Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hæstaréttardómari kærður fyrir að bera lögreglumann röngum sökum Varðstjóri hjá lögreglunni á Selfossi hefur lagt fram kæru á hendur hæstaréttardómaranum Árna Kolbeinssyni fyrir rangar sakargiftir. Ríkissaksóknari hefur kæruna til skoðunar. 11.10.2011 06:30
Flestir reðrarnir komnir í gám Nú stendur yfir reðraburður í Hlöðufelli á Húsavík en Hið íslenska reðasafn verður flutt frá Húsavík til Reykjavíkur og er áætlað að það verði opnað á nýjum stað á Laugavegi 116 í nóvember. 11.10.2011 06:00
Skálað í kaffi á 20 ára afmælinu Tuttugu ár eru liðin síðan íslenska briddslandsliðið sigraði á heimsmeistaramótinu í Yokohama og hlaut hina frægu Bermúdaskál að launum. Ísland hefur ekki tryggt sér þátttökurétt í lokakeppni heimsmeistaramóts í sveitakeppni í bridds aftur fyrr en nú. Keppnin hefst í Veldhoven í Hollandi á laugardag. 11.10.2011 05:45
Lífeyrissjóðir láni fyrir þyrlum Guðmundur Þ. Ragnarsson, formaður Félags vélstjóra og málmtæknimanna, hefur lagt til að lífeyrissjóðirnir láni ríkinu fé fyrir kaupum á tveimur björgunarþyrlum. Þyrlurnar yrðu síðan leigðar til Landhelgisgæslunnar í tíu ár en þá myndi ríkið eignast þyrlurnar. Guðmundur telur að lífeyrissjóðirnir, Landhelgisgæslan og landsmenn allir myndu njóta góðs af ráðahagnum. 11.10.2011 05:30
Greiðsla bóta kemur til greina Formaður úrbótanefndar kirkjuþings segir vel koma til greina að greiða Guðrúnu Ebbu Ólafsdóttur sanngirnisbætur vegna vinnubragða þjóðkirkjunnar í máli hennar, sem hluta af sáttaferli milli hennar og kirkjunnar. 11.10.2011 05:00
Þjóðskrá lengi að taka við sér „Þetta er fullkomið tillitsleysi,“ segir Hrafnhildur Gunnarsdóttir kvikmyndagerðarkona, sem komst nýverið að því að hjónavígsluvottorði hefði ekki verið breytt í samræmi við samræmd hjúskaparlög sem tóku gildi í júní í fyrra. 11.10.2011 04:45
Gæðastimpill fyrir allt fræðasamfélagið Háskóli Íslands hefur náð í fyrsta sinn inn á matslista Times Higher Education Supplement (THE) um bestu háskóla heims. Skólinn er metinn í hópi 300 bestu af rúmlega sautján þúsund háskólum sem til greina koma við matið. 11.10.2011 04:00
Réttindi fatlaðra ofar réttindum eignafólks Mannréttindi hafa á undanförnum árum verið skilgreind í of miklum mæli út frá markaðslögmálum og eignarrétti og það hefur komið niður á almannahagsmunum. Þetta sagði Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra þegar hann flutti skýrslu um stöðu mannréttinda á Íslandi hjá vinnuhópi Sameinuðu þjóðanna í Genf í gær. 11.10.2011 03:45
Hættulegt leiktæki strax lagað „Framleiðandi leiktækisins fór strax í morgun til að kanna ástand þess. Það var greinilega eitthvað að vírnum og hann verður strax lagaður. Þetta var nýtt tæki sem sett var upp á Klambratúni í fyrravetur,“ sagði Þórólfur Jónsson, garðyrkjustjóri Reykjavíkurborgar, í gær. 11.10.2011 03:00
Beit framan af fingri manns Karlmaður hefur verið sýknaður í héraðsdómi af ákæru um nauðgun. Konan sem bar manninn sökum var nýflutt hingað til lands í atvinnuskyni. Hann hafði unnið hér um nokkurt skeið. Þau höfðu deilt rúmi eftir komu hennar hingað, hugðust gera það áfram og voru að flytja í annað húsnæði þegar til átaka kom þeirra á milli er þau höfðu haft vín um hönd. 11.10.2011 03:00
Var með barnaklám í tölvunni Ákæra vegna barnaníðsmynda hefur verið þingfest í Héraðsdómi Reykjaness. Hinn ákærði, karlmaður um fimmtugt, játaði sök og var málið tekið til dóms. 11.10.2011 02:45
Rændi banka og fékk sér pítsu og bjór Rúmlega fimmtugur karlmaður var handtekinn í Yuma í Arizona í Bandaríkjunum um helgina eftir að hann rændi banka. Maðurinn gekk inn í bankann skömmu eftir hádegi á laugardaginn vopnaður hnífi og heimtaði að fá peninga. 10.10.2011 23:30
Vill að biskup víki Séra Sigfinnur Þorleifsson segir að biskup eigi að víkja en það er RÚV sem greindi frá. Séra Sigfinnur, var í viðtali við Síðdegisútvarp Rásar 2 fyrr í dag. Þar sagði hann: 10.10.2011 19:34
Ellý Katrín verður borgarritari Borgarráð hefur samþykkt tillögu borgarstjóra að ráða Ellý Katrínu Guðmundsdóttur, sviðsstýru Umhverfis- og samgöngusviðs Reykjavíkurborgar í stöðu borgarritara. 10.10.2011 17:16
Fólki sagt upp vegna andlegra veikinda Dæmi eru um að vinnuveitendur hafi sagt fólki upp störfum þegar það veikist af geðsjúkdómum, segir Björt Ólafsdóttir, formaður Geðhjálpar. Samtökin eru því í þann mund að setja af stað aðgerðaráætlun á vinnustöðum sem miðar að því að athuga og hjálpa fyrirtækjum við að taka á því af stuðningi og ábyrgð þegar upp koma geðræn veikindi starfsmanna. Þannig vill Geðhjálp stuðla að því að fyrirtæki marki sér stefnu í starfsmannamálum og fylgi henni eftir þegar slíkt kemur upp. 10.10.2011 15:13
Benedikt settur dómari Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra hefur sett Benedikt Bogason dómstjóra í embætti dómara við Hæstarétt Íslands frá og með 1. nóvember 2011 til og með 31. desember 2014. Umsækjendur auk Benedikts voru Guðjón Ólafur Jónsson hæstaréttarlögmaður, Ingimundur Einarsson héraðsdómari og Þorgeir Ingi Njálsson dómstjóri. Dómnefnd sem fjallar um hæfni umsækjenda um embætti dómara mat Benedikt hæfastan umsækjenda til að hljóta setningu, segir á vef innanríkisráðuneytisins. 10.10.2011 15:50
Blekktu starfsmenn Kaupþings til að millifæra yfir hálfa milljón Rúmlega þrítugir karlmenn voru dæmdir í skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag fyrir fjársvik. Tveir aðrir einstaklingar sem hylmdu yfir brot þeirra voru einnig dæmdir til refsingar. 10.10.2011 14:55
Dópsali með spítt og gras dæmdur í fangelsi Karlmaður fæddur árið 1989 var dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag fyrir að hafa í vörslum sínum í sölu- og dreifingarskyni rúmlega 82 grömm af marijúana og tæplega 26 grömm af amfetamíni. Maðurinn játaði brott sitt fyrir dómi en hann hefur ekki áður hlotið dóm fyrir brot á fíkniefnalöggjöfinni. 10.10.2011 13:52
Beit í þumalfingur lögreglumanns Karlmaður á fimmtugsaldri var dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag fyrir að hafa ráðist á lögreglumann á lögreglustöðinni í Reykjanesbæ í mars á þessu ári. Hann beit lögreglumanninn í þumalfingur með þeim afleiðingum að hann hlaut tveggja sentimetra langan skurð. Maðurinn játaði brott sitt fyrir dómi en hann hefur áður hlotið dóm fyrir brot á hegningarlögum. 10.10.2011 13:42
Sigmundur Davíð kominn undir 100 kíló Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, er kominn undir 100 kíló og er nú 99,6 kíló. Á Facebook-síðu sinni segist hann hættur að vera póstnúmer. 10.10.2011 13:16
Erlendir sérfræðingar skoða bilun í símkerfi Erlendir sérfræðingar eru komnir til landsins vegna alvarlegrar bilunar sem kom upp í gær þegar farsímanotendur Nova og Vodafone gátu hvorki hringt né móttekið símtöl í um tvo og hálfan klukkutíma vegna bilunar í dreifikerfi fyrirtækjanna. 10.10.2011 12:41
Anna Björns farin úr landi Anna Björnsdóttir sem kom upp um glæpaforingjann James Bulger er farin úr landi. Fyrrverandi saksóknari í Bandaríkjunum gagnrýnir blaðið Boston Globe fyrir að greina frá nafni Önnu. 10.10.2011 12:04
„Hvílík skepna hefur þessi biskup verið“ „Hvílík skepna hefur þessi biskup verið," segir séra Baldur Kristjánsson, sóknarprestur í Ölfusi, um Ólaf Skúlason. Tilefnið er viðtalsþáttur við dóttur Ólafs, Guðrúnu Ebbu, sem sýndur var á RÚV í gær. 10.10.2011 11:58
Sprengiefnið fundið - góðkunningi lögreglu í varðhaldi Sprengiefnið, sem var stolið úr tveimur rammgerðum gámum í Þormóðsdal ofan við Hafravatn á dögunum, fannst við húsleit í Hafnarfirði og Kópavogi seint í gærkvöld. Í tilkynningu frá lögreglu segir að karl um þrítugt, sem á langan afbrotaferil að baki, hafi verið handtekinn í þágu rannsóknarinnar. 10.10.2011 11:36
Stal flösku af skosku viskíi Litháískur karlmaður á fertugsaldri hefur verið ákærður fyrir þjófnað í verslun ÁTVR við Skútuvog í febrúar á síðasta ári. Samkvæmt ákæru stal maðurinn flösku af Scottish Leader vískíi að verðmæti 3.750 krónur. Krafist er að maðurinn verði dæmdur til refsingar. Þá gerir ÁTVR einkaréttarkröfu um að maðurinn verði greiddur til að greiða flöskuna - auk vaxta. 10.10.2011 11:31
Staða mannréttindamála almennt góð "Almennt held ég að mér sé óhætt að segja að staða mannréttindamála sé góð á Íslandi," sagði Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra þegar hann svaraði fyrir stöðu mannréttindmála á Íslandi hjá vinnuhópi Sameinuðu þjóðanna í Genf í dag, Hann sagði þó ljóst að hægt væri að gera enn betur og Íslendingar myndu ekki víkja sér undan gagnrýni á stöðu mannréttinda á Íslandi. "Við viljum fá slíka gagnrýni," segir Ögmundur. Hann myndi því bregðast vel við öllum ábendingum. 10.10.2011 11:19
Nota stolin bílnúmer til að svíkja út bensín Færst hefur í vöxt að skráningarnúmerum bifreiða sé stolið en tilkynnt var um slíkan þjófnað á Hvolsvelli í vikunni sem leið. 10.10.2011 11:00
Kannabisreykingamenn staðnir að verki Lögreglumenn höfðu afskipti af nokkrum ungum karlmönnum í íbúð á Selfossi árla morguns í gær vegna hávaða. Grunur vaknaði um að þeir væru að reykja hass. Þá var fenginn íkniefnahundur til að leita í búðinni og fann hann þar smávegis af kannabis. Við yfirheyrslu viðurkenndi einn úr hópnum að eiga efnið. 10.10.2011 10:55
Mæðrastyrksnefnd fékk 250 bíómiða, popp og gos Mæðrastyrksnefnd hefur verið gefið 250 aðgöngumiða á myndina Hetjur Valhallar - Þór og einnig gjafamiða yfir poppi og gosi. 10.10.2011 10:34
Heppilegra að einn aðili taki ákvörðun um laun þingmanna Kjararáð telur heppilegra að ákvörðun um laun þingmanna sé tekin af einum aðila, annað hvort þinginu sjálfu eða af óháðum aðila líkt og kjararáði. Þetta kemur fram í umsögn sem kjararáð skrifaði með frumvarpi Marðar Árnasonar og Valgerðar Bjarnadóttur, þingmanna Samfylkingarinnar, sem þau lögðu fram á síðasta þingi. Samkvæmt frumvarpinu var lagt til að sérstökum álagsgreðslum til þingmanna yrði hætt. Frumvarpið varð ekki að lögum. 10.10.2011 10:00
Ákærður fyrir tvær líkamsárásir á Gamlárskvöld Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur ákært karlmann um tvítugt fyrir tvær líkamsárásir um áramótin síðustu. Þá er hann einnig ákærður fyrir að hafa rúmlega hálft gramm af marijúana í fórum sínum í maí á þessu ári. 10.10.2011 09:56
Snjóþekja víða um land Snjóþekja og hálka eru víða á Vestfjörðum, á norðurlandi og norðausturlandi. Spáð er vaxandi norðanátt með snjókomu um landið norðanvert í kvöld, en bjartara syðra. 10.10.2011 08:25
Brotist inn í Kópavogi og í Keflavík Brotist var inn í fyrirtæki í Kópavogi og verslun í Keflavík í nótt , en þjófarnir komust undan í báðum tilvikum. Ekki liggur fyrir hvort þeir höfðu einhver verðmæti á brott með sér en málin eru í rannsókn. 10.10.2011 08:05
Gagnrýnir Boston Globe fyrir að greina frá nafni Önnu Björns Fyrrverandi saksóknari í Bandaríkjunum gagnrýnir blaðið Boston Globe sem greindi frá því í gær að Anna Björnsdóttir hefði sagt alríkislögreglunni bandarísku frá því hvar glæpaforinginn James Bulger gæti verið niðurkominn. 10.10.2011 07:39
Rektor HR býst við meira fé Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskólans í Reykjavík, gerir ráð fyrir því að stefna stjórnvalda sé sú að háskólastarf á Íslandi standi ekki höllum fæti gagnvart samanburðarlöndum innan Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) og fleiri skólar en Háskóli Íslands muni því njóta aukinna fjárveitinga frá því sem nú er. Hann fagnar stofnun Aldarafmælissjóðs Háskóla Íslands og að stjórnvöld viðurkenni mikilvægi háskólastarfs með þeim hætti. „Ég vænti því þess að framhald verði á því að auka framlög til alls háskólastarfs í landinu. Þetta verður bara að vera fyrsta skrefið." 10.10.2011 07:08
Ekkert BootCamp án breytinga á skipulagi Eigi hús sem Fornbílaklúbbur Íslands reisti í Elliðaárdal að vera notað undir líkamsræktarstöð þarf að breyta deiliskipulagi á svæðinu. Þetta segir Ólöf Örvarsdóttir, skipulagsstjóri í Reykjavík. 10.10.2011 06:00
Búið að ráðstafa öllu nema 7,5 milljónum Rúmlega 35 milljónir af þeim 40 sem heitið var hafa skilað sér inn til Krabbameinsfélagsins vegna Mottumars. Áheit á netinu áttu að skila inn tæpum 30 milljónum og fyrirtæki áttu að skila inn um 10 milljónum. Enn vantar um þrjár milljónir af áheitum af netinu og um tvær milljónir frá fyrirtækjum. Þeim sem heita á einstaklinga vegna Mottumars ber engin lagaleg skylda til þess að greiða inn til félagsins. 10.10.2011 06:00
Með 90 gyðinga á lista og horfa til sýnagógu Leit tveggja bandarískra rabbínanema að gyðingum á Íslandi hefur borið svo góðan ávöxt að þeir sjá fyrir sér að fljótlega þurfi að koma hér upp samkomuhúsi fyrir íslenska gyðinga og á endanum sýnagógu. Þeir telja leitina hafa gengið vonum framar. 10.10.2011 05:30
Ákærður fyrir brugg og fíkniefnasölu Karlmaður um fimmtugt hefur verið ákærður fyrir Héraðsdómi Norðurlands eystra fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot, kannabisræktun, bruggstarfsemi og sölu dóps og landa. 10.10.2011 05:00
500 nýjar íbúðir gætu risið Borgarráð samþykkti á fundi sínum á fimmtudag að veita vilyrði fyrir stúdentagörðum Félagsstofnunar stúdenta (FS) við Brautarholt 7. Þar gætu risið allt að 100 íbúðir. Enn fremur var ákveðið að hefja viðræður við Háskólann í Reykjavík um að hefja undirbúning að byggingu stúdentagarða á svæði háskólans við Öskjuhlíð. Skipulagsráð kannar síðan frekari uppbyggingarmöguleika fyrir námsmannaíbúðir á tveimur svæðum í samvinnu við HÍ og FS. 10.10.2011 04:00
Góð loðna í grænlenskri lögsögu Fyrstu loðnunni á vertíðinni var landað á Vopnafirði um helgina. Víkingur AK, skip HB Granda, færði að landi þúsund tonna farm af stórri loðnu sem fékkst í grænlenskri lögsögu. 10.10.2011 03:30
ASÍ gagnrýnir fjárlagafrumvarp 2012 Miðstjórn ASÍ lýsir yfir vonbrigðum með grundvallarstefnuna að baki fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar fyrir árið 2012. Lítil innistæða sé fyrir þeim veiku forsendum sem stjórnvöld gefi sér fyrir efnahagsbata. 10.10.2011 03:00
Ólafur hafði nær takmarkalaust vald yfir henni Guðrún Ebba Ólafsdóttir, dóttir Ólafs Skúlasonar biskups kom fram í viðtali á RÚV í kvöld. Í viðtalinu sagði hún frá bókinni "Ekki líta undan“ sem kemur út í kvöld. Hún fjallaði um kynferðisafbrot föður síns gegn sér, sagði áhrifum þeirra á líf sitt og baráttu við gleymdar minningar. Hún sagði frá því hve þungt ofbeldið lagðist á hana gegnum tíðina. Það eyðilagði jafnvel fyrir henni ákveðnar bragðtegundir og lyktir. Til að mynda segist hún aldrei almennilega hafa getað drukkið appelsín sökum þess í undirmeðvitund hennar tengist það löngu liðnum brotum Ólafs. 9.10.2011 21:40
Maðurinn sem teiknaði Jobs á himnum Gísli Guðjónsson er maðurinn sem teiknaði skopmyndina af Steve Jobs við hlið himnaríkis. Hann segist mikill aðdáandi Jobs og alltaf verið Mac-maður. Þegar hann frétti af dauða Jobs fannst honum réttast að heiðra hann með skopmynd. 9.10.2011 20:02
Vilja að skjálftunum linni Iðnaðar- og umhverfisráðuneytið hafa óskað eftir því að mikil skjálftavirkni við Hellisheiðarvirkjun verði skoðuð. Bæjarstjórinn í Hveragerði segir skjálftana vekja ugg hjá bæjarbúum og telur að Orkuveitan verði að breyta starfsaðferðum sínum svo íbúarnir þurfi ekki að búa við síendurtekna skjálfta. 9.10.2011 18:40