Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Vilja auka hlut sveitarfélaga í almenningssamgöngum Samgönguyfirvöld stefna að því að yfirumsjón með almenningssamgöngum á landi verði komin á hendur sveitarfélaga fyrir lok næsta árs. Þegar hefur verið undirritað sjö ára samkomulag við Samband sunnlenskra sveitarfélaga, sem fær 80 milljónir króna á ári í þeim tilgangi. Formaður Samtaka íslenskra sveitarfélaga segir hagræði geta falist í þessum breytingum en ríkið verði að standa við sitt. 4.8.2011 06:15
Bíða eftir bænapresti Söfnuðurinn í Menningarsetri múslima á Íslandi bíður eftir Taha Sidique, bænapresti sínum, eða imam, en hann hefur ekki fengið dvalarleyfi þó að umsóknin hafi verið til afgreiðslu í rúma þrjá mánuði. 4.8.2011 06:00
Skuldar 44 milljónir á Íslandi Norski listmálarinn Odd Nerdrum skuldar um 44 milljónir króna í opinber gjöld hér á landi, en hann hefur verið ákærður fyrir stórfelld skattsvik í Noregi. 4.8.2011 05:30
Allir fangelsiskostir enn til athugunar Engin ákvörðun hefur verið tekin um hvernig staðið verður að því að auka við fangelsisrými. Innanríkisráðuneytið vinnur nú úttekt á kostnaði og hagkvæmni þess að breyta ýmsum húsum ríkisins í fangelsi. Engir kostir hafa verið útilokaðir. 4.8.2011 05:00
Helgi Magnús skipaður vararíkissaksóknari Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra hefur skipað Helga Magnús Gunnarsson í embætti vararíkissaksóknara. 4.8.2011 04:30
Kaldasti júlímánuður í fimm ár, sá fjórtándi hlýjasti frá 1871 Meðalhiti í Reykjavík var 12,2 stig í nýliðnum mánuði og er hann kaldasti júlímánuður í fimm ár, samkvæmt mælingum Veðurstofunnar. Þrátt fyrir það var meðalhitinn á landinu yfir meðallagi júlímánaða á nokkrum síðustu áratugum síðustu aldar eða frá árinu 1961 til 1990. 3.8.2011 21:30
Tryggja að nemendur Kvikmyndaskólans nái að útskrifast Menntamálaráðuneytið hefur lagt fram tillögur til Kvikmyndaskóla Íslands um lausn á fjárhagsmálum skólans. Tryggt verður að núverandi nemendur skólans fái að ljúka sínu námi komi til þess að skólinn verði lagður niður. 3.8.2011 20:30
Víðines ekki álitlegur kostur - Enn óvíst hvar nýtt fangelsi rís Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, segir bráðvanta gæsluvarðhalds- og öryggisfangelsi á Íslandi. Hann segir Víðines ekki vera álitlegan kost, enda eigi ekki að reisa bráðabirgðafangelsi. 3.8.2011 19:41
Segir gjaldeyristekjur 100 verkamanna jafngilda 800 í sauðfjárbúskap Fimmtíu til hundrað verkamenn í álverum hér á landi skapa jafn miklar gjaldeyristekjur fyrir þjóðarbúið og um átta hundruð starfsmenn í sauðfjárbúskap, segir prófessor í hagfræði. Hann segir íslenska skattgreiðendur niðurgreiða útflutning á kindakjöti. 3.8.2011 19:30
Á þriðja tug bílaverkstæða segja upp samningum við tryggingafélög Á þriðja tug bílaverkstæða hafa óskað eftir uppsögn á samningi sínum við tryggingafélögin. Þau segjast ekki geta fullnægt öryggiskröfum bílframleiðanda ef tryggingafélögin auka ekki greiðslur. Öryggið eigi alltaf að vera aðalatriðið. 3.8.2011 19:30
Staða Íslands í makríldeilu verr tryggð innan ESB Staða Íslands í makríldeilunni við ESB og Noreg væri mun verri innan ESB heldur en utan, segir sérfræðingur lagastofnunar Háskóla Íslands. Þá segir hann að ef hótanir sjávarútvegsstjóra ESB um innflutningsbann á sjávarafurðum verði að veruleika sé það brot á EES-samningnum. 3.8.2011 19:30
Ætlað tap Seðlabankans á sölu FÍH nemur heildarútgjöldum til vegamála Seðlabanki Íslands gæti tapað um tuttugu og tveimur milljörðum króna á hruni hlutabréfa í danska skartgripafyrirtækinu Pandóru í kauphöllinni í Kaupmannahöfn. Það jafngildir heildarútgjöldum ríkissjóðs til vegamála á síðasta ári. 3.8.2011 19:15
Laun embættismanna hækkuð Kjararáð hefur ákveðið að hækka laun embættismanna ríkisins um tæp fimm prósent. Hækkunin tók gildi fyrsta júní síðastliðinn og gildir meðal annars um alþingismenn og ráðherra en laun þeirra hafa ekki verið hækkuð síðan ákveðin var almenn launalækkun árið 2009. Ákvörðun kjararáðs hefur verið birt á heimasíðu ráðsins og er sögð vera til samræmis við launaþróun í landinu að undanförnu. 3.8.2011 19:02
Vegfarendur geta keyrt áhyggjulausir um Oddskarðsgöng Vegagerðin telur að öryggi vegfarenda í Oddsskarðsgöngum sé ekki sérstaklega ógnað vegna hugsanlegs grjóthruns. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem Vegagerðin sendi frá sér í dag, en matið byggir á ástandi bergsins og reynslu fyrri ára. 3.8.2011 17:50
Bensínstöðvar lækka verð um 2 krónur Skeljungur hefur lækkað verð á bensíni og diesel á bensínstöðvum Orkunnar og Shell um 2 krónur. Atlantsolía og N1 eru einnig búin að lækka verð hjá sér. Olís hefur ekki lækkað verð. 3.8.2011 16:02
Ellen ekki á landinu heldur þýskur tvífari „Ég trúi þessu varla, við erum bara búin að hlæja og hlæja af þessu," segir Caroline Koch, þýskur ferðamaður sem er í fríi hér á landi í nokkra daga hjá íslenskum vinum sínum. 3.8.2011 15:55
Villtur í tæpan sólarhring Þýskur ferðamaður er kominn í leitirnar eftir að hann villtist í svartaþoku síðdegis í gær í nágrenni Námaskarðs í Mývatnssveit. 3.8.2011 15:18
Ögmundur áminnir sex sveitarfélög Sex sveitarfélög, af 76 starfandi sveitarfélögum á landinu, eiga eftir að skila inn þriggja ára fjárhagsáætlun til innanríkisráðuneytisins. Þau hafa nú öll fengið áminningu frá ráðuneytinu þar sem hótað er dagsektum og stöðvun greiðsla úr jöfnunarsjóði sveitarfélaga ef slíkar áætlanir verði ekki birt. 3.8.2011 15:13
Sífellt fleiri vinna heima Sífellt fleiri félagsmenn VR vinna fjarvinnu, samkvæmt niðurstöðum launakönnunar VR 2001. Niðurstöður könnunarinnar benda til þess að 41,8% félagsmanna vinni hluta vinnutíma síns í fjarvinnu. Að meðaltali er um að ræða 10,4 klukkustunda vinnu á viku. 3.8.2011 14:54
Sláturfélagið segir nóg til af lambakjöti Sláturfélag Suðurlands hefur sent frá sér tilkynningu þar sem það er áréttað að enginn skortur sé á lambakjöti hjá félaginu og að verslanir geti pantað allar þær vörur sem Sláturfélagið er með á boðstólnum. Tilefni tilkynningarinnar er umræða undanfarna daga og vikur um að lambakjöt skorti á innanlandsmarkaði og að neytendur geti ekki keypt kjöt þar sem það sé ekki á boðstólnum í verslunum. Samkvæmt birgðaskýrslum Sláturfélagsins voru í byrjun ágúst til tæp 600 tonn af lambakjöti í landinu en áætluð sala í ágúst er 500 til 550 tonn. 3.8.2011 13:55
Yfir 40 milljónir í að hreinsa graffiti Orkuveita Reykjavíkur hefur á síðustu þremur árum eytt á fimmta tug milljóna í að fjarlægja veggjakrot af mannvirkjum fyrirtækisins. Fyrirtækið segir tjón þess þó enn meira vegna skemmdarverkanna. 3.8.2011 12:30
Segir að svarta hagkerfið blómstri í bílaviðgerðum Framkvæmdastjóri Bílgreinasambandsins segir að svarta hagkerfið blómstri þegar komi að bílaviðgerðum. Eftir þrjár auglýsingar barst aðeins ein umsókn um stöðu bífvélavirkja hjá Heklu og sá hætti við þótt um hundrað bifvélavirkjar séu skráðir atvinnulausir. 3.8.2011 12:00
Heiðmerkurmorðinginn ósakhæfur Sakborningurinn í Heiðmerkurmálinu svokallaða er að öllum líkindum ósakhæfur. Það er niðurstaða geðlækna sem framkvæmt hafa mat á manninum sem varð barnsmóður sinni að bana í Heiðmörk í maí. Málið verður þingfest í næstu viku. 3.8.2011 12:00
Talaði um nýja stjórnarskrá í jarðarför Sævars "Ég fullyrði að texti frumvarpsins að nýrri stjórnarskrá sé stórmerkur að inntaki og markmiði," sagði séra Örn Bárður Jónsson, sóknarprestur Neskirkju, í minningarorðum um Sævar Cieselski sem hann jarðsetti í gær. Athöfnin fór fram frá Dómkirkjunni og gerði séra Örn Bárður frumvarp að nýrri stjörnarskrá að umtalsefni og las fjórum sinnum upp úr frumvarpinu. Sjálfur sat séra Örn Bárður í stjórnlagaráði og kom þannig að gerð frumvarpsins, sem var afhent forseta Alþingis í síðustu viku. Séra Örn Bárður sagði að í kaflanum um dómsvald í frumvarpinu sé ætlað að tryggja sjálfstæði dómstóla og koma í veg fyrir að aðrir en hæfustu menn séu skipaðir dómarar. Sem kunnugt er fékk Sævar þyngsta dóminn í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu svonefnda. Hann játaði brot sitt eftir ofbeldisfullar yfirheyrslur í Síðumúlafangelsinu en dró játninguna síðar til baka og krafðist endurupptöku málsins. Hæstiréttur hafnaði því. "Ég skora á ykkur sem hér eruð saman komið að kynna ykkur frumvarpstextann og taka honum fagnandi. Ísland þarf nýjar leikreglur fyrir upprisuna sem nú er í vændum og ég skora á allt gott fólk að tala máli nýrrar stjórnarskrá og leggjast á árarnar með okkur sem rituðum textann og sigla honum í vör með taktföstum áratökum," sagði séra Örn Bárður við útför Sævars í gær. Þá las hann upp úr mannréttindakafla frumvarpsins fyrir kirkjugesti, og sagðist sannfærður um að Sævar myndi kunna vel að meta nýja stjórnarskrá. "Hún geymir mörg merkileg ákvæði sem hefðu glatt Sævar," sagði hann við athöfnina. Það var árið 1986 sem Hæstiréttur hafnaði beiðni Sævars um endurupptöku á máli hans. Sævar gafst þó ekki upp og hélt því alltaf fram að sannleikurinn yrði að koma í ljós. Séra Örn Bárður tók þar undir með Sævari í minningarorðunum með vísan í frumvarp að nýrri stjórnarskrá. "Í frumvarpinu eru einnig ákvæði um að stjórnvöld veiti upplýsingar og opni aðgang að skjölum. Þær greinar ættu að verða ykkur til hjálpar sem viljið fá sannleikann fram í máli Sævars og annarra sakborninga," sagði hann. Séra Örn Bárður rifjaði upp orð sem Sævar lét falla á árum áður þegar hann virtist sannfærður um að á Íslandi myndi allt hrynja fyrr en síðar. "Þegar Ísland hrynur, þá ætla ég ekki að verða undir brakinu," eru meðal þekktustu orða Sævars. Í máli séra Arnar Bárðar kom fram að Sævar hefði staðið við þessi orð enda bjó hann í Danmörku hin síðari ár þegar ástand mála á Íslandi var í sögulegri lægð. "Nú er hann kominn aftur heim. Hann varð ekki undir brakinu. Hann er kominn heim á tímum uppbyggingar þegar flest horfir til betri vegar. Hann var kistulagður á föstudaginn var, sama dag og frumvarp að nýrri stjórnarskrá var afhent Alþingi." Minningarorð séra Arnar Bárðar má lesa í heild sinni með því að smella hér. http://ornbardur.annall.is/2011-08-02/saevar-marino-ciesielski-1955-2011/#more-3349 3.8.2011 11:16
Nýtt Skaftárhlaup gæti náð hámarki í byggð á föstudag Ef aur heldur áfram að aukast mikið í Skaftá við Sveinstind er búist við að Skaftárhlaup nái hámarki í byggð á föstudag. Nú hafa fyrstu merki hafa komið fram á mælum Veðurstofunnar að hlaup geti verið að hefjast úr Eystri-Skaftárkatli. Órói hefur mælst á jarðskjálftamælum í kringum Vestanverðan Vatnajökul frá því fljótlega eftir miðnætti í nótt. 3.8.2011 10:55
Ellen myndi gleðja mörg hjörtu ef hún yrði viðstödd gönguna „Hún er ekki á okkar vegum," segir Eva María Þórarinsdóttir Lange, sem situr í stjórn Hinseigin daga sem hefjast á fimmtudaginn næstkomandi. 3.8.2011 10:30
Stórstjarnan Ellen Degeneres í Smáralind Þáttastjórnandinn og grínistinn Ellen Degeneres er í heimsókn á Íslandi, mögulega í tengslum við Gay Pride-hátíðina sem er að hefjast. Ellen er sjálf lesbía og hefur barist ötullega fyrir réttindum samkynhneigðra. 3.8.2011 10:13
Húsnæðisskortur ríkir á Tálknafirði Eftir tuttugu ára samdráttarskeið á Tálknafirði er nú svo komið að mikil eftirspurn er eftir húsnæði í bænum. Höskuldur Steinarsson, framkvæmdastjóri Fjarðarlax sem rekur ört vaxandi laxeldi á staðnum, hefur til að mynda lýst yfir áhyggjum sínum af því að ekki verði til leiguhúsnæði fyrir starfsfólk á staðnum í nánustu framtíð. 3.8.2011 09:30
Iceland Express á áætlun í 40% tilvika Icelandair fór í loftið á réttum tíma í 78% tilvika í júlímánuði, en Iceland Express í 38% tilvika. Þetta sýna tölur sem vefsíðan turisti.is hefur tekið saman. Meðalseinkun brottfara hjá Icelandair var 8 mínútur en 34 mínútur hjá Iceland Express. Túristi.is segir að frammistaða Iceland Express hafi batnað mikið síðan í síðustu mælingu þegar innan við fimmta hver flugvél fór í loftið á réttum tíma. 3.8.2011 09:28
Ferðamenn í hættu á götóttum Geysisvegi Framkvæmdir við fjölfarna ferðamannaleið, um Laugardal milli Laugarvatns og Geysis, hafa staðið yfir í allt sumar. Það kemur illa niður á ferðaþjónustunni. Verkið er komið fram úr áætlun. 3.8.2011 09:00
Eftirlitsmyndavélar settar upp í Dalnum Páll Scheving Ingvarsson, formaður Þjóðhátíðarnefndar, vill láta setja upp eftirlitsmyndavélar í Herjólfsdal fyrir næstu Þjóðhátíð. Hann segir slíkt geta haft forvarnargildi og aðstoðað lögregluna í rannsóknum á afbrotum sem eigi sér stað. 3.8.2011 08:00
Júlí sá kaldasti í fimm ár Meðalhiti í Reykjavík var 12,2 stig í nýliðnum júlímánuði og er hann kaldasti júlímánuður í fimm ár, samakvæmt vef Veðrustofunnar. 3.8.2011 07:49
Tveir snarpir jarðskjálftar í Krísuvík Tveir jarðskjálftar, annar upp á 2,8 á Richter og hinn upp á 2,6 urðu norðaustur af Krísuvík upp úr klukkan tvö í nótt og í kjölfarið fylgdu veikari skjálftar. 3.8.2011 07:37
Ók inn í nautgripahjörð, tveir gripir drápust Ungur ökumaður slapp lítið meiddur þegar hann ók inn í nautgripahjörð á Eyjafjarðarbraut Vestri um klukkan tvö í nótt. Einn nautgripur drapst og annar var svo mikið meiddur að dýralæknir aflífaði hann á staðnum. 3.8.2011 07:28
Umferðin minnkaði um 12% um síðustu helgi Umferðin um nýliðna verslunarmannahelgi var rúmlega tólf prósentum minni en um sömu helgi í fyrra, samkvæmt talningu á sex stöðum á hringveginum út frá höfuðborgarsvæðinu. 3.8.2011 07:26
Víðines til skoðunar undir nýtt fangelsi Ríkisstjórnin skoðar nú hvort gamalt húsnæði í ríkiseigu geti nýst undir nýtt fangelsi ef ákveðið verður að reisa ekki fangelsi í einkaframkvæmd eins og hefur verið til umræðu. 3.8.2011 07:00
Þrettán milljónir ber á milli Stjórn Kvikmyndaskóla Íslands hefur óskað eftir að árlegt framlag ríkisins verði aukið úr 38 milljónum króna í 70. Í mars fór stjórnin fram á 140 milljón króna árlegt framlag, en hefur nú lækkað þá ósk. Ráðuneytið hefur boðið 57 milljón krónur árlega. Því hafnaði skólinn í júní. 3.8.2011 06:30
Ákeyrslum á sauðfé fækkar til muna Ákeyrslum á sauðfé á Vestfjörðum hefur stórfækkað milli ára að sögn Önundar Jónssonar, yfirlögregluþjóns hjá lögreglunni á Vestfjörðum. Það sem af er þessu ári hafa komið upp 44 mál þessa eðlis, en þau voru 76 talsins á sama tímabili í fyrra. 3.8.2011 06:00
Tók tvö ólögleg net með makríl Eftirlitsmaður frá Fiskistofu gerði síðastliðinn sunnudag upptæk tvö net sem lögð höfðu verið á Bíldudalsvogi. Bannað er að hafa net við strendur frá föstudagskvöldi til þriðjudagsmorguns en einnig er líklegt að þau hafi legið nær ármynni en lög gera ráð fyrir. 3.8.2011 05:30
Á skilorð fyrir myndatökur í sturtuklefum Ungt fyrrverandi par frá Húsavík hefur í Héraðsdómi Norðurlands eystra verið dæmt í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að standa saman að nektarmyndatökum af unglingsstúlkum í upphafi ársins 2010. 3.8.2011 05:00
Óvissa um áfrýjun Sólheimadóms Tvær til þrjár vikur gætu enn liðið áður en ríkislögmaður tekur ákvörðun um hvort dómi Héraðsdóms Reykjavíkur frá síðustu viku, í máli Sólheima gegn ríkinu, verði áfrýjað til Hæstaréttar. 3.8.2011 04:00
Gagnrýnir tregðu ríkisins til að styrkja Kvikmyndaskólann Kvikmyndaskóli Íslands fór fram á 360 prósenta hækkun á framlagi ríkisins í vetur - enda hafi skólinn fjórfaldast að stærð. Þráinn Bertelsson kvikmyndaleikstjóri og stjórnarþingmaður segir illa komið fyrir þjóðinni ef hún getur útskrifað 200 innheimtulögfræðinga árlega en ekki 50 kvikmyndagerðarmenn. 2.8.2011 20:30
RÚV mátti afhenda lista um umsækjendur Persónuvernd hefur úrskurðað að Ríkisútvarpinu hafi verið heimilt að miðla persónuupplýsingum um konu sem sótti um sumarstarf hjá fyrirtækinu í vor. Konan kvartaði að listi umsækjenda um sumarafleysingarstörf á fréttastofu RÚV hafi verið afhentur og birtur á helstu miðlum landsins. Það hafi ekki verið tekið fram þegar sótt var um starfið að listinn yrði gerður opinber. 2.8.2011 16:17
Næturferð Herjólfs fellur niður Mjög vel hefur gengið að flytja Þjóðhátíðargesti frá Eyjum og því verður næturferðin klukkan hálf þrjú aðfaranótt miðvikudags felld niður. Forsvarsmenn Herjólfs vilja koma því á framfæri að miðar í þessa ferð gilda í aðrar ferðir í dag og á morgun, en allir sem áttu bókað fyrir bíla í ferðinni þurfa að endurbóka. 2.8.2011 15:36
Umferðin dróst saman um 12% Umferðin um verslunarmannahelgina var að meðaltali rúmlega 12% minni en um sömu helgi í fyrra. Þessi niðurstaða fæst þegar skoðaðir eru sex talningastaðir út frá höfuðborgarsvæðinu. 2.8.2011 13:55