaðsviðskipti með lúðu eftir áramót. Þá tekur gildi reglugerð sjávarútvegsráðherra um almennt bann við lúðuveiðum. Friðun lúðunnar er tilkomin vegna tillögu Hafrannsóknastofnunar. 21.12.2011 20:52
Ekkert heitt vant í Innri Njarðvík og Vogum Bilun kom upp síðdegis í dag í heitavatnsstofnlögn og því er lokað fyrir heita vatnið í Innri Njarðvík og Vogum. Gert er ráð fyrir að viðgerð ljúki síðar í kvöld. Reynt verður að setja fréttir um framvindu verksins inn á heimasíðu fyrirtækisins, hsveitur.is, fram eftir kvöldi. 21.12.2011 18:41
Ekkert samkomulag gert um að fella niður neysluhlésgreiðslur Haraldur F. Gíslason, formaður Félags leikskólakennara vísar því alfarið á bug að niðurfelling svokallaðra neysluhlésgreiðslna hjá leikskólakennurum hafi verið hluti samkomulags sem gert var í síðustu kjarasamningum. Leikskólakennarar hafa mótmælt niðurfellingunni en borgaryfirvöld hafa ávallt svarað því til að skýrt hafi komið fram í síðustu kjaraviðræðum að greiðslurnar myndu falla niður. Þetta segir Haraldur alrangt, ekkert ekkert samkomulag var gert, hvorki við kjarasamningsborðið né í reykfylltum bakherbergjum, eins og hann orðar það. 21.12.2011 16:07
Skógræktarfélagið og skátarnir keyptu Úlfljótsvatn Skógræktarfélag Íslands, Bandalag íslenskra skáta og Skátasamband Reykjavíkur keyptu í dag jörðina að Úlfljótsvatni austast í Grafningi. Skrifað var undir kaupsamninginn í dag, en jörðin var í eigu Orkuveitu Reykjavíkur. Jörðina keypti Reykjavíkurbær árið 1929 á 98 þúsund krónur vegna fyrirhugaðrar virkjunar í Soginu en jörðin fluttist yfir til Orkuveitunnar við stofnun hennar enda einnig jarðhiti þar. 21.12.2011 16:03
Fálki í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn eftir árekstur við flutningabíl Myndarlegur kvenfálki dvelur um þessar mundir í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum, en það var Ólafur Nielsen á Náttúrufræðistofnun Íslands sem kom með fálkann í garðinn. Fálkinn varð fyrir þeim óvenjulegu hremmingum að hann lenti framan á rúðu flutningabíls sem var á ferð við Staðastað á sunnanverðu Snæfellsnesi. 21.12.2011 15:48
Ökumaður sofnaði á rauðu ljósi Karlmaður um sextugt sofnaði við stýrið á bíl sínum þegar hann var staddur á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar í síðdegisumferðinni í gær. Bíll mannsins var á rauðu ljósi þegar þetta gerðist og lögreglan segir að þetta hafi eðlilega valdið hættu og óþægindum fyrir aðra vegfarendur. 21.12.2011 15:17
Heimilismenn á Hrafnistu á jólaballi Það var glatt á hjalla hjá heimilismönnum á Hrafnistu í Reykjavík þegar jólaball fór þar fram eftir hádegi í dag. Fólkið undi sér vel við harmonikuspil og dansleik, en ekki fylgir sögunni hvort Sveinki hafi látið sjá sig líkt og svo algengt er þegar yngsta kynslóð landsins kemur saman á jólaballi. Við segjum nánar frá jólaballinu í kvöldfréttum Stöðvar 2. 21.12.2011 14:49
Leikskólagjöld hækka um tæp 33 þúsund á næsta ári Foreldrar með barn á leikskóla í Reykjavík mun greiða tæplega 33 þúsund krónum meira í leikskólagjöld á næsta ári en í ár. Samkvæmt upplýsingum á vef Reykjavíkurborgar nemur gjaldskrárhækkun vegna leikskóla og frístundaheimila, svo og mataráskrift í grunnskóla, um 12-13% um næstu áramót. Hækkunin er í samræmi við fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2012. 21.12.2011 14:34
Varað við mikilli hálku og slæmu veðri Reikna má með hríðarveðri og takmörkuðu skyggni á Vesturlandi, Norðurlandi og Austfjörðum fram eftir degi, en síðan mun hlána annars staðar á landinu en á Vestfjörðum. 21.12.2011 13:49
AG mátti hafa fyrir sigrinum AG vann enn einn sigurinn í dönsku úrvalsdeildinni í kvöld er liðið mætti Mors-Thy á heimavelli. Dönsku meistararnir þurftu þó að hafa fyrir sigrinum en unnu að lokum með fjögurra marka mun, 27-23. 21.12.2011 20:39
Umferð gengur hægt á Hellisheiðinni "Ég er bara í lífshættu hérna - þetta er stórhættulegt,“ segir Guðmundur Karlsson, sem er nú staddur á Hellisheiðinni og hafði samband við fréttastofu nú síðdegis. Hann segir færðina vera mjög lélega og ökumenn þurfi að keyra mjög varlega til þess hreinlega að keyra ekki út af. 21.12.2011 17:20
Umhleypingasamt veður til jóla Talsverðar umhleypingar eru í veðri til jóla, samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni. Lögreglan brýnir því fyrir þeim sem ætla sér að ferðast á milli landshluta að fylgjast vel með veðri og færð áður en lagt er af stað. Hafa beri í huga að veður og færð geti breyst á skömmum tíma til hins verra og hægt er að sækja nýjustu upplýsingar um veður á síðu Veðurstofunnar www.vedur.is og um færð á vegum á síðu Vegagerðarinnar www.vegagerdin.is. 21.12.2011 12:54
Vetrarsólstöður á morgun, 22. desember Vetrarsólstöður verða í ár á morgun, 22. desember, nánar tiltekið klukkan hálfsex að morgni, samkvæmt upplýsingum Almanaks Háskóla Íslands. Í Reykjavík verður birting þennan stysta dag ársins klukkan 10.03 en myrkur klukkan 16.49. 21.12.2011 11:38
Göngudeildarþjónustan verður bætt fyrir allan peninginn Aukafjárveitingin sem fékkst í rekstur Stuðla á næsta ári mun verð nýtt í að bæta göngudeildarþjónustu á staðnum, samkvæmt upplýsingum frá Sólveigu Ásgrímsdóttur, forstöðumanni Stuðla. Þannig verða börnin hitt í aðdraganda að innlögn og þeim fylgt betur eftir þegar þau hafa útskrifast. 21.12.2011 11:19
Vonast eftir samþykki árið 2014 Umsókn Íslands og fimm annarra ríkja um svokallaða raðtilnefningu átta svæða, sem á er að finna víkingaminjar, á heimsminjaskrá UNESCO mun tefjast um eitt ár. Er vonast til þess að tilnefningin verði tekin fyrir árið 2013 og fullgilt árið eftir. 21.12.2011 11:15
Tjaldaði í snjónum 26 ára norskur ferða- og ævintýramaður hefur gist tvær nætur í tjaldi í snjónum við gatnamótin að Hólamvík á Ströndum, en hann ferðast fótgangandi með farangurinn á sleða, að því er fram kemur í Ströndum.is. Þetta mun vera sami maðurinn og lögreglan í Borgarnesi tók upp í bíl sinn, kaldan og blautan undir Hafnarfjalli nýverið og kom í húsaskjól í Borgarnesi. Þar þurrkaði hann föt sín og búnað og sagðist vera á leiðinni til Ísafjarðar, fótgangandi. 21.12.2011 10:53
Fréttaskýring: Skýr verkaskipting um fyrirsvar Icesave Vínarsáttmálinn kveður á um að aðeins sé á valdi utanríkisráðuneytisins að koma fram gagnvart EFTA-dómstólnum. Í samræmi við forsetaúrskurð og málsvarnaráætlun sem efnahags- og viðskiptaráðherra lagði fram í apríl. 21.12.2011 10:45
Bæta 35 milljónum króna í rekstur Stuðla Fjárveitingar til Barnaverndastofu munu aukast um 35 milljónir króna á næsta ári samkvæmt fjárlögum, sem samþykkt voru fyrr í mánuðinum. Gert er ráð fyrir að fjárveitingin renni til þess að efla starfsemi Stuðla þar sem rekin er meðferðardeild og neyðarvistun fyrir börn og ungmenni í vanda. 21.12.2011 10:36
Fangar sýna árangur í námi Á nýliðinni haustönn voru 52 fangar voru innritaðir til náms við Fjölbrautaskóla Suðurlands (FSu). Þar af voru 39 á Litla-Hrauni og þrettán í Bitru, að því er fram kemur á vef Fangelsismálastofnunar. Þá stunda átta fangar nám á háskólastigi. 21.12.2011 10:00
Stefna Ragnari fyrir að kalla sig „féfletta“ Viðskiptafélagarnir Árni Hauksson og Friðrik Hallbjörn Karlsson hafa stefnt viðskiptafræðingnum Ragnari Önundarsyni fyrir meiðyrði. Tvímenningarnir, sem eru meðal stærstu eigenda Haga, krefjast hvor um sig átta hundruð þúsund króna í miskabætur, auk greiðslu fyrir opinbera birtingu dómsins. 21.12.2011 09:45
Þriggja mánaða skilorð fyrir að ganga í skrokk á sambýliskonu Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í morgun karlmann í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir tvær árásir á þáverandi sambýliskonu sína og hótanir í garð hennar. Fyrri árásin var gerð í ágúst eða september í fyrra en þá sló maðurinn hana í fataherbergi á heimili þeirra. Síðari árásin var gerð í nóvember í fyrra. Þá kýldi maðurinn konuna og sparkaði í maga hennar nokkrum sinnum fyrir framan son hennar sem var staddur á heimili þeirra. Maðurinn hætti ekki árásinni fyrr en konan var byrjuð að öskra og gráta. Maðurinn játaði brot sín fyrir dómi en krafðist vægustu refsingar. 21.12.2011 09:43
Börðu tvo menn með bareflum Ríkissaksóknari hefur ákært tvo karlmenn fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir sérstaklega hættulegar líkamsárásir. 21.12.2011 09:15
Búið að kyrrsetja jarðir æðstu toppanna Dómurinn frá því í gær staðfestir einnig kyrrsetningu sýslumannsins í Reykjavík á fimmtungseignarhlut Magnúsar í félaginu Hvítsstöðum. Það var slitastjórn Kaupþings sem fór fram á kyrrsetninguna svo að eitthvað fengist upp í 717 milljóna króna skuldina sem hann hefur nú verið dæmdur til að greiða. 21.12.2011 09:00
Fjölga þarf leiguíbúðum á landinu um 16 þúsund Gríðarleg eftirspurn er eftir leiguhúsnæði. Um 70% fleiri Íslendingar vilja leigja íbúð en gera það í dag. Langflestir væntanlegir leigjendur vilja búa í Reykjavík. Um fimm þúsund íbúðir vantar í miðbæinn. 21.12.2011 08:30
Bannar alfarið veiðar á lúðu Lúðustofninn við Ísland minnkar ár frá ári. Beinar veiðar á lúðum hafa verið bannaðar frá því síðasta vor en leyft að hirða hana sem meðafla. 21.12.2011 08:00
Stökkbreytt veira vekur ugg hérlendis Hollenskir vísindamenn hafa þróað stökkbreytt afbrigði fuglaflensunnar H5N1 sem smitast milli manna með lofti. Bandarísk yfirvöld óttast faraldur og meta hvort birta eigi rannsóknirnar. Mér líst ekkert á blikuna, segir sóttvarnalæknir. 21.12.2011 08:00
Upplýsinganefnd fær lögfræðing til starfa „Það er eitt af okkar forgangsmálum að vinna á þessum hala,“ segir Ragnhildur Arnljótsdóttir, ráðuneytisstjóri í forsætisráðuneytinu, um tafir á afgreiðslu kærumála hjá úrskurðarnefnd um upplýsingamál. 21.12.2011 08:00
Engin skýring á ammoníakslykt Engin skýring fannst á því í gærkvöldi, að ammoníakslykt fannst upp úr niðurföllum við fiskvinnsluhús við Fiskislóð á Grandanum upp úr klukkan tíu í gærkvöldi. 21.12.2011 07:50
Fartölvum stolið í Garðabæ Bortist var inn í raftækja- og tölvuverslun í Garðabæ í Hafnarfirði í nótt og þaðan stolið fjórum til átta fartölvum og ef til vill einhverju fleiru. 21.12.2011 07:49
Útkall vegna jólabaksturs við Kleppsveg Eldvarnakerfi fór í gang í stigagangi í fjölbýlishúsi við Kleppsveg um tvö leitið í nótt, sem dró brátt að lögreglu- og slökkviliðsmenn. 21.12.2011 07:46
Jarðskjálftahrina í Bárðarbungu Jarðskjálfti upp á þrjá komma þrjá á Richter varð austur af Bárðarbungu í norðanverðum Vatnajökli laust fyrir klukkan eitt í nótt. 21.12.2011 07:44
ESB styrkir til Íslands nema tæpum 2 milljörðum Evrópusambandið hefur tilkynnt um styrki til þeirra landa sem eru í umsóknarferli að sambandinu. Hlutur Íslands nemur 12 milljónum evra eða tæpum 2 milljörðum króna í ár. 21.12.2011 07:29
TF-SIF væntanleg til landsins í dag Eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar, TF-SIF er væntanleg til landsins í dag úr tveggja mánaða leiguverkefni á Miðjarðarhafi fyrir Landamærastofnun Evrópusambandsins, Frontex. 21.12.2011 07:27