Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fylgdarþjónusta notar myndir af Ásdísi Rán „Blessaður vertu, fólkið í Búlgaríu er ekki jafn þröngsýnt og á Íslandi, það myndi enginn trúa því að þetta væri ég hérna úti,“ segir Ásdís Rán Gunnarsdóttir, ofurfyrirsæta í Búlgaríu. 26.10.2011 06:00
Innbrotafaraldur í Þorlákshöfn Innbrotafaraldur hefur geisað í Þorlákshöfn undanfarnar helgar. Að sögn lögreglunnar á Selfossi, sem rannsakar málin, virðast þau tengjast. Íbúarnir ræða nú nauðsyn þess að koma upp eftirlitsmyndavélum á hringtorgi við bæinn og vegum sem liggja að honum. 26.10.2011 05:30
Norðmenn ráða för í samstarfi um þyrlur Íslendingar hafa boðið út þyrlukaup í samstarfi við Norðmenn og munu, að því gefnu að Norðmenn samþykki eitthvert tilboð, eignast björgunarþyrlu fyrir árið 2020 sem gæti kostað fimm milljarða. 26.10.2011 04:30
Frábiður sér hnýsni í kortafærslur „Við erum bara komin í þjóðfélag sem George Orwell lýsti í bók sinni 1984. Hið vakandi auga ríkisins hefur eftirlit með þér,“ segir Jón Magnússon, lögmaður og fyrrverandi alþingismaður, sem hefur stefnt Persónuvernd fyrir dómstóla og krafist ógildingar á úrskurði hennar. 26.10.2011 03:00
Bjóða 45 þúsund börnum í mat Sendiráð Norðurlandanna í Washington, höfuðborg Bandaríkjanna, munu gefa 45 þúsund börnum í 125 ríkisskólum í höfuðborg Bandaríkjanna holla og næringarríka máltíð á Norræna matardeginum sem haldinn verður á morgun. Sendiráð Danmerkur, Finnlands, Íslands, Noregs og Svíþjóðar standa fyrir matardeginum í samvinnu við skólayfirvöld í Washington. 25.10.2011 16:47
Skulda Lundúnarborg 242 þúsund krónur Íslenska sendiráðið í Lundúnum skuldar borgarsjóði Lundúnarborgar 242 þúsund krónur. Ástæðan er sú að það kostar að aka inn í miðborg Lundúna. Fulltrúar sendiráðsins, rétt eins og aðrir þurfa að una þessu, en þeir greiða ekki hverja ferð fyrir sig heldur safna í reikning. 25.10.2011 15:52
Unglingar teknir á stolnum bíl Lögreglan handtók um helgina tvo unglingspilta í Arnarnesi í Garðabæ. Lögreglan hafði veitt stolnum fólksbíl eftirför frá Hafnarfjarðarvegi og þegar bíllinn var stöðvaður kom í ljós að ökumaðurinn reyndist vera 16 ára gamall. Félagi hans, ári yngri, sat í framsætinu. 25.10.2011 12:57
Fundu snák í Breiðholti Lögreglumenn geta átt von á ýmsu í starfi sínu eins og glögglega kom í ljós í Breiðholti á dögunum. Í húsi í hverfinu reyndist vera snákur. „Dýrið var tekið í vörslu lögreglu og síðan flutt að Keldum þar sem gerðar voru viðeigandi ráðstafanir,“ segir í tilkynningu. 25.10.2011 12:55
Flestir bera traust til Gæslunnar Langflestir bera traust til Landhelgisgæslunnar af öllum þeim stofnunum sem spurt var um í könnun MMR sem gerð var á dögunum. Næstflestir bera mest traust til sérstaks saksóknara, en fæstir bera traust til landsdóms. 25.10.2011 12:49
Helgi segist ekki hafa gengið of langt í gagnrýni á Bankasýsluna Helgi Hjörvar, formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis, segist ekki hafa gengið of langt í gagnrýni sinni á stjórn bankasýslu ríkisins. Stjórnin sagði af sér í gær en Helgi segir nauðsynlegt að endurreisa trúverðugleika stofnunarinnar. Þingmaður Sjálfstæðisflokks vill hins vegar að hún verði lögð niður. 25.10.2011 12:06
Strákar nota Netið meira til upplýsingaöflunar en stelpur Fimmtán ára gamlir strákar nota tölvu mun meira til upplýsingaöflunar en stelpur, samkvæmt niðurstöðum rannsóknar sem gerð var til að meta tölvu og netnotkun og til að meta færni nemenda við að vinna með og meta upplýsingar á netsíðum. 25.10.2011 10:15
Aspirnar fjarlægðar í Vonarstræti og Tjarnargötu Vinna er hafin við að endurnýja trjágróður í Vonarstræti og Tjarnargötu. Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að Gráreynir, garðahlynur og skrautreynir munu leysa aspirnar sem þar hafa staðið af hólmi, en rætur þeirra hafa eyðilagt hellulagnir og hitalagnir. Hellulögnin í götunni verður einnig lagfærð. Nýju trén fá gott vaxtarrými, en gengið verður frá svokölluðu rótarburðarlagi undir hellulögðum svæðum þannig að rætur skemmi ekki út frá sér. Auk trjánna verða settir niður 540 krókusar sem blómstra snemma á vorin. Verklok eru áætluð 25. nóvember. 25.10.2011 10:04
Starfsmenn komu í veg fyrir eldsvoða Starfsmönnum í vörumiðstöð Samskipa vð Kjalarvog í Reykjavík tókst með snarræði að slökkva eld sem kviknaði í rafmótor við loftræstikerfi í húsinu í gærkvöldi. 25.10.2011 07:39
Rækju úr Ísafjarðardjúpi landað eftir níu ára hlé Rækju úr Ísafjarðardjúpi var landað á Ísafirði og í Bolungarvík í gærkvöldi eftir níu ára hlé vegna veiðibanns. 25.10.2011 07:27
Tólf fyrirtæki auglýsa gegn Arion banka Tólf fyrirtæki segjast í opnuauglýsingu í dagblöðum, ekki sætta sig við að leikreglur á samkeppnismarkaði séu þverbrotnar. Þar vísa þau til Pennans og rifja upp að skilanefnd Kaupings hafi tapað átta milljörðum króna á gjaldþroti félagsins. 25.10.2011 07:25
Björgun heldur áfram á morgun Vonast er til þess að hægt verði að bjarga Sölku GK úr Sandgerðishöfn þar sem hún hefur legið í kafi frá því á sunnudag. 25.10.2011 06:00
Flæðir yfir hálendið og friðlýstar perlur Skráning Náttúrufræðistofnunar (NÍ) og Landgræðslu Íslands (LÍ) sýnir að lúpína hefur tekið sér varanlega bólfestu á stórum svæðum á hálendinu og í helstu náttúruperlum Íslands sem hafa verið friðlýstar. Forgangsmál er að stemma stigu við útbreiðslu lúpínu á hálendinu. 25.10.2011 05:30
Áríðandi að tilkynna níðið strax „Það er gríðarlega mikilvægt að fólk hafi strax samband við lögreglu, sé minnsti grunur um að hryssum hafi verið misþyrmt.“ Þetta segir Árni Þór Sigmundsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. 25.10.2011 05:00
Gæti gegnt mikilvægu ráðgjafarhlutverki Hagfræðingurinn Paul Collier, sem hefur helgað sig rannsóknum á þróunarríkjum og þróunaraðstoð, segir Ísland geta gegnt mikilvægu hlutverki á sviði þróunaraðstoðar. 25.10.2011 04:30
Öldruðu drykkjufólki fjölgar Komum miðaldra og aldraðra einstaklinga á Vog, með alvarleg einkenni dagdrykkju, heldur áfram að fjölga. Sumir þeirra eru að koma á sjúkrahúsið í fyrsta sinn. 25.10.2011 03:45
Hlaut 15 mánaða dóm fyrir smygl Tæplega þrítug kona hefur verið dæmd í fimmtán mánaða fangelsi fyrir að skipuleggja og fjármagna smygl á tæplega 500 grömmum af kókaíni til landsins. Tvö burðardýr, sem hún útvegaði til verksins, voru dæmd í tíu og átta mánaða skilorðsbundið fangelsi. Efnið sem þau fluttu til landsins var sterkt og hefði mátt framleiða úr því rúmlega tvö kíló af kókaíni, að því er fram kemur í dómnum. 25.10.2011 03:00
Skoðað hvort ákvæðum sé fylgt Ríkisendurskoðun vinnur nú að úttekt á öllum bindandi þjónustusamningum ráðuneytanna, sem eru rúmlega 140 talsins. Búið er að kalla eftir frekari upplýsingum og svörum frá fimm ráðuneytum og hafa þrjú svarað: mennta- og menningarmálaráðuneyti, velferðarráðuneyti og forsætisráðuneyti. 25.10.2011 02:30
Reglur settar um siglingar við Ísland Árni Þór Sigurðsson, formaður utanríkismálanefndar Alþingis, hefur ásamt átta þingmönnum úr fjórum flokkum lagt fram tillögu um að Alþingi feli innanríkisráðherra að semja reglur um siglingaleiðir við norðan- og vestanvert landið. Verkið verði unnið í samvinnu við umhverfisráðherra og utanríkisráðherra. 25.10.2011 02:00
Salmonella í smygluðum andabringum: Mikilvægt að elda allt kjöt vel Einstaklingarnir tveir sem smituðust af illvígri salmonellu í síðasta mánuði hafa náð sér að fullu, að sögn Haraldar Briem sóttvarnalæknis. Hann segir að fólkið hafi fengið meðferð sem gekk vel og ber enginn alvarlegan skaða af smitinu sem kom upp þegar fólkið snæddi smyglaðar andabringur frá Hollandi í fjölmennri veislu. 24.10.2011 16:34
Borðuðu smyglað andakjöt: Átta veiktust og tveir alvarlega Tveir einstaklingar greindust tveir með Salmonellu enteritidis í lok september hér á landi. Við nánari athugun kom í ljós að allir höfðu þeir tekið þátt í fjörutíu manna matarveislu þar sem hollenskar andabringur sem smyglað hafði verið til landsins voru á boðstólum. Þetta kemur fram á vef Landlæknisembættisins. Andabringurnar höfðu verið framreiddar vel rauðar og alls munu átta einstaklingar hafa veikst í veislunni. Frystar hráar bringur voru enn til þegar Landlæknir hóf rannsókn á málinu og því var hægt að staðfesta að þær voru sýktar af Salmonellu afbrigðinu sem um ræðir. 24.10.2011 15:42
Allt á huldu um tilboðin í Perluna Enn hafa engar upplýsingar verið gefnar um þau tilboð sem bárust í Perluna eftir að frestur til að skila þeim inn rann út í síðustu viku. 24.10.2011 15:11
Samningur við Rússa um orkumál Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra og Sergey Shmatko, orkuráðherra Rússlands, undirrituðu í morgun samstarfssamning milli Íslands og Rússlands um jarðhitamál. 24.10.2011 13:38
Kvennafrídagurinn í dag Í dag, 24. október, er kvennafrídagurinn. Þennan dag, fyrir 36 árum, lögðu íslenskar konur niður vinnu til þess að sýna fram á mikilvægi kvenna í atvinnulífinu. Tveir ráðherrar í ríkisstjórninni, þau Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra og Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra hafa skrifað greinar sem birtast í Fréttablaðinu og hér á Vísi í tilefni dagsins. 24.10.2011 12:16
Dollararegn í Þorlákshöfn Kona kom á lögreglustöðina á Selfossi í síðustu viku til að tilkynna um hvarf á tæplega 3000 bandaríkjadölum, sem jafngildir tæplega 350 þúsund krónum. Hún hafði keypt gjaldeyrinn í útibúi Landsbankans í Þolákshöfn en þegar hún ætlaði að ná í peningana stuttu síðar fann hún þá ekki. Á miðvikudag hafði maður síðan samband við lögregluna og sagðist hafa fundið tvo hundrað dollara seðla í garði sínum við Hafnarberg. 24.10.2011 12:16
Þúsundir hafa ekki fengið eingreiðsluna frá því í vor Um tvö þúsund og fimm hundruð manns hafa enn ekki fengið samningsbunda eingreiðslu upp á fimmtíu þúsund krónur þar sem fólkið var í fæðingarorlofið síðasta vor. Svo virðist sem fólkið hafa fallið milli skips og bryggju í kerfinu en hvorki fæðingarorlofssjóður né atvinnurekendur telja sig bera ábyrgð á greiðslunni. 24.10.2011 12:01
Vill forðast að löggan skipti sér af hópum sem berjast í grasótarstarfi Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra hitti í síðustu viku, Daniel Green, breskan ráðherra sem er með landamæravörslu og skipulagða glæpastarfsemi. Mál Mark Kennedys, flugumanns á vegum bresku lögreglunnar, bar á góma, en Kennedy tók þátt í mótmælum við Kárahnjúka. 24.10.2011 11:56
Söfnuðu rúmlega þremur milljónum á Herminator Rúmar þrjár milljónir króna söfnuðust á þriðja árlega Herminator góðgerðargolfmótinu í sumar. Það er íslenski landsliðsfyrirliðinn Hermann Hreiðarsson sem stendur fyrir mótinu. Ágóði af mótinu hefur verið notaður til að styrkja góð málefni og í ár fengu sex góðgerðarfélög afhentar ávísanir að upphæð 300 til 800 þúsund krónur. 24.10.2011 11:38
Tíðkaðist að aka inn þrátt fyrir bann Það er Íslenska gámafélagið sem á þann bíl sem ekið var í veg fyrir hjólreiðamann á Dalvegi á miðvikudag með þeim afleiðingum að hann varð undir bílnum og slasaðist alvarlega. 24.10.2011 11:15
Íslendingarnir gefast ekki upp Veik von fæddist í morgun að lokinni fjórðu lotu af sex í útsláttarleik Hollendinga og Íslendinga í bridge á HM, þegar Ísland lagði Holland að velli, 22-7. Hollendingarnir hafa yfirhöndina enda er þetta fyrsta lotan sem Ísland vinnur í átta liða úrslitunum. Staðan í leiknum er nú 161-66, Hollendingum í vil. 24.10.2011 11:15
Rannsakað hvort yfirmaður hafi hvatt til ólöglegs innaksturs Lögreglan rannsakar nú hvort vinnureglur og jafnvel fyrirmæli yfirmanna fyrirtækis, sem staðsett er á Dalvegi, hafi gert ráð fyrir innakstri á stað þar sem inakstur er bannaður. Þetta er verið að rannsaka vegna þess að hjólreiðamaður slasaðist mjög alvarlega þegar hann varð fyrir og lenti undir gámabíl sem beygt var í veg fyrir hjólreiðamanninn á þessum stað. 24.10.2011 10:30
Reyna að ná Sölku á flot í dag Reynt verður í dag að ná fiskibátnum Sölku af botni Sandgerðishafnar, en hann sökk þar á skammri stundu í gær, eftir að stálbáturinn Rán GK sigldi á hann við bryggju, þegar Rán var að koma úr róðri. 24.10.2011 07:46
Endurtaka þarf atkvæðagreiðslu hjá Samfylkingunni Tæknilegir ágallar komu fram við talningu atkvæða til flokksstjórnar í Samfylkingunni á landsfundi flokksins um helgina, þannig að það verður að endurtaka hana. 24.10.2011 07:25
Þrjú innbrot í borginni í nótt Brotist var inn á þremur stöðum á höfuðborgarsvæðinu í nótt og ýmsum verðmætum stolið. 24.10.2011 07:16
Brot á erlendum fyrirtækjum Skattlagning á vaxtatekjur erlendra fyrirtækja á Íslandi er skýlaust brot á samningnum um evrópska efnahagssvæðið, EES-samningnum. Skattlagningin er letjandi fyrir erlenda fjárfestingu ofan á gjaldeyrishöft sem valda því að erlendur aðili sem hefur fjárfest hér getur ekki fengið fjárfestingu sína greidda fyrr en höftum verður aflétt. 24.10.2011 06:30
Hefur störf hjá SÞ í Afganistan Gengið hefur verið frá ráðningu Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur í starf yfirmanns UN Women í Afganistan. Ingibjörg Sólrún mun flytjast til Kabúl, höfuðborgar Afganistan, um miðjan næsta mánuð. 24.10.2011 06:00
Byssumanni komið undir læknishendur Karlmanni á fertugsaldri, sem var handtekinn aðfaranótt sunnudags eftir að hafa hleypt af skotvopni í eða við íbúðarhús í Þorlákshöfn, var sleppt úr haldi lögreglu eftir yfirheyrslur í gærdag. 24.10.2011 05:00
Helmingur fráskilinna getur ekki rætt saman um börnin Helmingur fráskilinna foreldra sem dómstóll hefur dæmt sameiginlegt forræði getur ekki komið sér saman um neitt er varðar uppeldi barnanna. Þetta eru niðurstöður rannsóknar sem gerð var meðal danskra foreldra og Mai Heide Ottosen var í forsvari fyrir. Ottosen er sérfræðingur í skilnaðarrannsóknum hjá Félagsvísindastofnun Danmerkur og var stödd hér á landi í vikunni. Hún hélt fyrirlestur á málþingi á mánudaginn um heimild dómara til að dæma sameiginlega forsjá. 24.10.2011 05:00
Mál fyrir íslenska dómstóla þrátt fyrir erlent lögheimili Slitastjórnir föllnu bankanna geta nú höfðað riftunarmál gegn einstaklingum eða fyrirtækjum hérlendis þrátt fyrir að viðkomandi eigi lögheimi, og þar af leiðandi varnarþing, í öðru landi. Lög þess efnis voru samþykkt á Alþingi á fimmtudag. Samhliða var frestur slitastjórnanna til að höfða riftunarmál lengdur úr 24 mánuðum í 30 mánuði. 24.10.2011 04:00
Skólar í Kraga koma best út Skólar í nágrenni Reykjavíkur, Kraganum svokallaða, koma einna best út í samræmdum könnunarprófum sem lögð voru fyrir 10. bekki landsins í síðasta mánuði. 24.10.2011 03:15
Reisa bensínstöð í landi kirkju Sveitarstjórn Húnaþings vestra hefur samþykkt að Skeljungur annist gerð deiliskipulags á lóð sem fyrirtækið hefur tekið á leigu frá kirkjunni á jörðinni Melstað í Miðfirði. Skeljungur hyggst reisa 330 fermetra þjónustumiðstöð með bensínafgreiðslu, verslun og veitingasölu. 24.10.2011 03:15