Fleiri fréttir

Yfirheyrslum yfir byssumanni lokið - málið telst upplýst

Yfirheyrslum yfir manni sem handtekinn var í Þorlákshöfn í nótt er lokið og telst málið upplýst. Í tilkynningu frá lögreglu segir að ekkert bendi til þess að hann hafi beint vopnum sínum gegn öðru fólki. Maðurinn er laus úr höndum lögreglu en nýtur handleiðslu lækna áfram, segir í tilkynningunni.

Öryrkjar segja ríkisstjórnina ekki geta kennt sig við velferð

Öryrkjabandalag Íslands skorar á þingmenn að endurskoða fjárlagafrumvarpið og minnka þar niðurskurð í velferðarrmálum. Framkvæmdastjóra samtakanna finnst ríkisstjórnin ekki geta kennt sig við velferð þegar enn er þrengt að öryrkjum. Áskorunin var samþykkt á aðalfundi Öryrkjabandalagsins í gær. Að mati félagsmanna ber fjárlagafrumvarp fyrir árið 2012 með sér að sá niðurskurður sem hófst árið 2009 verði ekki bættur. Lilja Þorgeirsdóttir, framkvæmdastjóri Öryrkjabandalagsins, segir félagsmenn áhyggjufulla. "Já, við höfum bara miklar áhyggjur af því að fólk þarf auðvitað að eiga til hnífs og skeiðar, og þegar bætur almannatrygginga hækka ekki í samræmi við lög þá á fólk erfitt með að greiða það sem það þarf að borga. Og samhliða skertum bótum hefur greiðsluþátttaka sjúklinga í heilbrigðiskerfinu aukist til muna síðustu ár. Það er orðið dýrara að fara til læknis, fara í rannsóknir, fara til dæmis í sjúkraþjálfun og iðjuþjálfun, kaupa sér lyf og hjálpartæki. Við höfum bara áhyggjur af því að fólk hefur ekki efni á þessum hlutum, það verður veikara fyrir vikið og það eykur kostnað, það eykur álag annars staðar í kerfinu," segir Lilja. Öryrkjabandalagið telur þá ríkisstjórn sem kennir sig við velferð ekki hafa staðið undir nafni. "Það er mat Öryrkjabandalagsins að hún hefur ekki staðið sig sem skyldi og þrátt fyrir það að rannsóknir sýna það með óyggjandi hætti að aðstæður margra öryrkja er mjög slæm, þá er það okkar mat að þessi ríkisstjórn sem vill kenna sig við velferðarkerfið, að það er bara ekki á rökum reist," segir Lilja.

Tuttugu Vildarbörn

Tuttugu börnum var afhentur ferðastyrkur úr sjóðnum Vildarbörn Icelandair í gær, fyrsta vetrardag.

Byssumaðurinn yfirheyrður síðar í dag

Karlmaður á fertugsaldri, sem hleypti af skoti eða skotum við heimili í Þorlákshöfn í nótt, hefur ekki verið yfirheyrður, samkvæmt upplýsingum frá varðstjóra hjá lögreglunni á Selfossi. Gert er ráð fyrir að hann verði yfirheyrður síðdegis.

Ekið á gangandi vegfaranda

Ekið var á gangandi vegfaranda á mótum Listabrautar og Háaleitisbrautar rétt fyrir klukkan þrjú í dag. Umferð um gatnamótin er lokuð og gera má ráð fyrir að þau verði lokuð í um hálftíma í viðbót, ef ekki lengur, vegna vettvangsrannsóknar. Vegfarendur eru beðnir um að velja sér aðra leið. Ekki er hægt að segja til um tildrög slyssins eða ástand slasaða.

Íslenskir björgunarsveitarmenn tilbúnir

Íslenska alþjóðabjörgunarsveit Slysavarnafélagsins Landsbjargar hefur verið sett á vöktunarstig eftir jarðskjálftann í Tyrklandi. Stjórnendur sveitarinnar fylgjast með ástandinu í gegnum upplýsingaveitur Sameinuðu þjóðanna og fréttir en enn sem komið er hefur lítið borist af staðfestum upplýsingum um skaðann sem skjálftinn olli.

Eldfjall sigursæl

Kvikmyndin Eldfjall eftir Rúnar Rúnarsson hlaut í gær tvenn verðlaun á kvikmyndahátíðnni í Montreal í Kanada. Myndin hefur fengið þrenn verðalaun á tæpri viku og vonast Rúnar til að gott gengi myndarinnar skili sér í Óskarskapphlaupinu.

Yfirvofandi læknaskortur áhyggjuefni

Nýkjörinn formaður Læknafélags Íslands segir yfirvofandi læknaskort áhyggjuefni en læknum hefur fækkað um 10% á síðustu þremur árum.

Fyrstu frjálsu kosningarnar í Túnis

Í dag fara fram fyrstu frjálsu kosningarnar í Túnis, níu mánuðum eftir að uppreisn steypti stjórn fyrrverandi forseta lands Zinedine el Abidine Ben Ali af stóli.

Byssumaður handtekinn í Þorlákshöfn

Maður sem hleypti af skoti eða skotum gaf sig fram í Þorlákshöfn í nótt eftir að sérþjálfaður samningamaður frá lögreglunni spjallaði við hann í síma.

Lyfjaður og dópaður ók á ljósastaur

Maður, sem talinn er hafa verið undir áhrifum lyfja eða fíkniefna, ók á ljósastaur á Akranesi í nótt. Hann meiddist lítillega og var fluttur á sjúkrahús til aðhlynningar. Bæði bíll og ljósastaur urðu fyrir minni háttar skemmdum.

Sluppu úr bílveltu

Bíll valt á Suðurlandsveginum, við Hveradalabrekku, klukkan ellefu í gærkvöldi. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Selfossi voru þrír í bílnum og voru þeir fluttir á slysadeild með sjúkrabílum. Meiðsli þeirra eru þó talin minniháttar. Mikil hálka var á Suðurlandsveginum í gærkvöldi og nótt. Bifreiðin er mikið skemmd, ef ekki ónýt.

Ísland komið í 8-liða úrslit

Íslenska Bridds landsliðið hóf í morgun keppni í fjórðungsúrslitum á heimsmeistaramótinu í Bridds sem fram fer í Hollandi. Íslenska liðið lenti í sjötta sæti í undankeppninni og spilar á móti Hollandi í fyrsta útsláttarspilinu en Hollendingar lentu í öðru sæti og fengu því að velja sér andstæðinga. Á föstudag tapaði íslenska liðið á móti Hollendingingum 22-8. Það er þó ekki þar með sagt að Hollendingar eigi sigur vísan í dag því allt getur gerst í Briddsinu eins og fyrirliði íslenska liðsins Björn Eysteinsson sagði í samtali við fréttastofu á föstudag.

Dyravörður stoppaði líkamsárás

Piltur fæddur árið 1993 var vistaður í fangageymslu hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Hann réðist á rúmlega tvítuga stúlku í Austurstrætinu klukkan rúmlega þrjú í nótt með þeim afleiðingum að hún skarst meðal annars á olnboga.

Missti stjórn á sér á Kaffi Akureyri

Einn gisti fangageymslur lögreglunnar á Akureyri í nótt vegna ölvunar og rúðubrota. Maðurinn var á skemmtistaðnum Kaffi Akureyri í gærkvöldi þegar hann missti stjórn á sér og braut þar rúðu. Lögregla var kölluð til og stóð til að keyra hann heim, en vildi maðurinn frekar gista á lögreglustöðinni og því svaf hann þar í nótt. Rætt verður við manninn þegar hann er búinn að sofa úr sér.

Enginn með allar tölur réttar

Enginn var með allar tölurnar réttar í lottóinu í kvöld. Þrír voru með 2. vinning og fá hver tæplega 160 þúsund krónur í sinn hlut.

Óvíst hvort Gaddafí hafi verið krufinn

Þingkosningar eiga að fara fram í Líbíu innan átta mánaða, segir formaður bráðabirgðarstjórnar Líbíu. Óvíssa ríkir um hvort lík Gaddafis, fyrrum leiðtoga landsins, hafi verið krufið í dag.

Davíð Már fundinn

Davíð Már Bjarnason sem sem lögreglan á Sauðárkóki lýsti eftir í gær er fundinn. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fann drenginn í nótt. Lögreglan á Sauðárkróki þakkar þeim sem höfðu samband við lögreglu vegna málsins

Bauhaus opnar - ekki geymsla fyrir bíla útrásarvíkinga

Forsvarsmenn byggingarvöruverslunarinnar Bauhaus telja að loksins sé að rofa til í íslensku efnahagslífi. Þeir stefna að því að opna tuttugu og eitt þúsund fermetra verslun sína hér á landi næsta vor og hafa auglýst eftir starfsfólki.

250 lítrar fóru á 45 mínútum

"Þetta gekk ljómandi vel - maður hefði getað verið með fleiri þúsund lítra af súpu og það hefði allt farið,“ segir Úlfar Eysteinsson, matreiðslumaður á Þremur frökkum, sem var einn af þeim sem gaf kjötsúpu á Skólavörðustígnum á þessum fyrsta degi vetrar.

Grunaðir nauðgarar úrskurðaðir í gæsluvarðhald í einn mánuð

Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði í gær tvo karlmenn, sem grunaðir eru um að hafa nauðgað konu sem fékk far með þeim á sunnudagsmorgun, í mánaðarlangt gæsluvarðhald á grundvelli almannahagsmuna. Konan leitaði strax á neyðarmóttöku vegna nauðgana á Landspítalanum í Fossvogi og kærði svo mennina til lögreglu. Mennirnir, sem eru með pólskt ríkisfang, voru handteknir síðdegis á sunnudag og í kjölfarið úrskurðaðir í vikulangt gæsluvarðhald. Mennirnir eru um þrítugt og konan á svipuðum aldri. Í Fréttablaðinu á þriðjudaginn kom fram að konan hefði verið stödd í miðbæ Reykjavíkur á leiðinni heim þegar þeir tóku hana upp í bíl sinn og beittu ofbeldi.

Kjötsúpa á Skólavörðustíg

Listakokkar munu reiða fram ókeypis kjötsúpu fyrir gesti og gangandi á Skólavörðustígnum í dag, fyrsta dag vetrar. Þeir Siggi Hall, Úlfar Eysteinsson, Friðgeir Eiríksson og Snorri Birgir Snorrason munu standa yfir pottunum og seðja hungur þeirra sem eru í bæjarferð. Súpan verður framreidd á fimm stöðum á Skólavörðustígnum frá klukkan eitt, þegar fyrsti skammturinn verður réttur inn í Hegningarhúsið við Skólavörðustíg. Þetta kemur fram á vefnum náttúra.is

Skora á stjórnvöld að skilgreina hvað felist í sjúkratryggingu

Læknafélag Íslands skorar á stjórnvöld að skilgreina hvaða heilbrigðisþjónusta felst í sjúkratryggingu almennings á Íslandi. Læknar telja það í höndum velferðarráðherra að ákveða hvar skerða eigi heilbrigðisþjónustu en ekki forstjóra stofnana.

Dagur og Jóhanna sjálfkjörin í formannsembættin

Dagur B. Eggertsson, var sjálfkjörinn varaformaður Samfylkingarinnar, rétt í þessu en þetta tilkynnti hann á Facebook-síðu sinni. Í morgun var Jóhanna Sigurðardóttir, einnig sjálfkjörin í embætti formanns flokksins, á Landsfundi Samfylkingarinnar sem fer nú fram í Vodafone-höllinni að Hlíðarenda í Reykjavík. Síðar í dag verður kjörið í embætti ritara og hefur Bergvin Oddson og Helga Karlsdóttir boðið sig fram. Landsfundinum lýkur á morgun en þá fara fram kjör í embætti gjaldkera og formanns framkvæmdastjórnar.

Sex fluttir á slysadeild

Sex voru fluttir á slysaedeild í þremur sjúkrabílum eftir harðan árekstur á Kringlumýrarbrautinni rétt eftir klukkan tólf í dag. Svo virðist sem ekið hafi verið bilaðan bíl sem var kyrrstæður á veginum. Farþegar sem voru inni í bílnum biðu eftir aðstoð þegar bíll keyrði aftan á hann á miklum hraða.

Kringlumýrarbraut lokuð vegna umferðarslyss

Umferðarslys varð á Kringlumýrarbraut, leið norður við Fossvog rétt eftir klukkan tólf í dag. Svo virðist sem ekið hafi verið á bilaðan bíl sem var kyrrstæður. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu er búið að flytja tvo á slysadeild og gert er ráð fyrir að fjórir aðrir verði einnig fluttir á slysadeild. Ekki liggur fyrir hvort alvarleg meiðsl hafi orðið á fólki. Kringlumýrarbrautin verður lokuð í einhvern tíma á meðan lögregla og sjúkralið vinna á vettvangi. Ekki vitað í hvað langan tíma lokað verður

Í öndunarvél eftir reiðhjólaslys á Dalvegi

Líðan hjólreiðamannsins sem varð fyrir gámaflutningabíl á Dalvegi á miðvikudaginn er óbreytt, samkvæmt upplýsingum frá vakthafandi lækni á gjörgæsludeild Landspítalans. Maðurinn er alvarlega slasaður og er haldið sofandi í öndunarvél.

Jóhanna verður sjálfkjörin formaður

Jóhanna Sigurðardóttir verður sjálfkjörin formaður Samfylkingarinnar á Landsfundi flokksins sem nú er haldin í Valsheimilinu að Hlíðarenda.

Ætluðu að keyra yfir göngubrú á pallbíl - enduðu ofan í Læknum

Tveir ölvaðir karlmenn um tvítugt voru handteknir í Hafnarfirði um klukkan þrjú í nótt. Þeir ákváðu að keyra yfir trégöngubrú á jeppa-pallbíl við Lækinn í Hafnarfirði en það tókst ekki betur til en svo að þeir veltu bílnum með þeim afleiðingum að handrið brotnaði og bíllinn endaði ofan í Læknum.

Tvisvar á hjartadeild og hætti í Hagaskóla

„Hjartað fór úr takti því álagið var gríðarlegt og ég endaði tvisvar inni á hjartadeild,“ segir Þröstur Harðarson, fyrrverandi matreiðslumaður í Hagaskóla til sex ára. Þröstur hefur séð um skólamötuneyti í á annan áratug. Hann hætti í Hagaskóla í fyrrahaust þegar hann var að hefja sjöunda veturinn sinn þar. Að sögn Þrastar jókst álagið í mötuneytinu gríðarlega þegar skólastjórinn stytti matarhléið í hálftíma veturinn 2008 til 2009. Eins bættist við framreiðsla á hafragraut á morgnana.

Kærleiksmaraþon á morgun

Hin árlega Vinavika á Vopnafirði nær hápunkti á morgun með Kærleiksmaraþoni Æskulýðsfélags Hofsprestakalls. Hátíðahöldin hafa staðið frá síðustu helgi með ýmsum uppákomum undir forystu unglinga í Æskulýðsfélagi kirkjunnar. Markmið vikunnar er að bæjarbúar og gestir sýni sínar bestu hliðar með því að brosa, vera jákvæð og hjálpa öðrum. Kærleiksmaraþoninu lýkur svo með Vinamessu í Vopnafjarðarkirkju þar sem æskulýðsfélagið tekur lagið, og um kvöldið verður flugeldasýning.

KÍ sakað um að misfara með vísindasjóð

Starfsmenn Kennarasambands Íslands (KÍ) hafa ítrekað brotið bókhaldslög við umsýslu Vísindasjóðs Félags framhaldsskólakennara og Félags stjórnenda í framhaldsskólum. Þetta fullyrðir stjórn sjóðsins, sem hefur nú svipt Kennarasambandið forræði á sjóðnum og tekið hann í sína vörslu eftir níu mánaða deilur.

Jákvæður andi í viðræðum

Samningafundi um makrílveiðar, sem hófst á miðvikudag, lauk í London í gær. Tómas H. Heiðar, aðalsamningamaður Íslands, segir að fundurinn hafi verið jákvæður og verður viðræðunum haldið áfram í næstu viku.

Fjölbreytilegar framtíðarsýnir

Fimm hugmyndir voru í gær valdar úr 102 tillögum sem þær áhugaverðustu um framtíð þjóðgarðsins á Þingvöllum.

Aðgerðir bera árangur

Nýjar reglur um útgáfu lyfjaskírteina, til að hindra að einstaklingar gætu fengið ávísun á lyf frá mörgum læknum, hafa borið merkjanlegan árangur til að draga úr misnotkun metýlfenidat-lyfja eins og Ritalins og Concerta.

„Það verður engin hoppandi gleði“

„Það verður engin hoppandi gleði og örugglega mjög skiptar skoðanir,“ segir Steinar Adolfsson, framkvæmdastjóri Landssambands lögreglumanna, um nýgert samkomulag við lögreglustjóra um álagsgreiðslur.

Nýr formaður Læknafélags Íslands

Þorbjörn Jónsson, sérfræðingur í ónæmisfræði, var kjörinn formaður Læknafélags Íslands til næstu tveggja ára á aðalfundi félagsins í dag. Birna Jónsdóttir röntgenlæknir gaf ekki kost á sér til endurkjörs. Birna hefur verið formaður félagsins síðastliðin fjögur ár. Aðalfundur Læknafélagsins lýsti yfir stuðningi við að byggður verði nýr sameinaður Landspítali á einum stað í ályktun sinni. Auk þess samþykkti fundurinn fleiri ályktanir.

Lögreglan óskar eftir ábendingum vegna dýraníðs

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir ábendingum frá almenningi vegna rannsóknar misþyrmingu á hryssu í hesthúsi við Heimsenda í Kópavogi. Atvikið varð 18. október síðastliðinn.

Aðildarviðræðum verði lokið fyrir kosningar

Formaður Samfylkingarinnar segist ætla að ljúka aðildarviðræðum við ESB fyrir kosningar árið 2013. Til þess verks hafi flokkurinn verið kosinn. Landsfundur Samfylkingarinnar var settur síðdegis í dag.

Lýst eftir Davíð Má

Lögreglan á Sauðárkróki lýsir eftir Davíð Má Bjarnasyni. Hann er á 15 ára gamall og er um 175 sentimetrar á hæð. Davíð er þéttvaxinn, væntanlega klæddur í brúna úlpu með loðkraga, gallabuxur eða íþróttabuxur og svarta skó. Davíð er stuttklipptur með skollitað hár.

Leysibendar bannaðir án sérstaks leyfis frá Geislavörnum

Velferðarráðherra hefur sett reglugerð sem bannar notkun á öflugum leysibendum án leyfis frá Geislavörnum ríkisins og einnig ber að tilkynna Geislavörnum um innflutning þeirra. Reglugerðin er sett til að hindra slys líkt og dæmi eru um að hlotist hafi af gáleysislegri notkun leysibenda.

Óskað eftir vitnum að árekstri

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að árekstri sem varð á Vesturlandsvegi, rétt austan við Select, um sexleytið (eða 18.05-18.10) þriðjudaginn 18. október sl.

Nöfn systranna sem létust á Spáni

Konurnar sem fórust í bílslysinu á Alicante í gær hétu Erla Tryggvadóttir, f. 1929 og Svana Tryggvadóttir, f.1931. Þær voru systur.

Sjá næstu 50 fréttir