Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Utanríkisráðherra væntanlega í forsvari fyrir Icesave málið Íslandi hefur verið stefnt fyrir EFTA dómstólinn 10-12 sinnum frá árinu 1994, segir Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra. Fram kom í máli hennar á Alþingi í morgun að í öllum tilfellum hafi utanríkisráðherra verið falin forsjá málanna þegar komið var í þann farveg. 15.12.2011 10:00
Lögreglumaður gerður að heiðursháskólaborgara Lögreglumaður sem kom bensínlausum stúdent við Háskóla Íslands til hjálpar þegar hann var á leið í próf fékk veitt heiðursverðlaun frá Stúdentaráði Háskóla Íslands í morgun. Samkvæmt upplýsingum frá Stúdentaráði ók lögreglumaðurinn stúdentinum á bensínstöð og aftur að bílnum og hlýddi honum yfir námsefnið á leiðinni. Stúdentaráð kallar lögreglumanninn sannkallaðan heiðursháskólaborgara. 15.12.2011 10:00
Segja skattinn vera aðför að starfsfólki Sá 5,45% fjársýsluskattur sem efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis hefur lagt til að lagður verði á allar launagreiðslur fjármálafyrirtækja, er hrein og bein aðför að starfsfólki tryggingafélaga á Íslandi, segir í yfirlýsingu frá formanni VR og forstjórum tryggingafélaganna. 15.12.2011 09:30
Ung hjón og barn sluppu ósködduð úr eldsvoða Ung hjón og barn þeirra sluppu ósködduð út úr kjallaraíbúð í raðhúsi við Heiðargerði í Reykjavík laust fyrir klukkan sjö í morgun, eftir að sjónvarp sprakk í stofunni og eldur kviknaði. 15.12.2011 07:00
Farsímanotkun veldur árekstrum Orsakir nokkurra árekstra, sem urðu í hrinu árekstra á höfuðborgarsvæðinu í gærdag, má rekja til þess að ökumenn voru að tala í farsíma eða jafnvel að semja og senda SMS skilaboð við aksturinn, þegar allt fór í óefni. 15.12.2011 07:00
Dópaður ökumaður reyndi að villa á sér heimildir Ökumaður undir áhrifum fíkniefna reyndi að villa á sér heimildir, þegar lögreglan stöðvaði hann í Kópavogi í nótt. 15.12.2011 07:00
Verð á bensíni, áfengi, tóbaki og fleiru hækkar um áramótin Bensín, áfengi, útvarpsgjald, kolefnisgjald á eldsneyti, tóbak og fleiri liðir munu hækka um áramótin samkvæmt bandorminum, sem nú er til umræðu á Alþingi, en svo er nefnt frumvarp fjármálaráðherra um ráðstafanir í ríkisfjármálum. 15.12.2011 07:00
Sandur úr Landeyjahöfn rýkur út „Ágóðinn hefði nú kannski verið meiri ef ég hefði ekki þurft að sigla til Þorlákshafnar og keyra austur í Landeyjahöfn,“ segir Ingimar Heiðar Georgsson, kaupmaður í Vöruvali í Vestmannaeyjum, sem selur nú pokaðan sand úr Landeyjahöfn. 15.12.2011 07:00
Vill 1,3 milljónir króna frá Birni Bjarnasyni Jón Ásgeir Jóhannesson athafnamaður krefur Björn Bjarnason, fyrrverandi dómsmálaráðherra, um eina milljón króna í miskabætur vegna ranghermis í bók Björns um Baugsmálið. Hann telur leiðréttingar Björns ekki duga til að firra hann ábyrgð. 15.12.2011 06:30
Búa átta fanga undir að bera ökklaband Átta fangar dvelja nú á Áfangaheimili Verndar þar sem þeir eru búnir undir það að ljúka afplánun í svokölluðu rafrænu eftirliti. Ríkisstjórnin hefur veitt 21 milljón til þeirrar framkvæmdar sem felst í því að hver fangi fær að afplána það sem eftir stendur af refsingu hans heima hjá sér með því skilyrði að hann stundi reglulega vinnu eða nám utan heimilis á hefðbundnum tímum. 15.12.2011 06:00
Lífeyrissjóðir fengu ekki að fjárfesta Lífeyrissjóðir reyndu að semja við ríkið um fjárfestingu í nokkrum ríkisfyrirtækjum, til að komast hjá skattheimtu. Ýmist vildi ríkið ekki selja eða taldi ekki tímabært. Sjóðirnir telja að skattheimta geti þýtt lægri útgreiðslur úr almennu lífeyrissjóðunum. 15.12.2011 05:30
Fylgi reglum um starfsanda og góðan skólabrag Fjölskylduráð Akraness segist styðja stjórnendur Brekkubæjarskóla í „að viðhalda góðum starfsanda í skólanum og jákvæðum skólabrag“. 15.12.2011 05:00
Ný nöfn með boðskap og sögu Skóla- og frístundaráð Reykjavíkurborgar samþykkti á fundi sínum í gær nöfn á sex nýja sameinaða leikskóla og grunnskóla. 15.12.2011 04:30
300 milljarðar fara í bættar samgöngur samgöngurRíkið mun verja 296 milljörðum króna til nýrrar samgönguáætlunar fyrir árin 2011 til 2022, samkvæmt tillögum Ögmundar Jónassonar innanríkisráðherra. 15.12.2011 04:00
Tilkomumikil ljósasýning Hörpu Ný átta mínútna löng ljósasýning prýðir nú glerhjúpinn utan um tónlistarhúsið Hörpu. 15.12.2011 03:30
Ísland þarf að svara til saka fyrir dómi - Fréttaskýring ESA, Eftirlitsstofnun EFTA, hefur stefnt Íslandi fyrir EFTA-dómstólinn. Stofnunin telur Ísland hafa brotið tilskipun um innstæðutryggingu. Þessi skoðun ESA á ekki að koma á óvart, stofnunin hefur haldið þessu fram um hríð. 15.12.2011 03:00
Skotárásin skipulögð af Outlaws Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur yfir fjórum mönnum sem setið hafa í gæsluvarðhaldi og einangrun vegna rannsóknar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á skotárás sem gerð var á bifreið í austurborginni 18. nóvember síðastliðinn. Þremur mannanna er gert að sitja áfram inni til 22. desember og hinum fjórða til 16. desember. 15.12.2011 02:00
Sex skólar fá ný nöfn Skóla- og frístundaráð samþykkti á fundi sínum í dag nöfn á sex nýja sameinaða leikskóla og grunnskóla; Kelduskóla, Vættaskóla, Ártúnsskóla, Háaleitisskóla, Langholt og Miðborg. Nafnasamkeppni meðal foreldra, starfsfólks og barna fór fram í öllum skólunum sem fengið hafa nýtt nafn. 14.12.2011 17:00
Vodafone ekki til rannsóknar Fyrirtækið Vodafone er ekki til rannsóknar eftir að í ljós kom að grunaðir menn hefðu verið upplýstir um að það væri verið að hlera þá. Í fréttum Fréttablaðsins, Vísis og Bylgjunnar í dag kom fram að starfsmenn tveggja símafyrirtækja séu grunaðir um að hafa upplýst grunaða menn um að símtæki þeirra væru hleruð vegna rannsókna á vegum Embættis sérstaks saksóknara. 14.12.2011 16:00
Hinir grunuðu földu sig á sveitabæ í Borgarfirði Gæsluvarðhaldsúrskurður yfir fjórum mönnum sem grunaðir eru um aðild að skotárásinni í Bryggjuhverfi þann 18. nóvember síðastliðinn hefur verið staðfestur í Hæstarétti. Mennirnir eru allir félagar í mótorhjólaklúbbnum Outlaws og í gæsluvarðhaldskröfunni kemur meðal annars fram að tveir þeirra hafi morguninn eftir árásina farið í felur á sveitabæ í Borgarfirði. 14.12.2011 15:00
Ólíklegt að Bretar og Hollendingar fáist til að semja á ný Lárus Blöndal, hæstaréttarlögmaður sem átti sæti í síðustu samninganefnd Íslands í Icesave málinu, telur ólíklegt að Bretar og Hollendingar vilji semja á ný um málið áður en það fer fyrir EFTA dómstólinn. 14.12.2011 15:00
Ólafur Ragnar og DiCaprio saman í nefnd Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, féllst fyrir skömmu á að gegna formennsku í dómnefnd alþjóðlegu orkuverðlaunanna, Zayed Future Energy Prize, sem eru ein hin virtustu sinnar tegundar í veröldinni. 14.12.2011 15:00
Nýjar brýr yfir Hornafjarðarfljót og Ölfusá Ný brú yfir Hornafjarðarfljót ásamt vegagerð, ný brú yfir Ölfusá norðan Selfoss og breikkun vegar milli Selfoss og Hveragerðis og um Hellisheiði eru á meðal stórra verkefna sem lokið verður á gildistíma 12 ára samgönguáætlunar sem kynnt var í dag þegar tólf og fjögurra ára samgönguáætlanir voru lagðar fram. Á meðal annarra verkefna á gildistímanum sem kosta yfir einn milljarð króna eru vegarkafli á sunnanverðum Vestfjörðum og fjölmörg verkefni á Suðvesturlandi sem tengjast bættu umferðarflæði. Þá verður gert átak í lagningu bundins slitlags á tengivegi um land allt fyrir tæpa 6 milljarða króna á áætlunartímabilinu. 14.12.2011 14:00
Það er víst metflótti frá Íslandi Undanfarna hálfa öld hafa aldrei fleiri Íslendingar - né stærra hlutfall þjóðarinnar - flutt til útlanda, umfram aðflutta, heldur en eftir hrun. Þetta sýna útreikningar fréttastofu. Forsætisráðherra fullyrti í gær að það væri stórlega ofsagt að hér væri mikill brottflutningur fólks. 14.12.2011 20:23
Hlerunarmenn kærðir fyrir tveimur árum síðan Tveir starfsmenn annars vegar Vodafone, og hins vegar móðurfélags Símans, eru grunaðir um að hafa lekið því til sakborninga að símar þeirra væru hleraðir, samkvæmt heimildum fréttastofu. Hvorugu fyrirtækinu er kunnugt um kærurnar en segja að þau séu sjálf ekki til rannsóknar. 14.12.2011 20:00
Talsmaður neytenda býður fram aðstoð við hópmálssókn Talsmaður neytenda telur að fólk með lánsveð gæti fengið því hnekkt fyrir dómi að það uppfylli ekki skilyrði 110 prósenta leiðarinnar. Hann býður fram krafta sína við að aðstoða lögmenn og þennan hóp til að fara í hópmálsókn. 14.12.2011 19:00
Forsetinn hittir DiCaprio í byrjun næsta árs Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, mun líklegast hitta stórleikarann Leonardo DiCaprio snemma á næsta ári, samkvæmt heimildum Vísis. Sá fundur verður haldinn í tengslum við störf þeirra beggja í dómnefnd alþjóðlegu orkuverðlaunanna, Zayed Future Energy Prize, sem eru ein hin virtustu sinnar tegundar í veröldinni. 14.12.2011 16:00
Hleranir: Síminn kemur af fjöllum Síminn kemur af fjöllum og kannast ekki við að háttsettur maður hjá móðurfélaginu hafi verið látinn fara vegna gruns um að hann hafi lekið því til grunaðs fjárglæframanns að sími hans væri hleraður. 14.12.2011 12:00
Þingfundi frestað Þingfundi, sem átti að hefjast klukkan hálfellefu í morgun, hefur verið frestað. Ástæða frestunarinnar er ákvörðun ESA, Eftirlitsdómstóls EFTA, um að stefna Íslandi fyrir EFTA dómstólnum vegna Icesave deilunnar. Utanríkismálanefnd Alþingis var boðuð til fundar klukkan tíu til að ræða ákvörðun ESA og stendur sá fundur enn. 14.12.2011 10:00
Brunabjallan í gang í Seðlabankanum þegar ákvörðun ESA varð ljós Um það leyti sem ESA gerði ljósa ákvörðun sína um að stefna Íslandi vegna Icesave-deilunnar var blaðamannafundur í Seðlabankanum þar sem nýtt rit bankans sem ber heitið Fjármálastöðugleiki var kynnt. Þar fór Már Guðmundsson yfir stöðuna og sagði hana hafa styrkst frá því ritið kom síðast út í vor. Már sagði þó að ástandið væri enn viðkvæmt ekki síst í ljósi ástandsins á mörkuðum í Evrópu. 14.12.2011 10:00
Braut nálgunarbann gegn fyrrverandi eiginkonu Karlmaður var í gær dæmdur til að greiðslu sektar fyrir að brjóta nálgunarbann gegn fyrrverandi eiginkonu sinni og núverandi sambýlismanni hennar. 14.12.2011 09:00
Svar stjórnarinnar vonbrigði Stjórn Lögmannafélags Íslands segir í svari sínu við erindi Agnars Kristjáns Þorsteinssonar og Ísaks Jónssonar vegna ummæla hæstaréttarlögmannsins Sveins Andra Sveinssonar að stjórnin fari ekki með mál vegna meintra brota lögmanna á lögum eða siðareglum. Sjálfstæð úrskurðarnefnd félagsins fer með slík mál. 14.12.2011 07:30
Nýjar álögur stjórnvalda munu lækka lífeyrisgreiðslur Lífeyrisgreiðslur munu óhjákvæmilega lækka til sjóðsfélaga ef fyrirhugaðar nýjar álögur stjórnvalda á sjóðina ganga eftir, segir í ályktun stjórnar Landssamtaka lífeyrissjóða. 14.12.2011 07:29
Ógnuðu manni með skærum á Laugavegi í nótt Þrír menn ógnuðu gangandi vegfaranda á Laugavegi í Reykjavík í nótt, með skærum og kröfðust þess að hann afhenti þeim farsíma sinn. Hann gerði það og hurfu þeir á braut. 14.12.2011 07:21
Herjólfur siglir til Landeyja í dag Herjólfur mun sigla milli Eyja og Landeyjahafnar í dag þar sem dýptarmælingar sýna að það sé óhætt. Dýpið er þó ekki meira en það að sæta verður sjávarfalla. 14.12.2011 07:12
Ýmis gjöld hækka í Kópavogi Vistun í leikskóla, gjaldskrá sundlauga og dægradvöl í grunnskólum eru liðir sem munu hækka, samkvæmt fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar, sem samþykkt var í gærkvöldi af fulltrúum allra flokka, nema Sjálfstæðisflokks. 14.12.2011 07:07
Rússar lækka laxveiðileyfin Verð á veiðileyfum í laxveiðiár á Kólaskaga í Rússlandi verður 5 til 30 prósentum lægra næsta sumar en var í sumar sem leið. Þetta kemur fram á vef Stangaveiðifélags Reykjavíkur. 14.12.2011 07:00
Fá ekki þyrlupall hjá skemmtiferðaskipum „Þetta er tilvalinn staður til að þjónusta skemmtiferðaskipin, það verður ekki betra,“ segir Guðmundur Ingi Jónsson, þyrluflugmaður hjá Vesturflugi sem óskað hefur eftir lóð fyrir þyrlupall við Skarfabakka í Sundahöfn. 14.12.2011 06:00
Varðhaldsúrskurðum fjölgað um 60 prósent Gæsluvarðhaldsúrskurðir verða sífellt algengari. Þeim hefur fjölgað um 60 prósent síðan árið 1996 sé miðað við síðasta ár og var þá meðalfjöldi daga í gæsluvarðhaldi um þrettán dagar. Íbúum landsins fjölgaði á sama tíma um tæp 20 prósent. Í fyrra voru úrskurðir 139 talsins. 14.12.2011 05:30
Vill klára að semja og þjóðin fái að kjósa Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segir Íslendinga myndu verða engu nær ef aðildarumsókn að Evrópusambandinu yrði dregin til baka nú. Hann vill ekki að taugaveiklun yfir ástandinu í Evrópu nú hafi áhrif á það sem Alþingi samþykkti á vordögum 2009. Þetta kom fram í umræðum á Alþingi í gær. 14.12.2011 04:30
Ríkið sparar 17 milljarða í vaxtagjöld Tæpir 17 milljarðar hafa sparast í vaxtagjöld á því að ná fjárlagahallanum niður. Hann nam hæst tæpum 216 milljörðum árið 2008 en er nú kominn niður í tæpa 50 milljarða króna. Þetta kemur fram í tölum frá fjármálaráðuneytinu sem Skúli Helgason, þingmaður Samfylkingarinnar, vitnaði í á Alþingi í gær. 14.12.2011 04:00
Tveir skartgripaþjófar dæmdir Tveir ungir menn, 18 og 24 ára, hafa verið dæmdir í þriggja og sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir stórfelld þjófnaðarbrot. Þeir stálu meðal annars miklu magni af skartgripum, sem sumir voru gamlir, og fjölmörgum fleiri dýrum munum. 14.12.2011 03:30
Yfirfór bíla Stoltenbergs Pólfarinn Gunnar Egilsson hefur verið önnum kafinn við undirbúning hátíðarhalda á suðurpólnum sem hefjast í dag í tilefni þess að öld er liðin frá því að norski landkönnuðurinn Roald Amundsen náði þangað fyrstur manna. 14.12.2011 03:30
Fordæmi fyrir IPA-skattaundanþágum Samkvæmt frumvarpi sem fjármálaráðherra lagði fram á þingi fyrir stuttu skulu allir IPA-styrkir sem Ísland fær úthlutað frá Evrópusambandinu (ESB) í yfirstandandi umsóknarferli vera undanþegnir sköttum og opinberum gjöldum. Þannig renni öll aðstoð sem Ísland hlýtur með þessum hætti beint til þeirra verkefna sem hún var ætluð. 14.12.2011 03:00
3.000 sjómenn í slysavarnaskóla Þrjú þúsund sjómenn hafa sótt Slysavarnaskóla sjómanna á árinu 2011. Aldrei hafa jafn margir sótt skólann og í ár. 14.12.2011 03:00